Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 13.03.1986, Page 4

Fréttir - Eyjafréttir - 13.03.1986, Page 4
Svanur Gísli Þorkelsson: Mest um mengttn í lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit segir eftir- farandi: 1. KAFLI. hlutverk. 1: gr. 1.1. Lögum þessum er ætlað að tryggja landsmönnun svo heilnæm lífsskilyrði sem á hverj- um tíma eru tök á að veita. 1.2 Með markvissum aðgerð- um skal vinna að þessu m.a. með því að tryggja sem best eftirlit með umhverfi, húsnæði og öðr- um vistarverum, almennri hollustu matvæla og annarra neyslu- og nauðsynjavara og vernda þau lífsskilyrði, sem fel- ast í ómenguðu umhverfi, hreinu lofti, úti og inni, og ómenguðu vatni. Ennfremur með því að veita alhliða fræðslu og upplýs- ar um þessi mál fyrir almenning. 1.3. Lög þessi ná yfir alla starfsemi og framkvæmd, sem « hefur eða haft getur í för með sér mengun lofts láðs eða lagar, að svo miklu leyti, sem það er ekki falið með sér tillögum eða al- þjóðasamþykktum. 1.4. Með mengun er átt við þegar örverur, efni og efnasam- bönd geta valdið óæskilegum og skaðlegum áhrifum á heilsufar almennings, röskun lífríkis eða óhreinkun lofts, láðs eða lagar. Mengun tekur einnig til óþæg- inda vegna Iyktar, hverskonar hávaða og titrings, geislunar og varmaflæðis. Það leikur enginn vafi á því að við íslendingar erum gæfumenn, því afdráttalausari lög um hoii- ustuhætti er vart hægt að ímynda sér, enda búum við í hreinasta og ómengaðasta landi hins vestræna heims. Vatnið okkar er flutt út til þeirra sem ekki þora að drekka vatnið úr krönum heima hjá sér og útlendingar flykkjast hingað á sumrin til að anda að sér hreinu og tæru lofti. Þetta er allavega sú ímynd sem við ósk- um eftir að landið yrði þekkt fyrir, ásamt fádæma náttúrufeg- urð. Á þessari ímynd ætlum að mala gull með síauknum ferða- mannastraumi til landsins og auka fjölbreytileika atvinnulífs- ins m.a. hér í Vestmannaeyjum. Hver hinna bakpokuðu ferða- langa myndi svo sem trúa því að stóran hluta ársins öndum við Vestmannaeyingar að okkur lofti menguðu Ammoníaki, dí og trímethylmíni, brennisteins- vetni, dímethyldsisúfíði, sarbon sísúlfíði, ethyl-mercaptani, indoli, skatoli, cadaverini, putr- escini, glycoli, ásamt fjölda ann- ara alkóhóla, hydroxy-sýrum, cresol, phenæoli, klodíoxiði, aldehvði, ketonum ásamt 20 til 30 öðrum efnasamböndum. Hver þeirra myndi ekki brosa að húsmóðurinni sem setur maga- kveisu í börnunum og sjálfri sér í beint samband við þykkan illþefj andi reykmökkinn sem smýgur inn í íbúðina á hverjum degi í margar vikur og skilur eftir sig rotnunar ólykt frá Trim- Svanur Gísli Þorkelsson. ethylaninu og oxun á mjólkur- sýrum sem sest í sófasettið, rúm- fötin og fatnaðinn. Hver myndi ekki bara skellihlæja að ungu stúlkunni sem segist hafa kúg- ast og kastað upp á göngu sinni um Friðarhöfnina, eftir að hafa andað að sér of stórum skammti af „peningalykt", eða þá trillu- karlinum sem heldur því statt og stöðugt fram að það sé stör- hættulegt fyrir hann að koma í land í vissum áttum, ekki vegna sjógangs heldur að hann sjái ekki til fyrir þéttri reykþoku sem liðast eftir sjávarfletinum og byrgir sín til allra átta. Líklega myndi allt um koll keyra þegar að heldri maður hér í bæ segði honum að hann hefði vaknað út á rúmsjó um borð í Herjólfi sem átti þá eftir háfltíma siglingu til Eyja, við gamalkunna pest fyrir vitum sér, megna og stæka. - Sennilega rynnu þó á túristann okkar brosmilda, tvær grímur þegar honum væru gerðar kunn- ar niðurstöður dýralæknisins á Egilstöðum, sem benda til þess að framleiðslan sem nefndur reykur stígur upp af er mettuð formalíni sem er kunnur krabba- meinsvaldur. Krabbameinsvalda þekkir hann frá löndum súrregns og koltvísýringseitrunar, asbetus og pólyrithans. Fyrst á listanum um starf- leyfisskyldann atvinnurekstur í reglugerð um starfsleyfi fyrir at- vinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun eru fiskimjöls- verksmiðju. Hending kann að hafa ráðið fyrir því að fiskimjöls- verksmiðjur höfnuðu fyrst á list- anum, en þess ber að gæta að þær eru fremstar í flokki af mengunarvöldum á íslandi, og reykurinn óvinsæli sem getið er hér að framar kemur einmitt frá tveimur slíkum, staðsettum hér í Vestmannaeyjum. Nú ber svo til að á næstunni verður gengið frá starfstillögum fyrir fiski- mjölsverksmiðjunnar í Vest- mannaeyjum. -í bréfi frá Holl- ustuvernd ríkisins dagsett 3. mars 1986 segir að starfsleyfi með auknum kröfum um meng- unarvarnir verði því væntanlega gefið út á árinu. -Hverjar þær kröfur verða fer væntanlega eftir því hvaða athugasemdir verða við umsóknina gerðar en þeir sem hafa rétt til athugasemda eru meðal annara, samkvæmt reglugerðinni, „íbúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengúnar". Starfsleyfisumsókn- in mun fyrst fara til heilbrigðis- nefndar Vestmannaeyja sem er nefnd skipuð af bæjarstjórn. Heilbrigðisnefnd skal sérstak- lega vinna að samkvæmt lögum, 1. Bættri heilbrigðisvernd í hér- aðinu.- 2. Bættum mengunarvörnum í héraðinu. 3. Fræðslu um hollustumál. 4. Samvinnu við önnur yfirvöld og aðila er vinna að þessum málum beint eða óbeint. í>að liggur því ljóst fyrir að ef að bæjarbúar hyggjast beita sér fyrir bættu loftslagi hér í Eyjum, verða þeir að beina áhrifunl sín- um að heilbrigðisnefnd, þess sem um starfsleyfin sækja eða bæjarstjórn. I skýrslu Heilbrigðiseftirlits ríkisins kemur fram, að auk þess að reisa háa reykháfa, þá séu eftirtaldar leiðir þær æskilegustu til lausnar á mengunarvanda þeirra verksmiðja, sem mestum óþægindum valda: 1. Þvottur á útblásturslofti í efnahreinsiturnum, af viður- kenndri gerð. 2. Brennsla lyktarefna í eldhólfi- þurrkara með svonefndri Het- land aðferð. 3. Framleiðsluháttum verði breytt og tekin upp gufuþurkun samfara brennslu lyktarefna undir gufukötlum og eyðingu þeirra £ efnahreinsiturnum. Að flestra áliti er síðast nefnda lausnin sú skynsamlegasta, en jafnframt sú kostnaðarsamasta. - Það ber vel í veiði að nú er nýafstaðið metaflaár góðæri framundan ef allar spár standast. Altént getur reynst hættuleg að reyna um of á þolinmæði og langlundageð bæjarbúa í þessum efnum, hvað þá náttúrunnar sjálfrar sem þegar er farið að svíða af ‘voldum reyksins frá „gjaldeyris skapandi" fram- leiðslu þjóðarinnar. Þar sem skýrt er kveðið á um rétt íbúa þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir óþægind- um vegna mengunar, til athuga- semda, í þar að lútandi reglu- gerð, væri ekki úr vegi að heil- brigðisnefnd, með það fyrir aug- um að uppfylla starfsskyldur sín- ar samkvæmt lögum 4. gr. 3. lið, boðaði til almenns borgarafund- ar, sem beinum hagsmunaaðil- um ásamt heilsugæslulækni og heilbrigðisfulltrúa yrði sérstak- lega boðið að sitja, og þannig komist hjá margvíslegum mis- skilningi eða að málið falli niður á svið pólitískrar togstreitu ‘þar sem það á alls ekki heima. Stórvertíkrdansleikir Vertíðin er farin að nálgast hápunkt- inn og þess vegna verða stórvertíðar- dansleikir á Skansinum um helgina. Sjómannalög verða í hávegum höfð og „sjów”mennirnir í 7und sjá til þess að allir stígi ölduna í takt. Ófeigur verður á útopnuðu og býður öllum í sjómann. Spakmæli helgarinnar: Það er „loðnu“vertíð á Skansinum líka. s, GestgJafinn J Fimmtudagur: Vertíðarstemmingin er í hámarki, síðasta fimmtudag var fullt hús og brjálað fjör. Pöbbdeildin skémmtir. Föstudagur: Bítlakvöld í síðasta skipti á Gestgjaf- anum. Borðpantanir 23* 2577. Missið ekki af góðri skemmtun. _ _ , _ — _ , _ Laugardagur: H3lft I skemmta. Ingi Gunnar mætir endurnærður eftir fríið. Það er alltaf brjálað stuð á Gestgjafanum þegar að Hálft I hvoru mætir á sviðið. Sunnudagur: l * Fjölskyldu skemmtun með ^ Hálft í fivrortJ . Sérstakur barnamatasaeðill verður á boðstólnum. Ókeypis fyrir börn yngri en 8 ára. Upplyfting fyrir alla fjöldskylduna. JVýtt - 4T

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.