Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 22.09.1987, Blaðsíða 7

Fréttir - Eyjafréttir - 22.09.1987, Blaðsíða 7
3ja ára áætlunin Viljayflrlýsing, sem þarf að endur- skoða árlega Á þriðjudaginn boðaði bæjarráð til blaðamannafund- ar þar sem nýgerð þriggja ára áætlun bæjarsjóðs var kynnt, en samkv. nýjum sveitarstjórnarlögum ber sveit- arfélögum að láta gera slíka áætlun. Arnaldur Bjarnason bæjarstjóri segir í inngangi áætlunarinnar 1988-1990. „Rétt er að leggja áherslu á að hér er fyrst og fremst um rammaáætlun að ræða sem mun taka breytingum frá ári til árs, en sé engu að síður stefnumarkandi um verkefni sem mjög hafa verið í umfjöllun hjá kjörnum fulltrúum og stjórnendum bæjar- félagsins. Áætlunin mun að líkindum auðvelda sam- skipti við t.a.m. bankastofnanir og sjóði svo sem ríkissjóð, því við samþykkt áætlunarinnar er hægt knýja á um og undirbúa fjármögnun fjölmargra verkefna sem áformuð eru á áætlunartímabilinu.“ í innganginum segir hann einnig að í gerð slíkrar áætlunar hljóti ýmsar forsendur að vera óljósar og má þar nefna óvissu um raunkostnað mannvirkja sem eru í hönnun eða hönnun ekki hafin. Guðmundur Þ.B. Ólafsson formaður bæjarráðs sagði að þessi áætlun hefði þegar komið sér vel t.d. í viðræðum við ráðherra í síðustu viku og ætti eftir að nýtast við gerð næstu fjárhagsáætlunar. „Og það kom í ljós í Reykjavíkurferð- inni að við erum eitt fárra sveitarfélaga sem höfum Iokið gerð 3ja ára áætlunar og það eina í kjördæminu.“ Páll Einarson bæjarritari sagði að áætlunina bæri frekar skoða sem viljayfirlýsingu. „Við vitum þegar um margt sem þarf að lagfæra og hnika til á milli ára. Margt getur raskað svona áætlun og bara það, að ef launahækkunin sem taka á gildi núna 1. október kemur inn með fullum þunga eru forsend- ur hennar brostnar.“ í áætluninni er ekki gert ráð fyrir breytingu á íbúafjölda á tímabilinu og gert er ráð fyrir sömu tekjum bæjarfélagsins, nema lítilsháttar hækkun á lóðarleí^utekjum. Heildar- tekjur bæjarins í ár eru tæplega 260 milljónir og innheimtuhlutfallið 82% og kom fram á fundinum að ekki er gert ráð fyrir að það breytist meö tilkomu staðgreiðslu- kerfisins. Þar séu svo margir óvissuþættir að ekki sé hægt að reikna með betra innheimtuh- lutfalli. Sigurður Jónsson sagðist fagna því að sveitarfélög þyrftu að gera slíkar áætlanir, en það minnkaði gildi þeirra að ríkið gerir ekki sambærilegar áætlan- ir. Þá kom hann inn á þann kostnað, sem bæjarfélög þurfa að standa undir til að fá t.d. kennara og hjúkrunarfræðinga til starfa og sem dæmi sagði hann að bærinn niðurgreiddi leigu á íbúðum þessa fólks um 10.000 kr. á mánuði, samtals 120.000 kr. á ári. Ragnar Ósk- arsson tók undir þetta og sagði að þetta væri eitt dæmið um það að kostnaði væri komið yfir á sveitarfélögin, en flest er þetta fólk á launum hjá ríkinu. Fjárhagsvandi Sjúkrahússins kom upp á borðið á fundinum og sögðu bæjarráðsmenn að þeir væru bjartsýnir á leiðrétt- ing fengist eftir fund með ráða- mönnum í Reykavík. Bæði að gerð yrði ný úttekt á rekstrin- um, en það fékkst viðurkennt að hann er einn sá hagkvæmasti á landinu og ríkið borgi það tap, sem þegar er orðið. Þá kom fram að launamunur er orðinn óverulegur hér og í Reykjavík, en það eru þau laun sem ríkið gengur út frá. Margt fleira kom fram hjá þeim bæjarráðsmönnum og m.a. viðurkenndu þeir að áætl- unin er byggð á bjartsýni og aðspurðir um hvaða verkefni yrðu látin sitja á hakanum, ef til kæmi, sagði Arnaldur Bjarnason, „það hljóta menn að meta í hverju tilfelli, en í skóla- og öldrunarmálum verð- um við að halda okkar striki.“ Helstu verkefni Lagt er til að álma C í 1. áfanga Hamarsskóla verði til- búin haustið 1990. Bygging norðurálmu Barnaskólans hefj- ist á næsta ári og unnið verði að breytingum á gamla skólahús- inu. Framkvæmdir við verk- námshús Framhaldsskólans hefjist einnig á næsta ári og verði að hluta tekið í notkun á árinu 1990. Þessar framkvæmd- ir eru háðar því að lögbundið (60%) framlag ríkisins fáist og gert er ráð fyrir að 5 milljónir komi árlega frá ríkinu vegna fyrri framkvæmda. Sótt verði um framkvæmda- lán hjá Húsnæðismálastofnun til byggingar leiguhúsnæðis, starfsmannaíbúða, einkum fyr- ir Sjúkrahúsið. Máli sínu til stuðnings hefur verið bent á að læknabústaðir eru ekki til í Eyjum, en út um land eru þeir í eigu ríkisins. Stefnt er að byggingu öldrun- arálmu við Sjúkrahúsið, með sjúkralaug og aðstöðu fyrir endurhæfingu. Sótt verðj um leyfi nú þegar og hefja fram- kvæmdir á árinu 1989. Á næsta ári verði hafin stækkun Hraunbúða og fram- kvæmdum lokið 1989. Sótt verði um lán hjá Húsnæðis- stofnun og þeim sjóðum sem tengjast verkefninu. Sambvggt dagvistunárheim- ili, sem í fyllingu tímans leysi Sóla af hólmi. Þá er áætlað að taka í notkun lokaðan gæslu- völl á næsta ári. Nýr íþróttasal- ur er á áætlun 1990, nýr og fullkomin brunabíll á næsta ári, hreinlætisaðstaða í Herjólfsdal o.fl. eru meðal þess sem er inn í myndinni. Bygging 9 verkamannabú- staða á ári og bygging leigu- húsnæðis eru meðal þess sem bæjarráðsmenn segja forsendu fjölgunar í bænum og verður áhersla lögð á fá fjármagn til þeirra. Helstu áhersluþættir í áætluninni er komið inn á ýmis stefnumarkandi atriði s.s heildarútekt á umhverfis- og náttúrverndarmálum, stefnt að stórbættri umgengni. Átak verði gert til að renna stoðum undir traustara og fjöl- breyttara atvinnulíf. Unnið verði að varðveislu menningar- verðmæta, hollu æskulýðsstarfi og stutt verði við félagsstarf Stjörnugjöf Þjóðviljans: ÍBV stjömu- lið 2. deildar ÍBV varð stjörnulið 2. deild- ar í stjörnugjöf Þjóðviljans í sumar. Hver leikur í 2. deild- inni fékk 1-5 stjörnur og það lið sem fékk flestar stjörnur er Stjörnulið ársins. ÍBV fékk 48 stjörnur í leikjunum 18, að meðaltali 2.66 í Ieik og í 2. sæti urðu KS og ÍBÍ með 47 stjörnur, eða 2.61 að meðaltali. f Þjóðviljanum s.I. laugardag þar sem skýrt er frá úrslitunum, segir m.a. „Stjörnulid 2. deild- ar var ÍBV. Peir nádu ekki þeim árangri sem búist var við, en léku skemmtilega og ávallt fjör í leikjum þeirra. “ Það var Sigurður Ingi Ing- ólfsson knattspyrnuráðsmaður, sem tók við verðlaununum fyrir hönd ÍBV. ÍBV átti einn leikmann í Stjörnuliði 2. deildar, Tómas Inga Tómasson. Annars varð röðin þessi: IBV KS iBl Selfoss etj leik mtt 48/182.66 47/182 61 47/182.61 45/182.50 |R 45/182.50 Víkingur 44/182.44 Leiitur 43/182.38 Þróttur 43/182.38 UBK 43/18 2 38 Einherji 42/182.33 • Á 3ja ára áætlun bæjarins er lagt til að álma C í 1. áfanga Hamarsskóla verði tilbúin haustið 1990. aldraðra. Forvarnarstarf gegn vímuefnum og fleiri almenn atriði, sem ekki koma við fjár- hag bæjarins. Svipaður rekstrarkostnaður Ekki er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður bæjarins lækki á tímabilinu, þó segir að á næsta ári sé stefnt að 5% lækkun á yfirstjórn bæjarins, sem haldist síðan óbreytt, en það kom fram á fundinum að þetta sé háð minni kostnaði við innheimtu vegna staðgreiðslu- kerfisins, en óvissa er hvort þetta stenst. Aðrir liðir eru nær óbreyttir, en 'reynt verður að ná fram hagræðingu í rekstri Áhaldahússins úr 5,6 milljón- um í 4,6 milljónir árið 1990. Fjármagnskostnaður hækkar verulega á næsta ári, úr 16 mill jónum í 19 milljónir, vegna nýrra lána (skuldbreytinga). Meira fé til félagsmála, er mætt með m.a. tekjum af hjúkrunardeild Hraunbúða, sem í ár komst inn á fjárlög ríkisins. Fleiri liðir hækka s.s aukinn rekstrarkostnaður vegna nýrra skólabygginga forstöðu Safnahúss (6%) æskulýðs og íþróttamála, en á móti kemur að vallarfram- kvæmdum íþróttafélaganna lýkur á þessu ári, en til þeirra hefur bærinn veitt einhverjum milljónum. Að lokum má geta þess að reiknað er með óbreyttu fram- lagi til niðurgreiðslu hitaorku frá Fjarhitun og er það fært sem rekstargjöld hér eftir. • Fulltrúar Stjörnuliðanna og besti dómarinn. Sigurður Ingi Ingólfsson, fulltrúi ÍBV, Guðmundur Haraldsson, dómari, og Eyjamaðurinn Birkir Kristinsson fulltrúi og leikmaður með f A sem var stjörnulið 1. deildar. Reykjanesmótið í handknattleik: ÍBV I 4. SÆTI ÍBV tapaði fyrir Breiðablik í Reykjanesmótinu, 32-27 s.l. sunnudag í leiknum um 3. sætið. Leikið var í Hafnar- firði. Jafnræði var með Iiðunum lengst af leiknum en á loka- kaflanum settu Blikar í fluggír og kafsigldu Eyjamenn. Jóhann Pétursson hjá ÍBV fór hamförum í leiknum og gerði 14 mörk. Á laugardaginn lék ÍBV æfingaleik gegn ÍR og sigraði 32-30. Þess má geta að í lið ÍBV í þessum leikjum vantaði Sig- björn Óskarsson, Sigurjón Aðalsteinsson og Jón Braga Arnarsson. 9 Jóhann Pétursson gerði 14 mörk gegn Breiðablik.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.