Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 30. janúar 1997 Fréttir 9 sýndi mér skipið hátt og lágt. Varð hann að leiða mig þó ekki væri mikill veltingur. Ég drakk kaffi með áhöfninni og þegar við vomm að fara frá Þorlákshöfn var mér boðið upp á þorramat. Þetta er allt yndislegt fólk, sama hver er þó mér finndist Sigga kokkur og kapteinninn standa upp úr. Herjólfúr er fallegt og gott skip. Mikil viðbrigði frá Stokkseyrarferðunum sem Eyjamenn urðu að sætta sig við áður farið var að sigla til Þorlákshafnar." Doddi lék sama leikinn á sex- tugsafmælinu en þá ætlaði hann upphaflega að fara í land í Þorlákshöfn og fara til Reykjavíkur. „Þá fór ég með mið-Herjólfi sem er miklu minna skip en sá Herjólfúr sem við þekkjum í dag. Þá var líka vont veður og á leiðinni til Þorlákshafnar sátum við tveir uppi í sal, ég og Oskar Matt. Ég hafði með mér eina vyiskýflösku en ég þorði ekki að bjóða Oskari snafs. Hann var á bíl og konan hans var með honunr þannig að hann hafði ekkert með áfengi að gera.“ Þegar komið var til Þorlákshafnar leist Dodda ekki meira en svo á. „Ég fór upp og ætlaði í land og til Reykjavíkur. Þegarég leit yfir staðinn fannst mér allt svo ljótt og leiðinlegt. Ég sagði við Lalla að ég ætlaði aftur til Eyja. -Ertu orðinn vitlaus, sagði Lalli en hann bauð mér frítt far til baka. Ekki tók betra við á heimleiðinni því þá hafði hann snúið sér í austan eða suðaustan og vorum við lengi á leiðinni til Eyja. Það var þó allt í lagi því ég varð ekkert sjóveikur. Ég vil nota þetta tækifæri til að koma á framfæri þakklæti til áhafnarinnar á Heijólfi, Lalla skipstjóra og Magga á Grundarbrekku fram-kvæmdastjóra.“ Fjölskyldan Þann 23. maí 1947 gekk Doddi að eiga Laufeyju Eiríksdóttur. Böm þeirra eru Þorsteinn, Kolbrún, Kristín, Eiríkur og Gunnar. Um svipað leyti keypti hann húsið að Vesturvegi 4 þar sem hann býr enn þann dag í dag. „Húsið átti að kosta 30 þúsund krónur. Ég átti þá upphæð til en þegar á reyndi vildu þau fá 45 þúsund. Var mér sagt að komið hefði tilboð í húsið upp á þessa upphæð en það reyndist ekki rétt. Eiríkur á Emmunni var mér innanhandar við kaupin. Þegar ég sagðist ekki ráða við að kaupa húsið fyrir þennan pening tók hann mig heim með sér. Þar fór hann í peningaskáp sem var fullur af seðlum. Tók hann eitt búntið, taldi úr því 15 þúsund krónur og lét mig hafa. Með þennan pening fór ég og keypti húsið.“ Árið 1953 byggði Doddi við húsið. „Það var mikið að gera hjá iðn- aðarmönnum í Vestmannaeyjum á þessum árum. Ég fékk þá í Smið til að skrifa upp á byggingaleyfið fyrir mig og vann svo sjálfúr við bygginguna þegar ég var í landi. Strákamir í Smið hjálpuðu mér reyndar við að rétta af veggi en ég sló öllu upp sjálfur. Þetta tókst og aldrei tók ég víxil,“ segir Doddi. Doddi hefur fengið sinn skammt af mótlæti í lífinu. Hann gekk undir erfiða aðgerð á baki fyrir nokkmm ámm. Hann var lengi að ná sér en með miklum viljastyrk tókst honum að rífa sig af stað. Hann á reyndar ekki auðvelt með gang en hann lætur það ekki aftra sér og fer allra sinna ferða á tveimur jafnfljótum. Laufey dó 14. desember 1992 eftir erfið og langvarandi veikindi. Þrátt fyrir þetta er hann sáttur við lífshlaup sitt þegar hann lítur til baka. „Ég get ekki verið annað,“ segir hann og þar með var það útrætt. Doddi kallar hlutina réttu nafni, á það líka til að verða nokkuð orðhvatur en undir niðri er hann drengur góður. Á hann auðvelt með að sjá skoplegu hliðina á líftnu og tilvemnni sem er kannski hans sterkasta vopn þegar á móti blæs. Ó.G. LESENDABREF - Snorrt í Betel Lestrar - og eða skilningspróf Hér að neðan færðu einfaldan texta til aflestrar. Tilgangurinn er að kanna fæmi þína til að finna aðal- og aukaatriði. Þau saman móta söguna en auðvitað máttu vísa til þeirra atriða sem henta þér hvort sem þú vísar til aðal- eða aukaatriðanna en sögunni má samt ekki breyta þvf þá því þá gerist þú sekur um brot á höfundarrétti. Sennilega fær sá hæstu einkunn sem lætur ímyndunaraflið túlka söguna sem frjálslegast og sá lægstu sem tekur söguna bókstaflega af því að Biblíuna má víst ekki skilja þannig. Það er mannlegt að skjátlast og að varðveita manngildið er mál málanna; ég tala nú ekki um „sannleikanrí' hann er svo afstæður að menn hafa ekki komið auga á hann í nokkra áratugi að ég hef ffegnað. En lesum textann: Jóh 8: 11 (til skýringar: Jóhannesarguðspjall, kafli 8 og versin 1-11) 1. En Jesús fór til Olíufjallsins. 2. Snemma morguns kom hann aftur í helgidóminn, og allur lýður kom til hans, en hann settist og tók að kenna þeim. 3. Farísear og fræðimenn koma með konu, staðna að hórdómi, létu hana standa mitt á milli þeirra. 4. og sögðu við hann: Meistari, kona þessi var staðin að verki, þar sem hún var að drýgja hór. 5. Móse bauð oss í lögmálinu að grýta slíkar konur. Hvað segir hann nú? (-innskot, í dag á víst að borgaþeim!) 6. Þetta sögðu þeir til að reyna hann, svo þeir hefðu eitthvað að ákæra hann fyrir. En Jesú leit niður og skrifaði með fingrinum á jörðina. 7. Og þegar þeir héldu áfram að spyrja hann, rétti hann sig upp og sagði við þá: Sá yðar, sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana. (innskot. „Hér hafa margir sögulok þar sem menn vilja komast undan því að svara til ábyrgðar á gjörðum sínum, með þessu er líka hægt að segja ayjatollunum að halda kj.“) 8. Og aftur laut hann niður og skrifaði á jörðina. 9. Þegar þeir heyrðu þetta, fóru þeir burt, einn af öðrum, öldungarnir fyrstir. Jesús var einn eftir, og konan stóð í sömu sporum. 10. Hann rétti sig upp og sagði við hana: Kona, hvað varð af þeim? Sakfelldi enginn þig? 11. En hún sagði: Enginn, herra. Jesús mælti: Eg sakfelli þig ekki heldur. (innskot.: Hér setja menn sögulokin af því að öllum mönnum verður á og best er að dæma engan svo vér verðum ekki sjálf dæmd, eins og þú þekkir.) Far þú. Syndga ekki framar. (Þettaeruhineiginlegu sögulok, en eru þau sanngjöm? Þurfti Jesú nú endilega að segja þetta, gat manneskjan ekki fundið það hjá sér í nálægð frelsarans hvað hún átti að gera?) Þessi saga hefur verið notuð við ýmis tækifæri í tengslum við menn og málefni og jafnvel á stundum sem hálfsannleikur - hann er eins og menn þekkja „oftast nær óhrekjandi lygi.“. Þú getur, lesandi minn, ráðið afstöðu þinni til sögunnar, það er trúfrelsi. Þú getur líka hafnað þessari sögu af því að hún hentar þér ekki. En sem sannkristinn einstaklingur tekurður fullt mark á allri sögunni og fellur þá á lestarprófi þessa mannlífs sem endumærist á lygum og farise- isma. Sannleikann þarf aldrei að leiðrétta en mannlífíð ávallt. E.S. Hvað ætli hafi orðið um konuna, skyldi hún bara hafa hætt að syndga og drýgja hór? Snorri í Betel. Bingó verður í Þórsheimilinu íkvöldkl. 20:30. Vinningar: 7000 kr. matarúttekt frá EÁ 10.000 kr. fataúttekt frá Smart Handryksuga, örbylgjuofnar og fleiri glæsilegir vinningar frá Reynistað. 5000 kr. peningapottur. HandknattleiksdeildÍBV. Aðstoð við SKATTAFRAMTÖL Undirrituð stéttarfélög munu að venju aðstoða félagsmenn sína við skattaframtöl. Félagsmenn em beðnir að koma með eftirfarandi gögn: Afrit af skattskýrslu fyrra árs. Launaseðla. Kvittanir fyrir afborgunum af lánum. Tilkynningu um fasteignamat. Hvaða ár fasteign var keypt. Skattaskýrslur verða að hafa borist til skrifstofu viðkomandi stéttarfélags fyrir lokun fimmtudaginn 6. febrúar nk. Skýrslur sem berast eftir þann tíma verða ekki afgreiddar. Ath! Ekki er aðstoðað við framtöl vegna atvinnurekstrar og umrædd aðstoð er eingöngu fvrir félagsmenn. Gjald fyrir hverja skýrslu er 500 kr. Sjómannafélagið Jötunn Verkakvennafélagið Snót Verkalýðsfélag Vestmannaeyja Verslunarmannafélag Vestmannaeyja Argangur 1952 Nú er komið oð því! Fundur verður holdinn o Lundonum íkvöld kl. 21. AAætum öll. Nefndin Loksins orðinn 22 ára og aðeins þroskaðri. Innilegar hamingjuóskir með afmælið. Þín systir Kolla. WSfíSBS: Fundur vegna árgangsmóts á Lundanum 6. febrúar kl. 20:30 Amað heilla Til hamingju með daginn, elsku mamma fagra. Þín fjölskylda.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.