Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 30. janúar 1997
Fréttir
13
- Hafa matarvenjurnar sigrað þig og
ertu tilbúin(n) til að reyna allt til að
öðlast frelsi frá binu hræðilega hömlu-
leysi í ofáti? Þá gæti 0A verið svarið.
Hefur þú ekki lengur
stjóm á því hvað þú
borðar mikið? Ertu hömlu-
laus ofæta? Borðar þú í
felum? Ferðu í ofát og
ælir? Skiptist þú á þvi að
vera í ofáti og svelti? Ertu
rekin(n) áfram af öflum,
sem þú skilur ekki, til að
borða meira eða minna en
þú þarfnast, og borða
matinn á þá vegu sem er
ekki eðlilegt? Hafa matar-
venjumar sigrað þig og
ertu tilbúin(n) til að reyna
allt til að öðlast frelsi frá
hinu hræðilega hömluleysi
í ofáti? Þá gæti OA verið
svarið. OA er skamm-
stöfún fyrir Overeaters
Anonymous og er samtök
fólks sem þarf að tak-
marka við sig át og hefúr
ekki lengur stjóm á því
hvað það borðar mikið.
Uppbygging samtakanna
er með svipuðu mynstri
og AA nema hvað í OA er
verið að taka á ofáti. OA
hefúr starfað í Vest-
mannaeyjum í nokkur
misseri. Þar er tryggð
nafnleynd og þess vegna
kemur enginn einn fulltrúi
samtakanna fram undir
nafni. Hér á eftir verður
gerð grein fyrir starfsemi
OA samtakanna til þess
að sýna þeim sem eiga við
ofát að stríða að þeir em
ekki einir með sitt van-
damál heldur geta átt sinn
stuðning í OA, ef þeir skil-
yrðislaust viðurkenna
sjúkdóminn ofát. Þessi
samantekt er unnin upp
úr gögnum frá OA.
Flestir kannast við þá hörm-
ungarsögu að hafa reynt við hvem
megrunarkúrinn á fætur öðmm, en
kílóunum að lokum fjölgað í takt við
kúrana. OA er þeirrar skoðunar að
hömlulaust ofát sé illvígur sjúkdómur,
sem ekki er hægt að lækna, eins og
margir sjúkdómar, en hægt sé að halda
í skeíjum. Áður en hömlulausar
ofætur koma í OA finnst mörgum að
þeir séu átvögl, félagsleg viðrini í útliti
eða bara veikgeðja. Hugmyndafræði
OA byggist á því að hægt sé að halda
þessum sjúkdómi í skefjum ef maður
er tilbúinn að íylgja einföldu kerfi sem
hefur reynst mjög vel fyrir óteljandi
ofætur.
OA lítur á ofát sem þríþættan
sjúkdóm. I fyrsta lagi er hann líkam-
legur, þ.e. sést utan á okkur. Með því
að sveiflast í áraraðir milli græðgi og
svelti höfum við stöðugt verið að eyði-
leggja heilsu okkar. í öðm læti er
sjúkdómurinn tilfmningalegur. Sér-
hverri tilfmningu, frá þjáningu til
fúllnægingar, er mætt með því að flýja
í huggun og algleymi matar og þetta
grefur undan tilfmningalegri heilsu
okkar. Margir koma í OA vonlausir,
þunglynd og jafnvel í sjálfsmorðs-
hugleiðingum. OA gerir fólki hins
vegar kleift að takast á við lífið eins og
það er. f þriðja lagi er sjúkdómurinn
andlegur. Andleg veikindi ofætu felast
í þeirri blekkingu að þær séu sjálfum
sér nægar. í OA er hins vegar lagt til
að ofætur viðurkenni vanmátt sinn
gagnvart mat.
OA er ekki
megrunarklúbbur
Líklega gleður flestar ofætur að
heyra að OA er EKKI megrunar-
klúbbur. Margir koma til OA og
vænta megrana, vigtana og fyrirlestra
um mat og þyngd. Svo er ekki. Matur
og þyngd em einungis einkenni
vandamálsins. OA tekur ekki afstöðu
með hvaða sé rétt mataráætlun hvorki
til að tapa né að viðhalda þyngd. OA
félagar sem hafa áhuga á að fræðast
um næringu eða sækjast eftir faglegri
ráðgjöf em hvattir til að ráðfæra sig
við sérfræðinga. OA gefur hömlu-
lausri ofætu tækifæri til að samsvara
sig með öðmm sem eiga við sama
vandamál að stríða.
Bati er mjög persónulegur fyrir
sérhvem OA félaga. Það em engar
reglur, aðeins ábendingar. Þeir sem
kjósa að ná bata einn dag í einu iðka
sporin tólf. Með því öðlast ofætur
frelsi, sem endist, frá mataráráttunni
og öðlast þannig nýtt líf.
Sporin tólf innihalda reglur sem,
þegar þeim er fylgt, framkalla innri
breytingu. Um leið og ofætur losa sig
við gömul viðhorf sjá þær að þær hafa
ekki lengur þörf fyrir umfram mat.
OA félagar nota orðtakið „aðeins í
dag" til að lýsa grundvallamálgun
batans frá hömlulausu ofáti. Auk þess
leggur OA áherslu á mikilvægi þriggja
setninga sem heyrast einnig oft utan
OA: „Taktu því rólega", „Lifðu lífinu
lifandi" og „Eitt í einu". Með því að
gera þessar setningar að gmndvallar-
atriði til vandamála daglegs lífs, er
ofætum oft hjálpað í viðleitni þeirra til
að lifa árangursríku lífi án of mikils
matar.
En þótt OA kerfið virki einfalt er
það ekki auðvelt. Að ná bata frá
hömlulausri fíkn krefst eindreginnar
áreynslu, sjálfsheiðarleika, opins huga
og fúsleika. Þetta er lykilinn.
Að ganga til liðs
viðOA
Enginn „gengur til liðs" við OA í
venjulegum skilningi þessara orða.
Það þarf ekki að fylla út neinar
umsóknir um félagsaðild. OA félagar
þurfa ekki að mæta á neinn ákveðinn
fjölda funda yfir eitthvað ákveðið
tímabil. Engin skilyrði em fyrir
félagsaðild nema löngun til að hætta
hömlulausu ofáti. Engar fjárhagslegar
skuldbindingar em af neinu tagi,
Fyrirsæturnar og tiskuheimurinn - sú ímynd sem fyrirsæturnar hafa náð að skapa um hið „ fullkomna” útlithefur fengið
margt fólk tii þess að sökkva í sæ þunglyndis. Sú falsveröld sem birtist í tískuheiminum má ekki villa fólki sýn.
Raunveruleikinn er alltannar, sem betur fer. Og þú, sem átt við ofátað stríða, ertekki einn íheiminum. Kannski er OA
lausnin fyrirþig?
aðeins er lágmarks formleg skipulagn- OA félagsskapurinn í Vestmanna- Landakirkju (gengið inn um aðaldyr).
ing og sporin tólf em hjartað í OA eyjum er með fundi á mánudags-
kerfi batans.
kvöldum kl. 20.00 í turnherbergi
SPORiU 12
1. Við viðurkennum vanmátt okkar gegn mat, og að okkur var
orðið um megn að stjórna lífi okkar.
2. Við fórum að trúa að kraftur, okkur máttugri, gæti gert
okkur andlega heilað nýju.
3. Við tókum Þá ákvörðun að gefa vilja okkur og líf Guði á
vald, samkvæmt skilningi okkar á honum.
4. Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðisleg reikningsskil
í lífi okkar.
5. Við viðurkenndum fyrir Guði, sjálfum okkur og trúnaðar-
manni í hverju yfirsjónir okkar voru fólgnar.
6. Við urðum Þess albúin að losna við allar Þessar
skapgerðarveilur með hjálp Guðs.
7. Við báðum Guð Þess í auðmýkt að losa okkur við Þessa
skapgerðarbresti.
8. Við skráðum nöfn allra Þeirra sem við höfum gert miska og
urðum fús til að bæta Þeim öllum skaðann.
9. Við bættum Þeim öllum brot okkar milliliðalaust hvar sem
Þess var kostur, nema Því aðeins að Það hefði sært Þá eða
aðra.
10. Við héldum áfram sjálfskönnun og viðurkenndum
yfirsjónir okkar umsvifalaust.
11. Við leituðumst við með bæn og íhugun að bæta vitund-
arsambandið við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum,
og báðum einungis um Þekkingu á hans vilja okkur til handa
og mátt til að framkvæma hann.
12. Eftir að hafa öðlast andlega vakningu með hjálp Þessara
spora, höfum við reynt að flytja öðrum ofætum Þennan
boðskap og iðka Þessa lífsstefnu í einu og öllu.
Aðalfundur Fiskmarkaðs
Vestmannaeyja hf.
fyrir starfsárið 1996
Verður haldinn föstudaginn 31 janúar 1997, kl. 16.00 (Akoges við Hilmisgötu.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
I .Skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár.
2. Rekstrar- og efnahagsreikningar félagsins ásamt endurskoðunarskýrslu
endurskoðanda félagsins lagðir fram til staðfestingar
3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á reikningsárinu.
4. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna og endurskoðenda síðastliðið starfsár.
5. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins og aðrar tillögur ef borist hafa.
6. Kosning stjórnar.
7. Kosning endurskoðanda sem vera skal löggiltur endurskoðandi eða
endurskoðunarfélag auk tveggja félagskjörinna.
8. Önnur mál.
Stjórn Fiskmarkaðs Vestmannaeyja hf.