Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Blaðsíða 1
MMMF MMMF MMFM Mf MM F.M M M M M M P M M Mi M, M M t
24. árgangur • Vestmannaeyjum 22. maí 1997 • 20. tölublað • Verð kr. 130,- • Sími: 481 3310 • Myndriti: 481 1293
Golf, jazx og sjóstöng á hvítasunnu
Mikið var um dýrðir í Vestmannaeyjum um hvítasunnuna. Gafst
bæjarbúum og gestum tækifæri til að taka þátt í og fylgjast með í
íþróttum á sjó og landi og mikilli jazzhátíð og myndlistarsýningu. Á
golfvellinum var háð hið árlega Flugleiðamót og samhliða því fór
fram fyrsta mótið í Islensku mótaröðinni sem gefur stig til landsliðs.
í Akóges sýndi Kristján Jórsson myndir sínar á Dögum lita og tóna.
Á laugardags- og sunnudagskvöld léku nokkrir helstu jazzleikarar
landsins ásamt Eyjamönnum. Þá fór fram Hvítasunnumót SJÓVE en
sérstaklega var til þess vandað í tilefni 35 ára afmælis félagsins. Á
myndunum eru Eyjamaðurinn Þorsteinn Hallgrímsson að pútta á
golfvellinum, íris Guðmundsdóttir að syngja í Akóges og Sveinn
Jónsson að koma í land af sjóstangveiðimótinu.
Gaffyrst á humarinn ígær:
Kvótinn losar 100 lonn
-Vil fá að sjá niðurstöður afmargra ára tilraunaveiðum í snurvoð, segir
Viðar Elíasson, sem hann telur hafa áhrif á humarveiðarnar
Humarvertíð hófst 15. maí sl. en
það var ekki fyrr en í gær að veiðar
hófust. Hafði ekki gefið á sjó í heila
viku vegna brælu. Samanlagður
kvóti Isfélagsins og Vinnslustöðvar-
innar er á bilinu 100 til 120 tonn en
menn eru hóflega bjartsýnir því illa
hefur gengið að ná kvótanum
undanfarin tvö ár.
Friðrik Már Sigurðsson, útgerðar-
stjóri ísfélagsins, sagði í gær að einn
bátur frá þeim, Alsey VE, væri á
humar. Kvóti ísfélagsins er 19 til 20
tonn af skottum. „Það er búið að vera
vitlaust veður frá þvf vertíðin byrjaði
og er það fyrst í dag sem hægt er að
vera að. Ég frétti af Alsey í morgun og
þá voru þeir búnir að fá hálft tonn af
skottum.,“ sagði Friðrik.
Viðar Elíasson, framleiðslustjóri
Vinnslustöðvarinnar, sagði að sjö
bátar legðu upp humar hjá þeim í
sumar og kvóti þeirra væri á bilinu 80
til 100 tonn. Bátamir eru Björg VE,
Skúli fógeti VE, Narfi VE, Surtsey
VE, Haföm VE, Trausti ÁR og von er
á einum bát að vestan. „En þetta er
kvóti sem ekki hefur náðst undanfarin
ár,“ sagði Viðar og vill hann m.a.
kenna um veiðum í snurvoð. „Það vill
svo til að tilraunaveiðar í snurvoð hafa
staðið í ein tíu eða fimmtán ár. Ég vil
fara að sjá niðurstöður úr þessum til-
raunaveiðum og sjá hvaða tegundir er
verið að drepa. I Eyjum virðist enginn
hafa áhyggjur af þessu en sitt sýnist
hverjum. En hjá okkur skapar
huntarinn 40 til 50 störf sem er á við
hálft álver,“ sagði Viðar.
Lifnar yfir úthafskarfanum
Eftir rólega byrjun hefur lifnað yflr veiðum á úthafskarfanum á
Reykjaneshrygg. Breki VE hefur landað einu sinni 120 tonnum og er
væntanlegur úr annarri veiðiferðinni um helgina.
„Ég hef fréttir af því að Breki hafi fengið 70 tonn í þremur hölum. Verður
hann í landi um helgina,“ sagði Viðar Elíasson. Hann sagði að unnið væri að
því að fá fleiri skip til að landa hjá Vinnslustöðinni f sumar. Sindri, sem
Vinnslustöðin á með Færeyingum. kemur á rnorgun til að taka veiðarfæri og
umbúðir áður en haldið verður á Reykjaneshrygginn.
Náttúrustofa Suðurlands
vígð á laugardaginn
Um leið verður haldin námsstefna um umhverfismál
Náttútúrustofa Suðurlands stendur
fyrir námsstefnu í umhverfismálum
á laugardaginn og sama dag verður
stofan formlega vígð.
Til námsstefnunnar er boðið öllum
sveitarstjómarmönnum á Suðarlandi
og er ætlunin að fara ofan í kjölinn á
þeim breytingum sem orðið hafa í
umhverfismálum á Islandi á undan-
fömum árum og reifa umhverfissýn
umhverfísmála.
Þetta kemur fram í tilkynningu um
námsstefnuna en þar mun mikill fjöldi
landsþekktra fyrirlesara flytja erindi.
Víða verður komið við og er
greinilega um athyglisverða náms-
stefnu að ræða. Námsstefnunni lýkur
svo með vígslu og forntlegri opnun
Náttúrufræðistofu Suðurlands sem er
til húsa í Rannsóknasetri Háskólans.
Forstöðumaður er Ármann Höskulds-
son.
Nítján íbúar við Vesturveg:
VNja einstefnu
Nítján íbúar við Vesturveg hafa sent bæjarráði bréf þar sem þeir óska þess
að götunni verði breytt í einstefnuakstursgötu.
í bréfinu er sagt að mörg rök mæli með breytingu á umferð, m.a. mjög mikil
umferð um götuna, mengun henni samfara og hraðakstur sem sé einkum
hættulegur bömum. „Vonurn við að þetta mál verði ekki látið bíða þar til stóra
slysið verður," segja íbúamir en erindinu var vísað til skipulagsnefndar.
YGGI
IR
LD.UNA
amálain
gilegan
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 48132
m
Sumaráœtlun
Alla daga
Aukaferöir eru á:
Fimmtu-.föstu- og sunnudögum Kl: 15:30
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Kl. 08:15 Kl. 12:00
Kl: 19:00
‘Uerjólfur
BRUAR BILIÐ
Sími 481 2800 Fax 481 2991