Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Blaðsíða 6
6 Fréttir Fimmtudagur 22. maf 1997 SPUBT&SVARAÐ: Nú styttist í stóru stundina? Halldór Halldórsson, tenór ( Samkór Vestmannaeyja: „Já, nú er aðeins rúm vika í sannkallaðan stórviðburð í Vestmannaeyjum þarsem báðir kórarnir, Samkór Vestmannaeyja og kór Landakirkju, sameinast í þessu stórkostlega verki, Pákumessu Haydns, ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands. Ég er mjög hlynntur því að tekist verði á við fleiri verkefni í þessum dúr í framtíðinni. Það er virkilega gaman og þroskandi að fá tækifæri til að kynnast þessum heimi tónlistarinnar. Ekki er verra að þetta eru góðir félagar og léttur andi svífur yfir vötnum. Því er ekki að neita að fiðringur er kominn í mannskapinn en æfingar hafa staðið yfir frá því um áramót, tvisvar í viku, undir frábærri stjórn Guðmundar H. Guðjóns- sonar. Fólk er að leggja mikið á sig. Ég hvet alla bæjarbúa til að mæta á tón- leikana 31.maínk.“ Sinfóníuhljómsveit íslands heimsækir Vestmannaeyja 31. maí nk. og heldur tónleika ígamla Samkomuhúsinu ásamt Samkór Vestmannaeyja og kór Landakirkju. Undirbúningur er nú á lokastigi. fil FRVFRKRMin lAK '■'gLER ■ ■ Samvebk ehf. [T??1 Elsta glerverksmiðja á íslandi Söluumboð í Eyjum (Erum með einfalt gler á lager) Drangur ehf. Strcmdvegi SO Cengið inn að norðan Sími 481-3110 og 481 -3120 • Fux 481-3109 Heimas. Kristján 481- 1226 og 481-1822. Þórólfur 481-2206 LAMEIi & HUSEY rr HÚSEV BYGGINGAVÖRUVERSLUN VESTMANNAEYINGA Ráðningarsamningur bæjarstjórans í Eyjum og laun í samanburði við aðra bæjarstjóra: Hefvr um 400 þús, kr, á mánuði - Blaðinu neitað um lista yfir nöm og laun 20 launabæstu starfsmanna bæj- arins og hefurþað vísað málinu til úrskurðmnefndur upplýsingamála Að undanfórnu hafa verið úbcrandi í fjölmiðlum laun og ráðningar- samningar bæjarstjóra í landinu. En hvernig er ráðningarsamningur bæjarstjórans í Eyjum, Guðjóns Hjörleifssonar í samanburði við koliega hans á landsbyggðinni? Fréttir fengu afhentan hjá bæjar- ritara ráðningarsamning bæjar- stjóra og laun hans og þar kemur í ljós að laun bæjarstjóra eru um 400 þúsund kr. á mánuði. Auk þess fór blaðið fram á að fá lista yfir nöfn og laun 20 launahæstu starfsmanna bæjarins auk ráðningarsamninga þeirra sem hafa gert slíka sanminga við bæinn og eru á meðal 20 launa- hæstu starfsmanna bæjarins. I svari bæjarritara er þeirri beiðni blaðsins hafnað og vísað í samþykkt bæjar- stjórnar frá 1992 um að ekki skuli birta laun einstakra starfsmanna bæjarins opinberlega. FrÉttir hafa vísað málinu til úrskurðarnefndar upplýsingamála til að fá úr því skorið hvort blaðið eigi rétt á þessum upplýsingum. I ráðningarsamningi við bæjarstjóra kemur fram að laun bæjarstjóra skulu miðast við launaflokk T-13 sam- kvæmt viðmiöunartöflu auk 43 klst. yfirvinnu á mánuði. Bæjarstjóra skulu greidd sömu laun fyrir fundasetur eins og kjömum bæjarfulltrúum í bæjaiTáði og nefndum. Verði ekki urn endur- ráðningu að ræða að loknu ráðn- ingartímabili, sem ertil loka kjörtíma- bilsins 1998, skal bæjarsjóður greiða full 6 mánaða laun, þar af gegni bæjarstjóri störfum í allt að 3 mánuði óski bæjarstjórn eftir því. Þá greiðir bæjarsjóður allan símakostnað og iðgjöld slysatrygginga. Að síðustu greiðir bæjarsjóður bílastyrk, 860 km á mánuði sem er 30.229 kr. Laun bæjarstjóra eru sem hér segir: Föstmánaðarlaun kr. 206.014,- Föstyfirvinna, 431. ntán. kr. 96. 836,- Orlofá yfirvinnu kr. 10.313,- Bílastyrkur, 860 km./mán.kr. 30.229,- Samtals kr. 343.393 Að auki fær bæjarstjóri greitt fyrir setu á nefndafundum en það er mjög breytilegt á rnilli mánaða. Núverandi bæjarstjóri er jafnframt kjörinn bæjar- fulltrúi og fær sem slíkur greitt fyrir setu í bæjarstjóm 32.918 á mánuði og í bæjarráði kr. 21.945. Heildarlaun bæjarstjóra, að með- töldum nefndarlaunum fyrir bæjarráð og bæjarstjórn. eru þvú samtals 398.256 kr.. Auk þessa er símakostn- aður greiddur og iðgjöld slysatrygg- inga ásamt því að bæjarstjóri situr í fleiri nefndum og fær því einnig greitt fyrir það. Samanburður við aðra bæjarstjóra I úttekt í Degi-Tímanum á launum bæjarstjóra kemur fram að flestir hafa þeir á bilinu 300 til 500 þúsund kr. á mánuði í Iaun. Nær undantekninga- laust er launum skipt í grunnlaun eða dagvinnu og fasta yfirvinnu. Lang- flestir bæjarstjórar fá greiddan bílastyrk, nær allir fá greiddan kostnað við heimasíma, sex bæjarstjórar af 23 fá greidda risnu en ekki í Eyjum. í samningum við flesta bæjarstjóra er kveðið á um 3 til 6 mánaða biðlaun. Bæjarstjórinn á Akureyri hefur samið um vaxtalaus lán til bílakaupa eins og forveri hans. Bæjarstjórinn á Siglufirði greiðir 1000 kr. fyrir síma og húsnæði á mánuði. Samkvæmt úttektinni eru bæjar- stjóralaun mjög breytileg. Fer það mikið eftir því hvort þeir fá sérstak- lega greitt fyrir fundarsetu eða ekki. Á toppnum á listanum trónir bæjarstjórinn á ísafirði, með rúm 530 þúsund en hann fær ekki greitt sérstak- lega fyrir nefndarsetu. Akureyrar- bæjarstjórinn fær samtals 475 þúsund, þar af 95 þúsund fyrir setu í bæjarstjóm og bæjarráði. í 3. sæti er bæjarstjórinn á Selfossi með 459 þús. en ekki greitt sérstaklega fyrir nefnd- arsetu. Bæjarstjórinn í Kópavogi er í 4. sæti með 436 þúsund þar af 97 þúsund fyrir bæjarstjórnar- og bæjar- ráðsfundi. Síðan koma nokkrir í hnapp eins og bæjarstjórinn í Vestmanna- eyjum og Hafnarfirði með tæp 400 þúsund þegar búið er að bæta við bæjarráði og bæjarstjóm. Athygli vekur að borgarstjórinn í Reykjavík er með 380 þús. á mánuði og fær ekki greitt sérstaklega fyrir fundarsetu. Sniglabandlð tekur lagið fyrir eldri borgara Hinn landskunna gleðisveit, Sniglabandið, kennt við íslensku bifhjólasamtökin, spilaði á dansleik í Eyjum um hvítasunnuna. Einn dyggasti aðdáandi hljómsveitarinnar er Magnea Bergvinsdóttir sem þykir nú ekki beinlínis vera unglamb en er engu að síður ung í anda. Hún gerði sér lítið fyrir og bauð hljómsveitinni heim í mat og bað þá um að taka lagið fyrir eldri borgara á Hraunbúðum. Sniglabandið brást vel við þeirri ósk og spilaði nokkur lög á Hraunbúðum við góðar undirtektir. Magnea sagði í samtali við Fréttir að einn hlj ómsveitarmeðlima SnigJabandsins væri kvæntur barna- bami sínu. „Þetta eru allt vinir mínir, léttir og skemmtilegir strákar. Fólkið var mjög lirifið af tónlistinni þeirra og þetta var skemmtileg tilbreyting,“ sagði Magnea. Verðkönnun Neytendasamtakanna: Eyjaverslanir 28-35% hærrí en Bónus í Holtagórðum Verðmunur milli landsbyggðar- og iágvöruverðsverslana í þéttbýli hefur minnkað samkvæmt verð- könnun Neytendasamtakanna og koma verslanirnar í Eyjum þokka- lega út Bónus í Holtagörðum er með lægst vöruverð á landinu en KEA nettó á Akureyri er næst, með sjö prósent hærra verð. KA búðimar í Eyjum eru með 28% hærra verð en Bónus í Holtagörðum eins og reynd- ar KA Selfossi. Vömval er hins vegar með 35% hærra verð. Frá því í nóvember hefur verð í lágvöru- verðsverslunum (stómtörkuðum) að jafnaði hækkað um 5.2% en þar sem áður var hæst verð, í minni versl- unum á landsbyggðinni, hefur verð færst niður um 2.5% að jafnaði. Meðalverð allra vöruflokka hefur lækkað um 1.1%. Kannað var verð í 54 verslunum og skráðir 154 vöm- flokkar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.