Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 22. maí 1997 Fréttir 11 « viðskiptavinaríns abrir og hirða hann frá okkur hagræðingu til að standast sam- keppnina og svo verða viðskiptavinir ekki fyrir óþægindum eins og verið hefur á meðan verið er að fylla í hillumar. „Þú spyrð einnig að því hvort við séum að segja upp samningum við heildsala í Vestmannaeyjum. Eins og áður hefur komið fram þá rekum við innkaupafyrirtækið Búr í samstarfi við aðra og höfum verið að færa innkaupin til þeirra undanfarið ár. Höfum við tilkynnt öllum okkar heild- sölum, ekki bara í Vestmannaeyjum, að við munum alfarið láta Búr sjá um okkar innkaup, þar sem við á, frá og með næstu mánaðamótum. Þetta þýðir þó ekki að öllum viðskiptum verði hætt þar sem Búr verslar ekki með alla vöruflokka. Þá hef ég heyrt sögur um að við værum að segja upp eldra fólki en það er rangt. Við höfum ekki verið að láta eldra fólk víkja fyrir yngra. Ef við höfum þurft að segja upp fólki sem er að nálgast lffeyrisaldur höfum við gert við það sérstaka starfslokasamninga sem ég held að hafi verið þeim hagstæðir," sagði Þorsteinn. mt halda sínum sérkennum og Þar fyrir utan er alltaf verið að skoða hvaða starfsmenn henta hér eins og annars staðar.“ Einn liðurinn í þessum breytingum er áfylling í verslunum félagsins. ,J>að er nokkuð síðan við tókum upp nýtt kerfi á Selfossi sem hefur gefist vel. Verið er að koma því á á Hellu og Hvoslvelli og nú erum við að skoða hvort það muni henta í Vestmannaeyjum. Kerfið byggist á því að vöruáfylling fer fram eftir lokun. Það má segja að um verktakavinnu sé að ræða en oftast eru það starfsmennimir sjálfir sem taka þetta að sér. Þetta er einn liðurinn í Erum lítið i fram- leiðslu á matvöru Eitt sem Eyjamenn hafa fundið að rekstri KÁ er að í dag er hér engin kjötvinnsla og allt skrifstofuhald og bankaviðskipti hafi flust á Selfoss. Við þetta hafi störf flust héðan á Selfoss. Þorsteinn segir að þetta sé bara ein af þeim breytingum sem orðið hafi í rekstri matvöruverslana á undanfömum ámm. „í dag eru matvöruverslanir hættar að reka kjötvinnslur. Sjálfir emm við lítið í framleiðslu á matvöm en við pökkum talsvert í neytendapakkningar. Um bankastarfsemina get ég bara sagt: Hvaða fyrirtæki á pening í banka? Eg held að það væri nær að spyrja, hvar em skuldimar? Við erum með ýmis bankaviðskipti bæði í íslandsbanka í Vestmannaeyjum og Sparisjóði Vestmannaeyja og höfum fengið fyrirgreiðslu þar. Veltan hér í Vestmannaeyjum er um 450 milljónir á ári, stöðugildi em 35 og heildar- launagreiðslur 52 milljónir. Ég geri ráð fyrir að fólkið noti launin hér í Eyjum.“ Það fer ekki fram hjá neinum sem komið hefur í Kjamann á Selfossi að þar er ein glæsilegasta matvömverslun landsins og standast verslanimar í Vestmannaeyjum engah veginn samanburð við hana. Með þetta hafa Vestmannaeyingar verið óánægðir og húsmæður kvarta yfir lítilli fjölbreytni í kjötborðinu á Tanganum. Þorsteinn segir að við þessu sé erfitt að gera. „Það er Ijóst að þó Tanginn sé önnur stærsta verslun KÁ þá er veltan þar ekki nema fjórðungur af veltunni í Kjamanum á Selfossi sem er 4. stærsta verslun sinnar tegundar í landinu. Málið er, að margar matvöruverslanir hafa hætt að vera með kjötborð af því að það borgar sig ekki. Við verðum áfram með kjötborð á Tanganum og ætlum að reyna að gera betur. En til þess að geta gert betur þurfum við að fá fólk í lið með okkur og hvet ég viðskiptavini til að koma með ábendingar. En þegar kemur að því að bera saman verslunina á Selfossi og í Eyjum verður samanburðurinn að vera sanngjam. Við gerum það sem viðskiptavinurinn vill annars fer hann annað. Það er mitt verk að sjá til þess að brugðist sé við kröfum fólksins og við þurfum á öllu okkar að halda til að halda okkar hlut. Og við gemm okkur fulla grein fyrir því að það er alltaf dýrara að afla nýrra viðskiptavina en að halda í gamla.“ Sama verð í öllum verslunum Það er yfirlýst stefna KÁ að bjóða sama verð í öllum verslunum, sama hvar þær eru á Suðurlandi og segir Þorsteinn að það hafi tekist að mestu leyti. „Það getur verið einhver munur frá degi til dags en í heildina er verðið það sama. Þú spyrð að því hvemig þetta sé hægt? Auðvitað er flutnings- kostnaður hærri til Vestmannaeyja en t.d. á Selfoss en flutningskostnaður vigtar orðið minna í vöruverði. Það em miklu fleiri þættir sem þama spila inn í eins og t.d. kostnaður við húsnæði." Leitum til heima- manna um minni verk Þorsteinn var næst spurður að því hvaða reglur giltu þegar KÁ leitaði eftir þjónustu fýrir félagið. „Þegar um KA moi stærsta samvinniHélagii Þegar þróun KÁ er skoðuð á und- anförnum tveimur árum minnir það á margt á það sem gerst hefur í sjávarútvegsfyrirtækjunum í Vestmannaeyjum. Eignir hafa verið seldar og er salan á Bygg- ingavöruversluninni Húsey eitt dæmi um það. Alls hafa 32 eignir og þjón- ustufyrirtæki verið seld en um leið hefur félagið fært út kvíamar og er nú með matvöruverslanir um allt Suður- landsundirlendið, í Vestmannaeyjum og í Reykjavík þar sem KÁ er 50% hluthafi í 11 - 11 búðunum. Þrátt fyrir að KÁ hafi dregið sig út úr rekstri á ýmsum sviðum hefur velta félagsins tvöfaldast á þessum tveimur ámm. KÁ er annað stærsta samvinnufélag landsins með 4700 félaga í 29 deildum. Aðeins KEA er fjöl- mennara. í deildinni í Vestmanna- eyjum em 545 félagar í dag. Launagreiðsiur KÁ á síðasta ári voru 510 milljónir en stöðugildi em alls 350. í veltu og starfsmannafjölda er KÁ eitt af stærstu fyrirtækjum á Suðurlandi. Það er heldur stærra en ísfélagið en vantar talsvert upp á að ná Vinnslustöðinni. Miðað við þróun undanfarinna ára er ekkert óeðlilegt við það að KÁ skuli hafa numið land í Vest- mannaeyjum. Hefði KÁ ekki komið hefðu aðrar verslunarkeðjur ömgg- lega náð að skjóta hér rótum. Hvort það hefði verið hagkvæmara fyrir Vesunannaeyjar er ómögulegt að segja til um en það er Eyjamanna sjálfra að sjá til þess að KÁ-menn haldi vöku sinni og bjóði hagstæðasta verð hveiju sinni. KÁ er meðvitað að festa sig í sessi í bæjarfélaginu. Á leik ÍBV mátti sjá fána félagsins á Hásteinsvelli og þess má geta að KÁ er aðalstyrktaraðili kvennafótboltans, bæði í meistara- flokki og yngri flokkunum stærri verkefni er að ræða eru þau boðin út eins opið og hægt er en ef um minni verk er að ræða leitum við til aðila á hverjum stað. Við buðum út málningu á Kjamanum en það verk var upp á 3 til 3,5 milljónir en þegar Tanginn er málaður leitum við til iðnaðarmanna í Eyjum. Eyjamenn eiga alla möguleika á að bjóða í verk hjá okkur eins og aðrir og ég væri bara ánægður ef þeir næðu verkefnum hjá okkur í útboðum. Enda höfum við átt gott samstarf við Vestmannaeyinga á ýmsum sviðum. Við vorum fyrstir til að kynna 200 mflumar fyrir Vinnslustöðina. Það gerðum við í öllum verslunum okkar á Suðurlandi og eram við stoltir af því hvað þetta er orðin góð söluvara. Vonandi eigum við eftir að hafa samstarf við ykkur á fleiri sviðum þar sem báðir gætu haft af því hag. Dagvöraverslun er okkar fag og þar ætlum við okkur stóra hluti en við ætlum ekki að valtra yfir einn eða neinn. Við geram okkur alveg grein fyrir því að ef við stöndum okkur ekki kemur einhver og hirðir af okkur markaðinn," sagði Þorsteinn. Ó.G. (§0 ^st/m/m/meyjafœÆ Innritun 6 ára barna Foreldrar eða forráðamenn barna sem fædd eru 1991 eru minnt á að innrita þarf þau 6 ára börn, sem hefja eiga skólagöngu í grunnskólum Vestmannaeyja næsta haust. Innritun fer fram í báðum skólunum mánudaginn 26. maí nk. kl. 13 -15. Skólamálafulltrúi. Foreldrar grunnskólabarna! Athugið að nauðsynlegt er að tilkynna flutning nemenda milli skólahverfa, hvort sem um er að ræða innanbæjar í Vestmannaeyjum eða á milli sveitarfélaga. Vinsamlegast látið viðkomandi skóla vita fyrir skólalok í haust. Skólamálafulltrúi. Skilið verkfærum vinnuskóla Þeir sem hafa fengið verkfæri frá vinnuskólanum að láni, eru vinsamlegast beðnir um að skila þeim strax. Hafið samband við undirritaðan sem fyrst. Verkfæri vinnuskólans eru auðþekkjanleg, enda merkt með appelsínugulum lit. Það væri vel þegið, að þeir hefðu einnig samband, sem telja sig geta bent á verkfæri í eigu vinnuskólans. Fundur með flokks- stjórum vinnuskóla Fundur verður haldinn með flokksstjórum vinnuskóla, föstudaginn 30. maí nk. og verður fundurinn haldinn í Félagsheimilinu kl. 16.00. Fyrri önn vinnu- skóla hefst 2. júní nk. Mánudaginn 2. júní verður raðað niður í hópa vegna fyrri annar í vinnuskólanum. Mæting er við Barnaskólann kl. 13. Daginn eftir hefst starfsemin. Tómstunda- og íþróttafuIItrúi.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.