Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Qupperneq 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 22. maí 1997
Landakirkja
Sunnudagur 25.5.
14.00 Fenningarguðsþjónusta
20.00 KFUM&K Landakirkju
- Unglingafundur
Þriðjudagur 27.5.
14.00 Útför Björgvins Pálssonar
ATH! Fimmiudag 29. til lau-
gardags 31. verða haldnir
Vordagar Landakirkju fyrir
börn á aldrinum 6-10 ára (sjá
fréttatilkynningu).
Hvítasunnukirkjan
Fimmtudagur
20.30 Biblíulestur
Föstudagur
20.30 Unglingasamkoma
Laugardagur
20.30 Brotning brauðsins
Sunnudagur
15.00 Hátíðarsamkoma
Fjölbreyttur söngur og lifandi orð.
Hjartanlcga velkomin!
Aðventkirkjan
Laugardagur 24. maí
Kl. 10.00 Biblíurannsókn
Allir velkomnir
Baháí samfélagið
Opið hús að Kirkjuvegi 72B, fyrsta
föstudag hvers mánaðar kl. 20:30.
Allir velkomnir. Heitt á könnunni
Vordagar
LandO'
Idrkjy
- sumarbúðir í bæ
Fimmtudaginn 29.5. til laugar-
dagsins 31.5. verða haldnir hinir
árlegu Vordagar Landakirkju.
Eru þeir ætlaðir börnum á
aldrinum 6 til 10 ára og standa
fyrir hádegi alla dagana. Leikir,
söngvar, fræðsla um Jesú, ferð út
í náttúruna og útigrill verða
meðal dagskráratriða.
Umsjónarmenn Vordaga eru
prestamir báðir auk nokkurra ungra
leiðtoga úr æskulýðsstarfi KFUM
& K.
Þátttaka er ókeypis en fjöldi tak-
markast við 70 böm. Innritun í
safnaðarheimilinu föstudaginn 23.
maí milli kl. 13.00 til 16.00 í síma
481-2916.
Smá
Barnapössun
óska eftir að passa börn í sumar. Er
tólf ára og hef sótt fóstrunámskeið
Rauða krossins. Sími 481 -2675.
Bíll til sölu
Til sölu er Galant 1986, dísil.
Sjálfskiptur. Þarfnast viðgerðar.
Verð kr. 25 þúsund. Uppl. í síma
481 -1546 og 481 -1533 (Addi Bald)
Reiðhjól óskast
Oska eftir að kaupa kvenmanns
reiðhjól, fullorðins.
Upplýsingar í síma 481-1488 og
481-1505 (Erna).
Golf • Tvö stórmót um síðustu helgi
Feðgar og
frændur
i aðalhlutverki
Það var mikið um að vera í goliinu
um helgina. Tvö stórmót og á annað
hundrað keppendur sem mættu til
leiks. Fyrra mótið var fyrsta mótið í
Islensku mótaröðinni en árangur
þar gefur stig til landsliðs. Spilaðar
voru 54 holur, 36 á laugardag og 18
á sunnudag.
Arangur hefur oft verið betri en stíf
austanátt setti mark sitt á spila-
mennskuna, sérstaklega þó á
laugardag.
Þessir urðu efstir:
1. Björgvin Sigurbergsson GK 232 högg
2. Þorsteinn Hallgrímsson GR 233 högg
3. Sigurður H Hafsteinss. GR 234 högg
4. Örn Ævar Hjartarson GR 235 liögg
Eyjamaðurinn Þorsteinn Hallgríms-
son, sem nú hefur gengið til liðs við
Golfklúbb Reykjavíkur. lék síðasta
hringinn mjög vel, á 71 höggi, einu yfir
pari og tryggði sér þar með annað
sætið. Tveir kyltingar frá GV tóku þátt
í mótinu, þau Örlygur Helgi Grímsson
og Kolbrún Sól Ingólfsdóttir og stóðu
sig vel þótt ekki lentu þau meðal þeirra
efstu.
„Ég steig smá feilspor af og til og
náði mér vel á strik í síðasta hringnum
en klúðraði þessu á næstsfðustu hol-
unni. Það var erfitt að spila í rokinu
sem reyndar hefur alltaf hentað mér
ágætlega. I roki reynir mest á útsjón-
arsemi og þor, að treysta sér til þess að
taka fífldjarfar ákvarðanir. Ég þori því
enda er ég léttruglaður og er því sterkur
í svona móti," sagði Vestmannaeying-
urinn Þorsteinn Hallgrímsson GR sem
Nesklúbburinn í heimsókn
Nk. laugardag koma félagar úr Nesklúbbnum í heimsókn og
verður keppt samkvæmt reglugerð GV og Nes.
Aríðandi er að félagar skrái sig til keppni og ekki síðar en kl.
21.00 í kvöld, fimmtudag.
Mótið hefst kl. 13.00 á laugardag og að því loknu verður slegið
á létta strengi með borðhaldi og skemmtiatriðum sem hefjast
kl. 21.00.
Golfklúbbur Vestmannaeyja
Skokkarar athugio
Lítill hópur hlaupara, sem stefnir að þátftoku í
Reykjavíkurmaraþoni 24. ágúst nk., æfir saman tvisvar i
viku. Hist er á Hressó og lagt af stað í skokk kl. 18
mánudaga og fimmtudaga. Allir eru velkomnir að vera
með, hvort sem þeir stefna á þátttöku í
Reykjavíkurmaraþoni eða ekki.
r ~Bóðskort á ~l
málverkasýningu
Eg held mína fyrstu eiulíasvuiugu í
Vestniaimaev jmn dagana
29. maí - 2. júni í Akógeshúsinu.
Opið: íimmtud. 29. maí ld. 20-22.
föstudag 30. maí ld. 14-22
laugard. 31. mai kl. 14-22
sunnudag 1. júní kl. 10-22
mánudag 2. júní Id. 14-22
Allir velkomnir.
Viðar Breiðfjörð
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi
BJÖRGVIN PÁLSSON
lést 19. maí á Hraunbúðum.
Jarðarförin ferfram frá Landakirkju þriðjudaginn 27.
maíkl. 14.00 (tvö).
Böm, tengdaböm, bamaböm og bamabamaböm
lenti í 2. sæti.
Um helgina fór fram hið árlega
Flugleiðamót, fyrsta opna mótið á
sumrinu í Vestmannaeyjum. Alls liófu
54 keppendur leik f þessu tveggja daga
móti en veður hamlaði því að menn
sýndu sínar bestu hliðar, austanþræs-
ingur og fremur kalt. Sérstök verðlaun
voru fyrir að vera næstur holu í upp-
hafshöggi á öllum par 3 brautum og
hlutu þau verðlaun Hallgrfmur Júl-
íusson GV, Vignir F. Agústsson GO,
Magnúsína Ágústsdóttir GV, Davíð
Vilhjálmsson GR og Guðni Grímsson
GV. Með forgjöf varð röð efstu þessi:
1. Vignir F. Ágústsson GO 135 högg
2. Styrmir Jóhannsson GV 139 högg
3. Jón Gústaf Pétursson GG 144 högg
Án forgjafar urðu þessir efstir:
1. Haraldur JúlíussonGV 150högg
2. Júlíus Hallgrímsson GV 160 högg
3. Hallgrímur Júlíuss. GV 161 högg
Haraldur lék mjög vel seinni daginn,
eða á 71 höggi. einu yfir pari vallarins,
nákvæmlega eins og Þorsteinn frændi
hans daginn áður og má segja að þeir
feðgar og frændur hafi átt helgina.
Verðlaun vom öll gefin af Flugleiðum.
utanlands- og innanlandsferðir.
Hafa skal það sem sannara reynist
Vegna fréttar sem birtist í blaðinu Fréttum í síðustu viku undir fyrirsögninni „Vafasöm peningasöfnun"
vill líknarfélagið FORVARNIR GEGN FÍKNIEFNUM taka fram eftirfarandi:
Sjálfboðaliði á vegum FGF var í Vestmannaeyjum seinnihluta mánudags 12. maí til að veita viðtöku
fijálsum framlögum hjá nokkrum fyrirtækjum og einstaklingum. samtals 16 aðilum sem leitað hafði verið
til með símtölum. Maðurinn var rækilega merktur líknarfélaginu og með merki þess í barminum. kynnti
sig sem starfsmann FGF og afhenii öllum kvittun. stimplaða af FGF. Engin húsaganga til söfnunar fór
t'ram og aldrei minntist maðurinn á ÍBV við störf sín.
Rétt er að hringt var til skrifstofú IBV og leitað eftir samstarfi um að fá unglinga innan íþróttafélagsins
til að dreifa bæklingum í hús og taka móti framlögum ef einhver yrðu. 4-5 vinsamleg samtöl fóru fram
við starfsmann ÍBV um málið sem lauk með því að ekki tókst að fá sjálfboðaliða til starfsins. Okkur þykir
það sárt ef viðkomandi starfsmaður hefur orðið fyrir óþægindum vegna þessa máls því að hann var okkur
mjög vinsamlegur.
Það að upp kom misskilningur um að við söt'nuðum í nafni ÍBV má kannski rekja til þess að kona
(sjálfboðaliði), sem hringdi til Eyja fyrir okkur í leit að framlögum og kynnti sig í upphafi símtals og
sagðist hringja fyrir FGF, hafði veður af því að við væntum samstarfs við ÍBV. Konan mun hafa orðað
það svo ílok símaræðu sinnar að ef fólk kærði sig um. kæmi til þess sjálfboðaliði frá FGF eða jafnvel ein-
hver frá IBV og nálgaðist framlögin ef það þætti hentugur greiðslumáti. öm ca. 30 símtöl var að ræða
allt í allt. Harmar konan mjög ef hún hefur valdið misskilningi eða sært einhvem.
Um kl. 23 á mánudagskvöld 12. maí kom sjálfboðaliðinn okkar á hótel í Eyjum og baðst gistingar um
nóttina. Hann átti pantað far með Heijólfi morguninn eftir. Afgreiðslumaður var beðinn um að láta vekja
kl. 7.30 morguninn eftir til að hann næði skipinu og skrifaði hann það hjá sér. Maðurinn var ekki vakinn
og þegar hann loks vaknaði um kl. 8 flýtti hann sér niður í gestamóttöku til að ganga frá sínum reikningi.
Þar var enginn í afgreiðslu. Bankað var á skrifstofuherbergi við hliðina en ekkert svar. Maðurinn var
þegar orðinn ot' seinn fyrir og flýtti sér til skips. Vegna seinkunar á brottfór rétt náði hann í tæka tíð. Það
sem stendur í umræddri frétt frá lögreglunni, að maðurinn haft „stungið af'1 á því ekki við rök að styðjast.
Síðar var haft samband við hótelið og greiðsla send í framhaldi af því fyrir gistinguna.
Eitt af markmiðum FGF er að koma í veg fyrir ólöglegan innflutning. dreiftngu og neyslu á fíkni- og
vanabindandi efnum með þeim ráðum sem tiltæk eru hverju sinni. Stuðla að vakningu meðal þjóðar-
innar um skaðsemi eiturlyfja og afleiðingar þeirra á einstaklinginn. Ijölskylduna og heimilið. Við höfum
trú á að ötlugir fíkniefnahundar staðsettir víða um landsbyggðina. þ.m.t. Vestmannaeyjar. muni gera mikið
gagn í baráttunni við eiturlyf, smyglara og sölumenn. Því miður hefur þessi málatlokkur verið sveltur af
hinu opinbera. Við vonum að fólkið í landinu sýni samstöðu í baráttunni og taki málaleitan okkar vel.
kaup á fíkniefnahundi kosta mikið fé. En hver veit nema draumurinn um öflugan fíkniefnahund í
Vestmannaeyjum verði að veruleika. Við biðjum alla sem vilja liðsinna okkur á einhvem hátt að skrifa
okkur sem fyrst. FGF er opið öllum. FGF þakkar fyrir birtinguna á þessu greinarkomi.
Forvarnir gegn fíkniefnum - Box 7270 -127 Reykjavík
Athugasemd frá fréttastj.
Vegna greinar FGF er rétt að taka fram að lögreglan í Eyjum hafði samband við blaðið í síðustu viku og
bað uni að fyrmefnd frétt kæmi í blaðinu þar sem hún taldi brögð í tafli við söfnun í þágu góðs málefnis.
Fréttin undir fyrirsögninni „Vafasöm peningasöfmm" var því alfarið byggð á upplýsingum lögæglu eins
og reyndar forsvarsmönnum FGF var bent á símleiðis.
Golfkennsla
Hinn frábæri golfkennari GV, Gary
Brooks er mættur til starfa. Þeir
sem hafa í huga að panta tíma hjá
honum, geta skráð sig í
Golfskálanum eða hringt og pantað
tíma í síma 481-2363.
Háls, nef og
eyrnalæknir
Sigurður Júlíusson, háls, nef og eyrnalæknir
verður í Vestmannaeyjum dagana 29.-31. maí
nk.
Tímapantanir í síma 481-1955
Heilsugæslustöð Vestmannaeyja