Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 12.03.1998, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 12.03.1998, Blaðsíða 12
12 Fréttir Fimmtudagur 12. mars 1998 Bæjarstjómarkosningarnar 23. maí: Undirbúningur að komast á skrið -Uppstilling hjá sjálfstæðismönnum og V-lista. Oákveðið með framboð H-listans Ennþá fer lítið fyrir kosninga- baráttunni vegna bæjarstjórnar- kosninganna sem fram fara 23. maí nk. Undirbúningur er þó að komast á skrið og hafa sjálfstæðismenn ákveðið að uppstillinganefnd fái það hlutverk að velja fólk á listann. Vestmannaeyjalistinn hefur blásið af fyrirhugaða skoðanakönnun en óljóst er hvort H-listinn býður fram eða ekki. Sunnudaginn 8. mars var haldinn fundur í fulltrúaráði Sjálfstæðis- tlokksins í Vestmannaeyjum. Áfund- inum voru ræddar komandi bæjar- stjórnarkosningar í vor og tilhögun á vali frambjóðenda á lista flokksins. Ákveðið var að velja fimm manna uppstillinganefnd sem sæi um að til- nefna menn á listann. Að sögn Sigurðar Einarssonar formanns full- trúaráðs Sjálfstæðisflokksins voru fundarmenn mjög einróma um að fara þessa leið. Þá kom fram á fundinum að búið væri að tala við aðal- og varabæjar- fulltrúa flokksins og að þeir hafi samþykkt að sætta sig við niðurstöður uppstillingamefndar, hvort sem þeir væru þar á lista yfir efstu menn eða ekki Hjálmfríður Sveinsdóttir formaður Bæjarmálafélags Vestmannaeyja- listans staðfestir að hætt hafi verið við skoðanakönnun hjá V-listanum vegna bæjarstjómarkosninganna í vor. „Við auglýstum eftir framboðum en það voru svo fáir sem gáfu kost á sér að við sáum ekki neina forsendu fyrir því að hafa slíka könnun. Við hefðum viljað sjá að minnsta kosti átta til tíu manns, en það voru ekki nema þrír eða fjórir sem gáfu kost á sér. Þess vegna hefur verið skipuð uppstill- ingamefnd sem skipuð er Jakobi Möller, Sólveigu Adólfsdóttur, Stefáni Jónassyni og Sigurgeir Scheving til þess að vinna í þessu máli.“ Hún segir að uppstillingamefndin muni verða búin að Ijúka sinni vinnu í lok vikunnar og að línur fari að skýrast í framhaldi af því. „Það þarf að koma meiri umræðu í gang í bænum og koma fólki upp úr þessum pólitíska doða sem virðist vera nkjandi að minnsta kosti opinberlega, þó menn skrafi margt í spjallinu." Georg Þór Kristjánsson (H) sem fór fram í síðustu kosningum með óháð framboð, segir að ekkert sé á hreinu og bætir við að ekki sé búið að ákveða neitt. „Hins vegar, ef ég fer fram, þá fer ég fram sér og óháður miðað við stöðu mála í dag.“ Deilt um þátttöku bæjar- ins í Útgerðarfélagi Vm Á bæjarstjórnarfundi, sem haldinn var 5. mars sl., var tekin til af- greiðslu tillaga sem Ragnar Oskars- son lagði fram í bæjarráði hinn 17. febrúar. Tillagan var þess efnis að Vestmannaeyjabær tæki þátt í stofnun Útgerðarfélags Vestmanna- eyja með kaupum á hlutabréfum. Þetta yrði tímabundið og yrði unnt að selja hlutabréfin síðar ef efni stæðu til. Meirihluti bæjarstjómar bar fram frávísunartillögu á tillögu Ragnars. í henni var einnig lagt til að bæjarstjóra, sem er í stjórn Þróunarfélagsins, undirbúningsnefnd um fjárfestinga- félag og í stjóm Útgerðarfélags Vest- mannaeyja, verði falið að koma með tillögu til bæjarráðs um aðkomu bæjarins. Þessi frávísunartillaga var sam- þykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur. Þeir Ragnar og Guðmundur Þ.B. Ólafsson bám þá fram aðra tillögu þar sem lagt var til að bæjarsjóður kæmi tímabundið inn með hlutafé í fyrmefnt almenningshlutafélag. Gert verði ráð fyrir útgjöldum vegna þess við seinni umræðu um fjárhagsáætlun. í greinargerð með tillögunni telja flutningsmenn sjálfsagt að bærinn taki þátt í þessari tilraun með því að leggja fram fé, tímabundið til félagsins og sýndi með því gott fordæmi. Þessi tillaga var felld með fimm atkvæðum gegn tveimur og því ljóst að áframhald þessa máls verður í höndum bæjarstjóra, samkvæmt frá- vísunartillögunni sem samþykkt var á fundinum. Fjárfesflngafélag f burðafflðnum Eins og greint var frá í Fréttum fyrir skömmu er áhugi fyrir stofnun fjárfestingafélags í Vestmanna- eyjum. Fyrir stuttu boðaði Þró- unarfélagið til fundar með fulltrú- um frá Lífeyrissjóði Vestmanna- eyja, Sparisjóðnum og Islands- banka, ásamt sérfræðingum um það hvernig standa beri að stofnun slíks félags. Á þeim fundi var kjörin tjögurra manna nefnd til að starfa að framgangi málsins. Hana skipa þeir Bjarki Brynjarsson frá Þróunarfélaginu, Benedikt Ragnarsson Sparisjóðnum, Börkur Grímsson íslandsbanka og Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri. Bjarki Brynjarsson sagði í samtali við Fréttir að nefndin hefði farið í stutta ferð upp á fastalandið til að kynna sér hliðstæða starfsemi þar. I Reykjavík heimsóttu þeir bæði Kaupþing og VÍB og fóru einnig í heimsókn til Iðnþróunarfélags Akureyrar. Bjarki sagði að þama hefðu verið skoðaðir möguleikar á samstarfi við þessa aðila, svo sem víxlfjárfestingum og samvinnu um verkefni. Einnig hefði verið athugað hvemig bæði Kaupþing og VÍB gætu komið að þessum málum í Vest- mannaeyjum. Bjarki sagði þetta hafa verið fróðlega ferð. Nefndin myndi skila áliti mjög fljótlega og í framhaldi af því yrðu næstu skref stigin. Bæþrstjórn: Fjáiliagsáædun lögðfram Á síðasta bæjarstjórriarfundi var lögð fram til fyrri umræðu fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og stofnana hans fyrir árið 1998. Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og gerði grein fyrir forsenduni og helstu niðurstöðum en samþykkt var með sjö samhljóða atkvæðum að vísa þessum niðurstöðum til síðari umræðu sem fram fer í dag. Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs: Niðurstaða reksturs kr. 1.124.640.000 Til eignabreytinga frá rekstri kr. 123.559.000 Gjaldfærður stofnkostnaður (nettó) kr. 66.436.000 Eignfærður stofnkostnaður (nettó) kr. 57.000.000 Gjöld alls kr. 1.158.517.000 Tekjur alls kr. 1.158.640.000 Tekjur umfram gjöld kr. 123.0(K) Niðurstöðutölurfjármagnsyfirlits kr. 119.181.000 Fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs: Niðurstöðutölur reksturs: Tekjur kr. 123.000.000 Gjöld kr. 108.137.000 Heildarniðurstaða: kr. 236.907.000 Fjárhagsáætlun Húsnæðisnefndar: Niðurstöðutölur reksturs: Tekjur kr. 11.167.000 Gjöld kr. 28.017.000 Heildarniðurstaða: kr. 61.517.000 Fjárhagsáætlun Sorpeyðingarstöðvar: Niðurstöðutölur reksturs: Tekjur kr. 57.646.000 Gjöld kr. 49.947.000 Heildarniðurstaða: kr. 66.778.000 Fjárhagsáætlun Fjarhitunar: Niðurstöðutölur reksturs: Tekjur kr. 138.472.000 Gjöld kr. 123.871.000 Heildarniðurstaða: kr. 151.394.000 Fjárhagsáætlun Vatnsveitu: Niðurstöðutölur reksturs: Tekjur kr. 41.593.000 Gjöld kr. 28.772.000 Heildarniðurstaða: kr. 41.593.000 Fjárhagsáætlun Rafveitu: Niðurstöðutölur reksturs: Tekjur kr. 210.023.000 Gjöld kr. 187.620.000 Heildarniðurstaða: kr. 210.283.000 Nú er uerið að leggja lokahönd á gerð útsýnispalls á Nýjahrauninu ofan uið Skansinn. Hann er hlaðínn á suipaðan hátt og aðrir útsýnispallar sem gerðir hafa uerið. Sigurður Jónsson. f rá Húsauík, hef ur yf irumsjón með uerkinu. Hér er hann ásamt Tómasi Kristinssyni og Oddi Júlíussyni sem hafa uerið honum til fulltingis uið uerkið. KÁ Reykt medisterpylsa pr. kg. 488 KÁ Svínasnitsel pr. kg. 1178 KA Hangisalat 200 gr. 98 Nóa Rjómasúkkulaði 200 gr. 5 teg. 198 Family fresh Sjampo/duch fyrir born 500 ml. 229 Familý fresn Flárnáeiring 400 ml. 159 Fámily frésh Sjámpó 500 ml. 3 teg. 179 Daim súkkulaði 3 stk. 99 Daim karamellur 200 gr. 259 Daim skafís 1 Itr. 298 Daim ístoppar 4 stk. 298 Daim kúlur 150 gr. 179

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.