Fréttir - Eyjafréttir - 02.04.1998, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 2. aprfl 1998
Mikiðaðsnúast
vegnaæfingar
Almannavamaæfingin, sem haldin
var hér á laugardag. tók drjúgan
tíma lögreglu eins og fleiri aðila
sem að henni stóðu. Undir-
búningur fyrir æfinguna hófst á
fimmtudag í síðustu viku með
fyrirlestrum og hópavinnu. Segja
má að þessi æfing, og undir-
búníngur fyrir hana, hafi verið
aðalverkefni lögreglu í síðustu viku
og önnur verkefni fallið í skuggann
af þeirn sökum.
Húsbrot
Þegar skemmtistöðum var lokað á
aðfaranótt sunnudags höfðu tveir
skemmtanaglaðir ekki fengið
nægju sína. Gerðu þeir sig
heimakomna í húsi einu í bænum
og hugðust halda skemmtan sinni
áffam. Ekki var þessi óboðni gesta-
gangur húsráðendum að skapi og
náðu þeir að koma gestunum út
eftir nokkur átök. Fer ekki sögum
af fleiri húsbrotum þeirra þá nótt.
Þjófnaðurog
rúðubrot
Einn þjófnaður var kærður í vik-
unni. Stolið var reiðhjóli frá húsi
við Faxastíg og fannst hjólið stuttu
síðar, óskemmt. Þá var um helgina
brotin rúða í dvalarheimilinu að
Hraunbúðum og einnig var kært
rúðubrot í bifreið.
Sex í saumó í úrslit
Dregið hefur verið í aðra umferð
Spumingakeppni saumaklúbbanna
íÚtvaipi Suðurlandi. FM 105,1 og
96,3. Fimmtudaginn 2. apríl kl.
10:00 fara fram tvær fyrstu viður-
eignimar í annari umferð: I. Stazy
Selfossi og Spímlaga spoosur úr
Flóanum. 2. Sex í Saumó Vest-
mannaeyjum og Smellurnar Sel-
fossi. Fimmtudaginn 16. apríl: 1.
Systumar og teygði anginn Selfossi
og Brosið Selfossi. 2. Sælan Sel-
fossi og Gatið og gildíir línur Sel-
fossi. Fimmtudaginn 23. apríl 1.
Dódó Selfossi og Krónuklúbburinn
angúra.
Þrír klúbbar sitja hjá í annari
umferð: Matthías með fram-
tennumar Hvolsvelli, Kátar konitr
Eyjafjöllum og Magnús Árborg.
Opíð hús fyrir 60 ára
ogeldrihjáLíkn
Kvenfélagið Líkn ætlar að hafa
opið hús fyrir 60 ára og eldri í húsi
sínu Líkn við Faxastíg 35, laugar-
daginn 4. apríl n.k. frá kl. 16:00 til
18:00.
I gegnum tíðina hefur íjöldi
mynda verið tekinn í starfi félagsins
m.a. á Nýársfagnaöinum. Viljum
við gefa öllum 60 ára og eldri kost
á að skoða þessar myndir og húsið
okkar, og þiggja kaffisopa og
konfekt.
Vonumst við eftir því að vel
verði mætt, bæði af 60 ára og eldri,
og að félagskonur sjái sér einnig
fært að koma.
Fréttatilkynning frá Líkn.
Dragdrottning
íslands 1998
Þann 8. apríl nk. verður keppnin,
Dragdrotming Islands haldin á HB-
pöbb. Þátttökutilkynningar og
borðapantanir eru í síma 481-1515
Börn finna sprautunálar í
gám við Sorpeyðingarstöðina
Nokkrir krakkar sem verið höfðu
að leik við Sorpeyðingastöðina
fundu þar nálar undan að-
skiljanlegum lyfjum. Það var for-
eldri eins barnanna, sem komst að
þessu og lét lögreglu vita. Lögreglan
segir með ólíkindum skuli vera að
svona nálar skuli liggja í hirðuleysi.
Nálarnar fundust í gámi á
geymslusvæði norðan við stöðina,
þar sem ýmis fyrirtæki hafa
geymsluaðstöðu fyrir eitt og annað
sem ekki hefur fengist aðstaða til að
geyma annars staðar. Mönnum er
hulið hvernig nálarnar hafa komist
í téðan gám.
Lögreglan kannaði hvort þessar
nálar væru hugsanlega frá Heilbrigðis-
stofnuninni í Vestmannaeyjum. Ekki
vildu forsvarsmenn stofnunarinnar
kannast við að nálamar kæmu úr
þeirra lögsögu eða yfirráðasvæði,
enda væri mjög strangt förgunarferli
sem allur svona úrgangur lyti hjá
stofnuninni.
Lögregla vildi hins vegar benda á
að það væri líka með ólíkindum að
ekki væri meira eftirlit með umferð
fólks um svæði Sorpeyðingar-
stöðvarinnar. „Það þyrfti að girða
svæðið af og ráða mann til þess að sjá
um eftirlit á staðnum.
Nálarnarsemkrakkarnir
fundu skipta mörgum tugum.
Lögreglan lítur málið mjög
alvarlegumaugum.
Rækiutogarinn Andvari VE100
lelgður EisUendignum ui áramðta
Rækjuskipið Andvari VE hefur
verið leigður til útgerðarfyrirtækis í
Tallin í Eistlandi.
Jóhann Halldórsson, skipstjóri og
eigandi skipsins, segir að skipið haft
verið búið með kvótann hér, svo að
einhvem veginn haft þurft að bregðast
við. Skipið mun fara til rækjuveiða á
Flæmska hattinum. „Það er miklu
hagstæðara að leigja skipið út til
fyrirtækis sem á kvóta heldur en að
kaupa eða leigja kvóta hér á landi.“
Jóhann segir að Iangur aðdragandi
sé að þessu máli, því að strax í
desember hafi verið ljóst að kvótinn á
Andvara myndi klárast nú um þetta
leyti. Hann segir að menn haft því
staðið klárir að því að til einhverra
aðgerða þyrfti að grípa. „Menn gátu
ráðstafað sér í tíma svo að það var
enginn rekinn, en vissulega er
leiðinlegt að grípa til þessa úrræðis.“
Að sögn Jóhanns mun skipið
mannað útlendingum að undan-
skildum yfirmönnum sem eru
íslenskir. Ándvari er 305 tonn og er
leigður út til ársloka 1998 og lét úr
höfn sl. laugardagskvöld. „Þetta eru
um tvö hundruð veiðidagar," sagði
Jóhann að lokum
Fræðst um hvíldartímaákvæði EES
í síðustu viku var haldið námskeið í
Vestmannaeyjum á vegum VSI um
túlkun kjarasamninga, vinnutíma-
og hvíldartímaákvæði samkvæmt
EES samningi og nýjungar í
kjarasamningagerð.
Námskeiðið var ætlað fyrir stjóm-
endur fyrirtækja, verkstjóra og þeim
sem annast launaútreikning og stóð
yfir í einn dag. Rúmlega 20 manns
sóttu námskeiðið.
Ragnar Ámason, lögfræðingur hjá
VSI, sem stjómaði námskeiðinu, segir
að mjög margar spumingar hafi
vaknað hjá fólki og þá einkum
spumingar er vörðuðu vinnu- og
hvfldartímaákvæði samkvæmt reglum
ESB sem íslendingar gerðust aðilar að
á síðasta ári. „Þegar mikil vinna er í
fyrirtækjum og iangur vinnutími,
reynir á þetta, en eitt ákvæði þessa
samnings kveður á um 11 klst. hvíld
hjá starfsfólki á sólarhring í stað 10
klst. í eldri samningum hér á landi.“
Ragnar segir að heimilt sé að stytta
þennati hvfldartíma niður í allt að 8
klst. á sólarhring beri brýna nauðsyn
til og myndist þá frítökuréttur hjá
starfsfólki. „Á síðasta ári var samið
um þennan frítökurétt í almennum
kjarasamningum, en lftið hefur reynt á
hann fyrr en nú á loðnuvertíðinni."
Ragnar var mjög ánægður með
aðsóknina að námskeiðinu og segir
það Ijóst að sveiflukenndur vinnutími
í Eyjum kalli á margar spumingar sem
leysa þurfi úr.
Góð aósókn var að námskeiðinu.
Síðastliðinn miðvikudag var
veitingastaðurinn Turninn inn-
siglaður af embætti sýslumanns.
Jón Óskar Þórhallsson skrif-
stofustjóri hjá sýslumanni segir að
þetta sé ekkert stórmál og að
rekstraraðili Tumsins sé að vinna í
því að ganga frá málinu. „Lokunin
er vegna smáhnökra á lögbundn-
um skilum á vörslusköttum, sem
em virðisaukaskattur og stað-
greiðsla opinberra gjalda af
launþegum,“ segir Jón Oskar
FRÉTTIR
Utgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
Iþróttir: Rútur Snorrason. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig I lausasölu í Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni,
Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og I Flugteríunni á Reykjavikurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.