Fréttir - Eyjafréttir - 02.04.1998, Blaðsíða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 2. apríl 1998
Sigríður Jóna Kristinsdóttir, ekkja Guðna, með fjölskyldu sinni á minníngartónleikunum. F.u. Ágúst Birgisson og Jóhanna
dóttir hennar, Sigríður Jóna, Kristinn sonur hennar og Guðfinna Eggertsdóttir kona hans og Guðni flgnar sonur heirra.
Velheppnaðír minningartón-
leikar um Guðna Hermausen
Kuartett Ólafs Stolzenwald litaði salinn bláan og hljómaði tregaf ullur jassinn
umhlusUr.
Síðastliðinn laugardag voru haldnir
minningartónleikar í Akóges um
Guðna Hermansen, sem hefði orðið
sjötugur þann dag, 28. niars.
Tónleikarnir voru ágætlega sóttir
og góð stemmning í salnum.
Það var kvartett Ólafs Stolzenwald
sem litaði salinn bláan og hljómaði
tregafullur jassinn um hlustir, eins og
þeim einum er lagið. Þeir sem skipa
kvartettinn eru Ólafur Stolzenwald á
bassa, Óskar Guðjónsson á saxófón,
Jakob Ólsen á gítar og Kári Ámason á
trommur. Allir eru þeir frábærir
hljóðfæraleikarar og hmndu ópujamir
listilega úr hljóðfæmm þeirra. Ólafur
og Óskar hafa spilað áður saman í
Eyjum, en Jakob og Kári hafa ekki
komið áður til Eyja.
Reyndar voru tónleikarnir dálítið
litaðir bláa litnum og ekki að ósekju.
Guðni var mikill frumkvöðull lista í
Vestmannaeyjum og lést langt um
aldur fram en hann hefði orðið
sjötugur þennan dag. Það voru vinir
Guðna undir forystu Listvinafélags
Vestmannaeyja sem stóðu að
tónleikunum. Ólafur Stolzenwald
þekkir ágætlega til í Eyjum og hefur
spilað hér áður, en oftast hefur hann
verið með tríó og er skemmst að
minnast Daga lita og tóna um hvíta-
sunnuna. Þess má og geta að faðir
Ólafs og Guðni Hemiansen vom góðir
vinir. ^
Kvartettinn byggði dagskrána upp á
klassískum jassballöðum, sem létu
frábærlega í eyrum. Verk á
efnisskránni voru meðal annars eftir
Charlie Parker og Miles Davis, auk
yngri meistara eins og Wyne Shorter
sem var í hljómsveitinni Weather
Report á sínum tíma en lék einnig
með Miles Davis, og verk eftir gítar-
leikarann Seofield. En áferð tón-
leikana var samt tregafull og lituð
söknuði og harmi.
Eftirminnilegustu ópusarnir voru
samt Footprint eftir Shorter og Billies
Bounce eftir Parker. Eins ólíkir og
þeir eru, þar sem Shorter elst upp í
bræðingi og rokkáhrifum, en Parker í
hörðum Chicago stíl be-boparans.
Miles Davis stendur þó alltaf fyrir sínu
og rann Ijúflega í hlustir með
saxófónleik Óskars.
Kvartettinn var vel samstilltur og
fengu einstakir hljóðfæraleikarar að
njóta sín í sólóum og gerður góður
rómur að. Heimsókn þessara tónlistar-
manna til Eyja var góð og þakkarvert
framtak allra sem að tónleikunum
stóðu að gefa áheyrendum hlutdeild í
þeim máttuga sköpunarkrafti sem býr
íjassinum.
Benedikt Gestsson.
D-7 tekur Þátt í
músíkdlraunum
Hljómsveitin D-7 mun halda upp á
fastalandið í dag til þess að taka
þátt í músíktilraunum Tónabæjar.
Hljómsveitin er eins árs gömul og
hefur lagt metnað sinn í að rífa upp
tónlistarlífið í Eyjum. Þetta er í
fyrsta skipti sem hljómsveitin tekur
þátt í þessari keppni og ætla þeir að
gera sitt besta. Þeir munu flytja
þrjú frumsamin lög í keppninni, en
hins vegar syngja þeir á ensku. Þeir
segja að það sé kannski viss
ókostur, en þannig vilji þeir hafa
það og við það situr.
Hljómsveitin spilar melódískt rokk
að eigin sögn sem þeir semja saman,
bæði lög og texta. „Það kemur
kannski einn með hugmynd og svo
leggjum við allir í púkkið,“ segir
Ástþór bassaleikari.
En kostar ekki eitthvað að taka þátt
í þessu ævintýri? „Jú þetta kostar
formúu. Alveg helling," segja þeir.
„En við höfum fengið góðan styrk frá
Islandsbanka, Herjólfi og bænum. og
án þeirra stuðnings ættum við erfitt
með að taka þátt í keppninni nú.
Þessir aðilar hafa trú á okkur og telja
okkur vera að gera góða hluti. Við
gætum ekki tekið þátt í þessu ef
utanað komandi aðstoð kæmi ekki til.
Við erum þakklátir fyrir stuðninginn
og vonumst til að geta skilað góðu
verki til baka til íslandsbanka,
Herjólfs og Vestmanna-eyjabæjar."
Hljómsveitin er skipuð Magna
Frey Ingasyni á trommur. Gunnari
Geir Waage á gítar, Olafi Kristni Guð-
ntundssyni söngvara, Árna Gunnars-
syni á gítar og Ástþóri Ágústssyni á
bassa.
SOS,égeraðfara
gífta mig
Þessi Vestmannaeyjasnót, Iris
Róbertsdóttir stóð í einu horni KA
síðdegis á föstudaginn og lék af
listfengi á blokkflautu. Þegar
nánar var að gáð var þetta hluti af
gæsagjörningi, því daginn eftir
ætlaði hún að giftast sínum heitt-
elskaða Eysteini Gunnarssyni.
Góður rómur var gerður að
spilamennsku hennar og lét fólk
smáaura af hendi rakna til að
styrkja hana í því að elska
væntanlegan maka sinn, virða og
vera honum undirgefin. Á spjaldi
neðan við nótnastandinn stóð
nefnilega: SOS! Eg er að fara að
gifta mig.
Sigurgeir Jónsson
skrifar
udegi
Af könnunum
í sfðustu Fréttum var gerð grein fyrir skoð-
anakönnun, sem unnin var fyrir blaðið, vegna
komandi kosninga í vor. Spurt var annars vegar
hvaða flokk eða lista viðkomandi myndi kjósa og
hins vegar hvern menn vildu sjá sem næsta
bæjarstjóra.
Skrifari var einn þeirra 600 sem lentu í þessu
úrtaki og var beðinn að svara áðurnefndum
spumingum. Satt best að segja kom skrifara það
nokkuð á óvart hve margir voru búnir að gera upp
hug sinn í þessum málum. Aðeins 2,9%
aðspurðra vom ekki búin að gera upp hug sinn og
í þeim hópi er skrifari. Þegar könnunin var gerð
var enginn listi kominn fram, enginn sem vissi
hverjir yrðu í framboði á hvaða lista og enginn
sem vissi hve margir listamir yrðu. Satt best að
segja átti skrifari von á að minnsta kosti 30% sem
ekki væru búin að gera upp við sig hver
valkosturinn yrði. En aldeilis ekki. Vestmanna-
eyingum virðist nákvæmlega sama hverjir skipa
framboðslistana ef tæp þrjú prósent eru undan-
skilin. Skrifari hefur um það lúmskan grun að
þetta 600 manna úrtak hafi valist svo sérkenni-
lega að þessu sinni að liist hafí á annaðhvort
gallharða og gegnbláa íhaldsmenn og svo algera
hliðstæðu af hinum vængnum. Þama hafi orðið
fyrir svörum fólk sem hefur gegnum tíðina kosið
sinn flokk, sama hveijir skipa sæti á listanum.
Nú þessa dagana eru listarnir að koma fram í
dagsljósið. V-listafólk birti sinn lista um síðustu
helgi og væntanlega líður ekki á löngu áður en
sjáifstæðismenn koma með sinn lista. Þá hlýtur
Georg Þór að fara að gjöra kunnugt hvort hann
ætlar fram eða ekki. En öll sú vinna, sern bæði
V-Iistafólk hefur lagt í að klambra saman lista og
svo sú vinna sem D-listafólk stendur í þessa
dagana, virðist með öllu óþörf. Kjósendur eru
greinilega búnir að gera upp hug sinn og er
hjartanlega sama hverjir skipa þessa lista.
Samkvæmt könnuninni ætla 45,8% að krossa
við D, 36% við V, Georg Þór fengi 1,3%, 7,6%
ætla ekki að mæta á kjörstað, 6,4% skila auðu og
2,9% era að hugsa málið. Það er því greinilegt að
kosningabaráttan mun snúast um að telja þessum
tæpu þremur prósentum hughvarf, þar á meðal
skrifara.
Annað sem skrifara kom einnig á óvart í
þessari könnun var hve ráðandi meirihluti virðist
sterkur. Af þeim sem afstöðu tóku sögðust 55%
ætla að kjósa hann áfram en 43,5% vildu breyta
yfir í vinstri stjóm. Af þessu virðist mega ráða að
Vestmannaeyingar séu bara þokkalega ánægðir
með ástandið í dag.
Svör við seinni spumingunni komu skrifara
aftur á móti ekkert á óvart. Hann undraði ekkert
á því að frændi hans skyldi fá þar afgerandi svör.
Enda hefur hvergi komið fram að aðrir ætli sér að
setjast í stólinn hans, enginn sem lýst hefur yfir
áhuga á starfí bæjarstjóra. Líklega kæmu
svipaðar niðurstöður fram ef spurt væri núna
hvem menn vildu liafa sem forseta Islands eða
hvem menn vildu hafa sem skólameistara
Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum. Áreiðan-
lega fengju þeir nafnar, Ólafur Ragnar og Ólafur
Hreinn. vænan meirihluta þeirna sem spurðir
væra, einfaldlega vegna þess að bæði hafa þeir
staðið sig ágætlega í starfi og ekki vitað að aðrir
ásælist þeirra sæti.
I sömu skoðanakönnun var einnig spurt um álit
fólks á þjónustu íslandsbanka og Heijólfs. Þær
spumingar vora Fréttum með öllu óviðkomandi,
þau tvö fyrirtæki hafa væntanlega staðið straum
af kostnaði vegna þeirra spuminga en algengt er
að nokkrir aðilar slái saman í skoðanakannanir af
þessu tagi.
Það er álit skrifara að þessi skoðanakönnun
hafi verið aðeins of snemma á ferðinni. E.t.v.
fáum við aðra skoðanakönnun þegar styttist í
kosningar og allir listar verða komnir á hreint. Þá
kynni niðurstaðan að verða önnur þó svo að
skrifari efist um það, miðað við hve fólk virðist
nú þegar vera orðið ákveðið. En skrifari getur
samt ekki stillt sig um að benda öllum aðilum á
að taka skoðanakannanir með hæfilegum
fyrirvara. Sá danski Islandsvinur, Uffe Elleman,
er enn að þurrka tár vegna þess að kosningar í
Danmörku fóra allt öðravísi en skoðanakannanir
sögðu til um. Og skrifari vill ekki til þess hugsa
ef sú yrði raunin á með allt hans frændfólk í
Sjálfstæðisflokknum að þar yrði uppi grátur og
gnístran tanna að loknum kosningum, þvert ofan
í allar skoðanakannanir. Sigurg.