Fréttir - Eyjafréttir - 02.04.1998, Side 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 2. apríl 1998
Helmí
helðar-
dalinn og
hellir sér
ntíferða-
Sigríður Sigmarsdóttir: Fólk ræður hví auðvitað hvort hað kemur híngað eða hefur samband við
skrifstofuna í Reykjavík. Það er hins vegar mjög bægilegur kostur að geta komið hingað, har sem allar upplýs-
ingar eru til staðar, bæklingar og hægt að skoða myndir af hótelum og svo framvegis og ég tel sjálfsagt að
Vestmannaeyingar hafi aðgang að svona biónustu í sínum bæ eins og aðrir.
Nýr umboðsmaður, Sigríður
(Silla) Sigmarsdóttir, hefur
tekiðviðrekstriumboðs
Samvinnuferða-Landsýnar í
Vestmannaeyjum. Silla er 25
ára og hefur fjölbætta reynslu
ogmenntuníferðaskrif-
stofurekstri, auk bess að hafa
unniðviðaðaðstoða
ferðamennáFíska-og
Náttúrugripasafninuí
Vestmannaeyjum begar hún
varuiðnámí
Framhaldsskólanumí
Vestmannaeyjum.
Ergosbam
„Eg er fædd gosárið og er því gosbam
en er ekki fædd í Eyjum, því foreldrar
mínir bjuggu í Hveragerði á meðan
gosið stóð yfir en fluttu svo aftur til
Eyja þegar ég var sex mánaða. Þetta
þótti frekar óþægur árgangur, sem má
kannski rekja til alls þessa umróts í
náttúrunni. Eg kalla mig samt alltaf
Vestmannaeying." segir Silla.
Silla var í Bamaskólanum í Eyjum,
fór svo í Framhaldsskólann og er
stúdent af félagsfræðibraut 1992. „Á
meðan ég var í Framhaldsskólanum
vann ég alltaf á sumrin í Fiskasafninu
hjá honum Kidda, þegar ég var ekki
að vinna í búðinni hjá pabba, eða í
fiski. Þá kynntist ég ferðamönnunum
sem komu í safnið og fannst mjög
gaman að spjalla við þá og forvitnast
um þeirra hagi og þjóðemi. Svo hef
ég alltaf átt fjöldann allan af
pennavinum í útlöndum þar sem ég
fræðist um ókunn lönd og ég segi
þeim frá íslandi. Pennavinunum hefur
heldur fækkað en ég er enn þá í
bréfaskriftum við nokkra þeirra.
Þegar ég hafði lokið Framhalds-
skólanum fór ég til Reykjavíkur. Eg
sótti um hjá Fejðaskóla Flugleiða og
komst inn. Ég bjó í fjögur ár í
Reykjavík og það var ágætt. En núna
myndi ég ekki vilja skipta. Reyndar er
ég miklu sáttari við allt hér í Eyjum
núna heldur en áður fyrr. Maður sér
það þegar maður þroskast, hversu
miklir kostir em við það að búa héma.
Sérstaklega þegar maður er kominn
með bam, þá sér maður kostina. Svo
er fjölskyldan hér í Eyjum og
tengdaforeldramir uppi á Bakka.
Reykjavík er ekki allt, þó hún sé
kannski ekki alvondur staður."
GamanhjáKiddaP
Hvað var svona gaman hjá honurn
Kidda?
,Fg var aðallega í því að mkka inn,
en ég fóðraði fiskana ef hann þurfti að
skreppa frá og þá lenti maður alltaf á
spjalli við útlendingana. Maður æfðist
þá í tungumálunum, sem hafa alltaf
heillað mig. Þeir sem komu á fiska-
safnið voru yfirleitt miklir grúskarar
og fólk sem hafði lesið sér til um
safnið og hafði nægan tíma til að
spjaila og skoða, og hafði áhuga á öllu
mögulegu.“
Silla segir að Ferðaskólinn hafi
verið eitt ár og veiti réttindi til starfa á
ferðaskrifstofu, en hún hafi einnig lært
eitt og annað viðkomandi hótel-
þjónustu. „Þetta er alþjóðlegt próf sem
tekið er í skólanum, eða svokallað
IATA- UFTA. Námsefnið er allt á
ensku og prófin svo send til Genfar,
þar sem farið er yfir þau. Eiginlega
var það tilviljun að ég fór í þennan
skóla. Ég var mjög heppin að komast
inn í skclanp, því hann er mjög
eftirsóttur. Ég var ein af rúmlega
hundrað r ranns sem sóttu um og
tuttugu og >rír nemendur komust inn
og sjö sem náðu prófunum."
Hjá Ferðaskrifstofu stúdenta
Silla segir að eftir að hún hafi lokið
Ferðamálaskólanum hafi svo verið
hringt í hana frá Ferðaskrifstofu
stúdenta og henni boðin vinna þar.
„Ég þáði hana og vann þar í þrjú ár.
Þau ár voru rnjög lærdómsrík og í
þessu umboðsmannsstarfi núna er ég
að veita svipaða þjónustu og á Ferða-
skrifstofu stúdenta, nema það er
kannski dálítill áherslumunur. Ferð-
imar eru dálítið ólíkar, vegna þess að
þetta eru ferðir sem eru skipulagðar
fyrir fram og nokkuð staðlaðar, en á
Ferðaskrifstofu stúdenta var maður að
skipuleggja ferðir íyrir viðskiptavinina
sjálfur. Reyndar verð ég líka með
umboð fyrir Ferðaskrifstofu stúdenta,
þar sem boðið er upp á ýmsar
ævintýraferðir, eins og safaríferðir og
lestarferðir, sem eru í tengslum við
enskar skrifstofur. Það eru alltaf
einhverjir sem langar í svona alvöru
ævintýraferðir og þá ekki síst ungt
fólk. Svo má líka geta þess að
tölvukerfið og bókunarkerfið er það
sama.“
Ýmislegtáprjónunum
Silla hefur ýmsar hugmyndir á
prjónunum, sem hana langar til þess
að útfæra nánar, þegar hún fer að
komast inn í starfið en til að byrja með
ætlar hún að taka við því sem Öm og
Hrefna vom með. „Það er þessi
almenna dreifing og kynning á
bæklingunum ffá Samvinnuferðum-
Landsýn og ferðum sem kynntar em í
honum, en það era allt skipulagðar
ferðir sem Atlanta flugfélagið flýgur
fyrir okkur í leiguflugi. Reyndar er ég
einnig með sölu á farmiðum fyrir
Flugleiðir og pakkaferðum sem þeir
bjóða upp á og 3. júlí nrun Islandsflug
fljúga leiguflug fyrir okkur til
Eindhoven í Hollandi.
Em Vestmannaeyingar ferðaglaðir
og koma þeir til umboðsins hér í
Eyjum eða hafa þeir beint samband
við skrifstofuna í Reykjavík?
„Fólk ræður því auðvitað hvort það
kemur hingað eða hefur samband við
skrifstofuna í Reykjavík. Það er hins
vegar mjög þægilegur kostur að geta
komið hingað, þar sem allar upplýs-
ingar em til staðar, bæklingar og hægt
að skoða myndir af hótelum og svo
framvegis og ég tel sjálfsagt að Vest-
mannaeyingar hafi aðgang að svona
þjónustu í sínum bæ eins og aðrir. En
Vestmannaeyingar eru duglegir að
ferðast til útlanda, þrátt fyrir að það
þuifi að komast langan veg til þess að
komast í millilandaflug. Ég get þó
ekki nefnt neinar tölur til samanburðar
við aðra landsmenn.“
SI19 áríEyjum
Samvinnuferðir-Landsýn hafa verið
með umboð í Vestmannaeyjum í
nítján ár og alltaf í höndum sömu
aðila, þangað til núna. „Þetta er mikið
og gott tækifæri sem mér bauðst og ég
gat ekki sleppt því. Reyndar á ég góða
að sem hjálpa mér, eins og fjölskylda
mín, sent veitir mér ómældan styrk til
þess að takast á við þetta verkefni. Ég
á mjög góða og samheldna fjölskyldu
sem er alveg ómetanlegt fyrir mig.
Öm og Hrefna hafa lika verið mjög
hjálpsöm ef ég hef þurft einhverja
aðstoð.“
f sama húsnæði og ferðaskrifstofan
er til húsa er líka upplýsingaskrifstofa
ferðamála. Þangað geta ferðamenn
leitað og fengið upplýsingar urn það
sem helst er í boði fyrir ferðamenn í
Vestmannaeyjum. Sú starfsemi hefur
verið til staðar í sjö ár og hefur verið
styrkt af bænum. „Ég keypti hins
vegar húsnæðið, en bærinn styrkir
rekstur upplýsingamiðstöðvarinnar.
Ég er eini starfsmaður fyrirtækisins.
Maður sér bara til á meðan maður er
að eignast þetta og koma þessu í gang.
Ég vil ekki fara í of mikið í einu. Eg
vil ekki vera í lausu lofti.“
Get gefíð uiðskiptauinum
meiritíma
Hvemig líst þér á framhaldið í þessum
rekstri?
„Þetta er nú heldur rólegra miðað
við það sem ég hef átt að venjast. Það
var miklu meiri erill þegar ég var í
bænum. Þá var aldrei stoppað. Héma
getur maður gefið viðskiptavininum
meiri tíma, sem þýðir vonandi betri
þjónustu. Mér finnst það nauðsynlegt.
Fólk er að kaupa dýrar ferðir í flestum
tilfellum og maður verður að hafa
tíma til þess að sinna þvf. Það er hins
vegar mikill plús fyrir mig að taka við
fyrirtæki í fullum rekstri. heldur en að
þurfa að byrja frá grunni. Það er samt
alveg nóg sem ég þarf að kynna mér
og koma mér inn í. Ég ætla að taka
eitt skref í einu. Það er yfirleitt
farsælast."
Eitthvað að lokum sem þú vilt
korna á framfæri við Vestmanna-
eyinga?
„Já endilega að skora á þá að mæta
á ferðakynninguna sem á að verða
laugardaginn 4. apríl uppi í AI-
þýðuhúsi milli þrjú og sex. Þá verður
kynning á því sem Samvinnuferðir-
Landsýn bjóða landsmönnum upp á í
ferðum til fjarlægra landa, auk þess
sem margt annað mun verða til
skemmtunar. Meðal annars mun
hljómsveit spila, það verður tísku-
sýning og fleiri fyrirtæki kynna
starfsemi sína.“