Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 21. maí 1998
ÍBllvill álmörk
Fundur var haldinn í íþrótta- og
æskulýðsráði 13. maí síðastliðinn.
Þar lá meðál annars fyrir erindi frá
ÍB V - íþróttafélagi þar sem óskað er
eftir útskiptingu á járnmörkum á
fþróttavöllum bæjarins og að
álmörk verði sett upp í staðinn.
Jafnframt kemur fram í erindinu
hugmynd um að staðsetja jám-
mörkin á opnum svæðum og að
komið verði upp svo kölluðum
sparkvöllum. en mörkin fest
kyrfilega niður. Þá er einnig óskað
eftir heimild til kaupa á stórum ál-
mörkum á Hásteinsvöll. Kostnaður
er áætlaður 750 þúsund kr. Sam-
þykkt var að verða við erindinu.
enda verði gert ráð fyrir kaupunum
í endurskoðaðri fjárhagsáætlun
Framboðskynningí
Útvarpi Suðurlandi
Framboðskynning á listunum sem
boðnir eru fram til bæjarstjórnar í
Vestmannaeyjum, verður á Útvarpi
Suðurlandi fimmtudaginn 21. maí
frá kl. 13-16. Röð listanna verður
sú að V-listi Vestmannaeyjalistans
verður í spjalli við stjómanda
þáttarins Eftir hádegi kl. 14.00 og
D-listi Sjálfstæðisflokks kl. 15.00.
Áður verður rabbað við Eyjamenn
um kosningamar og spiluð létt
Eyjatónlist.
TvöÞhf.fenguverkið
Tvö Þ hf höfðu betur í útboði vegna
framkvæmda við nýbyggingu
Fiskmarkaðs Vestmannaeyja. en
tvö fyrirtæki buðu í verkið. Hitt
fyrirtækið var Steini og Olli hf.
Páll Pálsson framkvæmdastjóri
Fiskmarkaðarins segir að miklar
breytingar hafi þó orðið á vegna
þessara framkvæmda. „Það er búið
að skera þessar hugmyndir niður.
Upphafleg kostnaðaráætlun hljóð-
aði upp á 60 milljónir, en nú höfum
við lækkað þessa upphæð niður í
45 milljónir."
Páll segir ástæðu þessa niður-
skurðar meðal annars vera vegna
kjaramála sjómanna og lagasetn-
inga í kjölfar þeirra. „Þess vegna
létum við endurskoða áætlanir og
teikningar okkar vegna þessara
framkvæmda. Viðhöfumminnkað
bygginguna um I00m2, eða úr
800m2 í 700m2. Ætlunin er hins
vegar að koma húsinu upp. en við
munurn fresta innréttingum á efri
hæð og líklega verður beðið
eitthvað með frágang f kringum
bygginguna.“
Dýralækni tll Eyja
Nú fer að líða að kosningadegi og
hef ég eina fróma ósk lfam að færa,
en hún er sú að til Eyjanna verði
ráðinn dýralæknir með fast aðsetur
hér. Við erum nokkuð stór hópur
sem höldum dýr og þetta er
ófremdarástand að þurfa alltaf að
fara upp á fastalandið eftir þjón-
ustu, þar sem það er líka erfitt að fá
að ferðast s'em skyldi með dýrin
síii. Það er líka kominn tími til að
viðurkenna okkur. Við erum ekki
öll eins og væntum ekki öll hins
sama af lífinu, en það er nú
fjölbreytileikinn sem gefur lífinu
gildi. Höfum ekki allar götur
einstefnu.
Með vinsemd og virðingu.
Stefanía Jónasdóttir
Ráðning sóknarprests í uppnámi[ sóknarnefnd ákvað að auglýsa stöðuna aftur:
Umsókn mín
er í biðstöðu
-segir Skúli Siguröur Olafsson sem var eini umsækjandinn
Séra Skúli Sigurður Ólafsson prestur á ísafirði sem sótt hefur um starf sóknarprests í
Ofanleitisprestakalli í Vestmannaeyjum, segir að umsókn hans um embættið sé í biðstöðu eins
og er. Hann segist hafa sent inn umsókn í krafti þeirrarfullvissu að niðurstöður umsóknar
eiginkonu hans Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur um embætti sýslumanns í Eyjum fengju
farsælan endi. Mynd: Bæjarins besta á Isafirði.
Séra Skúli Sigurður Ólafsson
prestur á Isafirði sem sótt hefur um
starf sóknarprests í Ofanleitis-
prestakalli í Vestmannaeyjum, segir
að umsókn hans um embættið sé í
biðstöðu eins og er. Hann segist
hafa sent inn umsókn í krafti
þeirrar fullvissu að niðurstöður
umsóknar eiginkonu hans Sigríðar
Bjarkar Guðjónsdóttur um emb-
ætti sýslumanns í Eyjum fengi
farsælan endi. Það hafi hins vegar
dregist lengur en hann hafi grunað
í fyrstu að dómsmálaráðherra
skipaði í það starf. I gær ákvað
sóknarnefnd að auglýsa stöðuna
aftur þannig að enn geta liðið
nokkrar vikur áður en í ljós kemur
hver tekur við.
„Þetta er að verða hið erfiðasta
mál,“ segir Skúli Sigurður. „Aðstæð-
ur á ísafirði eru mjög góðar og
óheppilegt er að flytja héðan nema við
fáum bæði embætti í samræmi við það
nám og þá reynslu sem við höfum að
baki. Ég hef beðið sóknamefndina í
Vestmannaeyjum að sýna biðlund, en
16. maí sendi sóknarnefnd biskupi
bréf í því skyni að fá umsókninni
hnekkt. í framhaldi af því yrði staðan
þá trúlega auglýst aftur."
Skúli Sigurður segir að þau hjónin
hafi verið búin að ákveða að koma til
Eyja- þann 19. þessa mánaðar og
útskýra mál sín og stöðu. „Sóknar-
nefndin hefur hins vegar farið fram á
ógildingu umsóknar minnar, þannig
að við ákváðum að fresta þessari för
okkar.“
Skúli Sigurður segir það leiðinlegt
að valda fólki hugarangri í þessari
óvissu stöðu. „Ef staðan verður aug-
lýst aftur tekur það ferli um fimm
vikur. Þá er auðvitað möguleg sú
staða að eiginkona mín fái sýslu-
mannsembættið, en ég hins vegar ekki
prestsembættið, ekki síst ef fleiri
umsóknir um það hafa borist í
framhaldi af ógildingu umsóknar
minnar Þetta gæti orðið flókið mál að
leysa. Ég hyggst senda sóknar-
nefndarfólki bréf þar sem ég útskýri
stöðuna í málinu og hvemig málið
horfir við mér og konu minni, til þess
að leiðrétta hugsanlegan misskilning
um meint óheilindi mín varðandi
umsókn mína. Síst af öllu grunaði mig
þegar ég sendi inn umsóknina að hún
ætti eftir að valda leiðindunt og
misskilningi og nú vona ég að hægt
verði að gera eins gott úr málinu og
auðið er.“
Fádæmarólegheit
Síðasta vika var að sögn lögreglu
einhver hin rólegasta í manna
minnum og helgin sömuleiðis. Alls
voru bókanir vikunnar 130 sem er
mun minna en verið hefur að
undanfömu. Og um helgina voru
aðeins 17 bókanir. Eru lögreglu-
menn að vonum ánægðir með
löghlýðni bæjarbúa.
Átia
umferðarlagabrot
Höfð voru afskipti af sjö öku-
mönnunt vegna umferðarlagabrota.
Þar var m.a. um að ræða hraðakstur
á Illugagötu þar sem ökumaður
mældist á 85 km hraða. Eitt
umferðaróhapp varð í vikunni og
var þar um að ræða þriggja bfia
árekstur á gatnamótum Fffilgötu og
Vestmannabrautar. Ekki urðu slys
á fólki en nokkrar skemmdir á
ökutækjunum.
Ein tílkynning
Aðeins kom ein tilkynning til
lögreglu vegna eignaspjalla í
vikunni. Var þar um að ræða böm
sem brotið höfðu rúðu í véiðar-
færageymslu við Hilmisgötu. Hér
mun vera um einsdæmi að ræða að
einungis eitt slíkt tilvik sé tilkynnt á
heilli viku. Er þama urn
ánægjulega þróun að ræða og
vonandi að framhald verði á.
Bjartmaráferð
Miðvikudagskvöldið 20. maí
verður Bjartmar og hljómsveit með
miðnæturtónleika í „Lundanum” í
Vestmannaeyjum. Hljómsveitina
skipa ásarnt Bjartmari þeir Tómas
Tómasson gítarleikari, Friðþjófur
Isfeld bassaleikari og James Olsen
trommuleikari. Dagskrá þeirra
félaga byggist upp á gömlum og
nýjum lögum eftir Bjartmar ásamt
vel völdum og þekktum rokkurum
í bland.
Lelðréttlngar
í viðtali við bömin á Rauðagerði
sem birtist í 16. tbl. Frétta mis-
ritaðist föðumafn eins við-
mælandans. Gunnars Bjöms. Hann
er Þrastarson en ekki Þorkelsson
eins og sagði í greininni. Læiðréttist
þetta hér með.
Sigurður Guðmundsson sem
spjallað var við vegna viðtals við
Guðjón Pálsson í 19. tbl. vildi
koma því á framfæri að að textamir
við lögin Vertu sæt við mig og
Ungur enn eru eftir Erling Ágústs-
son. en ekki Guðjón Pálsson eins
og segir í spjallinu. Er beðist vel-
virðingar á þessunt mistökum.
Framboðsfundur
Kl. 20.30 í kvöld. fimmtudags-
kvöld, verður framboðsfundur í
beinni útsendingu á Fjölsýn. Frá D-
lista verða Guðjón Hjörleifssoii,
Elsa Valgeirsdóttir og Helgi
Bragason og frá V-lista Steinunn
Jónatansdóttir, Guðrún Erlings-
dóttir og Þorgerður Jóhannsdóttir.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
Iþróttir: Rútur Snorrason. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteriunni á ReykjavíkurflugvelIi. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.