Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Blaðsíða 16
16 Fréttir Fimmtudagur21. maí 1998 Það eru líka gardínur á lögreglus -segir Sigrún Sigmarsdóttir, húsmóðir og fjögurra bama móðir sem hefur ráðið sig í lög TILBÚIN í SLAGINN. Sigrún, sem hér er ásamt Tryggua Kr. Úlafssyni lögreglufuiltrúa, komin í lögreglubúninginn Sigrún Sigmarsdóttir hefur verið ráðin til sumarafleysinga í lögregluliði Vestmannaeyja. Það sóttu sex manns um þrjár stöður sem auglýstar voru og stóðst Sigrún inntökukröfur með ágætum. Það verða því tvær konur í lögreglu Vest- mannaeyja sem koma til með að halda uppi lögum og reglum í sumar, ásamt auðvitað þeim körlum sem eru í liðinu. Sigrún er fædd í Reykjavík en hefur húið í Eyjum frá því hún var átján ára. Fréttir fengu Sigrúnu í spjall um væntanlegt staif lífið og tilveruna. Hún tók því ljúfmannlega, eins og hennar er vandi. Fékk áhuga sem lítil stelpa Sigrún segir að það hati alltaf blundað í henni áhugi á lögreglustörfum, eða frá því hún var lítil stelpa. Hún hafi búið í Sæviðarsundi rétt við Klepps- veginn í Reykjavík sent er mikil umferðargata og ntjög algengt að árekstrar yrðu þar. „Eg fylgdist rosalega vel með þegar lögreglan var að mæla á vettvangi og fékk stundum að prófa „græjumar.“ Svo er ég töluvert forvitin að eðlisfari og sírenuvæl í lögreglubílum vakti alltaf forvitni. Þetta var eitthvað spennandi. Núna er ég Ifka mjög spennt og áhugasöm að takast á við þetta nýja starf og hlakka mikið til. Þetta er eiginlega fyrsta alvörustarfið sem ég gegni. Ég hef unnið á ýmsum stöðum og er nú að vinna hlutavinnu á Mána- bar og vona að ég geti haldið áfram að vinna þar þó að ég fari í lögregluna" Er enginn kvíði samt eða óöryggi sem læðist að þér varðandi starfið? „Nei, nei. Þetta er fínt fólk sem er að vinna í lögreglunni og svo er önnur kona sem er að vinna þar. Þannig að ég kvfði engu. Við verðum þama tveir kvenskörungar. En það eru aldrei hafðir eingöngu nýliðar á vakt. Það er alltaf einhver reynslumeiri sem er á vaktinni líka. Hins vegar er þetta ekki spurning um að vera alltaf í einhverri spennu. Það er miklu meira starf sem unnið er innan lögreglunnar. Til dæmis alls konar forvarnarstarf. Ég hefði aldrei sótt um starfið ef ég væri eitthvað smeyk við það.“ Sigrún segir að hún fari á námskeið í Lögregluskólanum þann 27. maí. Hún segir að það standi í tjóra daga og hún hlakki til að fara á það. „Hún segist ekki vita mikið hvað kennt verði. Svo hef ég mikinn áhuga á sálarfræði, en það er kennd einhver sálarfræði og mannleg samskipti í skólanum. Menn sem fara í lögregl- una verða að vera sæntilega skýrir í kollinum. Reyndar hefur fólk verið svolítið hissa á því að ég skyldi hafa sótt um og ég hef verið spurð að þvf í hvort ég kunni á sjúkrabörumar og svo framvegis, en ég held að það sé nú meira í gríni.“ Eiginmanninum fannst lietta hálfasnalegt fyrst Hvemig líst ntanninum þínum á þessa ákvörðun þína? „Honum þótti þetta hálf asnalegt fyrst. En nú er hann farinn að grobba sig svolítið af þessu. Hann kallar mig stundum offtcer Sigrún, sem er ósköp krúttlegt hjá honum. Ég vona samt að ég verði ekki kölluð þetta í framtíðinrú. Mér finnst alveg nóg að vera kölluð Sigrún hans Hæa. Ef ég segi Sigrún Sigmars veit engin hver ég er. Þetta er svona í Vestmannaeyjum. Fólk fær alltaf einhver viðurnefni.“ Sigrún segir að það hafí verið mikil viðbrigði að koma til Eyja frá Reykjavík. Sérstaklega vegna þess hversu samféjagið var smátt og einangrað. „Ég er til dæmis alltaf sjóveik og get ekki tekið Herjólf og svo em flugsamgöngur líka svo háðar veðri. Ég sagði baraguð minn góður hvert er ég komin. Eg þekkti heldur enga, nema kannski fólkið í næsta húsi svo þetta var áfall fyrir átján ára stelpu og engin mamma. Þetta var erfitt fyrstu tvö árin. Hins vegar ef það er þoka og Herjólfur kemst ekki vegna veðurs, þá líður mér ekki vel. Þá fínnst mér ég vera innilokuð. Ég vil hafa möguleika á því að geta farið til Reykjavíkur þegar mig langar til. Mér finnst ég ekki vera örugg nema ég viti af flugvél uppi á velli og að flugleiðin sé opin.“ Ápjóðhátíðsem lögreglukona Hvers vegna að leggja þetta allt á sig? „Nú maðurinn ntinn er úr Eyjum og hann hafði svo góða vinnu. Það var fyrst og fremst vinnan sem var til þess að ég lét mig hafa þetta og þetta skiptir máli enn þann dag í dag, en auðvitað var maður líka ástfanginn. Ég kynnt- ist manninum mínum í Reykjavík og við fórum saman á Þjóðhátíð 1984 og þá hugsaði ég með mér að ég vildi ekki sleppa því aftur. í dag get ég hins vegar alveg sleppt Þjóðhátíð. Þetta er orðin svo mikill drykkjuskapur og slagsntál. Þetta var miklu tjölskyldu- vænna og meira fyrir bömin áður fyrr. Núna verð ég hins vegar að vinna á þjóðhátíð sem lögreglukona og þá kynnist maður henni frá allt öðru sjónarhomi." Hefurðu ekki allt of mikið á þinni könnu. Hvemig kemstu yfir þetta? „Það má vel vera. En ég hef sagt það líka að ég eigi einn góðan eigin- mann. Hann fær sitt sumarfrí og hann segist ætla að verða húsmóðir í fríinu. Svo eru strákarnir mínir orðnir stórir og ég hef góða barnapípu ef svo ber undir. Ég er svo aktíf og þarf að gera svo margt í einu, án þess þó að ég telji mig ómissandi. Ég get ekki setið lengi. Ég verð alltaf að vera að gera eitthvað og á mér fullt af áhugamál- um. Ég er til að mynda í hinum fræga saumklúbbi Hraðar hendur sent er mjög virkur félagsskapur. Við höfum farið í sumarbústaðaferðir, út að borða, erum með fjölskyldudag, grill- hátíð og svo tölum við mjög mikið, en saumum lítið. Þetta er nánast eins og stjómmálaflokkur eða frímúrararegla, en allt sem sagt er innan klúbbsins er algert trúnaðarmál. Svo hefég mikinn áhuga á stangveiði, en áhuginn á henni kemur frá pabba sem er mikill laxveiðimaður. Ég fór mjög oft með honum þegar ég var lítil í laxveiði. Einu sinni þurfti hann að stökkva á eftir mér út í Svartá. Ég lá á bakkanum og ætlaði að segja honum hvenær laxarnir bitu á hjá honurn. Svo allt f einu sá hann á eftir mér niður ána. Svo þegar hann dró mig upp spurði hann hvað ég hefði nú séð. Þá „Officer Sigrún í faömí fjölskyldunnar. sagðist ég hafa séð marga hvali. Hins vegar er aðaláhugamálið fjölskyldan og ég hef engar áhyggjur af því að þetta gangi ekki upp. Við reynum að skipta með okkur verkum eftir bestu getu.“ Frekar sjalfstæð kona Sigrún segir að stundum hafi hvarflað að sér.að breyta til, en þá vaknar spumingin um það hvort að það sé nokkuð betra hinu megin við sundið. „Hins vegar fer ég mjög oft til Reykjavíkur og sérstaklega gerði ég það fyrstu árin. En þegar bömunum fór að fjölga fækkaði ferðunum. En þetta vandist að vera ekki alltaf hjá mömmu. Ég er frekar sjálfstæð kona og vil lifa lífinu svolítið sjálf. For- eldrar mínir koma líka til Éyja þegar þau geta, þó þau hafi mikið að gera í fyrirtækinu.'1 Sigrún segir að fyrirtæki foreldra hennar hafi verið stór hluti af lífinu, vegna þess að það hafi mótað eitt aðal áhugamál hennar sent eru gardínur. „Þau reka fyrirtækið S. Armann Magnússon sem tlytur inn gardínur. Þannig að ég er eiginlega fædd inn í gardínuheildverslun og alin upp að miklu leyti innan um gardínur. Gardínur em þess vegna eitt mitt aðal- áhugamál. Stundum rúnta ég um bæinn og skoða gardínur. Svo hringi ég kannski í mömmu og segi henni af einhverjum fallegunt uppsetningum eða Ijótum gardínum sem ég hef séð á ferð ntinni. Annars hefur mig alltaf langað til þess að setja upp búð héma. Búð sem er alveg sérstök, nefnilega gardínubúð. Reyndar eru þrjár gard- ínubúðir hér í Eyjunt og það er kannski ekki markaður fyrir þá fjórðu. Hins vegar kemur kannski að því að ég set upp mína gardínubúð méð saumaskap og tilheyrandi." Víl ekki sjá rúllugardínur En rúllugardínur? ,,Ég vil ekki sjá rúllugardínur." segir Sigrún full hneykslunar. „Það er ekki það sama rúllugardínur og gardínur. Einhvern tíma var ég nteð rúllu- gardínu fyrir eldhúsglugga hjá mér vegna þess að hann var svo ntjór og breiður, en það stóð ekki lengi. Ég er líka mjög dugleg við að skipta urn gardínur hjá mér. Svo eru tískusveiflur í gardínum eins og öðm. Núna eru þungar gardínur rnikið í tísku og munstur frá Indlandi." Sigrún segir að það geti verið mjög dýrt að vera svona mikill gardínupælari, en hún láti það ekki aftra sér. „Ég pæli aldrei í verði á neinu. Ef mig langar í eitthvað þá kaupi ég það. Ég er ekkert að flakka á milU búða og bera saman verð. Ég kaupi bara á fyrsta stað sent ég kent á. Þetta er kannski líka einn helsti gallinn sem ég hef. Ég get verið of bráðlát stundum.“ Eru ekki bara rimlar á lögreglustöðinni? Hvenúg gardínur em á löggustöðinni? „Ég veit það ekki. Ég hef bara ekki velt því fyrir mér. En ég held að það séu engar gardínur. Alla vega síðast þegar ég fór vom engar. Em ekki bara rimlar þarna. Ég á kannski eftir að setja upp gardínur á stöðinni." Sigrún hefur staðið í mikilli baráttu vegna yngsta sonar síns, Bjarka Steins. Hann fæddist með axlar- klemmu, sem er taugalömun. „Málið er núna fyrir óháðri nefnd sem er að meta málið og ég á von á greinargerð frá nefndinni á næstu dögurn. Þetta hefur tekið rúmlega eitt ár í kerfinu. Það þarf að berjast fyrir öllu. Tryggingastofnun hefur sagt í bréfi til mín að þetta sé bótaskylt, en mér finnst ekki rétt að tjá mig meira um þetta mál á meðan ekki er komin endanlega niðurstaða í málinu. Bjarki fór í aðgerð fyrir tæpu ári úti í London og svo aftur í eftirlit eftir sjö vikur. Það er enginn taugaskurðlæknir hér á landi sem getur framkvæmt svona aðgerð. Það er búið að kosta mikla baráttu að koma honum undir læknishendur og ég þurfti sjálf að fylgja þessu máli eftir á öllum stigum þess. Ég hins vegar keypti mér tölvu og fór að grúska á Netinu eftir læknum og fann einn sem reyndar hafði komið hingað til íslands áður. Hann sagði mér bara að korna strax með hann út og við fórum út þann sautjánda júní í fyrra og hann var svo skorinn þann átjánda. Núna er ég að reyna að koma honum aftur í aðgerð hjá sama lækni. En trúlega þarf hann að fara í þijár aðgerðir í viðbót.“ Netfíkill í framhaldi af þessum málum segist Sigrún vera orðin hálfgerður netfíkill. „Eg er búin að grúska dálítið í þessu axlarklemmumáli. Fólk víða um heim hefur svo verið að lesa það sem ég hef verið að skrifa og sendir mér heilmikinn póst. Ég var til dæmis að leiðbeina manni sem lenti í mótorhjólaslysi. Hann vill endilega komast í kynni við þennan lækni sem skar Bjarka Stein. Þetta er mjög gaman og er orðið eitt stærsta áhugamál mitt núna og ég skil ekki hvers vegna ég var ekki byijuð á þessu Iriiklu fyrr.“ Sigrún segir að eftir að bróðir hennar, Jón Páll, dó hafi hún farið að hugsa um hvort líf væri eftir dauðann. „Hann dó alveg í blónta lífsins. Ég hugsa mjög oft til hans og hef fundið fyrir honum héma. Ég er líka viss um að hann hjálpar mér heilmikið í

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.