Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Síða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Síða 20
20 Fréttir Fimmtudagur 21. maí 1998 Li+sk^uðugu^ skólaclcxgiA^ Fjölmenni mætti á skóladag Hamarskóla sem haldinn var með glæsíbrag síúastlíöínn laugardag. Margtvargert gestum og gangandí til gamans ogskemmtunarogléku nemenduraðsjálfsögðu lykilhlutverk í framkvæmd fjölbreyttrar dagskrár. Sérstakt goshemavarígangimeð myndum og frásögnum, og sérstök sýning var á gosmyndum úr gosmyndasamkeppni frá huí fyrr í uetur. í bókasafni var boðið upp á kórsöng, hljóðfæraleik. gosleikrit Spicegirls og tískusýningu. Einnig mættí spákona á svæðið og gjóaði inn í framtíðina. Aukbesssemboðið var upp á pílukast dósakast andlitsmálun og hlutaveltu. Áefrimyndínnimásjáað öllu gamni fylgir nokkur alvara. Á mvndinni hér til hlíúar másjá að skrautlegir húningar settu suin sinn á skemmtunina. LESENDABREF -Hrafn Arnarsson Kvótakóngurínn og þingmaðurínn Málflutningur sjálfstæðismanna hefur verið afar dauflegur í þessari kosn- ingabaráttu. Það er bæði erfitt og mikilvægt að túlka þögnina. Þar síðasta tölublað Fylkis var helgað tveimur mönnum. Mig langar til að fara nokkrum orðum um efni þessa blaðs. Blaðið segir að Sigurður Ein- arsson hafi ákveðið að verja dýr- mætum tíma sínum á vettvangi bæjarmála. Ekki er að efa að tími Sigurðar er dýrmætur. Hann er einn af helstu auðmönnum landsins. Tímaritið Frjáls verslun metur eign- ir hans uppá þrjá og hálfan milljarð. Sigurður hefur ekki þurft að leggja hart að sér til að komast yfir þessar eignir. Yfirgnæfandi meirihluti núlif- andi auðmanna hefur erft eigur sínar og er Sigurður í þeim hópi. Gjafakvótakerfið hefur fært honum verðmæti sem áætluð er 2,7 millj- arðar. Sigurður er á topp-fimm listanum. Það þarf ekki að koma á óvart að hann er einn ötulasti talsmaður óhefts framsals kvóta. Sigurður er langt ffá því að vera einhver Jóakim frændi sem baðar sig í kvótaeign og peningum. Hann er vinnusamur maður og skipulagður sem viðheldur og eykur eign fjöl- skyldunnar eins og algengt er um aðra kynslóð í fjölskyldum auðmanna. Sigurður hefur enga þörf á að berast á í neyslu , eins og algengt er um ný- ríkt fólk og menntunarsnautt. Sigurður er hvorugt og það sem meira er; hann hefur augljósa yfirburði yfir aðra frambjóðendur flokks síns. Það er því ljóst að hann mun fara sínu fram og ráða því sem hann vill eins og hann getur gert í sínu fyrirtæki. Sigurður lifir og hrærist í sjávarútvegnum og eðlilega takmarkar það áhuga hans og skilning á öðrum atvinnugreinum. Hann er manna ólíklegastur til að stuðla að vexti annarra greina. Yfirráð yfir stóru fyrirtæki fela í sér mikil völd og það er óeðlileg valdasamþjöppun ef sami maður á að stjóma heilu bæjarfélagi. Valddreifing og valdajafnvægi eru mikilvæg einkenni lýðræðis Grein Áma Johnsen er merkileg að því leyti að hún sýnir skilning hans á stjómmálum. Hann iítur greinilega ekki á sig sem þingmann allra Vest- mannaeyinga heldur virðist starf hans sem þingmanns vera háð því hverjir em í meirihluta í bæjarstjóm. Er þing- maðurinn virkilega að hafa í hótunum við kjósendur? Er kerfisbundið starf hans að hagsmunum Eyjanna háð því að flokksmenn hans ráði bæjarfé- laginu? Skilur hann það ekki að sem þingmaður verður hann að hafa hagsmuni alls kjördæmisins og landsins að leiðarljósi? Höfundur erfram- lialdsskólakennari Og sumir fóru í hárgreiðslu. X-Bæjarstjórnarkosningarnar - Oskar Orn 0lafsson á V.estmannaeyjalistanum skrifar: Vestmannaeyjahöfn, lífakkeri Eyjanna Þegar leitað var til mín að taka sæti á Vestmannaeyja- listanum fyrir nokkru var ég strax til í það. Á- stæðan var ein- föld, ég taldi að fólkið sem búið var þegar að gefa kost á sér á Vestmannaeyjalistann væri hæfara til að stjóma bænum okkar á næsta kjörtímabili en þeir sem búnir voru að gefa sig út á lista sjálf- stæðismanna. Viðhaldslaus höfn Ég hef stundað sjóinn héðan í nokkur ár og hef séð höfnina, sem er lífæð Eyjanna drabbast niður undir stjóm Sjálfstæðismanna. Tek ég hér nokkur dæmi þar um. Viðhald á bryggjum hefur verið látið sitja á hakanum um langt skeið. Friðarhafnarbryggjan er nánast að hruni komin og hefur uppfyllingin horfið í höfnina á stómm köflum og er mildi að ekki hefur hlotist af stórslys þegar bryggjudekkið hefur gefið sig. Eins má nefna Nausthamarsbryggjuna sem er orðin mjög léleg eins og allir sjá, sem um hana fara. Bryggjukanturinn þar er orðinn þannig að stórhættulegt er að stíga á hann og mikil slysahætta þegar farið er frá borði. Það þarf að gera mikið átak til þess að verja innsiglinguna, hún er alltaf að þrengjast meira og meira vegna sandburðar og haldi svo áfram sem horfir er ekki langt í það, að hægt verði að ganga fyrir hausinn á Hring- skersgarði, þ.e. syðri hafnargarðinum. Hvað verður þá um Eyjamar, ef miðlungs fiskiskip geta ekki landað hér afla í höfninni og reyndar hefur það komið fyrir oftar en einu sinni að stór loðnuskip hafa þurft að snúa hér frá vegna hættu á að stranda í hafnarmynninu. Þama þarf að gera úrbætur og það strax ef ekki á illa að fara. Sviknir trillukarlar Hvað með sviknu loforðin um góða aðstöðu fyrir trillukarla fyrir austan Tangahúsin, nú hefur meirihlutinn aðeins nokkra^ daga til stefnu til að klára málið. Ég er þess fullviss að trillukarlamir hugsa sig vel um þegar í kjörklefann er komið næstkomandi laugardag og minnast sviknu loforð- anna sem Sjálfstæðisflokkurinn gaf fyrir seinustu kosningar. Öll aðstaða þeirra sem gera út trillur og smábáta er til skammar hér við höfnina. Hér er bara einn löndunarkrani við höfnina en þeir þyrftu að vera a.m.k. tveir ef vel ætti að vera. Bætt aðstaða fyrir ferðamenn Þegar ferðamenn koma í framandi flughöfn er það oft fyrstu kynni þeirra af landinu, hvort landið umhverfis flughöfnina sé hreinlegt og er oftar en ekki allt landið dæmt út frá því. Eins má með sanni segja að þegar innlendir jafnt sem erlendir ferðamenn koma með skemmtiferðaskipum eða Herjólfi til Eyja er það fyrstu kynni þeirra af staðnum og sú sjón sem blasir við hlýtur oft að vekja furðu þeirra. Hér eru gerðar miklar kröfur til frystihúsanna, hvað hreinleika varðar, en þegar kemur að höfninni virðist það engu máli skipta þó hún líti út sem allsherjar forapyttur. Það er verið að tala um að gera Vestmannaeyjar að ferðamannabæ. Hver er aðstaða þeirra ferðamanna sem til Eyja koma með skemmtiferðaskipum, það er eins gott að þeir séu búnir að létta á sér áður en í land er komið, því hér er engin salemisaðstaða við höfnina fyrir ferðamenn. Það er af mörgu af taka og alltaf má gera betur, en höfnin hér í Eyjum er það lífakkeri sem ekki má bresta á hverju sem gengur. Við erum og verð- um fiskimannabær. Ég treysti okkur á Vestmannaeyja- listanum best til þeirra verka. Sjómenn og aðrir Eyjabúar, ykkar framtíð er best tryggð með því að krossa X fyrir framan V á laugar- daginn kemur. Höfimdur skipar 6. sœti á Vestmannaeyjalistanum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.