Fréttir - Eyjafréttir - 11.06.1998, Qupperneq 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 11. júní 1998
Ein á báti
og ánægð
með það
segir listakonan Ríkey
Ingimundardóttir sem er ánægð
með viðtökur Eyjamanna
Listakonan Ríkey Ingi-
mundardóttir opnaði sýningu í
Akóges á föstudaginn, var.
Það er óhætt að segja að hún
láti sér fátt óvðkomandi þegar
komið er að myndlistinni, enda
spannar listsköpun hennar allt
sviðið, frá skartgripum til
skúlptúra og olíumálverka.
Ríkey hefur alla tíð látið sér í
léttu rúmi liggja mælikvarða
sjálfskipaðra spekúlanta um
myndlist og haldið sínu striki
án þess að téðir spekúlantar
hafi nokkur áhrif þar á. Ríkey
siglir líka sinn eigin sjó og
nýtur þess. Hún hefur sýnt
víða jafnt innan lands sem
erlendis. Til dæmis í
Bandarrkjunum, Danmörku,
Noregi, Færeyjum og
Luxemburg. Verk hennar eru
því víða um heim bæði á
opinberum stöðum og í
einkaeign. Ríkey er
afkastamikill listamaður og var
sýningin í Vestmannaeyjum
fertugasta einkasýning hennar.
Að sjá eitthvað sem snertir
Nú ertu með tónlist sem þú spilar af
snældu á sýningunni. Er það mjög
mikilvægt fyrir þig að hafa einhverja
tónlist á sýningum þínum?
„Þetta er nú bróðir minn Gylfi
Ægisson sem við heyrum núna. Það
er dálítið merkilegt með Gylfa og mig
að við erum alltaf að segja einhverja
sögu. Hann hefur gert fólkið, sem
hann fjallar um í textum sínum,
landsfrægt. Hann sér þetta fólk hins
vegar í öðru ljósi en aðrir og miðlar
þeirri sýn. Þetta er ekki ólíkt því sem
ég er að gera. Ég sé eitthvað sem að
snertir mig og þá langar mig til að gera
eitthvað meira með það."
Ríkey segir að hún hafi alla tíð
mótað myndir í leir, alveg frá því hún
var stelpa. „Ég skapaði heilu fjöl-
skyldumar í leir og lék mér með
þessar myndir eins og aðrar stelpur
léku sér að barbiedúkkum. Ég fer
síðan í kvöldskóla Myndlista- og
handíðaskólans og þar kenna mér
Hringur Jóhannesson og Hörður
Ágústsson. Hjá þeim lærði ég ein-
göngu málun og teiknun. Löngu
seinna fer ég í skúlptúrdeild skólans
og útskrifast þaðan, en eftir það fer ég
í keramikdeildina. Einnig var ég í
Antverskov Hpjskole í Danmörku.
Bakgrunnur minn er því nokkuð
fjölbreyttur hvað nám varðar og það
hefur skilað sér í því sem ég hef verið
að gera í myndlistinni. En hvers
vegna ég skapa nákvæmlega þá hluti
sem ég er að^era núna á sér kannski
dýpri rætur. Ég bjó til nýjan ævintýra-
heim og gat alltaf breytt því fólki sem
égskapaði. Fyrst er það kannski ungt
og svo verður það gamallt. Ég gat líka
gefið því önnur svipbrigði en hin
staðlaða mynd barbiedúkunnar gaf, af
því að leirinn býður upp á það að
breyta að vild. Þannig skapa ég
kannski fólk sem er nær lífinu og
raunveruleikanum.“
Að segja sögu
Þegar myndir Ríkeyjar eru skoðaðar
kemst maður ekki hjá því að taka eftir
því að það er alltaf sögð saga í
myndum hennar. Rikey segir að hún
sé oft spurð að þessu og hún njóti þess
að ganga með gestum um sýningar
sínar og útlista fyrir þeim myndimar.
„Það opnast alltaf ný heimur fyrir
skoðandanum þegar ég fer að útskýra
sögumar í myndunum mínum. Þetta
em allt ævintýri, sem byggja á
hugmyndum sem maður hefur fengið
úr daglega líftnu. Ég hef farið víða
um ævina og meðal annars búið um
lengri eða skemmri tíma í Danmörku.
Færeyjum, og Bandaríkjunum. I
myndum mínum er ég alltaf að endur-
skapa heiminn sem ég sé í kringum
mig.“
Og hann er þá mikið ævintýri fyrir
þér?
„Auðvitað verður maður að
endurskapa hann og búa til eitthvað
skemmtilegt, fallegt og blíðlegt. Ég
vil ekki endurskapa ljótleikann. Ef
maður skapar eingöngu ljótar sögur
líður manni ekki vel. Sjálfri líður mér
vel og vellíðan mín eykst ef ég get gert
hluti sem höfða til allra og ef fólki
líður vel á sýningu hjá mér.“
Hvernig hafa Vestmannaeyingar
tekið myndunum þínum?
„Það hefur verið rosalega fín
aðsókn og fólk mjög jákvætt, jafnt í
minn garð og verkanna."
Nú teiknar þú oft í málverkin þín
áður en liturinn er þomaður?
„Já það er rétt. Ég set fyrst litinn á
léreftið og skoða myndina svo í
fjarlægð á eftir. Þá spyr ég sjálfa mig.
„Hvað gefur myndin mér, eða hvað
segir hún mér. Þá teikna ég í blautann
litinn með einhveijum skörpum hlut til
dæmis og myndin og sagan verður
til.“
Elti ekki tískur
Getur þú staðsett þig í íslenskri
myndlistarflóru?
„Það geri ég ekki og dettur ekki í
hug að gera slíkt. Ég lofa öðrum
myndlistarmönnum að vera í friði og
þeir gera það sem þeir vilja óháð mér.
Ég er ekki að elta neinar tískur eða
gera það sem aðrir eru að gera og hef
engan áhug á því. Ég dæmi ekki aðra
listamenn og hvorki lofa þá né lasta.
Ég er bara ein á báti með mitt og er
ánægð með það."
ErþaðRíkey VE?
„Já það má alveg segja það og á vel
við á sjómannadaginn."
En hversu mikilvægt er það fyrir
þér að segja sögu í myndum þínum?
„Það er saga í öllu sem ég geri og er
mér mjög mikilvægt. Ef engin saga
er, þá er engin mynd. Ég verð alltaf að
tjá mig í sögu.”
Næg vinna fyrir unglingana
Atvinnuástand meðal unglinga
hefur ekki verið betra í mörg ár í
Vestmannaeyjum en í sumar.
Þetta kemur fram í könnun sem
Vestmannaeyjabær stóð fyrir um
atvinnuhorfur unglinga sem verða
16 ára á þessu ári og eldri.
Guðmundur Þ.B. Olafssona tóm-
stunda- og íþróttafu 11 trúi segir að
þarna sé um algjöra kúvendingu að
ræða miðað við undanfarin ár.
„Síðustu ár hafa þetta verið milli 30
og 40 einstaklingar sem hafa skráð
sig en nú voru þeir ekki nema níu.
Við höfum reynt að útvega
krökkunum vinnu á almennum
markaði eða hjá stofnunum bæjarins.
Til þess kom ekki núna því þegar á
reyndi voru sex af þessum níu búnir
að fá vinnu og þeir þrír sem eftir voru
fengu vinnu í Vinnslustöðinni," segir
Guðmundur.
Hann segir að aðsókn í Vinnuskóla
bæjarins sé annað dæmi um gott
atvinnuástand. I honum er unglingar
fæddir 1983, 1984 og 1985. „í allt
skráðu sig um 170 krakkar í
vinnuskólann í sumar en það er
nokkur afföll sem er alveg nýtt. Það
vantar um 30 krakka sem skýrist af
því að þeir hafa fengið vinnu í
stöðvunum eða annars staðar. Er
þetta mjög jákvæð þróun og ástandið
er líkara því sem við þekktum hér á
árum áður þegar allir unglingar í
Eyjum gátu fengið sumarvinnu að
vild. Og ekki má gleyma því hvað
þetta léttir mikið undir með
fjölskyldum unglinganna."
Rikey segir að sögur hennar tengist
ekki íslenskri sagnahefð neitt
sértaklega, þó að hún hafi endurskap-
að ýmis ævintýri. ,Æg hef gert myndir
af fólki sem á sér tilveru í raunveru-
leikanum. Til að mynda gerði ég iág-
mynd af Tyrkja-Guddu síðast þegar ég
sýndi héma í Vestmannaeyjum fyrir
fjórum árum. En að öðru leyti em
þetta myndir sem ég spynn upp úr mér
og einhver innri þörf sem rekur mig
áfram. Þetta em sögur sem ég verð að
segja og vil að aðrir geti eignast
hlutdeild í. Ég hef alltaf elskað
ævintýri og hef reyndar gert skúlptúr
sem er gerður eftir sögunni um
Dimmalimm sem Muggur gerði á
sínum tíma og gaf út á bók. Eg hafði
hins vegar ekki tækifæri til þess að
taka hana með mér núna, vegna þess
að hún er svo stór. Þegar maður
heldur upp á einhverja persónu þá
hefur hún áhrif á sálina í manni og
fyrir mér er ég kannski að endurgjalda
þessi áhrif. Ég vil reyna að gera
sögumar meira lifandi og áþreifan-
legar. Skúlptúrinn hefur það líka fram
yfir málverkið að það er hægt að
snerta hann og skoða frá öllum
hliðunt. Þannig verður hann raun-
vemlegri en að blaða í bók. Þetta á
ekki síður við um blint fólk sem getur
skynjað heiminn á nýjan hátt með því
að snerta hlutinn.“
Gerir þú eitthvað upp á milli
skúlptúrsins og málverksins?
„Ég er mjög fljót að móta leirinn og
tilfinningin er algjörlega í fingrunum.
Þannig er ég fljótari að móta en að
teikna Svo kemur hins vegar þessi
litagleði yfir mig og að geta skipt um
miðil er bæði hvfld og alltaf
skemmtilegt. Maður er að því leyti að
gera eitthvað nýtt en samt það sama.
Ég geri hins vegar ekki sömu
myndimar, en hugmyndimar geta
verið þær sömu sem liggja að baki
myndunum en útfærslan liins vegar
ólik í efni hverju sinni. Það er líka
ákveðin nautn sem fylgir því að geta
séð sömu hugmyndimar frá fjöl-
breyttum sjónarhornum í ólíkum
miðli. Þannig verður myndin oft á
tíðum raunverulegri fyrir manni
heldur en ef maður horfir beint á einn
hlut. Það er hægt að hlaupa hringinn
og hafa nokkra skemmtun af."
Þakkir til Eyjamanna
Ríkey vildi að lokum koma til skila
kæm þakklæti til Vestmannaeyinga
fýrir frábærar móttökur og meiri háttar
stuð í Eyjum „Aðsóknin að sýning-
unni var mjög góð og mér og verkurn
mínum mjög vel tekið. Það er alltaf
gott að koma til Eyja og ég er þakklát
fyrir það tækifæri að hafa getað sýnt
hér nú,“ segir Ríkey að lokum.
Benedikt Gestsson
Meðal verka á sýningunni var lágmynd sem Ríkey gerði um sundafrek
Guðlaugs Friðþórssonar, gegar Hellisey VE fórst austan við Heimaey. „Ég
gerði Dessa mynd sérstaklega fyrir sýninguna og ákvað að gefa
Vestmannnaeyingum myndina. Myndin er gerð beint frá hjartanu og mér
fannst ég burfa að gera hana eftir að ég las um betta afrek Guðlaugs."
Ríkey segir að myndin eigi að sýna átök manns og náttúru og bá
tvísýnu baráttu sem menn há í lífinu til bess að komast af. Guðjón
Hjörleifsson bæjarstjéri ték við myndinni fyrír hönd Vestmannaeyinga.
Hann sagði við afhendinguna að gjöfín væri rausnarleg og að
Vestmannaeyingar væru bakhlátír listakonunni fyrir að bá uelvild sem
fælistí gjöfinni.