Fréttir - Eyjafréttir - 11.06.1998, Blaðsíða 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 11. júní 1998
Mikil aðsókn að hátíðar-
höldum sjómannadagsins
sem fram fóru í blíðskaparveðri
Sjómannadagshelgin fór vel fram í
alla staði. Veður var gott alla helgina
sem skilaði sér í góðri þátttöku
sjómanna og annarra bæjarbúa í
hátíðarhöldunum.
Þangað til síðustu ár hafa hátíða-
höld sjómannadagsins staðið á laug-
ardag og sunnudag en með aukinni
fjölbreytni hafa þau verið að færast
yfir á föstudaginn. Þá fer fram
knattspymukeppni áhafna og um
kvöldið voru Arni Johnsen og félagar
með sjómannastemmningu í Akóges.
Hátíðahöldin á laugardag og sunnu-
dag voru með hefðbundnum hætti en
sólin og góða veðrið urðu til þess að
þátttaka var meiri en oft áður og var
yfirbragð þeirra sjómönnum og
öðrum bæjarbúum til mikils sóma.
A Þórsvelli á föstudaginn mátti sjá
einhverja þá stórkallalegustu knatt-
spyrnu sem hér hefur sést þegar
áhafnir skipa áttust við. Þeir sem
fylgdust með leikjum sjómannanna og
ekki áttu hagsmuna að gæta fannst
mest til kom að enginn skyldi slasast,
slík voru átökin. Ekki verður farið út í
að lýsa einstaka leikjum en áhöfnin á
Gígju stóð uppi sem sigurvegari.
Aftur á móti vom strákamir á Sighvati
Bjamasyni langflottastir. Þeir höfðu
sérpantað búninga með nöfnum sínum
á og það sem vantaði upp á knatttækni
bættu þeir upp í útliti á velli.
tíátíðahöldin við Friðarhöfn hófust
með kappróðri og tóku nfu sveitir þátt
í róðrarkeppninni að þessu sinni.
Aðeins ein kvennasveit var meðal
þátttakenda, en ein aðkomusveit
keppti, sveit af varðskipinu Ægi.
Einnig var keppt í netabætningu og
pokahnýtingu þar sem Guðjón Engil-
bertsson stóð uppi sem sigurvegari. I
reiptogi unnu skipstjórar og stýrimenn
úr Verðandi.
Skemmtiatriðin við Friðhöfn hófust
um klukkan tvö og var Iokið um
klukkan fjögur. Reynt var að keyra
dagskrána áfram eins og kostur var.
Tókst það með ágætum og fyrir vikið
varð dagskráin skemmtilegri.
Sjómannamessan í Landakirkju var
vel sótt að vanda og enn meiri fjöldi
fylgdist með minningarathöfn um
hrapaða og dmkknaða við minnis-
varðann við kirkjuna á eftir. Hún var í
höndum Snorra Oskarssonar safn-
aðarhirðis Hvítasunnumanna í Vest-
mannaeyjum, sem fyrir fimm ámm
tók við af Einari J. Gíslasyni. Minntist
Snorri Einars sem lést fyrir skömmu.
Snorri sagði það þakkarvert að enginn
Vestmannaeyingur hafði hrapað eða
dmkknað frá síðasta sjómannadegi. I
tvígang mátti þó litlu muna, annars
vegar þegar sókningsbátur sökk undir
fimm mönnum við Bjarnarey í júlí í
fyrra og annars vegar þegar tveimur
mönnum var bjargað af Mardísi í
mars.sl.
A Stakkagerðistúni var saman-
kominn mikill fjöldi fólks til fylgjast
með því sem þar fór fram. Snorri
Oskarsson sá um að heiðra aldraða
sjómenn, veita viðurkenningar fyrir
björgunarafrek og verðlaun fyrir sigra
í keppni laugardagsins. Hátíðarræðu
dagsins flutti Lúðvík Bergvinsson
alþingismaður.
Sjómannafélögin hafa lengi haft
það fyrir sið að heiðra sjómenn fyrir
farsælt starf og var engin undan-
tekning á þeim sið í ár. Sjómanna-
félagið Jötunn heiðraði að þessu sinni
Magnús Stefánsson fyrir vel unnin
störf í þágu sjómannastéttarinnar.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Verðandi heiðraði þá Þórarinn Orn
Eiríksson, Lalla á Sæfaxa VE, og
Hilmar Rósmundsson á Sæbjörgu VE.
Þá var Þórhalli Þórarinssyni veitt
viðurkenning Vélstjórafélags Vest-
mannaeyja.
Heiðursskjöld Sjómannadagsráðs
fengu að þessu sinni þrír aðilar og
voru þeir afhentir á sjómannahófinu í
Týsheimilinu á laugardagskvöldið.
Komu þeir í hlut Sigmars Þórs
Sveinbjörnssonar fyrir ötult starf í
þágu sjómannastéttarinnar og óeigin-
gjamt starf að öryggismálum sjó-
manna. Einnig fékk Slysavamadeildin
Eykyndill viðurkenningu fyrir þeirra
framlag til öryggismála sjómanna í
gegnum tíðina og að lokum fékk
Olafur Sigurmundsson viðurkenn-
ingarskjöld fyrir góða umgengni og
snyrtimennsku um bát sinn og búnað
hans. Viðurkenningarskjöld Sjó-
mannadagsráðs fengu þrír aðilar fyrir
björgunarafrek. Björgunarfélag Vest-
mannaeyja fékk viðurkenningu fyrir
að bjarga Pétri Steingrímssyni, Gylfa
Gíslasyni, Jens K.M. Jóhannessyni og
Björgvin Amaldssyni vestur af
Bjamarey þann 6. júlí 1997. Þar var
að verki áhöfnin á björgunarbátnum
Þór undir stjóm Gunnlaugur Erlends-
sonar sem tók við viðurkenningunni.
Hjálmar Guðnason á Bravo fékk
heiðursskjöldinn fyrir að bjarga
fimmta manninum þennan dag við
Bjamarey, Omar Stefánssyni sem var
á sókningsbátnum með Pétri, Gylfa,
Jens og Björgvin þegar hann sökk.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar
fékk heiðurskjöldinn fyrir að bjarga
feðgunum Jóel Þór Andersen og
Halldóri Jóni vestur á Selvogsbanka
þegar Mardís VE varð fyrir áfalli.
Menn úr áhöfn varðskipsins Ægis tók
við skildinum fyrir hönd Land-
helgisgæslunnar.
Þá vom veitt verðlaun fyrir afrek á
knattspymuvellinum á föstudaginn og
keppnum laugardagsins. Sveit
Verðandi var sigurvegari í kappróðri
félaga á tímanum 2,10:03. Ahöfnin
vann áhafnabikarinn en þeir reru á
2,1:08. Af drengjum urðu Glussa-
tjakkarnir sigursælastir, reru þeir á
2007:10 sem reyndist besti tíminn í ár.
Aðeins ein kvennasveit, Stálbikkj-
umar, mætti til leiks og rem stúlkumar
á 2,16:80 og slógu við sumum
karlasveitunum.
í knattspyrnukeppninni stóð á-
höfnin á Guðmundi VE uppi sem
sigurvegari og var það eftir harða og
miskunarlausa keppni við hin liðin.
Guðjón Matthíasson varði titilinn í
pokahnýtingu og netabætningu og
Boltarnir í Verðandi lögðust þyngra í
reipið en aðrir og unnu reiptogið.
Af skemmtiatriðum á Stakkó má
nefna Lúðrasveit Vestmannaeyja,
Samkórinn, Jón Gnarr og hljómsveitin
Skítamórall. Kynnir Sjómannadagsins
var Bjarni Olafur Guðmundsson og
fórst honum það vel úr hendi.
HJONIN Kolbrún Úskarsdóttir og Sigmar Þór Sueinbjörnsson lögðu krans á minnismerkið um hrapaða og drukknaða uið
minningarathöfnina að lokinni sjómannamessunni. Sigmar fékk heiðurskjöld sjómannadagsins fyrir störf að
öryggismálum sjómanna. Skjöldurinn uar afhentur á sjómannahófi i Týsheimilinu á laugardagskuöldið. flllír gestir í
hæofinu risu á fætur uið bað tækif æri og klöppuðu Sigmari lof í lófa.
Sjómannadagurinn
haf inn til fyrrf írirðingar
-segir Úðinn Kristjánsson formaður Sjómannadagsráðs
í Týsheimilinu var hekkurinn béttsetínn og glösum lyft af miklu móð.
Óðinn Kristjánsson,
formaður sjó-manna-
dagsráðs Vestmanna-
eyja, segist ekki getað
verið annað en á-
nægður með hvernig til
tókst með sjómanna-
dagshelgina.
„Það vora allir rosa-
lega ánægðir með hvað
allt tókst vel og niá segja
að okkur hafi tekist að
hefja þennan hátíðisdag
okkar sjómannanna til
fyrri vegs og virðingar,"
sagði Óðinn.
Hann segir að aðsókn
hafi farið langt fram úr
björtustu vonum og hún
hafi í reynd sett sjó-
mannadagsráð í ákveð-
inn vanda. „A laugar-
dagskvöldið voru sam-
komur á þremur stöðum
á okkar vegum, í Al-
þýðuhúsinu, Týsheim-
ilinu og veitingastaðnum
Fjörunni þar sem aðeins
var boðið upp á mat.
Þegar við sáum fram á hvað aðsókn var mikil reyndum
við að fá inni í lþróttamiðstöðinni eins og gert er víða um
land en stjóm hússins var því mótfallin. Við urðum því að
koma um 550 manns fyrir á þessum þremur stöðum en
við urðum líka að vísa fjölda manns frá og það fólk fór út
að borða á öðrum veitingastöðum í bænum. 1 allt gæti ég
trúað að rúmlega 600 manns hafi sóst eftir að komast að
hjá okkur. Ástæðan var sú að við vomm með mikla góða
dagskrá og það spurðist út."
Óðinn viðurkennir að aðstæður í Týsheimilinu hafi
ekki verið sem skildi en það hafi verið eitthvað sem
sjómannadagsráð réði ekki við. „Þetta er eitthvað sem
huga þarf að í framtíðinni ef við ætlum að halda upp á t.d.
sjómannadaginn með óbreyttu sniði í framtíðinni," sagði
Óðinn sem að lokurn vildi þakka þeim sem aðstoðu ráðið
með einum eða öðrum hætti fyrir þeirra framlag.