Fréttir - Eyjafréttir - 11.06.1998, Blaðsíða 13
Fimmtudagur ll.júní 1998
Fréttir
13
Skólaslit Barnaskólans:
Eva Und lékk vMurkenn-
ingar í öllum greinum
Frá afhendíngu uiðurkenninga, Eua Línd, Anna Sigríður, Rannueig Rðs og Ása
Hrönn.
Að þessu sinni útskrifuðust 37
tíundu bekkingar frá Barnaskól-
anum í Vestmannaeyjum. Af þeim
luku átta prófi í siglingafræði sem
veitir skipstjórnarréttindi að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum
um siglingatíma og aldur.
Kom fram hjá Hjálmfríði Sveins-
dóttur, skólastjóra, að einn nemandi
ætti eftir eitt próf til að ljúka námi í
siglingafræðinni og þar með hefði
skólinn útskrifað 52 nemendur með
skipstjórnarréttindi á þeim sex árum
sem skólinn hefur haft tíunda bekk.
Hjálmfríður sagði að námsárangur
hefði mátt vera betri. Þokkalegur
árangur var þó í ensku og íslensku á
samræmdu prófunum en heldur slakur
í dönsku og stærðfræði. „Ég held að of
margir hafi verið of góðir við sjálfan
sig og gefist upp í stað þess að æfa
betur,“ sagði Hjálmfríður og bætti við,
„meðaleinkunn skólans í stærðfræði er
5,4 en landsmeðaltal er 6,2.
Meðaleinkunn í íslensku er 6,3 en
landsmeðaltal er 6,6. Meðaleinkunn
skólans í dönsku er 4,7 en lands-
meðaltal er 5,6 og meðaleinkunn í
ensku er 6,4 en landsmeðaltal er 6,8.“
Hjálmfríður sagði að mikil áhersla
hefði verið lögð bættar mætingar
nemenda en það hefði því miður ekki
skilað sér hjá tíundu bekkingum sem
væiu með mun slakari mætingu nú en
í fyrra. Kæmi það fram í slakari
námsárangri.
Níu nemendur fengu þó viðurkenn-
ingar frá skólanum fyrir ástundun og
hegðun og tveir frá Foreldrafélaginu.
Arnar Olafsson, Anna Sigríður
Snorradóttir, Atli Jóhannsson, Asa
Hrönn Ásmundsdóttir, Hannes K.
Eiríksson, Kolbeinn Olfafsson, Kristín
Gísladóttir, Sindri Viðarsson og
Trausti Hjaltason fengu viðurkenn-
ingu frá skólanum og Daði Garð-
arsson og Sindri Viðarsson frá For-
eldrafélaginu.
Veittar voru viðurkenningar fyrir
frábæran námsárangur og þar kom
einn nemandi, Eva Lind Ingadóttir,
við sögu í öllum tilvikum. Hún fékk
viðurkenningu fyrir framúrskarandi
áhuga og árangur í dönsku. Eva Lind
fékk einnig viðurkenningu í
stærðfræði ásamt Rannveigu Rós
Olafsdóttur og í ensku ásamt Önnu
Sigríði Óskarsdóttur. Þá fékk Ása
Hrönn Ásmundsdóttir viðurkenningu
fyrir frábært starf að félagsmálum.
Wþ> U L I
Útskriftarnemar Barnaskúlans ásamt nemendum og kennurum.
Sinfónia f heimsókn
Þann 18. júní næstkomandi er
væntanleg til Vestmannaeyja 45
manna amerísk symfómuhljóm-
sveit Pebody tónlistarskólans.
Hl jómsveitin mun halda tónleika
í Hvítasunnukirkjunni föstudags-
kvöldið 19. júnf. Stjómandi verður
Gene Young sem er vel þekkt
tónskáld og stjómandi en hann
hefur stjómað hlómsveitinni
undanfarin Ijögur ár. Það er Bára
Grímsdóttir tónlistarkennari og
aðrir meðlimir Samkórs Vest-
mannaeyja sem bera hitann og
þungann af komu gestannatil Eyja.
Bára segir hljómsveitina mjög virta
og að stjórnandi hennar hafi unnið
með heimsþekktum listamönnum.
„Þetta er því mikill hvalreki fyrir
fyrir tónlistamnnendur í Eyjum.
Hljómsveitin mun dvelja í Eyjum í
tvo daga en fer síðan til
Reykjavíkur og mun halda tónleika
þar, meðal annars ásarnt kvennakór
Reykjavíkur."
Fyrsti viðskíptavinur umboðsskrifstofu Heimsferða í Vestmannaeyjum
sem staðfesti og borgaði ferð sem hann keypti hjá skrifstofunni, fékk
konfektkassa að gjöf við bað tækifæri. Það var Lilja Birgisdóttir sem var
hin heppna. Hún sagðist hafa keypt sér briggja vikna ferð til Benidorm.
„Ég hef nú farið áður til Benídorm," segir Lilja. „Nlér leist svo vel á betta
tilboð Heimsferða að ég skelltí mér á bað."
Á myndinni er Þúrey Friðbjarnardóttir umboðsaðili Heimsferða að
afhenda Lilju Birgisdðttur konfektkassann og farmiðann.
Spennufallið sem myndaðist á
Eyjunni þegar úrslit kosninganna
lágu fyrir er um margt einkennandi
fyrir daglegt líf á þeim sama stað,
þegar hvunndagshetjumar snúa sér
aftur að spjallinu. Þessu spjalli sem
allir Eyjamenn telja nauðsynlegan
vettvang til að skapa grundvöll fram-
tíðarinnar. Allt verður fyrst til í
spjalli, svo hefst plottið síðan fram-
kvæmdin.
Þegar framkvæmdastiginu er náð
fara samsæriskenningamar af stað og
í framhaldi af því er leitað að ein-
staklingi til þess að hengja. Þá fara
menn annað hvort í jákvæða eða
neikvæða fýlu og fylkingar hvoru
tveggja hópsins spjalla til stuðnings
meintum hengdum manni. Mörg
mál geta verið í spjallinu í einu og
jafnvel geta þau skarast á ótrúlegustu
vegu. Samt er þetta allt í góðu svo
langt sem fýlan nær, neikvæð eða
jákvæð.
að hefur verið sagt að fýlan geti
orðið svo mögnuð að menn talist
ekki við svo árum skiptir, jafnvel
ágætir nágrannar í eina tíð láta sem
þeir sjái ekki hvor annan. Menn hafa
jafnvel yfirgefið Eyjuna sökum
fýlusárinda. Þetta mun vera fýla í
sinn neikvæðustu mynd. Hin fýlan
lýtur að hinu hatursfulla augnaráði
og betri er krókur en að mæta
þessum manni á götu, þó í
margmenni geta slíkir fjandvinir átt
spjall, jafnvel að slíkir geri hvor
öðrum greiða. Allt með þeim
formerkjum þó að viðkomandi láti
sér meint fýluástand í léttu rúmi
liggja. Þetta er jákvæða fýlan. Svo
má deila um það hvor fýlan fer betur
með sálina. Engu að síður lenda
hengdir menn í spjallinu sem og
bregðast við með þessum tvennum
hætti lfka. Þá er gaman segja
Eyjamenn.
En það var spennufallið eftir kosn-
ingamar sem var til umræðu. Það
eru til einstkalingar sem em svo
sjálfumglaðir að þeir hrinda jafnvel
frá sér atkvæðum. Einu atkvæðin
sem þeir fá er glýjan í þeirra eigin
augum. Alls staðar var brosað
þessar vikur fyrir kosningar og
sigurtilfinning sem átti að vera
smitandi gagntók hinn harða kjarna
skipuleggjenda og áróðursmeistara.
Það gustaði af mönnum þegar þeir
gengu um, tónn raddarinnar lá hærra,
menn jafnvel pötuðu og lögðu
áherslu á mál sitt með hinum
furðulegustu handahreyfingum, eins
og þjóðir við Miðjarðarhafið gera
gjarna og sparifötin urðu hvers-
dagsklæði. Glýjumenn og hvunn-
dagshetjur virðast því ekki eiga
samleið þegar á hólminn er komið ef
tekið er mið af úrslitum
kosninganna. Hvunndagsfólk heldur
sínu striki og spjallið blífur og lífíð
færist í sitt fyrra horf og glýjumenn
hverfa af yfirborði samfélagsins eins
skyndilega og þeir poppuð upp úr
olíupottinum sem þeir ætluðu að
kynda undir öðrum, en lentu óvart í
sjálfír fyrir að miskilja miskilinn
miskilning. Það er ónákvæmt spjall.
Eðli spjallsins er hins vegar að vera
ónákvæmt, fullt af getgátum,
spekúlasjónum um menn og málefni,
stundum rætið, stundum ekki, en
alltaf spjall og fólkið dingalar í
snönjnum
að er trúlega vont að vera tapari,
svona álíka vont og að vera
sjálfumglaðursigurvegari. Kannski
er líka hægt að vera sjálfumglaður
tapari. Þess vegna líta kannski allir á
sig sem sigurvegara í téðum
afstöðnum kosningum. Að minnsta
kosti hefur það verið ofarlega í
spjallinu. Samt fer lítið fyrir þeim
sem ekki náðu þeim meirihluta sem
þeir ætluðu sér og jafnvel enn þá
minna fyrir þeim meirihluta sem hélt
sínum hlut. Það er einhvers konar
limbóástand á Eyjunni sem einnig
má rekja til veðursins sem hefur
verið með svo mildum hætti
undanfarið að skrjáfíð heyrist ekki í
fötunum utan á fólkinu að brjótast á
móti rokinu, né lárétt rigningin í
andlitinu. Þess vegna fer spjallið
kannski lægra en ella, það berst ekki
eins greiðlega milli manna í logninu.
Fólk andar líka léttar, en hvers vegna
er ekki gott að segja, en heyrst hefur
í spjalli að fólk sé í eðli sínu
íhaldssamt og vilji ekki breytingar,
allra síst breytingar sem geta
hugsanlega orðið til þess að létta
pyngjuna. Hinir sem vildu breyta
höfðu engu að tapa hvort eð var og
sitja uppi með veskið jafn þungt eða
létt eftir atvikum.
að er kvika í fólki hvort sem líkar
betur eða verr, en misjafnlega djúpt á
hana. Þannig eru Eyjamenn líka eins
og Eyjan sem þeir byggja,
miskunarlausir en samt gjöfulir og
vinalegir, hrikalegir en samt látlausir.
Allar þessar birtingarmyndir skila sér
í spjallinu og stundum hangir bakari
í stað smiðs í spjallgálganum.
Benedikt Gestsson.
Höfimdur er blaðamaður á
Fréttum.