Fréttir - Eyjafréttir - 11.06.1998, Page 16
H H
FLUTNINGAR: VESTMANNAEYJUM
Dagkgar farélr fntrt é land tm er.
Vöruafgreiðsl a
Skildlngovegi 4 Sími 481 3440
Vöruafgreiðsla í Reykjavik
TVO Héðinsgota 1-3
Simi S81 3030
Öll móttaka ferðamanna, skóla- og.íþróttahópa
8966810
Mikið var sungið í Akóges á föstudagskvöldið þar sem Árni Johnsen og félagar stóðu fyrir
sönguppákomu. Meðal þeirra sem tóku lagið með Árna var Grétar Þorgilsson. Var gerður
góður rómur að söng Grétars, enda maðurinn með bjarta og tæra tenórrödd sem hugnaðist
gestum Akóges vel þetta kvöld.
Stelpurnar eru mættar
Um helgina fer frani níunda
Pepsímótið í kvennaknattspyrnu
hér í Vestmannaeyjum. Þátt-
takendur eru um 830 og koma frá
15 félögum og er þetta svipaður
fjöldi þátttakenda og verið hefur.
Stefanía Guðjónsdóttir sem sæti á í
Pepsímótsnefnd segir að 82 lið muni
keppa á mótinu í alls 328 leikjum.
Hún segir og að heiðursgestir mótsins
verði Ragna Lóa Stefánsdóttir fyrr-
verandi landsliðskona í knattspymu
og Amar Ottesen markaðsstjóri Pepsí.
Mótið verður sett í dag kl 18:00 á
Þórsvellinum og mun verða boðið upp
á ýmis atriði til skemmtunar, eins og
knallettusýningu, fallhlífastökk og
Hálendaleika. Einnig mun íslands-
banki afhenda þátttakendum mótsins
gjafir við mótssetninguna. Leikið
verður allan fimmtudaginn og
föstudaginn, en á laugardag hefst
keppni í milliriðlum. Á sunnudaginn
verða úrslitaleikimir spilaðir frá kl
09:00 - 15:00. Á föstudeginum
verður útiball á Stakkó, kvöldvaka og
grill á laugardagsdkvöld í íþrótta-
miðstöðinni. Mótinu verður slitið
með lokahófi á Sunnudag kl. 19:00.
Þá verða og verðlaunaðir bestu
leikmenn í hveijum flokki ásamt besta
og efnilegasta leikmanni mótsins.
Samnmgarum
söluá
TurninumP
Samningaumleitanir hafa verið í
gangi um kaup Baldurs Gísla-sonar
í Tölvubæ á Veitinga-staðnum
Tuminum.
Rétt áður en blaðið fór í prentun
vildi Baldur ekki láta hafa neitt eftir
sér unt málið, nema að málið
myndi skýrast fljótlega og þá koma
í ljós hvort af hugsanlegum kaup-
um yrði.
Karl Gauti
skoflarEyjar
Von er á nýskipuðum sýslumanni
Vestmannaeyinga Karli Gauta
Hjaltasyni til Eyja föstudaginn 12.
júní.
Samkvæmt heimildum mun hann
ætla að skoða aðstöðuna hér í
Eyjum og kynna sér embættið
Nýkjörnir
bæjarfulltrúar
áfyrstafundiá
brifljudag
Fyrsti bæjarstjómarfundur nýkjör-
inna bæjarfulltrúa mun verða
haldinn þriðjudaginn 16. júní í
Safnahúsinu. Þetta er opinn fundur
og öllum heimilt að koma og berja
hina föngulegu bæjar-fulltrúa
augum við kjöraðstæður.
Fundurinn hefst klukkan 18:00.
Aðal efni fundarins mun verða
kosning í nelndir og ráð.
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
SEMB1FE»M8IÍ.1
1*481-2943,
V 897-1178
Gott
atuinnuástand
1 blaðinu í dag er stór auglýsing frá
Vinnslustöðinni þar sem óskað er
eftir fólki til starfa í bolfiskvinnslu
og loðnuverksmiðju fyrirtækisins.
Vinnslustöðin fer ekki hefð-
bundna leið í að auglýsa eftir
starfsfólki heldur er með hálfsíðu-
auglýsingu þar sem stiklað er á
stóru í starfsemi og umsvifum
félagsins. Sagt er að vegna eflingar
bolfiskvinnslunnar og þeirri stefnu
félagsins að taka allan afla heim af
nótaskipunum vanti fólk til starfa. í
báðum tilfellum gæti orðið um
vaktavinnu að ræða.
Þetta, ásamt frásögn í blaðinu af
mikilli vinnu fyrir unglinga, sýnir
að almennt er gott atvinnuástand í
Eyjum þessar vikumar.
Enginn hefur
sónumennbá
Embætti sóknarprests Landakirkju
var auglýst öðm sinni 3. júní
síðastliðinn, en umsóknarfrestur er
til l.júlí. Embætti aðstoðarprests
var einnig auglýst laust til
umsóknar, en Jóna Hrönn
Bolladóttir eiginkona séra Bjarna
Karlssonar hefur gengt því embætti
eins og kunnugt er. Samkvæmt
upplýsingum frá Biskupsstofu
hefur enginn sótt um þessi embætti
í Vestmannaeyjum enn sem komið
er.
Næstu Fréttir
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní verður
næsta miðvikudag. Þess vegna
verður nokkur seinkun á Fréttum.
Koma þær út síðdegis á fimmtdag í
stað þess að koma út um
morgunninn.
raul JNswmans
□rhylgjupspp
Blá hánd pastasósur
Star FDUrrs súkkulaðikex 500
Hsinz tómatsósa risaflaski
Pop up frystiklakar
136 pk.
OO CD pk.
189 pk.
OO stk.
215 pk.