Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1998, Qupperneq 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 25. júní 1998 • 25. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Árleg Jónsmessugleði ÍBV
var haldin hátíðleg föstu-
dagskvöldið í úrhellisrign-
ingu og hráslaga. Þrátt
fyrir leiðindaveður var
mæting með ágætu móti,
en óneitanlega setti
rigningin svip sinn á
hátíðina. Hljómsveitirnar
D-7 og Dans á rósum
héldu uppi góðri stemmn-
ingu að ekki sé talað um
brekkusöng Árna
Johnsen. Fyrr um kvöldið
voru grillteiti um alla
Heimaey og komu Fréttir
við hjá starfsfólki
Netagerðarinnar Ingólfs.
Metbátttaka
Shellmótið var sett í gær, en það er
knattspyrnumót 9 og 10 ára
drengja. Mótið hófst á því að
skrúðganga með lúðrasveit í broddi
fylkingar lagði af stað frá Barna-
skólanum að Týsvellinum. Setning
mótsins fór svo fram á Týsvellinum.
Bæjarstjóri, formaður IBV og full-
trúi Shell fluttu ávörp. Einnig var
boðið upp á víkingabardaga og
víkingar kepptu við stjörnulið Om-
ars Ragnarssonar. Kynnir var
Bjarni Olafur „Diskó" Guðmunds-
son.
Keppnin sjálf hófst klukkan 09:00 í
morgun og stendur fram á sunnudag.
A laugardaginn verða undanúrslit og
úrslitaleikimir verða leiknir á sunnu-
daginn.
A föstudagskvöldið verður kvöld-
vaka fyrir krakkana. Þá ntun Smári
Harðarson kraftamenni og Valgeir
Guðjónsson stuðmaður koma fram, en
fjölmörg önnur atriði munu verða í
boði. A föstudagskvöldið mun hefð-
bundin skemmtun þjálfara, fararstjóra
og mótshaldara hefjast klukkan 23:00
og mun standa til klukkan 03:00. Þar
mun hljómsveitin Dans á rósum halda
uppi dansmennt við eigin undirleik og
Árni Johnsen mun einnig mæta á
svæðið.
Á laugardagskvöldið verður grill-
veisla klukkan 19:00 og þátttakendur
munu reyna með sér í ýmsum bolta-
þrautum. Kl. 20:30 munu pressulið
og landslið Shellmótsins keppa.
Lokaathöfn mótsins og mótsslit
verða á sunnudagskvöld kl 19:00. Þá
verða einnig verðlaunaafhendingar, en
Haukur Ingi Guðnason, leikmaður
Liverpool mun afhenda verðlaun
ásamt fulltrúa Shell, Georg Þór
Kristjánssyni. Einnig mun verða
valinn besti leikmaður mótsins, mesti
markaskorari og besti markmaður,
auk fleiri best-titla sem veittir munu
verða.
Það eru 24 félög með A,B,C, og D
lið sem taka þátt í mótinu. Alls munu
352 útileiknir fara fram og 128
innileikir, en það er nýlunda að keppt
verður bæði í úti- og inniknattspymu.
Þegar allt er talið, keppendur, þjálfarar
og fararstjórar munu um 1050 manns
taka þátt í mótinu, auk þess sem gert
er ráð fyrir öðmm eins fjölda foreldra
og forráðamanna. Að sögn Einars
Friðþjófssonar er þetta metþátttaka í
Shellmóti frá upphafí.
Allt gistirymi upppantað
Auróra Friðriksdóttir ferðamálafulltrúi Vestamannaeyja segir að allt
gistirými, sem ekki var bókað fyrir, sé nú fuilbókað í viku til tíu daga í
kringum þann dag sem Keikó kemur til Eyja.
„Allt gistirými sem laust var, hótel, gistiheimili og heimagisting, alls 221 rúm
er því pantað. Þetta er fyrir utan Hótel Bræðraborg og gistiheimilið Heimi, sem
var pantað beint frá aðilum í Seattle. Ég veit hins vegar ekki hlutföllin milli
fjölmiðlamanna og þeirra sem koma hingað beint á vegum Free Willy Keiko
samtakanna.“
Auróra segir að reynt verði að bregðast við frekari eftirspurn eftir gistirými
með því að auglýsa eftir húsnæði hjá einstaklingum í bænunt. „Við viljum
reyna að höfða til skynseminnar hjá fólki og að Vestmannaeyingar haldi ró
sinni. Ef okkur tekst vel upp fáum við jákvæða umljöllun. f ljósi framtíðarinnar
er jákvæð umíjöllun besta auglýsingin."
Eyjar besti staður fyrir Keikó
Ummæli Jóns Gunnars Óttóssonar forstjóra
Náttúrufræðistofnunar Islands í Ríkisjón-
varpinu á þriðjudag um að rannsóknir í
Klettsvíkinni væru ekki nógu ígrundaðar,
hafa vakið nokkra undrun og eftirtekt þeirra
fræðimanna sem unnið hafa að rannsóknum
í víkinni vegna komu Keikós til Eyja.
Ármann Höskuldsson forstöðumaður Nátt-
úrustofu Suðurlands sem staðsett er í Eyjum
segir að yfirlýsingar Jóns Gunnars eigi ekki við
nein rök að styðjast. „Það hefur verið unnið að
rannsóknum af okkar hálfu síðastliðna tvo
mánuði á faglegum grunni með þeim frávikum
sem eru í vísindalegu starfi, enda hafa niður-
stöðumar verið kynntar með þeim formerkjum.
Auk þess er vert að benda á það að þeir
Bandaríkjamenn sem unnið hafa með okkur í
þessum rannsóknum síðustu vikur eru meðal
þeirra bestu í heiminum á sínu sviði og þeir em
ánægðir með þær aðferðir sem við höfum beitt
við okkar rannsóknir."
Armann segir að Náttúrufræðistofnun hafi ekki
vitað um þær rannsóknir sem Náttúmstofa og
Háskóli Islands hafi verið að framkvæma hér.
„Náttúrufræðistofnun getur fengið allar þær
upplýsingar sem liggja fyrir úr rannsóknunum,
en það hafa þeir ekki fengið og þar af leiðandi
ekki í stakk búnir að dæma þær rannsóknir sem
gerðar hefa verið, enda lá það ekki fyrir honum.
Þær stofnanir sem komið hafa að þessum
rannsóknum hér hafa unnið faglega í þessu
máli.“
Náttúmfræðistofnun og Náttúmstofu Suður-
lands ber að starfa saman, en em óháðar stjóm-
sýslueiningar. Þó að kveðið sé á um samstarf
milli stofnanna þýðir það ekki að Náttúmstofa
þurfi að hafa samband við Náttúmfræðistofnun í
hvert sinn sem hún tekur að sér einhverjar
rannsóknir. Samstarfið er tvíhliða. „Raunar emm
við Jón Gunnar sammála um að orð hans í
Ríkissjónvarpinu séu oftúlkuð, en það sem fyrir
honum vakti var fyrst og fremst að koma með
góðlegar ábendingar til Keikó manna, óafvitandi
að þessara rannsóknarspurninga hafði þegar
verið spurt og svara þeirra þegar verið leitað."
Armann segir að það sé tóm góðvild sem liggi
að baki þessum yfirlýsingum Jóns Gunnars.
Hann vill Keikó vel eins og við öll hin. „Það er
ljóst að Vestmannaeyjar em besti mögulegi
staðurinn fyrir hvalinn hér við land. Hins vegar
liggur það líka fyrir að ef Keikó fer að líða illa
héma verður hann fluttur í burtu og málið nær
ekki lengra, svipað og gerðist í Mexíkó á sínum
tíma. Rannsóknasetrið hér og Keikósjóðurinn
hafa mjög gott starfsfólk sem mun vinna að og
tryggja velferð hans hér í Klettsvíkinni."
Bílaverkstæöið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 ■ Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 48132
raffi»ii..i.ii,Qim.ijbiii.iii^
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alla daga Kl. 08:15 Kl. 12:00
aukafeföir fimmtu-föstu-ogsunnudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00
'Ueriólfur
/míaw/ú/id
Sími 481 2800 Fax 481 2991