Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1998, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur25. júní 1998
Færrifærsluren
venjulega
Færslur í dagbók lögreglu voru í sl.
viku aðeins 104 og er það töluvert
minna en venjulega. Skýringin á
því er að verulegu leyti sú að þetta
yfirlit er tveimur dögum styttra en
vanalega. Aftur á móti var talsvert
að gera aðfaranótt laugardags en þá
var haldin Jónsmessuhátíð í Herj-
ólfsdal. Alls þurfti lögregla að hal'a
afskipti af gestunr þar sautján
sinnum á laugardagskvöld og nótt.
Fámenntá
lónsmessu
Rigning setti nokkurt strik í reikn-
inginn á Jónsmessuhátíð. Talið er
að um 300 manns hafi verið í
Dalnum þegar mest var. Hefur oft
verið fjölmennara á þessari hátíð.
Þrátt fyrir talsverða ölvun fór
hátíðin þokkalega fram. Það helsta
sem út af bar var að ráðist var á
konu, hún slegin og brotnuðu
tennur. Þá fengu tveir að gista
fangageymslu el'tir slagsmál og
nokkrunr var ekið á sjúkrahús
vegna áverka senr þeir höfðu fengið
í slagsmálum eða þá þeir kunnu
ekki fótum sínum forráð af
einhverjum öðrum sökum.
Tueir stutar til
viðbátar
Tveir ökumenn voru stöðvaðir
vegna gruns um ölvun við akstur
og voru báðir sviptir ökuréttindum
lil bráðabirgða. Þar með l'ylla
„stútamir“ orðið tuginn það sem af
er árinu. Fimm aðrir ökumenn
voru kærðir vegna brota á um-
ferðarlögum.
Staltösku
Einn þjófnaður var kærður til
lögreglu um helgina. Þar hafði
tösku verið stolið frá konu sem var
gestkomandi á veitingastaðnum
Lundanum. Við eftirgrennslan
fannst taskan í fórum eins gestanna
og var málið þar með upplýst.
Landogsynir
puttabrotnir
Ekki verður af því að hljómsveitin
Land og synir sem auglýst er á
Höfðanum í blaðinu í dag mæti á
svæðið. Ástæðan er sú að á
miðvikudaginn puttabrotnaði
gítarleikari sveitarinnar.
Shellmót hafið
Shellmólið hófst í gær. Lögregla
vill ítreka það sem fram kom í
síðasta blaði að brýna ökumenn til
að sýna árvekni, sérstaklega
kringum mótssvæðið. Ökumenn
eru hvattir til að velja sér aðrar
ökuleiðir en framhjá knattspyrnu-
völlunum meðan rnótið stendur
yfir.
Sigurðurformaður
bæjarráðs
Sigurður Einarsson var kosinn
formaður bæjarráðs Vestmannaeyja
á l'yrsta l'undi bæjarráðs sem
haldinn var síðastliðinn mánudag.
Fréttir og goslokin
Helgina 3. til 5. júlí verður minnst
25 ára frá goslokum. Af því tilefni
verður næsta tölublað Frétta helgað
þessum tímamótum.
Hugsanlegur farkostur
Keikós er engin smásmíði
C-17 Globemaster flugvélin, sem
mestar líkur eru á að muni flytja
Keiko hingað frá Bandaríkjunum
er engin smásmíði.
Eigin þyngd hennar er rúm 55 tonn
og burðargeta hennar er um 34 tonn.
Hún er rúmir 52 m að lengd og
vænghafið er rúmir 50 metrar. Hún er
knúin fjórum Pratt & Whitney þotu-
hreyflum og getur flogið fullhlaðin
2400 sjómfiur án þess að taka elds-
neyti. Lendingarhjólin eru líka af
stærri gerðinni, sex 50 tommu dekk
hvorum megin undir búknum og tvö
40 tommu dekk að framan.
Einn helsti kosturinn við þetta ferlíki
er hve stutta flugbraut hún þarf eða að
hámarki 900 m, fullhlaðin. Og í áhöfn
eru aðeins þrír, flugstjóri, flugmaður
og hleðslustjóri.
Þessar vélar eru sérstaklega hannaðar
sem herflugvélar enda nær eingöngu
notaðar sem slíkar. Það er einkum hin
mikla burðargeta og það hve stuttar
flugbrautir þær þurfa sem hafa gert
þær að aðalflutningatæki bandaríska
hersins. Það er því ljóst að ekki ætti
að væsa um Keikó á leiðinni í þessum
farkosti. Aftur á móti er ljóst að
verulega þarf að styrkja yfirborð
flugbrautarinnar hér áður en þetta
ferlíki lendir. Núverandi braut yrði
fljót að gefa eftir slíkum þunga.
Til samanburðar birtum við hér
nokkrar tölulegar upplýsingar um hina
nýju flugvél, sem Islandsflug mun
taka í notkun á flugleiðinni til Eyja í
sumar, og heitir ATR-42-300. Þessar
vélar eru franskar, búnar tveimur
þotuhreyflum af Pralt & Whitney
gerð, 1800 hestöfl hvor. Þær geta náð
500 km hraða á klst. Þær þykja mjög
hagkvæmar í rekstri.
Vélarnar eru hannaðar bæði til
farþega- og vöruflutninga. Lengd
þeirra er 22,7 m og vænghaf 24,6 m.
Meðalburðargeta þeirra er rúm 5 tonn
og rými er fyrir 46 farþega séu þær
aðeins notaðar til farþegaflutninga.
Þessi samsetta mynd sýnir uel stærðarmuninn á C-17 flutningauélinni og ATR-
42 fluguél islandsf lugs sem ber 46 farbega.
Aríðandifundur
hagsmunaaðilaí
ferðamennsku
Boðað hefur verið til fundar þar
sem stofna á formleg samtök aðila
sem hagsmuna hafa að gæta í
móttöku ferðamanna með einum
eða öðrum hætti.
Auróra Friðriksdóttir, ferðamála-
fullúúi, segir að þama sé meiningin
að ná saman forráðamönnum
hótela, gistiheimila, veitingastaða
og verslana í bænurn. Hún neitar
því ekki að hugsanlegur flutningur
á háhymingnum Keikó sé kveikjan
að fundinum. „Það skiptir miklu
máli fyrir okkur að þessir aðilar nái
að mynda ein sterk samtök sem
myndu gæta hagsmuna okkar. Um
leið myndu þau sjá til þess að
þjónustan haldist innanbæjar. Það
er því mikilvægt að allir mæti,“
sagði Auróra.
ísólfur Gylfi
formaður
Vestnorræna
VestnoiTæna ráðið er skipað 18
þingmönnum frálslandi. Færeyjum
og Grænlandi. Ráðið hélt fund sinn
að þessu sinni í Grænlandi í byrjun
júní. Þar var ísólfur Gylfi Pálma-
son, þingmaður Sunnlendinga,
ráðinn formaður til næstu þriggja
ára. Þema þessa fundar var staða
ungs fólks á Vest-Norðurlöndum.
Samþykkt var m.a. að ríkisstjórnir
landanna stuðli að því að grunn- og
framhaldsskólar nýti tölvutækni til
að auka samstarf sín í milli og
einnig að aukið verði samstarf á
sviði íþrótta. Þá var samþykkt að
beina því til ríkisstjómanna að
stofna sérstakan vestnon-ænan
menningarsjóð. Næsta stóra verk-
efni ráðsins er framkvænid æsku-
lýðsráðstefnu sem haldin verður í
Reykjavík 10. - 12. Júlí nk. Alls
munu 150 ungmenni taka þátt í
ráðstefnunni.
Enn fullur kraftur í humarveiðunum
Alsey VI komin með 15 tonn
„Þetta er búið að vera ágætt," sagði
Hörður S. Jónsson á Álsey," þegar
við slógum á þráðinn til hans á
þriðjudag.
„Það er kaldaskítur núna og við
erum grunnt í Háfadýpinu. Það voru
eitthvað um 150 kg í síðasta hali og
það er prýðilegt. Viðemmbúnirmeð
kvótann okkar, þessi 15 tonn en
höldum samt áfram, þeir redda þessu
einhvern veginn í landi. Við bara
veiðum og slítum meðan við megum.
Þetta er allt annað en í fyrra, ástandið
virðist vera orðið eðlilegt aftur. Svo
höfum við fengið talsvert af ftski með
þegar við etum dýpra. Við emm mjög
ánægðir með útkomuna í sumar,"
sagði Hörður að lokum.
Álsey er eini humarbáturinn sem
leggur upp hjá ísfélaginu en hjá
Vinnslustöðinni leggja sjö bátar upp.
Afli þeirra var á þriðjudag orðinn 42
tonn en Vinnslustöðin hefur yftr 63
tonna kvóta að ráða. Mestum afla
hefur Danski Pétur landað eða rúmum
10 tonnum.
Þessi góði humarafli hefur haft mikil
áhrif á atvinnuástandið í sumar, sér-
staklega hvað snertir atvinnu unglinga
en í fyrrasumar var ófremdarástand
ríkjandi í þeim málum þar sem
humarvertíðin var ekki svipur hjá
sjón, miðað við það sem venjulega
hefur verið.
Síldaruer-
tfðlokið
Veiðum Eyjaflotans úr norsk-
íslenska stofninum er því sem næst
lokið. Alls stunduðu þrettán skip
héðan þær veiðar og tókst þeim
öllum að Ijúka við að veiða sína
kvóta. Glófaxi mun vera á landleið
með síðasta farminn.
Heildarkvóti Eyjaflotans var rúm 50
þúsund tonn. I bræðslu Vinnslustöðv-
arinnar var tekið á móti 13.700
tonnum í sumar.
Skipin eru nú að búa sig undir
loðnuveiðar og em flest þeirra farin til
veiða. Eitthvað færri skip verða á
loðnuveiðum en voru á sfldinni, t.d.
muu hvorki Kap II né Heimaey fara
til loðnuveiða. Fremur dræmt hefur
verið yfir loðnuveiðunum fram að
þessu en menn bíða þess að úr rætist
enda engin nýlunda að þær veiðar fari
rólega af stað.
Halló - Halló
Okkur vantar eftirfarandi:
Gardínur, sjóstakka, sjóhatta, sjópoka, klofstígvél, bitakassa, sixpensara
og önnur gömul höfuðföt. Kot og prjónaklukkur og yfirleitt allt það
sem til er í koti karls og kerlingar að hurðabaki sem minnir á gamla
tímann.
Ef einhver getur gefíð okkur eða lánað eithvað af ofantöldu fyrir
goslokahátíðina þá vinsamlegast hafíð samband við Listaskólann í
síma 481-1841.
Undirbúningsnefndin.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
Iþróttir: Rútur Snorrason. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47 II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjóifi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.