Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1998, Blaðsíða 16
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293
Öll móttaka ferðamanna, skóla- og íþrótlahópa
FAX481 1927 0)481 1909 - 896 6810
Hvammstangap
resturíEyjum
Séra Kristján Björnsson sókar-
prestur til átta ára á Hvamms-
tanga í Húnaþingi var á ferð í
Eyjum um síðustu helgi ásamt
eiginkonu sinni Guðrúnu Helgu
Bjarnadóttur, leikskólastjóra á
Hvammstanga.
Erindi þeirra hjóna var að kynna
sér staðhætti og kirkjulega kenn-
ingu í Eyjum, en séra Kristján mun
hafa nokkurn hug á að sækja um
prestsembætti Landakirkju, sem
hefur nú verið laust til umsóknar á
annan mánuð. Sóknamefnd var
ánægð með heimsóknina og lýsti
yfir stuðningi við umsókn séra
Krisjáns ef af yrði. Þau hjón eiga
tvo syni, átta og níu ára. Þess má og
geta að frú Guðrún Helga á ættir að
rekja til Eyja, en langaft hennar er
Finnbogi Finnbogason frá
Vallatúni, en Valjatún fór undir
hraun í gosinu. A fundi sóknar-
nefndar á þriðjudaginn samþykkti
nefndin að hvetja séra Kristján til
þess að sækja um stöðu sóknar-
prests og Báru Friðriksdóttur guð-
fræðing til að sækja um stöðu
prests. Sóknarnefnd hefur því
gengið frá þessu máli fyrir sitt leyti,
enda ástandið í ráðningamálum
presta Eyjamanna farið að valda
nokkurri kristilegri óvissu um fram-
gang guðsorðsins í Eyjum.
Mannlífsliættirum
Eyjar í útuarpi
Gunnhildur Hrólfsdóttir rithöf-
undur hefur fengið 75.000 kr.
styrk vegna fimm þátta um
mannlíf í Vestmannaeyjum sem
hún hefur gert fyrir Ríkisút-
varpið.
Goslokanefnd samþykkti að greiða
fyrir erindinu og veita alla hugs-
anlega aðstoð sem með þyrfti.
Þættimir verða fluttir í Ríkisút-
varpinu í júlí nk.
Þakklátur fyrir umhyggjuna
Jón Gunnar Óttósson forstjóri
Náttúrufræðistofnunar Islands vill
taka skýrt fram að hvorki hann né
Náttúrufræðistofnun Islands hafi
neitt á móti því að Keikó fari til
Vestmannaeyja.
„Við höfum engra hagsmuna að
gæta og emm ekki að dæma, hins
vegar benti ég á að strauma og vinda,
með tilliti til sogs og kviku, hefði átt
að athuga rækilega þegar staðarval var
ákveðið. Það hefur ekki verið leitað
til Vita- og hafnarmálastjómar né Sjó-
mælinga en þetta em upplýsingar sem
komu fram í samtali sem ég átti við
Hall Hallsson og Jeff Foster á þriðju-
daginn. Þetta em bara atriði sem ég
benti á og nauðsynlegt er að athuga
vegna fyrri reynslu af sjóeldi í Kletts-
víkinni.
Jón Gunnar segir að hann hafi einnig
bent á hugsanleg hljóð frá skipaum-
ferð sem er mikil um innsiglinguna og
hugsanlegáhrifþeirraáKeikó. „Þetta
em einungis ábendingar sem byggðar
em á faglegum forsendum og mér
þykja að rannsakaðar verði rækilega."
Aðspurður hvort hér væri um
einhvem stofnanaríg að ræða milli
Náttúrufræðistofnunar og Náttúm-
stofu Suðurlands segir hann að svo sé
alls ekki. „Þetta em faglegar ábend-
ingar og ekkert annað.“
Hallur Hallsson, fulltrúi Free Willy
Keiko samtakanna á Islandi, segir að
hann og Jeff Foster hafi átt fund með
Jóni Gunnari Óttóssyni í gær, þriðju-
dag, og að þeir hafi átt hið
ánægjulegasta samtal. „Það hafa
verið rannsóknir í gangi frá því á
útmánuðum og þær munu verða
stundaðar áfram. Það er ekkert sem
hefur komið á óvart í þeim rann-
sóknum og við vitum vel hvemig
aðstæður em í Eyjum og það sem
kemur fram hjá Jóni Gunnari í
Ríkissjónvarpinu á þriðjudagskvöldið
em ekki ný tíðindi fyrir okkur. Við
erum hins vegar þakklátir fyrir þá
umhyggju sem felst í ábendingum
hans. Við viljum eiga gott samstarf
við Náttúmfræðistofnun íslands og
þiggjum hver þau ráð sem góðir og
vel meinandi menn hafa fram að færa
til þess að heimkoma Keikós megi
verða eins farsæl og kostur er. Vest-
mannaeyjar em ákjósanlegur staður
fyrir Keikó og sú ákvörðun, sem tekin
hefur verið, stendur."
J
m
Hellema kex
Honey Cheerios 765 gr
Skælskör jarðarberjasulta 400 gr
Skælskör sólberjasulta 400 gr
Skælskör hindberjasulta 400 gr
Skælskör appelsínumarmelaði 400 gr 99
Skælskör apríkósumarmelaði 400 gr 99
Verð nú
115
459
128
128
128
Rynkeby appelsínusafi 1 lítri
Rynkeby eplasafi 1 lítri
Lipton Ice te citron 87 gr.
Lipton Ice te ferskju 87 gr.
Libbys 48/4 ananas hringir
Verð áður
"N4
"155.
m
ISSL.
m
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
aEMaÍPEHMBÍU.
*481-2943,
* 897-1178
Ómetanlegur
fundur hjá BBC
Á fundi goslokanefndar fimmtu-
daginn 18. júní var tekið fyrir
bréf sem borist hafði frá utan-
ríkisráðuneytinu frá 16. júní sl.
í téðu bréfi er tilkynnt að BBC
hafi fundið fréttaþætti um Vest-
mannaeyjar sem gerðir vom af BBC
í marslok 1973 undir stjórn Larry
Harris. Það hittist þannig á að þeir
vom eina tökuliðið í Eyjum þegar
eldmessan var en þá nótt fóm tugir
húsa undir hraun.
Mikil leit hefur farið fram að þess-
um þætti í mörg ár á vegum
sendiráðs Islands í London að
beiðni bæjaryfirvalda í Vestmanna-
eyjum. Talið er að bréf sem Larry
Harris sendi bæjaryftrvöldum fyrr á
þessu ári hafi auðveldað leitina.
Eintak af þættinum er þegar komið
til Eyja.
Kemuríljósídag
hvort flugbrautin
bolir flutninginnP
Fréttir höfðu samband við Jón
Baldvin Pálsson, hjá Flugmála-
stjórn og spurðu hvort búið væri
að taka ákvörðun um hvort
flugbrautin á vellinum í Eyjum
uppfyllti þau skilyrði sem þarf til
að C-17 vélin gæti lent hér með
háhyrninginn Keikó.
Við höfum staðið í ýmsum fram-
kvæmdum undanfama daga og m.a.
farið yfir burðarþol brautar-innar
með sérfræðingum okkar," sagði
Jón Baldvin. „Næsta skref í málinu
er að við munum eiga símafund í
dag með fulltrúum úr
verkfræðideild bandaríska hersins
og þá verður athugað hvort vélin
geti lent í Eyjum. Við höfum aflað
okkur allra þeirra verkfræðilegu
upplýsinga sem við teljum þörf á og
niðurstöðurnar ættu að liggja fyrir
eftir þennan símafund," sagði Jón
Baldvin að lokum.
FLUTNINGAR - VESTMANNAEYJUM
. I_____I—fct_ 1--■ Z | |----—
fWW IIIUIT U IUIIÖ WD n.
Vöruafgreiðsla
Sldldingavegi 4 Síml 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavík
sðinsgota 1-3
Sími 581 3030