Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1998, Síða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 25. júní 1998
Wembley
Hljómsveitin D-7 var stofnuð í apríl 1997 í Vestmannaeyjum.
Meðlimir hljómsveitarinnar hafa allir verið í Framhaldsskól-anum
í Vestmannaeyjum og hyggja nú á frekari land- vinninga. Verið er
að vinna að því að hljómsveitin fari í hljóðver og haldi tónleika á
Gauk á Stöng í sumar eða með haustinu. D-7 hefur átt miklum
vinsældum að fagna í Vestmannaeyjum, jafnt hjá yngri sem eldri
kynslóðinni, enda spila þeir tónlist sem skannar mikla fjölbreytni,
þó er draumurinn um að setja eigin tónsmíðar á disk alltaf ofar-
lega í huga hljómsveitarinnar. Fréttir ákváðu að tékka á
draumnum um framtíðina og athuga hvað kæmi úr músíkæðinni
hjá þeim félögum. Þegar spjallað var við meðlimi hljóm-
sveitarinnar voru þeir búnir að vera í stífum æfingum fyrir
Jónsmessuhátíðina og um næstu helgi spila þeir á gos-
lokahátíðinni.
SteFncIí snemma
Á SÖNqÍNN
Ólafur Kristján Guðmundsson er
söngvari hljómsveitarinnar D- 7.
Hann er 18 ára og segist hafa
sungið frá því hann man eftir sér.
„Skólasystkini mín segja það í dag
að ég hafi alltaf verið syngjandi.
Mamma og pabbi, (Guðmundur Þ.B.
Ólafsson og Þuríður Kristleifsdóttir),
segja að ég hati fyrst sungið í partíi hjá
þeim á náttfötunum. Þá kom ég
líklega í fyrsta skipti opinberlega fram
og söng Stand by your man og í
framhaldi af því söng ég það á
tröppunum heima. Ætli ég hafi ekki
verið tveggja ára þá. En þegar ég var
yngri langaði mig alltaf til þess að
verða söngvari."
Ólafur segir að hann geti ekki sagt
til um hvaðan þessi áhugi komi, en
trúlega hafi síast inn í hann sú tónlist
sem foreidrar hans hlustuðu á og eldri
bróðir. „Bróðir minn hlustaði á Kiss
og þegar maður er svona ungur þá fer
þetta allt inn í hausinn á manni.
Foreldr-ar mínir eru líka af þeirri
kynslóð sem hlustaði á Bítlana og
Presley. Ég hlusta líka enn þá á þessa
músík í dag, að vísu ekki á Kiss, en
hins vegar hlusta ég þvílíkt mikið á
Bítlana og Presley og Björgvin
Halldórsson. Mér finnst hann þvflíkt
sjúkur."
Fékkstu mikla hvatningu hjá
foreldrum þínum?
„í skólaleikritum var ég alltaf settur
í einhver hlutverk þar sem sungið var.
Jú, jú, foreldrar mínir hafa alltaf stutt
mig. Það er líka ntikið um söng í
fjölskyldunni. Páll Rósinkrans er til
dæmis frændi minn, aft minn er ágætis
söngvari og kom einu sinni fram í
sjónvarpinu með eitthvað svaka
tenórdæmi og pabbi er með frábæra
rödd. Hann er svona söngvari í
felum.“
Hvenær fer fyrsta hljómsveitin í gang?
„D-7 er eina hljómsveitin sem ég
hef verið í. Reyndar stofnaði ég
einhvem tíma hljómsveit þegar ég var
tíu ára og ég var að komast að því um
daginn þegar við mundum ekki eftir
því hver orgelleikarinn var, en hann
spilar nú á trommur í D-7. Ég söng að
sjálfsögðu og einn spilaði á
Macintoshdósir. Ég held við höfum
kunnað eitt lag, Stæltir strákar með
hljómsveitinni JÓJÓ. Þannig séð var
þetta engin hljómsveit, en sýnir hvert
hugurinn stefndi. En ég tók þátt í
uppfærslu á skólaleikriti og söng þar
tvo eða þijá einsöngva sem tókst mjög
vel. Þá fékk maður hvatningu og
áhuginn kviknaði fyrst á því að verða
söngvari."
Olafur segist aldrei hafa lært söng
en hann langi mjög mikið til þess að
læra söng og leiklist. „Hins vegar ef
ég ætlaði í slíkt nám yrði ég að hætta í
hljómsveitinni, en hún er núna númer
eitt, tvö og þrjú. Reyndar var ég
mikið í fótbolta. Það var þó engin
barátta á milli fótboltans og
tónlistarinnar, en eftir að hljómsveitin
var stofnuð vissi ég að mig langaði
miklu frekar til að vera í hljómsveit.
Það hefur gengið mjög vel hjá okkur
og við höfum mikinn metnað til þess
að gera góða hluti. Við höfum verið
að bæta við lögum til þess að ná líka
meira til eldri kynslóðarinnar. Að-
alaðdáendur okkar hafa verið yngri
kynslóðin, en við höfum fullan vilja til
þess að ná til breiðari hóps. Því fleiri
því betra. En vissulega getum við
treyst meira á unga fólkið."
Hversu langt viljið þið ná?
„Alla leið, það er ekki spuming.
Mórallinn innan hljómsveitarinnar er
líka það góður að við óttumst ekki að
hann lendi í klúðri, enda erurn við
bestu vinir og höldum mikið hópinn.
Það eina sem við gerum ekki er að
sofa saman.“
Hvemig er ímynd söngvarans í svona
hljómsveit? Nýtur hann alltaf mestrar
kvenhylli?
„Ég veit það ekki. Maður vill ekki
bara einhverja stelpu. Maður ber smá
virðingu fyrir sjálfum sér.“
Ólafur segir að þeir spili mikið lög
eftir aðra en þeir séu alltaf að semja
meira og meira sjálfir. „Þorvaldur
D-7 í góöum gír á Stakkó.
Bjami sem var í Todmobile hefur
áhuga á því að koma okkur í hljóðver.
Tromm-arinn og Þorvaldur Bjami em
mjög góðir vinir og hann bað um
snældu með tónlist okkar. Honum
leist mjög vel á efnið. Þetta er samt
aðeins í biðstöðu í augnablikinu, en
hann mun væntanlega pródúsera
tónlistina, en stefnan er að koma einu
eða tveimur lögum á safndisk til að
byrja með. En um leið og við fömm í
hljóðver munum við að öllum
líkindum spila á Gauk á Stöng í sömu
ferð.“
Ólafur segir að hann eigi sér margar
fyrirmyndir í söngnum og nefnir Pál
Rósinkrans sem dæmi. „En goðið
mitt er Liam Gallagher í Oasis, þó
hann syngi ekkert sérstaklega vel. Ég
gæti líka nefnt John Lennon. Rokkið
sem við spilum er svona ballöðurokk,
sem er ekki bara til að hlusta á heldur
líka til að hoppa eftir. En breiddin er
samt mikil í okkar eigin tónsmíðum.
Við semjum tónlistina mikið saman,
en textamir eru ekki eftir mig. Hins
vegar sem ég stuttsögur og ljóð, bæði
á ensku og íslensku. Ljóðin mín eru
hins vegar svo mikið kjaftæði að ég
held þeim fyrir mig. Stuttsögumar em
hins vegar alls konar hugdettur sem ég
fæ. Ég sé samt alltaf einhvem þráð í
þessu."
Þeha er iviikil
Gunnar Geir Waage Stefánsson er 19
ára rythmagítarleikari D-7. Hann er
sonur Stefáns Geirs Gunnarssonar og
Aðalheiðar Waage Sveinsdóttur.
Hann segist hafa uppgötvað tónlistar-
náttúruna ungur að árum. „Ég er
alinn upp við mikla tónlist og
hlustaði meðal annars mikið á Led
Zeppelin, Queen og The Who og
þetta gamla dót. Þannig leiddist
maður út í rokkið. Pabbi átti
kassagítar sem ég var alltaf að fikta í
þangað til ég gat farið að spila
eitthvað. Þá gaf hann mér eitt sinn
klassíkan gítar í jólagjöf og ég fór að
læra á hann í framhaldi af því þá tíu
eða ellefu ára gamall.“
Var pabbi þinn mikill gítaristi?
„Hann var reyndar í hljómsveit í
gamla daga sem hét Taktar og spilaði
á böllum hér í Eyjum og fór einu
sinni í hljómsveitakeppni í
Borgamesi. Mamma og bróðir minn
syngja hins vegar töluvert og svo má
ekki gleyma ömmu sem spilar á gítar
og afi minn var í einhverjum
hljómsveitum í gamla daga."
Gunnar Geir segir að tónlistar-
námið hafi ekki átt neitt rosalega vel
við sig. Hins vegar hafi hann lært
hvemig hljóðfærið virkaði ásamt
undirstöðuatriðunum, en eftir það
hafi hann lært af sjálfum sér. „Ég
hafði heldur aldrei þolinmæði til þess
að lesa nótur. Hins vegar hlustaði ég
á alla tónlist frá klassík til rokks, eða
allt nema eurovision country
eitthvað. Ég fór í staðinn að plokka
upp fullt af lögum og maður hætti
ekki fyrr en ntaður var búinn að ná
þeim og lærði þá nýja skala eða ný
trix. Svo það að vera í hljómsveitum
er rnikill lærdómur í sjálfu sér og
kannski besti skólinn.“
Gunnar Geir segist ekki eiga
neinar sérstakar fyrirmyndir í
gítaleiknum, hins vegar hafi óhemju
margir haft áhrif á hann. „Þetta vom
áhrifúrsinnhverriáttinni. Égmyndi
samt segja að ég væri frekar harður
gítaleikari.“
Gunnar Geir segir að hann og
Magni trommari D-7 hafi verið í
hljómsveitinni Coma 1993. „Þetta
vom bara nokkrir peyjar að leika sér
og spiluðum reyndar eitthvað
opinberlega, til dæmis á Skútanum.
Þessi hljómsveit var til í tæpt ár, en
við Magni höfum alltaf verið saman
í hljómsveitum. Eftir Coma kom
hljómsveitin Rattatti en þar spilaði ég
á tromm-ur. Ég kunni á trommur og
það vantaði trommara svo ég sló til.“
Hvers konar líf er þessi hljóm-
sveitarbransi?
„Það sem kom mér á óvart er
hversu ótrúlega mikil vinna þetta er.
Margir verða hissa á því að þegar
spilað er á böllum og við fáum
borgað fyrir að þetta séu miklir
peningar f þessu, kannski fyrir
þriggja tíma prógram. En fólk vill
gleyma því að á bakvið hvert ball er
miklu meira, en bara að tfoða upp.
Það eru æfingar alla daga, kostnaður
við að kaupa græjur. og svo rótaríið
fyrir og eftir ballið. Þetta er alveg
hellings vinna og fólk gerir sér
almennt ekki grein fyrir henni. Hins
vegar er annar flötur á þessu og hann
er sá að hafa gaman af hlutunum.
Þetta gengi ekki ef áhuginn væri ekki
fyrir hendi. Við ætlum bara að halda
okkar striki og vera við sjálfir í
þessu.“
Hvers konar týpur eru söngvarar?
„Söngvarar. Þeir tm alla vega.
Ég er búinn að þekkja Ola frá því við
vorum stubbar og hann er alltaf eins
og hann er. Hvort að einhverjar
sérstakr týpur veljist í sönginn veit ég
bara ekki og hef ekki pælt í því."
Gunnar Geir segir að þeir í D-7
vilji ekki festast í þvf að verða
ballgrúppa. , J>etta efni sem við erum
að semja er ekki alltaf ballhæft. Við
viljum fara svipaðar slóðir og Jet
Black Joe gerði og Mary Poppins er
að gera. Jet Black Joe var bylting f
tónlistinni á sínum tíma og voru með
öðru vísi efni en allir aðrir og við
viljum reyna að skapa eitthvað nýtt.
Það er hægt að semja allan and-
skotann ef hugmyndaflugið er í lagi.
Ég tel mig eiga nokkuð auðvelt með
að semja lög, en textar eru ekki mín
sterka hlið. Hins vegar ef við
semjum lag, þá erunt við allir í því."
Gunnar Geir segir að þeir séu allir
mjög ólíkir og með sinn hvern
tónlistarsmekkinn. „Svo blandast
þetta allt í einn graut og kemur mjög
skemmtilega út ef vel tekst til.“
Er í deiglunni að komast á
erlendan markað?
„Það væri auðvitað gaman að kýla