Fréttir - Eyjafréttir - 09.07.1998, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 9.júlí 1998
Fréttir
19
Landssímadeildin 8. umferð: Leiftur 5 ÍBV 1
Meistararnir
brotlcntu illa
Eyjamenn héldu til Ólafsfjarðar á
sunnudaginn og spiluðu þar við
heimamenn í Leiftri. ÍBV reið ekki
feitum hesti frá þessari viðureign,
og fékk liðið hvorki fleiri né færri
en 5 mörk á sig í þessum leik og
náði ekki að skora nema eitt.
ÍBV byrjaði leikinn hreint hörmu-
lega, og þegar unr 20 mínútur voru
liðnar af leiknum, var staðan orðin 2 -
0, heimamönnum í vil. Eftir þetta
vöknuðu Eyjamenn eins og af væmm
blundi og náðu aðeins að klóra í
bakkann fyrir leikhlé, þegar ívar
Bjai'klind, kom ÍBV í 2 - 1, eftir
snarpa sókn.
Eyjamenn náðu að skapa sér
nokkur góð tækifæri í fyrri hálfleik, en
inn vildi boltinn ekki. I síðari hálfleik
var allt annað að sjá leik ÍB V og fóru
leikmenn að spila af eðlilegri getu. En
allt kom fyrir ekki, og um miðjan
seinni hálfleik komust heimamenn í 3-
1. Þrátt fyrir þetta héldu Eyjamenn
boltanum vel innan liðsins og sköpuðu
sér mörg góð tækifæri. En eftir því
sem á leið fór vonleysið að gera vart
við sig og þurftu Eyjamenn að játa sig
sigraða, eftir að hafa fengið á sig tvö
mörk til viðbótar í lokin. Lokajölur
því 5-1 og fyrsta rassskelling ÍBV-
liðsins í langan tíma. Þó svo að allt
hafa gengið Leiftursmönnum í haginn,
meðan ekkert gekk upp hjá Eyja-
mönnum, þá er ÍBV-liðið ekki svipur
á sjón þessa dagana. Mikill doði og
áhugaleysi einkennir liðið og þessi
frammistaða í undanfömum leikjum
sæmir einfaldlega ekki toppliði, sem
ÍBV er og á að vera. Framundan eru
erfiðir leikir, bæði í deild og bikar, og
ætli menn sér stóra hluti í sumar, þá
verða þeir að hrista slenið af sér og
sýna það inni á vellinum hvers þeir
eru megnugir, ekki síst framherjamir.
Lið ÍBV: Gunnar 5 - Hjalti 6, Hlynur
6, Zoran 5, Steinar 5 - fvar B. 7, ívar I.
7, Kristinn H. 6(Sindri 5), Kristinn L.
5(Rútur 5) - Steingrímur 6, Jens 5.
Bikarkeppni KSÍ: Þór Akureyri 1 ÍBV 2
Þórsarar erfiður biti
Á miðvikudaginn í síðustu viku
áttust við á Akureyri, lið Þórs og
ÍBV í 16 - liða úrslitum bikar-
keppninnar. Þórsarar hafa átt
erfitt uppdráttar í 1. deildinni það
sem af er sumri, en það var ekki að
sjá í þessum leik því aðeins eitt
mark skildi liðin að í leiknum sem
lauk með 1 - 2 sigri ÍBV.
Eyjamenn réðu ferðinni í leiknum
frá upphafi, en heimamenn léku af
mikilli skynsemi, vörðust mjög
aftarlega á vellinum og beittu skyndi-
sóknum. ÍBV gekk illa að fmna glufu
á vöm Þórsara, og það var ekki fyrr en
um miðjan fyrri hálfleik, að fyrirliði
ÍBV, Hlynur Stefánsson, kom Eyja-
mönnum yfir, með glæsilegu skoti af
um 35 metra færi. Héldu nú margir að
þar með væri erfíðasti hjallinn yfir-
stiginn, en svo var ekki. Heimamenn
létu þetta ekki á sig fá og sóttu mun
meira það sem eftir lifði hálfleiksins.
Litlar breytingar urðu á leik Eyja-
manna í síðari hálfleik og náðu þeir
aldrei að brjóta vöm Þórsara á bak
aftur. Það kom að því að heimamenn
jöfnuðu, og var þar að verki gamla
kempan, Halldór Áskelsson. Mikil
spenna færðist í leikinn við þetta
mark, og það var ekki fyrr en að um
10 mínútur voru til leiksloka, að
Hlynur Stefánsson tryggði sigur ÍBV
með góðum skalla eftir homspymu.
Eyjamenn spiluðu ekki sannfærandi í
þessum leik, þeir náðu aldrei traustu
taki á leiknum og boltinn gekk illa
manna á milli. Menn virkuðu þreyttir
inni á vellinum og sú stemmning sem
þarf að vera í bikarleikjum, var ekki til
staðar hjá Eyjamönnum. En þrátt fyrir
þetta er ÍBV komið í 8 - liða úrslitin
og það er nú það sem skiptir máli.
Bestu menn ÍBV í leiknum vom þeir
Hlynur og ívar Ingimarsson. Hlýtur
það að teljast saga til næsta bæjar
þegar aftasti maður í vöm fer að skora
og ekki eitt mark heldur tvö.
Meistaradeild kvenna: ÍBV 4 Fjölnir 1
Stelpurnar að komast í jjanj
Eyjastelpur fengu lið Fjölnis í
heimsókn á mánudagskvöld. ÍBV
var í næstneðsta sæti deildarinnar
fyrir þennan Ieik, en Fjölnir var í
því fimmta. Leikið var á Há-
steinsvelli við mjög góðar aðstæður.
ÍBV byrjaði af krafti í leiknum, og
strax á 7. mínútu leiksins var íris
Sæmundsdóttir búin að koma ÍBV yfir
eftir góða sókn. Eyjastúlkur náðu ekki
að bæta við fleiri mörkum í fyrri
hálfleik, en bæði íris og Hrefna áttu
sláarskot. En í seinni hálfleik fóm
hjólin heldur betur að snúast hjá
Eyjaliðinu og náðu stelpumar hverri
stórsókninni af fætur annarri. Það var
svo á 65. mínútu leiksins, að íris
skoraði annað mark ÍB V, og sitt annað
í leiknum, eftir glæsilega fyrirgjöf
Elenu Einisdóttur. Aðeins mínútu
seinna, skoraði Olga Stefánsdóttir,
sem var nýkomin inn á sem vara-
maður, glæsilegt mark, sláin og inn,
eftir fyrirgjöf frá Elenu. Olga var
síðan aftur á ferðinni á 85. mínútu
þegar Anna, sænska stúlkan í liði ÍB V,
gaf góða fyrirgjöf og Olga afgreiddi
boltann snyrtilega í netið. Gestirnir
svöruðu síðan fyrir sig á lokamínútu
leiksins, með marki eftir að
markmaður ÍBV, Petra F. Bragadóttir,
hafði varið vítaspymu. ÍBV liðið
vann því sannfærandi sigur, 4-1, og
em komnar í 5. sæti deildarinnar.
Lið ÍBV: Petra 7 - Fanný 6, Ema 6,
Sigríður Á 7, Kristfn E. 5) - Elena 8,
Anna 6, Hrefna 7, Hjördís 6 (Dögg L.
5) - íris 8, Bryndís 6 ( Olga 7)
fris Sæmundsdóttír lék uel og skoraði fyrsta mark leiksins.