Fréttir - Eyjafréttir - 13.08.1998, Side 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 13. ágúst 1998
Jákvæð áhrif íslendinga í
/
-Ingi Freyr Agústsson netagerðarmeistari lýsir reynslu sinni af dvöl sinni í Afríki
Ingi Freyr slappar af í garðínum uið hús sítt á meðan puotturinn barnar á snúrunni.. Þykir Inga Frev uissara að uakta
puottinn effir að hann huarf af snúrunni í fyrsta skipti sem hann puoði. Bíórinn er á Porðinu og að sjálfsögðu er Ingi
klædduríBlf-treyju.
Fátækt er mikíl en Namibíubúar láta pað ekki hafa áhrif á klæðnað sinn og
ganga meðRolexúr.
Namibía er kannski ekki mjög
ofarlega í hugum Eyjamanna,
en þó skyldi aldrei segja aldrei,
því nokkur samskipti hafa
verið milli Vestmannaeyja og
Namibíu. Til að mynda var
Jón V seldur til Namibíu og
ungur maður frá Eyjum, Ingi
Freyr hefur starfað í borginni
Luderitz í Namibíu síðan í
mars. Hann kom lil Eyja á
dögunum gagngert til þess að
koma á Þjóðhátíð og Fréttir
gripu manninn glóðvolgan í
þjóðhátíðarstemmningu.
Greíp tækífæríð
Ingi Freyr Agústsson er ungur Vest-
mannaeyingur sem starfað hefur í
Namibíu síðan í mars síðastliðnum.
Hann sér þar um netaverkstæði hjá
fyrirtækinu Scallovver sem meðal
annars er í eigu íslenskra aðila og
namibískra stjórnvalda. Ingi Freyr
segir að leið hans til Namibíu hafi
aðallega verið tilviljunum háð og hann
hafi svo gripið gæsina þegar hún gafst.
„Eg fór til Fáskrúðsijarðar og var að
vinna þar hjá Netagerð Ingólfs eftir að
hún flutti þangað og sá svo um útibú
Netagerðar Ingólfs þegar það opnaði á
Þórshöfn. Nokkru síðar hringdi svo
vinur minn í mig sem vinnur í Hamp-
iðjunni og spurði hvort ég hefði áhuga
á að fara til Namibíu. Síðan leiddi eitt
af öðru og ég bý í Namibíu nú.“
Ingi Freyr segir að sá sem hafi verið
í starfinu áður hefði viljað fara heim
svo það hafi vantað mann til þess að
taka við af honum. En var ekkert mál
fyrir hann að taka ákvörðun um að
hverfa í svo gjörólíkt samfélag?
„Jú það var það að vissu leyti. Eg
var spurður að þessu snemma í
desember og í byrjun janúar var hringt
í mig og sagt að ef ég hefði áhuga þá
fengi ég starfið. Ég hugsaði mig um í
tvo daga og ákvað að láta slag standa
og nú hef ég verið þarna í fimm
mánuði."
Þekkjaekkistress
Ég virði manninn fyrir mér og undrast
að hann skuli ekki vera sólbrúnn. Er
eilthvað sólarlítið þarna niður frá?
Ingi Freyr hlær grallaralega og segir
svo: Jú, jú það er mikil sól á þessum
slóðum, en hins vegar hiltist svoleiðis
á að það var alltaf skýjað þrjár síðustu
helgarnar áður en ég kom svo ég gat
ekkert legið í sólbaði."
I hverju er starf þitt nákvæmlega
fólgið?
„Ég sé um verkstæðið og er yfir-
maður þar. Ég er hins vegar lítið í
verkunum sjálfúr, nema eitthvað komi
upp á sem hefði átt að „klárast í gær“,
þá er ég með strákunum á verkstæð-
inu. Að öðru leyti eru þrír innfæddir í
vinnu hjá mér og þeir standa sig
ágætlega."
Ingi Freyr segir að andrúmsloftið í
Luderitz sé mjög rólegt og stress sé
eitthvað sem menn þekki ekki, þess
vegna sé betra að hafa nokkum
fyrirvara á hlutunum. „Ef það er
eitthvað sem þú vilt láta gera fyrir þig
á morgun, þá er vissara að vera búinn
að biðja um það með viku fyrirvara.
Þetta er reyndar mjög ungt „lýðræðis-
samfélag", en Namibía fékk sjálfstæði
1990, þannig að þeir eru ennþá að
þróast sem þjóð, ef miðað er við
vestræn samfélög. En það er margt
sem kemur manni svolítið spánskt
fyrir sjónir. Þannig var til dæmis með
seinkunina á afhendingu Jóns V.
Fyrirtækið, sem ég vinn hjá, var að
kaupahann. Þegar allt á að vera klárt
og hægt að afhenda skipið fer forstjóri
Seaflower til höfuðborgarinnar til þess
að fá síðustu undirskriftina, kemur
fulltrúi stjómvalda í Namibíu með
einhverjar athugasemdir og vill
einhverjar breytingar á samningnum.
Þetta jókst alltaf stig af stigi og menn
farið að renna í gmn að hliðra þyrfti til
með því að lauma „feitu umslagi" á
góðan stað. Þetta gengur mikið út á
stór og feit umslög."
Ertu að tala um mútur?
„Já, ef þú þarft flýtimeðferð í
einhverjum málum, þá getur dugað að
lauma einhverju í lófa.“
Hefur þetta háð þér eitthvað eða
þeirri starfsemi fyrirtækisins sem þú
hefur umsjón með?
„Ekki get ég nú sagt það. Það tók
reyndar tímann sinn fyrir mig að fá
atvinnuleyfi eða nærri fjóra mánuði.
Hins vegar er það yfirlýst stefna
Seaflower að taka ekki þátt í þessum
leik. Það er frekar reynt að hafa fyrir-
vara á hlutunum."
Auðugtlandengæðunum
misskipt
Eru miklar öfgar á milli ríkidæmis og
fátæktar í Luderitz?
Já það er ekkert launungarmál.
Ibúafjöldi Namibíu er ekki nema 1.7
milljónir, en landið er 825.000 fer-
kílómetrar. Það búa um það bil tíu til
fimmtán þúsund manns í Luderitz. I
miðbænum eru allar götur mal-
bikaðar og búðir á hverju horni. Þar
býr hvíta fólkið, þar fyrir utan kemur
hverfi litaðra og kannski efnameiri
svertingjar. Þar fyrir utan er svo fá-
tækrahverfið. Þar er mikið um fólk
sem kemur úr landbúnaðarhéruðunum
í norðurhluta landsins í leit að vinnu.“
Ingi Freyr segir að samt sem áður sé
Namibía efnað land. Þar séu auðug
fiskimið og fiskveiðikvóti hafi aldrei
verið stærri. „Einnig eru mjög auðug-
ar demantanámur í landinu. Landbún-
aðurinn byggir hins vegar ekki mikið
á komrækt, heldur er aðallega fjár- og
nautgripabúsakpur í landbúnaðarhér-
uðunum, vegna þess að jarðvegur er
of þurr til þess að hægt sé að stunda
þar komrækt."
íslendingar breynu liðhorfi
til lítaðra
Hvemig em samskiptin við innfædda?
„Það býr þama hvítt fólk sem er
fætt á staðnum, en þeir em kallaðir
Búar og em afkomendur Hollendinga
og Þjóðverja. Þeir litu áður fyrr á
þessa svörtu sem annars flokks fólk.
Fyrst þegar íslendingamir komu vom
Búamir mjög á móti okkur vegna þess
að við tókum svertingjunum eins og
hverjum öðrum, og umgengumst þá
eins og fólk og jafningja. Það má því
segja að íslendingamir hafi haft
jákvæð áhrif á samskiptin, ef eitthvað
er. Hins vegar koma tveir þeirra
stráka, sem vinna hjá mér, úr fátækra-
hverfunum. En það er þannig að þeir
sem ekki em að vinna, hanga á
barnum þess á milli. Heimurinn er
allur þar. Maður getur heldur ekki
fundið mikinn metnað hjá þesssu
fólki. Þeir sem vinna til að mynda í
frystihúsinu hafa sumir fengið
einhverja smámenntun og gera sér
grein fyrir því að heimurinn er aðeins
stæni en bara vinnan og barinn. Og
þeir vita af því að Island er til og hafa
sumir sýnt því áhuga að gaman gæti
verið að koma þangað. En hvort fólk
ætlar sér ein-hverja stóra hluti í lífinu
er ekki gott að segja. Margir vilja hafa
það betra, en eiga enga möguleika á
því sökum fátæktar.“
Brotist inn hjá mér á 3. tíeyi
Hvemig er með glæpatíðni, myndir þú
telja að menn væm í verulegri hættu
þama vegna glæpa?
„Það er ekkert hættulegt að vera
þama miðað við marga aðra staði. Ef
maður er einn að þvælast á fáfömum
stöðum að kvöldi getur maður átt von
á öllu. Ég var nú ekki búinn að vera
þama nema í þrjá daga þegar brotist
var inn hjá mér. Eg bý í húsi á
tveimur hæðum og var sofandi á efri
hæðinni og varð ekki var við neitt.
Þjófamir bmtu glugga á neðri hæðinni
og stálu geislaspilara og geisla-
diskunum mínum og einu pari af
strigaskóm sem em mjög vinsælir
þama. En það eru engar óeirðir eða
upplausnarástand, eins og í nágranna-
ríkinu Angóla. Þar voru þijúhundmð
manns drepin í síðustu viku, svo að ef
að menn verða leiðir á lífinu, geta þeir
skroppið þangað.“
Ingi Freyr er ekki fjölskyldumaður,
en hann segir að þeir Islendingar sem
séu í vinnu þarna séu allir fjöl-
skyldufólk og séu llestir með fjöl-
skyldur sínar með sér. „Það búa um
25 Islendingar þarna. Krakkamir
þeirra ganga í skóla og þeir yngstu á
leikskóla. Það má því alveg segja að
þetta sé fjölskylduvænt samfélag. ís-
lensku konumar fá reyndar ekki
vinnu, en mér skilst að þær séu ágæt-
lega sáttar við að vera heimavinnandi.
Það er mikill samgangur á milli okkar
og sem dæmi get ég sagt að ég held ég
hafi eldáð einu sinni heima hjá mér
síðan ég kom þama niður eftir, því það
er alltaf verið að bjóða mér í mat. Þar
fyrir utan höldum við mikið hópinn og
grillum saman, fömm út að borða eða
íorum saman í helgarferðir.“
Reikna ekki með að setiast
aðíNamibíu
Nú hafa Islendingar oft á tíðum, þar
sem þeir hafa verið margir saman við
störf í útlöndum, haft með sér félags-
skap og oftar en ekki spilað fótbolta
einu sinni í viku, eða eitthvaða slíkt.
Hvemig er fótboltastemmningin þama
niður frá?
„Hún er frekar óglæsileg. Það
rignir nú ekki þama nema einn dag á
ári, svo það er lítið um túnskika þar
sem hægt er að spila fótbolta. Það er
einn malarvöllur með þungum íjöm-
sandi á, en ég hef ekkert verið að
sparka þar. Það er einnig ein fót-
boltadeild í landinu, en hún er bara í
kringum höfuðborgina."
Sérðu þig setjast að þama í
Namibíu?
„Nei ekki reikna ég nú með því. Ég
hef það reyndar mjög gott, en
gjaldmiðillinn er mjög óstöðugur og
síðan ég kom þama hefur orðið mikið
gengishrun. Gjaldmiðillinn heitir
Namibíudollar og er tengdur Suður-
Afríska randinu. Um daginn hmndi
gengið um einar ljórar íslenskar
krónur og sem þýddi tilheyrandi kaup-
lækkun fyrir mig, en það er samt ekki
mikil verðbólga og kostar ekkert að
lifa þama. Ég get kannski nefnt al-
genga viðmiðun sem Islendingar skilja
ágætlega, en það er verðið á bjómum.
Hálfur lítri af bjór á bar kostar til
dæmis 50 krónur."