Fréttir - Eyjafréttir - 20.08.1998, Side 4
A
Fréttir
Fimmtudagur 20. 1998
Þakka þér Jó-
hanna mín fyrir
hrósið á þollunum
mínum. Égerhissa
á að þú skulir ekki
hafa fengið leið á
þeim j gegnum tíð-
ina. Ég verð kann-
ski búin að bjóða þér í bollur áður en
þetta kemur út.
SALTKJÖTSBOLLUR
600 gr. saltkjötshakk (þeir hakka
fyrir þig saltkjöt hjá KÁ, Tanganum)
150 gr. nýtt hakk
Blandað vel saman
I sléttfull teskeið pipar hrært vel
saman við mjólk
Rúmur bolli af hveiti
Kúfull matskeið af Kartöflumjöli
1 egg - hrært saman við
Hafa deigið frekar þykkt
Bræðið smjörlíki á pönnu (djúpa-
eða rafmagnspönnu)
Steikið bollurnar. Hellið vatni svo
að fljóti vel yfir. Setjið sósulit og 1
súputening saman við. Soðið í 10 -
12 mínútur.
Búið til sósu úr soðinu.
Gott að hafa kartöflumús, grænar
baunir og rabbabarasultu með.
Þeir sem vilja hrásalat, þá er það
ágætt upp á hollustuna.
Svo er ég með uppskrift af salt-
ftskbollum, sem ég vil endilega láta
fljóta með til ykkar.
SALTFISKBOLLUR
300 gr. soðinn saltfiskur (roð- og
beinlaus)
150 gr. stappaðar kartöflur
Vi smátt saxaður laukur
1 msk. fínsöxuð steinselja
4 aðskilin egg
matarolía, helst ólífuolía.
Laukurinn er mýktur í heitri olíu og
svo stappaður saman við saltfiskinn.
Kryddi, eggjarauðum og kartöflum er
bætt út í og blandað vel saman.
Síðast er stífþeyttum eggjahvítum
blandað saman við deigið. Mótaðar
litlar bollur sem eru steiktar ljósar;
þær steikjast mjög fljótt og því má
ekki setja of mikið magn á pönnuna í
einu.
Borið fram með kartöflum í
jafningi og hrásalati.
Ég ætla að skora á Ómar
Garðarsson til að taka við. Hann er
orðinn svo slank og fitt að hann hlýtur
að eiga góðar og hollar uppskriftir.
O r ð 8 p o r
- Kurr mun vera í einhverjum
ferðaþjónustuaðilum vegna þeirrar
ákvörðunar að Samvinnuferðir-Land-
sýn eigi að sjá um allar bókanir frétta-
manna í tengslum við komu Keikós í
haust. Svíður mönnum að sjá þannig
hluta þeirrar vinnu sem í kring um
þetta skapast, afhent Reykvíkingum og
telja heimamenn betur að þessu
komna. Samvinnuferðir hafa gengið
svo langt að fara fram á að menn
afhentu þeim bókanir þeirra sem þegar
hafa pantað og staðfest komu sína
hingað og þannig viljað stjórna þessu
öllu saman.
- Hið skemmtilegasta deilumál mun
risið vegna hestagirðingar sem reist
hefur verið fyrir ofan Stapaveginn.
íbúar í næsta nágrenni eru meira en
óhressir með þetta og segja engar
samþykktir fyrir girðingunni. Girðingar-
maðurinn telur sig hafa munnlegt
samþykki fyrir þessu og eins og allir
vita er munnlegt loforð bindandi þegar
heiðarlegir menn eiga í hlut. Æsingur
er í gangi og hvorugur ætlar að gefa
sig, þannig að gaman verður að fylgjast
með framvindunni. Það er virðingarvert
hjá báðum aðilum að lífga uppá daufan
ágústmánuð fyrir okkur hin.
Aðalbjörg Bernódusdóttir
er sælkeri þessarar viku
Veggfánarm/íslenska
fánanum
huarsemer
HÚSEV
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
HUSEY
JáKVÆÐNI OC CÓÐUR. UOMOR.
Nú er úrslitakeppni yngri liokkanna í knattspyrnu að skella á, og
eigum við Vestmannaeyingar nokkra flokka sem verða í
eldlínunni. Fjórði flokkur kvenna lauk keppni um síðustu helgi og
náði frábærum árangri. A-liðið náði 3.sæti og b-liðið varð
íslandsmeistari. Þjálfari liðsins er íris
Sæmundsdóttir, sem jafnframt erleikmaður
f)' meistaraflokks kvenna i knattspyrnu. íris hefur
«staðið sig mjög vel sem leikmaður í sumar en
einnig hefur hún náð frábærum árangri sem
þjálfari. íris erþví Eyjamaður vikunnar að þessu
, sinni.
jJjjL Fullt nafn? íris
Sæmundsdóttir
Fæðingardagur og ár?
IjT
m
11 .október 1974
Fæðingarstaður ?
U) Reykjavík
Fjölskylduhagir? I
sambúð með Heimi
Hallgrímssyni og við eigum
saman soninn Hallgrím
Menntun og starf? Stúdent frá
FÍV. Vinn í Oddinum og er þjálfari
Laun? Ágæt
Helsti galli? Á erfitt með að taka eigin
ákvarðanir
Helsti kostur? Metnaðargjörn
Uppáhaldsmatur?
Hamborgarahryggur að hætti Heimis,
Tommajog Jóns Ólahmm)
Versti matur? Ungverski maturinn sem
að Judith Estergal bauð okkur ÍBV-
stelpunum einu sinni í og enginn þorði
að skilja eftir.
Uppáhaldsdrykkur? íslenska vatnið
Iris Sæmundsdóttir
er eyjamaður vikunnar
Uppáhaldstónlist? Fjöldasöngvarnir sem eru sungnir inni i
þjóðhátíðartjaldi hjá Grími Þórðar.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að sjá
manneskjur eins og Petru, Stefí og Dögg Láru fara með
skemmtiatriði. Það er alveg ólýsanleg skemmtun.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Tapa á móti Heimi í
spilum, en það hefur sem betur fer bara gerst einu sinni.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Ráða
garðyrkjumann til að sjá um garðinn minn, því að ég hef akkúrat
ekkert vit á blómum né trjám.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Pass
Uppáhaldsíþróttamaður? Stelpurnar í 4.flokki í fótbolta
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? ÍBV og svo má ekki
gleyma GO GO Girls félaginu.
Uppáhaldssjónvarpsefni? fþróttir
Uppáhaldsbók? Vísnabókin hans Hallgríms
Uppáhalds kvikmyndaleikari? Heimir Hallgrímsson, þegar
hann lék eitt af aðalhlutverkunum í íslensku kvikmyndinni "Með
allt á hreinu"
Hvað metur þú mest í fari annarra? Jákvæðni og góðan
húmor
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Þegar
einhver leggur sig ekki fram í leik og starfi.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Eyðieyjan sem að
við Heimirfórum á í Karabískahafinu og svo auðvitað
Vestmannaeyjar
Hvernig stóð á því að þú skelltir þér út í þjálfun? Hafði alltaf
dreymt um að vera þjálfari og ég lét það rætast.
Ætlar þú að helga þér þjálfun í framtíðinni? Aldrei að vita
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð?
-knattspyrna? Hlutur sem að maður verður aldrei leiður á.
-Þjálfun? Frábærskemmtun
-titill? Eitthvað sem að allir sækjast eftir að vinna
Eitthvað að lokum? Ég vil nota tækifærið og þakka
foreldraráðinu mínu fyrir frábær störf og stelpunum fyrir
eftirminnilegt og geggjað sumar. Haldið áfram á sömu braut.
ÁFRAM ÍBV!
NYFfEDDIR VESTMfiNNfiEYINGfiR
Þann 20. apríl eignuðust Ágústa Inga Hannesdóttir og Magnús Gauti Þrastarson
dóttur. Hún vó 11 merkur og var 51 1/2 sm að lengd. Hún fæddist á
fæðingardeild Landsspítalans í Reykjvaík.
Þann 30. júlí eignuðust Sif Gylfadóttir og Oddur Kristinn Guðmundsson dóttur.
Hún vó 18 merkur og var 52 sm að lengd. Á myndinni em Elías og Ósk,
systkini hennar. Hún fæddist á fæðingardeild Landsspítalans í Reykjavík.
Þann 31. júlí
eignuðust
Guðrún
Gísladóttir og
Stefán
Sigurðsson son.
Hann vó 16
merkur og var 52
smaðlengd. Á
myndinni heldur
Gílsi stóri bróðir
á litla bróður.
Hann fæddist á
fæðingardeild
Landsspítalans í
Reykjavík.
u
cuifinnl
26. ágúst Setning Framhaldsskólans
30. ágúst Urslitaleikur í Coca cola bikarnum
1. september Grunnskólastarf hefst
10. -15. sept. Keikó kemur
25. september Lundaball í umsjón Bjarnareyinga