Fréttir - Eyjafréttir - 20.08.1998, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 20. ágúst
Fréttir
15
KFS komst ekki í
úrslit
KFS lék á laugardaginn, sinn síð-
asta leik á keppnistímabilinu, þegar
þeir fengu lið KFR í heimsókn.
KFS-menn enduðu tímabilið með
stæl og sigruðu leikinn, 7-2. Mörk
KFS gerðu; Magnús 4, Yngvi 2 og
Jóhann S. 1.
KFS varð þar með í 3. sæli 3.
deildar-A, með fleiri stig en Bruni.
Magnús Steindórsson gerði 20
mörk í sumar og varð næst-
markahæstur í 3. deild.
Að sögn Hjalta Kristjánssonar,
þjálfara KFS, em menn þokkalega
sáttir við tímabilið, þótt svekkjandi
hafi verið að iiðinu vantaði aðeins
eitt stig tii að komast í úrslit.
Strákarnir í 5. flokki
stóðu sig vel
Islandsmótinu í ó.flokki karla
lauk nú um helgina. Strákarnir
lentu í öðru sæti í svo kölluðum
úrslitariðli, og í framhaldi af því
spiluðu þeir í milliriðli. í
úrslitariðlinum iék ÍBV tvo leiki;
við ÍR og Þrótt. A-liðið sigraði ÍR,
1-0, en b-liðið tapaði, 1-5. í leik
ÍBV og Þróttar sigraði a-liðið, 5-3,
en b-liðið tapaði, 3-4. í milli-
riðlinum tapaði a-lið ÍBV fyrir
Fylki, 1-10 og b-liðið tapaði, 2-8.
Þrátt fyrir skellina í milliriðlinum,
lentu strákarnir í 5-8.sæti á
Islandsmótinu, sem er einn besti
árangur þessa aldursflokks í langan
tíma.
Landssímadeildin 13. umferð: ÍBV 4 - ÍR 1
Eyjamenn trysgðu
stoðu sína á toppnum
Eyjamenn eru enn í efsta sæti
Landssímadeildarinnar, eftir góðan
sigur á nýliðum IR-inga á sunnu-
daginn var. Eyjamenn áttu heldur
betur harma að hefna gegn
gestunum úr Breiðholtinu, um
síðustu helgi, því að IR-ingar lögðu
þá Islandsmeistarana í fyrri leik
liðanna, 1-0.
Eyjamenn ætluðu heldur betur að
sýna gestunum að úrslitin úr fyrri leik
liðanna var ekki bara slys, heldur stór-
slys. Ekki voru liðnar nema 44
sekúndur af leiknum þegar Ingi Sig-
urðsson skoraði fyrsta mark leiksins,
með skoti af stuttu færi. Eyjamenn
héldu orrahríðinni áfram, og ekki leið
á löngu þar til Ingi Sigurðsson gerði
annað mark ÍBV, og sitt annað í
leiknum. Kristinn Hafliðason gaf þá
góða sendingu á Inga, sem lék á einn
vamarmann ÍR og þrumaði knettinum
neðst í markhomið. Óverjandi fyrir
markvörð IR. Þriðja mark IBV gerði
síðan markahrókurinn Steingrímur Jó-
hannesson, eftir frábæra stungu-
sendingu Hlyns Stefánssonar. Undir
lok fyrri hálfleiks skoraði Kristinn
Lámsson skemmtilegt mark, eftir að
hafa kastað sér fram í teignum og
skallað boltann í netið. En á síðustu
sekúndum fyrri hálfleiks fengu IR-
ingar vítaspymu, eftir að Gunnar í
markinu hafði brotið mjög klaufalega
á einum leikmanni gestanna, inni í
eigin vítateig. IR-ingar skomðu úr
vítaspymunni og var staðan í hálfleik
4-1. Þess má geta að einum
leikmanna ÍR var vikið af leikvelli
snemma í fyrri hálfleik. Ahorfendur
vom því búnir að setja sig í stellingar
fyrir sannkallaða markasúpu í seinni
hálfleik. En allt kom fyrir ekki.
Eyjamenn vom með boltann allan
seinni hálfleikinn en ÍR-ingar
pökkuðu í vöm og náðu að halda
hreinu það sem eftir lifði leiks.
Eyjamenn fóm því með sigur af hólmi
og eru ennþá efstir í Landssíma-
deildinni með 28 stig, en KR-ingar
fylgja fast á eftir með 24 stig. IBV
spilaði mjög vel í leiknum, sérstaklega
í fyrri hálfleik. Menn vom mjög
hreyfanlegir og boltinn rúllaði vei
kantanna á milli. Bestu menn ÍBV í
leiknum voru þeir Hjalti Jóhann-
esson, Ingi Sigurðsson og Ivar Ingi-
marsson.
Lið ÍBV: Gunnar 7 - Guðni 7,
Hlynur 7, Zoran 7, Hjalti 8 - Ingi
8(Sindri 6), Steinar 6(Sinisa 5),
Kristinn H. 7, ívar I. 8, Kristinn L.
7(Jens 6) - Steingrímur 7.
Meistaradeild kvenna: Valur 2 ÍBV 1
Töpuðu á lokamínútunni
Eyjastúlkur léku gegn efsta liði Vals
í meistaradeild kvenna í knatt-
spyrnu, síðastliðinn fimnitudag.
Stelpurnar fóru fullar sjálfs trausts
í leikinn, þar sem þær hafa verið að
spila glimrandi bolta í und-
anförnum leikjum. Ailt stefndi í
sigur Eyjastúlkna en á síðustu
mínútunni fengu þær á sig tvö
mörk og töpuðu 2-1.
IB V-stelpur vom mun ákveðnari en
Valur frá fyrstu mínútu og spiluðu
góðan og agaðan bolta. Mótspyrna
IBV kom Val í opna skjöldu og var
IBV mun betri aðilinn allan leikinn.
Bryndís Jóhannesdóttir skoraði gott
mark fyrir IBV í fyrri hálfleik, og
staðan í leikhléi var því, 0-1.
Eyjastelpur vom með yfirhöndina í
seinni hálfleik líka. En Valsstúlkur
gerðu út um leikinn, ótrúlegt en satt,
með tveimur mörkum. Það íyrra kom
á lokamínútu leiksins, og það síðara
þegar komið var fram yfír venjulegan
leiktíma. ÍBV-liðið lék vel í þessum
leik, en því miður dugði það ekki til
sigurs í þessari viðureign. Petra F.
Bragadóttir, markmaður ÍBV, var best
Eyjastúlkna í leiknum.
Lið ÍBV: Petra 8 - Fanný 7, Juan 7,
Sigríður Á. 7, Ema 7(6) - Elena 7,
Anna 7, Hrefna 7, Hjördís 7 - Bryndís
7(Oiga 6), íris Sæ. 7.
Þið eruð frábær!
Islandsmeistarar í frjálsum
Óhætt er að segja að íslandsmeistarar
IBV karla hafi haft í nógu að snúast
undanfamar vikur. Hver stórvið-
burðurinn hefur rekið annan og fram-
undan er bikarúrslitaleikur sunnu-
daginn 30. ágúst þar sem ÍBV verður
þriðja árið í röð að berjast í þessum
stærsta einstaka leik ársins. Það er
stórafrek út af fyrir sig að komast í
bikarúrslitaleik, því megum við ekki
gleyma.
Að undanfömu hefur stjóm knatt-
spymudeildar þurft að leita til ýmissa
aðila með aðstoð vegna ýmissa
verkefna. Þar má nefna uppákomumar
í Skvísusundi fyrir bikarleikinn gegn
KR og Evrópuleikinn gegn FK Obilic,
sjónvarpsútsendingar vegna Evrópu-
leiksins, öryggisgæslu í kringum þann
leik, Húkkaraballið, þjóðhátíðina o.fl.
að ógleymdum leikjunum sjálfum.
Stjóm knattspymudeildar IBV,
framkvæmdastjóri og leikmenn liðsins
vilja koma á framfæri kæm þakklæti til
allra þeirra sem hafa aðstoðað okkar að
undanfömu. Aðalstjóm ÍBV með
formanninn Ásmund Friðriksson í
fararbroddi hefur reynst okkur mjög
vel. Heijólfur, Vestmannaeyjabær,
Hótel Þórshamar. Hótel Bræðraborg,
Islandsflug, Einar Hallgrímsson raf-
virki, Flugfélag íslands, Hertoginn,
Lantema og Sigga í Skuld fá bestu
þakkir íyrir stuðninginn í tengslum við
Evrópuleikinn. Guðmundur Þ. B.
Ólafsson, Guðjón bæjarstjóri og IV
reyndust okkur sérlega vel.
Sérstakar þakkir fá sjómennimir 25
sem sáu um dyravörsluna á Húkkara-
ballinu. þið emð frábærir og sannir
stuðningsmenn. Þið_ eigið inni stóran
greiða hjá okkur. Á Húkkaraballinu
stóð Ásmundur formaður einnig fyrir
sínu. Á þjóðhátíðinni var einvalalið
sem aðstoðaði okkur í sölubúðunum
með Sigurberg Ármannsson, Magnús
Sigurðsson og Svein Þorsteinsson og
fjölskyldu í fararbroddi. Stjórn IBV-
íþróttaféiags er sérstaklega þakkað
fyrir sitt framlag við nýju búnings-
klefana við Týsheimilið sem hafa
gjörbylt aðstöðu leikmanna IBV til
hins betra. Stuðningsmannaklúbbur
ÍBV í Eyjum er á mikilli uppleið og
hefur skapað frábæra stemmningu í
Skvísusundi. Ástar þakkir.
Og stuðningsmenn IBV sem hafa
mætti svo frábærlega vel á bikar-
leikina, Evrópuleikinn og svo auðvitað
deildarleikina; kærar þakkir fyrir frá-
bæran stuðning og góða stemmningu.
Fjörið er rétt að byija og við treystum á
að þið mætið sem flest á bikarúrslita-
leikinn 30. ágúst nk. á Laugardalsvelli.
Sjálfsagt gleymum við einhverjum
en það er alls ekki viljandi. Hafið öll
bestu þakkir fyrir. Með samtakamætti
hefst þetta allt. Vonandi nær IBV-liðið
að standa undir öllu þessu en með
öflugum stuðningi stuðningsmanna og
fyrirtækja er allt hægt.
Áfram ÍBV
Stjórn knattspyrnudeildar ÍBV
Leikmenn IBV
Keppendurá
íslandsmóti
15 tll 22 ára og
yngriog Kristjana
íslandsmeistari
á móti 14 ár og yngri.
Vestmannaeyingar náðu góðum
árangri á tveimr íslandsmótum í
yngri flokkum sem fóru fram
nýlega. Á nióti 15-22 ára í Borg-
arnesi 15. -16. ágúst varð Árni Oli
Ólafsson Islandsmeistari í spjót-
kasti og kastaði hann spjótinu 52.10
metra. Þá varð Kristjana Jóns-
dóttir Islandsmeistari í kúluvarpi
14 ára og yngri á móti í Hafnarfirði.
Ámi ðli náði með þessum árangri
að komast í landslið unglinga og setti
Vestmannaeyjamet.
I sleggjukasti lenti Ámi Óli á móti I
í 2. sæti, kastaði sieggjunni 38.60
metra og komst einnig í landsliðið, því
að takmörkin í sleggju eru 38 metrar.
Þráinn Hafsteinsson, landsiiðsþjálf-
ari, var mjög hrifinn af Áma Óla og
sagði að miðað við að hann væri
aðeins 15 ára, þá væri hann mjög
góður og ætti hann enn eftir 1 ár í 15 -
16 ara flokknum.
í kringlukasti lenti Ámi Óli í 4.
sæti, kastaði 39.46 metra og setti
Vestmannaeyjamet.
Katrín Elíasdóttir varð önnur í kúlu-
varpi, kastaði kúlunni 9.36 metra og
setti Vestmannaeyjamet. Einnig
keppti Katrín í kringlukasti og kastaði
hún 19.83 metra.
Karen Ólafsdóttir lenti í 3. sæti í
kringlu, kastaði 31.96 metra.
Trausti Hjaltason, keppti í kúlu(4
kg) og kastaði henni 9.55 metra.
Guðjón Ólafsson lenti í 3. sæti í
kringlukasti, kastaði 31 metra. í
spjótkasti(800 gr), lenti Guðjón í 4.
sæti, kastaði 50.12 metra og setti
Vestmannaeyjamet. I stangastökki
stökk hann 3.80 metra og lenti í 3. sæti
og sló þar með 53 ára gamalt met sem
Guðjón Magnús-
son (GauiManga)
átti úti, 3.67 m.
Þess má geta að
þeir em frændur.
Kristjana kastaði
kúlunni 8.58 m
sem er V-met.
Hildur Jónsdóttir
hljóp 60 metra á
10.21 sekúndu
og kúlu kastaði
hún 7.11 metra.
Raggi sigraði á
Coca Cola mótinu
Coca Cola mótið 1998 fór fram um
síðustu helgi. Keppt var í þrentur
flokkum og voru keppendur 34
talsins. Úrslit urðu þannig:
MEÐ FORGJÖF
HÖGGLEIKUR
Coke0-15
1. Ragnar Guðmundsson með 67
höggum, 2. Hörður O. Grettisson
67 höggum og 3. Jónas Þ. Þor-
steinsson 69 höggum.
Coke 16-29
1. Viktor P. Jónsson á 54 höggum.
2. Andri Ólafsson á 63 höggum
og 3. Huginn Helgason á 63 högg-
um
Coke 30-40
1. Helgi Bragason á 61 höggi, 2.
Ingi T. Bjömsson á 78 höggum
og 3. Gísli S. Jónsson á 78
höggum.
Tap hjá stelpunum
Einn leikur var í síðustu viku hjá
3. flokki kvenna. Þá fengu þær KR-
inga í heimsókn og töpuðu, 1-2.
Kristjana Ingibergsdóttir gerði mark
ÍBV. Framundan er úrslitakeppnin
hjá stelpunum og hefst hún um
helgina.
Kjartan til
Bandaríkjanna
Kjartan Antonsson, varnarmað-
urinn sterki í IBV, er farinn til
náms í Bandaríkjunum. Kjartan
mun að öllum líkindum ekki spila
meira með IBV í deildinni, en hann
mun koma til landsins og taka þátt í
bikarúrslitaleiknum gegn Leiftri.
Markasúpa hjá
3.flokki karla
Þriðji flokkur karla lék tvo leiki í
síðustu viku og voru strákarnir
heldur betur á skotskónum. Fyrst
héldu þeir í Garðabæinn, og lögðu
lið Stjörnunnar, 1-7. Mörk IBV
skoruðu: Gunnar H. 4, Alli 1, ívar
1 og Bjami R. 1. Á sunnudaginn
fengu þeir síðan Hauka í heimsókn
og endaði leikurinn með sigri ÍBV,
2-6. Mörk ÍBV gerðu ; Gunnar H.
3, Olgeir 1, Hörður 1 og Hlynur I.
Sigur í lokaleik
Fjórði llokkur karla sigraði síðasta
leik sinn í Islandsmótinu, sem fram
fór í síðustu viku. ÍBV fékk þá lið
Fylkis í heimsókn og sigruðu
Eyjastrákar, 2-0. Mörk ÍBV skor-
uðu Andri og Karl. Strákamir lentu
því í 7.sæti í A-riðli, sem verður að
teljast nokkuð góður árangur.
Enn sigra strákarnir
Annai- Uokkur karla fékk Þrótt í
heimsókn í síðustu viku. Leikið var
á Hásteinsvelli og sigruðu Eyja-
strákiir, 5-3. Unnar gerði tvö mörk
fyrir ÍBV, Óskar og Magnús gerðu
eitt mark hvor og síðan var eitt
sjálfsmark.
Framundan
Föstudagur 21. ágúst
Kl. 19:00 mfl.kv ÍA-ÍBV
Laugardag. 22. ágúst
Kl. 14:00 mfl.ka Valur-ÍBV
Mánudagur 24. ágúst
Kl. 19:00 3.fl.ka ÍBV-ÞórAk.
Miðvikud. 26.ágúst
Kl. 18:00 3.fl.ka ÍBV - KS