Fréttir - Eyjafréttir - 17.09.1998, Qupperneq 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 17. september 1998 • 38. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
— I 1 j n
rrr.m , u
Fá að heimsækja Keikó
í undirbúningi er að gera öllum Vestmannaeyingum kleift að komast út í kví Keikós. Þykir það í
besta falli tilhlýðilegt að Eyjamenn fái að sjá Keikó í návfgi og ekki síður að hann fái að sjá augliti
til auglitis þá ágætu eyjaþjóð sem tók svo vel á móti honum.
Myndin er tekin á laugardaginn þegar nokkrir, bæði böm og fullorðnir, fengu tækifæri til að
heimsækja háhyminginn sem þrífst vel í nýjum heimkynnum.
Sjá nánar á bls. 10, 11.
lyf læknir fæst ekki
að sjúkrahúsinu
-Tíu læknar úr Reykjavík munu skipta með sér
stöðunni til bráðabirgða
Enn hefur ekki fengist lytlæknir að
sjúkrahúsinu í Eyjum í stað Einars
Vals Bjarnasonar, yfirlæknis lyf-
læknisdeildar, sem látið hefur af
störfum. Gunnar K. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri sjúkrahússins,
sagði að enginn hefði sóst eftir
stöðunni en nú væri komin bráða-
birgðalausn á málinu, allavega til
næstu mánuða, eða þar til tækist að
ráða hingað lyflækni. Hann sagði
að tíu læknar af stóru sjúkra-
húsunum í Reykjavík, undir for-
ystu Magnúsar Böðvarssönar,
myndu skipta stöðunni með sér.
Þeir myndu verða hér eina til tvær
vikur í senn hver og fylla þannig
stöðuna.
Gunnar sagði að þetta fyrirkomulag
hefði bæði kosti og galla í för með sér.
Kostirnir væru að þarna væru á ferð
færustu sérfræðingar landsins, yfir-
læknar deilda á stóru sjúkrahúsunum
og sérfræðingar á sínu sviði. Þarna
væru t.d. nýmasérfræðingar, lungna-
sérfræðingar o.fl, þannig að þjónustan
við Vestmannaneyinga yrði í sjálfu
sér belri hvað það varðaði. Hann sagði
að gallinn væri aftur á móþ sá að
mikið að sjúklingum lyflæknisdeildar
væru langlegusjúklingar og fyrir þá
væru tíð skipti á læknum erfið því
auðvitað tæki alltaf tíma iyrir læknana
að kynnast sjúklingununt og setja sig
inn í þeirra mál. Þá sagði hann einnig
að þetta fyrirkomulag yrði sjúkra-
húsinu frekar dýrt. ,
Gunnar sagði að skurðlæknirinn sem
ráðinn var í stað Björns I. Karlssonar
væri kominn til starfa en enn hefði
ekki fengist svæfingalæknir. Enginn
innlendur læknir hefði spurst fyrir um
stöðuna. Hann sagði að aftur á móti
væri pólskur svæfingalæknir tilbúinn
að koma hingað til starfa en heimild
hefði enn ekki fengist frá Lækna-
félaginu til að hann kæmi og at-
vinnuleyfi fengist ekki frá félags-
málaráðuneytinu fyrren leyfi Lækna-
félagsins lægi fyrir. Hann sagðist þó
vonast til að það leyfi kæmi nú í
vikunni og ef það gengi eftir yrði sá
pólski kominn á sjúkrahúsið eftir viku
til tíu daga.
Sluppu óirúlega vel
pegar flugvél fórst
á Bakkaflugvelli
Um klukkan sjö á sunnu-
dagskvöldið nauðlenti eins hreyfils
flugvél frá Flugfélagi Vest-
mannaeyja eftir að hún missti afi
rétt eftir fiugtak á Bakkaflugvelli.
Þrír voru í vélinni og meiddust
ótrúlega lítið miðaða við
aðstæður.
Valur Andersen hjá FV segir að
vélin hafi misst mótor rétt eftir að
hún fór í loftið af Bakkaflugvelli.
„Flugmaðurinn brást rétt við
aðstæðum en hann tók upp í norður.
Fyrst reyndi hann að koma vélinni
inn á austur-vestur brautina en vélin
var ekki komin í næga hæð til að það
tækist. Flugmaðurinn varð því að
lenda vélinni utan brautar og tókst
það vonum framar miðað við
aðstæður. Mennimir, farþegarnir
tveir og flugmaðurinn, hafa sloppið
ótrúlega vel miðað við að flugvélin
er ónýt,“ segir Valur.
Valur segir að í vor hafi verið
haldin björgunaræfing á Bakka-
flugvelli og hafi reynslan af henni
skilað sér í þessu slysi. „Það
brugðust allir rétt við. Læknir var
kominn frá Vestmannaeyjum upp á
Bakka eftir tíu mínútur. Hann ákvað
að senda farþegana til Eyja þar sern
þeir vom rannsakaðir á sjúkrahúsinu
en flugmaðurinn, sem kvartaði um
eymsli í baki, var sendur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar til Reykja-
víkur,“ sagði Valur að lokum.
Sjá bls. 15
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 4813Z
(Vetraráœtlun Herjólfs
— Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Mán - Lau Kl. 08:15 Kl, 12:00
Sunnudaga Kl. 14.00 Kl, 18.00
aukaferöir föstudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00
l-terjólfur (mícwfa/ið Sími 481 2800 Fax 481 2991