Fréttir - Eyjafréttir - 17.09.1998, Blaðsíða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 17. september 1998
Landa-
KIRKJA
Fimmtudagur 17. september
Kl. 20:00 Opið hús í unglinga-
starfinu í KFUM&K
Sumuidagur 20. september
Kl. 20:00 Æskulýðsfundur í
safnaðarheimili Landakirkju.
Messufall vegna héraðsfunda
okkar á Alftanesi.
Sóknarprestur.
Kirkjan er opin alla virka daga
milli klukkan 11:00 og 12:00.
Sími sóknarprests er 481-1835
og 897-8984
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20:30 biblíulestur
Föstudagur
Kl. 20:30. Samkoma með skandí-
navíska hópnum Exodus. Þau
koma hingað til að vera aðeins eitt
kvöld og minna á ráðstöfun Guðs
með Isracl.
Laugardagur
Kl. 13.00Túrbó-túrbó
Kl. 20:30 Bænasamkoma
Sunnudagur
Kl. 15:00 -ath. breyttan tíma.
Vakningarsamkoma. Fóm tekin til
Innanlandstrúboðsins. Samskot til
Kristniboðsins.
Allir li jartanlega velkomnir.
Aðventkirkjan
Laugardagur 22. ágúst
Kl. 10:00 Biblíurannsókn.
Kl. 11 :(X) Guðsþjónusta. Gestur helg-
arinnar Björgvin Snorrason.
Allir velkomnir.
Baháísam-
FÉLAGIÐ
Opið hús að Kirkjuvegi 72B
fyrsta fÖstudag hvers mánaðar kl.
20.30. Allir velkomnir.
Heitt á könnunni.
Biblían
talar
Sími
481-1585
HITACHI
Knattspyrnuvertíðin 1998:
Besti áransur ynsri
flokkanna í áraraðir
Yngri tlokkar ÍBV í knattspyrnu
létu heldur betur að sér kveða í
sumar. Þeir náðu tlestir frábærum
árangri, reyndar þeim langbesta í
mörg herrans ár. Þetta er virkilega
jákvæð þróun og sýnir svo ekki
verður um villst að sameining
tlokkanna er heldur betur að skila
sér. Arangur sumarsins eru tveir
íslandsmeistaratitlar, allir stúlkna-
llokkar IBV komust í úrslitakcppni
og allir drengjatlokkarnir stóðu sig
framar vonum.
í yngri flokkunum er keppt í
íslandsmóti í 2., 3., 4. og 5. flokki og
reyndar f 6. flokki drengja. Lítum á
árangur sumarsins í hverjum flokki
fyrir sig:
2. tlokkur ÍBV karla undir stjórn
Kristins R. Jónssonar vann B-riðilinn
með miklu öryggi. Liðið var með 28
stig, vann 9 leiki, gerði I jafntefli og
tapaði 2. Þama eru margir efnilegir
strákar en helmingur byrjunarliðsins
gengur upp í meistaraflokk. Frábær
árangur.
3. flokkur drengja undir stjórn
Björns Elíassonar lenti í 2. sæti í B-
riðli og komst því upp í A-riðil. ÍBV
var með 30 stig, 12 stigum á eftir Þór
Ak. sem var með fúllt hús stiga. 1
þessu liði eru líka margir efnilegir
piltar sem verður fróðlegt að fylgjast
með. Mjög gott hjá strákunum að
komst uppl.
4. flokkur drengja undir stjórn
Kristins R. Jónssonar stóð sig vonum
framar. Liðið lék í A-riðli og var búist
við mjög erfiðum róðri, jafnvel að
liðið myndi falla. En strákarnir stóðu
sig mjög vel, lentu í 7. sæti af 11
liðum, unnu 4 leiki en töpuðu 6. Þessi
flokkur kom satt að segja einna mest á
óvart í sumar.
5. tlokkur drengja undir stjórn
Sigurlásar Þorleifssonar stóð sig með
prýði. Þar er keppt í A og B og gildir
sameiginlegur árangur beggja liða þar
sem úrslit A vega þyngra. 5. flokkur
lék í B-riðli og vantaði hársbreidd til
að komast upp í A-riðil. Liðið komst
hins vegar í úrslitakeppnina og stóð
sig þar með prýði þótt ekki kæmist
það í úrslitaleik.
6. flokkur drengja undir stjórn Jón
Ólafs Daníelssonar varð í 2. sæti í
Pollamótinu og komst ekki í úrslit.
Flokknum óx ásmegin eftir því sem
leið á sumarið.
2. flokkur kvenna undir stjóm
Heimis Hallgrímssonar kom sá og
sigraði. Liðið lenti í 3. Sæti í A-riðli
og komst í úrslit. Þar komu stelpumar
vemlega á óvart og gerðu sér lítið fyrir
og urðu Islandsmeistarar, sigmðu Val
í úrslitaleik. Frábær árangur og
innilega til hamingju.
3. flokkur kvenna undir stjórn
Heimis stóð sig einnig geysilega vel.
ÍBV stelpumar lentu í 2. Sæti í sínum
riðli og komust auðveldlega í úrslit. I
úrslitunum vom stelpurnar óheppnar
að komast ekki í úrslitaleik. Engu að
síður stóðu þær sig mjög vel.
4. ilokkur kvenna undir stjóm Insar
Sæmundsdóttur sló í gegn. A-lið ÍBV
varð í 2. Sæti í sínum riðli og komst í
úrslit. Þar lenti ÍBV í 3. Sæti og var
hársbreidd frá því að komast
úrslitaleik. B-liðið vann sinn riðil og
gerði sér svo lítið fyrir og varð
Islandsmeistari á glæsilegan hátt.
Sannarlega frábær árangur hjá
stelpunum. Til hamingju.
5. llokkur kvenna undir stjórn Olgu
Stefánsdóttur stóð sig einnig mjög vel,
bæði á Pæjumóti, hnátumóti og Gull
og silfurmóti og unnu til verðlauna.
6. flokkur undir stjórn Ernu Þor-
leifsdóttur stóð sig einnig vel í sumar
og vann lil verðlauna á Pæjumóti og
Gull- og silfurmóti.
Astæða er til að óska þjálfurum,
unglingaráði, knattspyrnudeildinni,
leikmönnum og foreldraráði þessara
flokka til hamingju með sumarið.
Að sögn Þorsteins Gunnarssonar,
ffamkvæmdstjóra knattspyrnudeildar,
verður haldið áfram á sömu braut í
yngri flokkunum í knattspymunni.
Búið er að ráða nýjan yfirþjálfara
yngri flokkanna sem kynntur verður
nánar í næsta blaði og eru bundnar
miklar vonir við störf hans. Einnig
verður farið í það á næstunni að ráða
aðra þjálfara fyrir yngri flokkana.
Þá verður lokahóf yngri flokkanna
líklega haldið sunnudaginn 20.
október nk. en það verður nánar aug-
lýst síðar.
Þríðjí flokkur kvenna fór í feróalag til Englands á árinu og heimsóttí bá
Manchester United á Old Traford.
íslandsmeistarar ÍBV í 2. flokki ásamt Heimi hiálfara.
w 1 í ^ \ [ 'i 1 mm
1 1 1 J W M V O A
j j á 1
Ui* V 1 n
í öðrum flokki eru margir efnilegir strákar en helmingur hyr junarlíðsins gengur
uppímeistaranokk.
Handboltavertíðin byrjar um hekina
Meistaraflokkur karla í hand-
knattleik undirbýr sig nú af kappi
íýrir komandi átök í vetur.
Nú ekki alls fyrir löngu komu
strákamir úr vel heppnaðri æfinga-
ferð frá Danmörku, þar sem IBV lenti
í 5.sæti í sterku alþjóðlegu móti.
Strákarnir unnu þrjá leiki en töpuðu
tveimur. Helgina 4. - ó.september tóku
strákamir þátt í Reykjavíkur-mótinu í
handknattleik og urðu úrslit þannig:
ÍBV-HK 18-17
ÍBV-KA 12-15
ÍBV - Hörður Hörður mætti
ekki
HK og KA komust í undanúrslit, þar
sem þau voru með betri markatölu
heldur en IBV. Það vom síðan
Framarar sem enduðu sem
sigurvegarar á Reykjavilcumiótinu.
Fyrsti leikur ÍBV í íslandsmótinu
verður á sunnudaginn gegn Haukum á
útivelli og hefst leikurinn klukkan
20:00.
Meistaraflokkur kvenna tók einnig
þátt í Reykjavíkurmótinu, og líkt og
strákarnir þá komust þær ekki í
undanúrslit. IBV tapaði fyrir
Stjömunni í fyrsta leik, 16 - 17, þar á
eftir töpuðu stelpumar með 9 mörkum
gegn Víkingi en í síðasta leiknum
unnu þær Fram með 5 mörkum.
Að sögn Hlyns Sigmarssonar, sem
var fararstjóri, þá voru stelpumar að
spila vel gegn Stjömunni, ágætlega
gegn Fram en hörmulega gegn
Víkingi. Nýju stelpumar í IBV-liðinu
voru að spila ágætlega en liðinu vantar
samæfingu og ungu stelpurnar eru
ekki alveg tilbúnar í toppslag meðal
þeirra bestu, en sá tími mun koma.
Þetta mót var góð æfing fyrir liðið
og sýnir að mikið verk er fyrir
höndum að búa til lið sem verður í
toppbaráttunni, en vonandi tekst það.
Fyrsti leikur ÍBV í íslandsmótinu fer
fram næstkomandi þriðjudag og
verður leikið gegn IR á útivelli.
Leikurinn hefst klukkan 20:00.
Júgóslavinn mættur
Nýi leikmaðurinn hjá ÍBV í
handknattleik karla, Júgóslavinn
Slavisa Rakanovic, er kominn til Eyja.
Að sögn Jóhanns Péturssonar hjá
handknattleiksráði IBV, þá er Slavisa
31 árs hægrihandarskytta, sem hefur
spilað með yngri landsliðum
Júgóslavíu. „ Hann er virkilega góður
alhliðaleikmaður, sem hefur mikla
reynslu. Slavisa hefur verið
atvinnumaður í 10 ár og hefur hann
meðal annars spilað með einu
sterkasta félagsliði í Evrópu sem er
Metaloplastika í Júgóslavíu. Einnig
hefur hann leikið með félagsliðum á
Spáni og í Portúgal. Slavisa er nálægt
tveimur metrum á hæð og þá er hann
svipaður Eyþóri Harðarsyni í
handknattleiksráði að þyngd, eða um
100 kíló,” sagði Jóhann Pétursson
brosandi að lokum.