Fréttir - Eyjafréttir - 17.09.1998, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 17. september
Fréttir
19
Landssímadeildin: Grindavík 1 - IBV 0
Hikstað á lokasprettinum
Grindavík og ÍBV áttust við í 16.
umferð Landssíniadeildarinnar í
knattspyrnu á laugardaginn. Leik-
ið var í strekkingsvindi í Grindavík
og var lítið um glæsileg tilþrif í
leiknum, sérstaklega af hálfu Eyja-
manna. Grindavík var að berjast
fyrir lííi sínu í deildinni en IBV
þurfti þrjú stig í baráttuna um
Islandsmeistaratitilinn. Grindavík
hafði betur með marki á 8. mínútu
en eftir sátu Islandsmeistararnir
með sárt ennið.
Grindvíkingar vom mun sprækari í
byrjun leiks og ætluðu sér ekkert
annað en sigur gegn andlausum Eyja-
peyjum. Heimamenn voru mun
grimmari á boltann og gáfu Is-
landsmeisturunum ekki tommu eftir.
Leikurinn var ekki skemmtilegur á að
horfa sökum hvassviðris, sem
óneitanlega setti strik í reikninginn.
En heimamenn í Grindavík skoruðu
fyrsta mark leiksins og var þar að
verki Grétar Hjartarson, sem skoraði
eftir góðan undirbúning Zoran
Ljubicic. Eftir markið reyndu bæði lið
að þreifa fyrir sér en fátt markvert
gerðist fram að leikhléi. Það sama var
uppi á teningnum t síðari hálfleik og í
leik ÍBV-liðsins vantaði allann kraft
og áræðni. Grindvíkingar héldu sínu
striki og vom mun hættulegri í sínum
sóknaraðgerðum. Það fór svo að
lokum að heimamenn sigmðu 1- 0, og
náðu að hífa sig upp af botninum í bili.
Hlynur Stefánsson var langbesti
maður ÍBV í leiknum og var greini-
lega eini maðurinn sent hafði
virkilegan áhuga og metnað til þess að
klára leikinn með sigri. Aðrir
leikmenn mega heldur betur fara að
hugsa sinn gang ef þeir ætla sér að
halda Islandsmeistartitlinum hér í
Eyjum. Bjarni þjálfari á eflaust sinn
þátt í þessu tapi gegn Grindavík vegna
innáskiptinga. í fyrsta lagi, eins og
svo oft áður í sumar, koma inná-
skiptingarnar alltof seint og í öðm lagi
er óskiljanlegt að þegar liðið er cinu
marki undir og þarf að sækja og skora,
þá skiptir hann sóknarmanni inn á
fyrir sóknarmann. Væri ekki nær að
taka mann úr öftustu línu?
Lið ÍBV: Gunnar 6 - Hjalti 6, Guðni
R. 5, Zoran 6, Hlynur 8 - Ingi 6,
Kristinn H. 5, ívar I. 6, Steinar 5 (ívar
B 6), Kristinn L. 5 - Sindri
6(Steingrímur 6)
Sindri Þór Grétarsson fagnar marki sínu á móti Fram í 15. umferð.
Atli Eðvaldsson kúvendir
-Heldur nú fram skoðunum sem hann taldi
ærumeiðandi fyrir tveimur árum
Það hefur verið kátbroslegt að
fylgjast með ummælum Atla
Eðvaldssonar, þjálfara KR, eftir
sigur KR gegn IA. Atla lætur hafa
það eftir sér að IBV eigi bara einn
leik eftir, gegn KR, því Leiftur ætli
að tapa fyrir ÍBV á laugardaginn.
Það er gaman að líta tvö ár til baka
þegar ÍBV var sakað um að ætla að
tapa fyrir IA í lok Islandsmótsins en
þá var Atli einmitt þj'lafari ÍBV. Þá
hafði Atli mörg orð um hversu
lákúmlegt það væri að saka menn unt
að ætla að tapa leikjum. I viðtali í
Fréttum sagði hann m.a.: ...er það
grófasta sem hægt er að saka
íþróttamenn um, að ætla vísvitandi að
hliðra til um úrslit í leik. Þetta er eins
æmmeiðandi og hægt er að hafa það.
Atli virðist heldur betur hafa skipt um
skoðun frá þessum tíma því nú sakar
hann Leiftursmenn um að ætla
vísvitandi að tapa fyrir IBV á
laugardaginn. Ætli Atli telji þetta það
þá ekki lengur til æmmeiðandi
umntæla að saka íþróttamenn um það
að ætla sér vísvitandi að hliðra til
úrslitum í leik.
Hér má sjá úrklippu úr Fréttum fyrir
tveimur ámm og DV í þessari viku þar
sem Atli lætur móðan mása. Þarna
kveður við annan tón.
Eigum tvo leiki eftir en
IBV einn
Mikill
taugatitr-
ingur er far-
inn að gera
vart við sig
meðal leik-
manna og
forráða-
manna í úr-
valsdeild-
inni í knattspyrnu fyrir loka-
sprettinn sem fram undan er í
deildinni. Atli Eðvaldsson,
þjálfari KR, vill ekki heyra á það
minnst að titillinn sé á leið í
vesturbæinn og eftir sigurinn á
ÍA um helgina þar sem KR-ingar
komust á toppinn sagöi Atli þeg-
ar hann var spurður út í mögu-
leika á titlinum eitthvað á þessa
leið: „Við eigum tvo leiki eftir en
Eyjamenn aðeins einn. Við þurf-
iiw-. a;i»a.
. W JLXX Gi CX CVTprpxiXIX
fundi eftir leik. „Það var fyrir öllu að
þetta kæmi þó að það kæmi seint. Við
vorum nægilega þolinmóðir sem er
lykillinn að þessu. Viö eigum tvo leiki
eftir en ÍBV aðeins einn þar sem Leift-
ursmenn hafa gefið þaö út að þeir vilji
aö ÍBV verði meistarar en þau lið mæt-
ast einmitt næst. Leikurinn við Kefla-
vik er örugglega einn mikilvægasti
leikur KR og viö treystum á framhald
á góðum stuðningi. I>að koma nýir
menn inn í liðið þar sem Andri og
Winnie eru i banni og því enn mikil-
vægara að menn standi enn þéttar sam-
an. Liðið hefur spilað sömu leikaðferð
í allt sumar. Með hverjum leik fækkum
við mistökunum og eflum iiðsheildina.
Við höldum áffam okkar leið og það
væri ofboðslega gaman að fá úrslitaleik
gegn Eyjamönnum í lokaumferöinni."
KR án Davids Winnies
KR spiiaði vömina traust að vanda
Erveriðaðgeh
skílíEyjamenn?
Atu Eðvaldsson, þjálfari ÍBV:
,„,Já, svo sannarlega. Ég hef
spilað yfir 70 landsleiki og á að
baki 20 ár í meistaraflokki og hef
aldrei orðið vitni að öðru eins eða
ásakaður um jafn alvarlegan hlut.
Það er hægt að segja allan fjand-
ann um Eyjamenn en að þeir spili
ekki með hjartanum er það eina
sem ekki má segja, þeir gefa sig
alltaf 100 prósent í allt sem þeir
gera. Tilkynning íslenskra
getrauna vegna útilokunar á leik
ÍBV og ÍA á Lengjunni, er það
grófasta sem hægt er að saka
íþróttamenn um, að ætla vísvit-
andi að hliðra til um úrslit í leik.
Þetta er eins ærumeiðandi og
hægt er að hafa það. Svo er alveg
sama hvernig þessi leikur fer á
laugardaginn, það var ýmislegt
hugsað. Þeir útiloka leikinn á
Lengjunni á þeim forsendum að
„heyrst hefur“ o.s.frv. Það var ein-
hver sem sagði mér að hann hefði
heyrt því fleygt í sjoppu í
Reykjavík að KR væri búið að
kaupa leikinn gegn Stjörnunni.
Væntanlega er hægt að útiloka
þann leik af Lengjunni á þessum
sömu fáránlegu forsendum.“
Leikur ÍBV og ÍA er ekki á
Lengjunni á laugardaginn. ítilkyn-
ningu frá íslenskum getraunum
stendur m.a. að „þar sem heyrst
hefurað leikmenn ÍBV hafa sagt
að best væri að tapa fyrir ÍA til að
komast i Evrópukeppni, höfum
við ákveðið að hafa þennan leik
ekki á Lengjunni. Viðþurfum að
vera 100% öruggir um að úrslit
séu ekki ákveðin fyrirfram..."
IBVeðaKR?
Nú þegar tvær umferðir eru eftir
af Landssímadeildinni er nær
öruggt að tvö lið korna til með að
berjast um titilinn, IBV og KR.
Eyjamenn hafa aðeins fengið
tjögur stig úr síðustu þremur leikjum
í deildinni, sem er engan veginn
nógu gott af toppliði að vera. KR-
ingar hafa hins vegar verið á mikilli
siglingu og hafa ekki tapað leik í
langan tíma. Atla Eðvaldssyni.
þjálfara KR, hefur tekist vel upp
með að halda pressunni frá sínum
mönnum en það getur hann ekki geil
mikið lengur því að nú em þeir efstir
og aðeins tvær umferðir eftir. Hann
á e.t.v. eftir að segja við sína menn,
að nú hafi KR fimtn stiga forstkot á
IA í baráttunni um annað sætið, hver
veit. En greinilegs taugatitrings er
farið að gæta í herbúðum KR-inga.
þar sem titillinn er nú í augsýn, og
kom það bersvnilega í ljós þegar
þjálfari KR-inga sagði í viðtali nú
fyrir skömmu, og var með tárin í
augunum að Leiftur ætlaði sér að
tapa fyrir ÍBV til að reyna að ná
Evrópusæti og KR ætti tvo erfiða
leiki eftir en ÍBV bara einn! En
spáurn aðeins í þá leiki sem liðin
eiga eftir.
ÍBV-LEIFTUR: Eyjamenn hafá
ekki tapað á heimavelli í sumar og
fara ekki að gera það nú. 1 lið
Leifturs vantar fimm af fasta-
mönnuni liðsins og munar um
minna. Ekki spuming að það verður
IBV-sigur í þessum leik
KEFLAVÍK-LEIFTUR: Tveir
leik-menn í banni hjá KR og tveir til
þrír á hættusvæði með gul spjöld.
KR-ingar hafa alltaf átt í erfiðleikum
með Keflvíkinga á útivelli og sú
verður raunin einmitt nú. KR nær
jafntefli eða tapar.
KR - ÍBV: Að öllum líkindum úr-
slitaleikur sumarsins. Þetta verður
hálfgerður bikarúrslitaleikur og í
þessum leik skiptir öllu máli hvort
liðið kemur betur stemmt í leikinn.
Ómögulegt er að spá fyrir um úrslit
þessa leiks, en eitt er víst og það er;
áfram ÍBV og bikarinn til Eyjal!
Enduóu sumarið
meó stæl
Annar flokkur karla lék sinn síðasta
leik í Islandsmótinu, á sunnudaginn
var. Selfyssingar komu þá í heim-
sókn og var leikið á Helgafellsvelli.
IBV-strákarnir tóku gestina í
bakaríið og unnu, 10-3. Mörk ÍBV
skoruðu þeir; Magnús Elíasson 3,
Gunnar H. Þorvaldsson 3, Bjarni G.
Viðarsson 2 og Hjalti Jónsson 2.
ÍBV stóð uppi sent öruggur
sigurvegari í B-deild annars flokks
og spilar því í A-deild að ári. Eyja-
strákar enduðu með 28 stig og var
markatalan 38-12. ÍBV vttrað spila
mjög vel í sumar og í þessum
aldursflokki eru margir efnilegir
leikmenn sem gaman verður að
fylgjast með í l'ramtíðinni.
Aðalsteinn 03 Júlíus
sigurvegarar
Afmælismót Gólfklúbbs Vest-
mannaeyja fór fram um síðustu
helgi. Styrktaraðili mótsins var
Sparisjóður Vestmannaeyja. Mikið
var um dýrðir og urðu einstök úrslit
einsog hér segir:
MEÐ FORGJÖF
1. Aðalsteinn Sigurjónsson GV
á 61 höggi, 2. Karl Haraldsson GV
á 67 höggum og 3. Ingibjörn Þ.
Jónsson GV 67 höggum.
ÁN FORGJAFAR
I. Júlíus Hallgrfmsson GV á 70
höggum, 2. Haraldur Júlíusson GV
á 74 höggum og 3. Sighvatur
Amarsson GR á 78 höggum.
LENGSTA UPPHAFSHÖGG:
Gunnar B. Stefánsson
NÆSTUR HOLU Á 2. BRAUT:
Sverrir Einarsson 4,53 cm
NÆSTUR HOLU Á 7. BRAUT:
Júlíus Hallgrímsson 2,24 cm
NÆSTUR HOLU Á 12 .BRAUT:
Jakobína Guðlaugsd. 2,64 cm
NÆSTUR HOLU Á 14. BRAUT:
Haraldur Júlíusson 2,29 cm
NÆSTUR HOLU Á 17 .BRAUT:
Bergur Sigmundsson 2.81 cm
PÚTTKEPPNI 18.HOLUR
1. VERÐLAUN Maigrét 40 pútt
2. VERÐLAUN Auður 48 pútt
Myndarieg gjöf
Framfarabikar ÍBV er gefinn GV í
tilefni 60 ára afmælis klúbbsins
þann 12.desember 1998. Gefendur
ein ÍBV héraðssamband og IBV-
íþróttafélag. Stjórn GV ásamt gef-
endum mun semja reglugerð um
nteðferð bikarana en þeir verða
afhentir í hófi þegar íþróttamaður
ársins í Vestmannaeyjum er krýnd-
ur íjanúar ár hvert. Bikararnir eru
farandgripir og ætlaðir til eflingar
unglingastarfi GV. Bikararnir eru
hugsaðir sem viðurkenning fyrir
mestu framfarir, góða ástundun og
íþróttamannslega framkomu.
Framundan
Sunnudagur 20. september
kl. 14:00 á Hásteinsvelli
Meistarflokkur karla ÍBV - Leiftur
Ilandholti
Sunnudagur 20. september
Kl.20:00 mfl.ka. Haukar - ÍRV
Þriðjudagur 22. september
K1.20:00 mfl.kv ÍR-ÍBV