Fréttir - Eyjafréttir - 17.09.1998, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 17. september 1998
Mestaðgeraí
kringumKeikó
Færslur í dagbóki lögreglunnar
voru 155 frá 8. september lil 15.
sem er ekki ósvipað og vikuna á
undan. Lögreglan hal'ði mest að
gera í að skipuleggja og sjá um
gæslu við komu Keikós. Þá var
lögreglan með gæslu við C-17
vélina á meðan hún tafðist hér.
Mikiðumslys
Lögreglan segir að mikið hafi verið
um slys í síðustu viku. Alls voru
tilkynnt sjö slys lögreglu, þrjú um-
ferðarslys, tvö flugslys og tvö
önnur slys.
Ekki urðu alvarleg slys á fólki í
umferðaslysunum utan þess að
ökumaður í einu þeirra kvartaði um
eymsli í baki.
Fyrra flugslysið varð þegar
hjólabúnaður C-I7 flugvélarinnar
bilaði í lendingu á fimmtudags-
morguninn. Seinna flugslysið varð
á Bakkaflugvelli á sunnudags-
kvöldið og sluppu þrír menn sem í
vélinni voru ótrúlega vel. Þykir það
ganga kraftaverki næst.
í síðustu viku slasaðist maður
þegar hann féll ofan í gryfju í
bílageymslu og kvartaði hann um
eymsli í ökla. Þá handleggsbrotnaði
drengur þegar hann lijólaði á vír við
Skipalyftuna.
Ýmislegtsmálegt
Af öðrum málum rná nefna að í
vikunni var ungur drengur staðinn
að búðarhnupli í verslun KÁ. Þá
voru fimm eignarspjöll tilkynnt til
lögreglu, allt rúðubrot. Rúður voru
brotnar í bifreið við Sólhlíð, Fram-
haldsskólanum, Sparisjóðnum þar
sem sökudólgurinn náðist, verslun-
inni Smart og í bifreið við Týs-
heimilið.
Af umferðarlagabrotum er það
að segja að það voru ekki nema
tveir ökumenn staðnir að því að
brjóla umferðarlögin og var um
minni-háttar brot að ræða. Er
vonandi að ökumenn standi sig eins
vel í umferðinni og að undaníornu
því lítið hefur verið um kærur
vegna umferðarlagabrota. Hins
vegar er ástæða til að minna
ökumenn og farþega í bifreiðum að
spenna beltin.
Stutt úr bæiarráðí
Bæjanáð fól bæjarstjóra að koma
með lillögur um framtíðarhúsnæði
sem nýtast mun fyrir verklega þætti
bæjarins.
Einnig lá fyrir tilboð frá Tölvun í
tölvubúnað fyrir grunnskólana og
samþykkti bæjarráð það fyrir sitt
leyti.
Loks lá fyrir bréf frá fjárlaga-
nefnd Alþingis þar sem sveitar-
stjömarmönnum er gefinn kostur á
að eiga l'und með nefndinni dagana
21. til 24. september fyrir hádegi.
Bæjarstjóra var falið að útbúa
greinargerð til nefndarinnar og
panta viðtalstíma.
íslendingurmeð
erindi
Fyrir bæjarráði lá bréf i'rá stjórn
íslendings ehf. þur sem óskað er
eftir að teknar verði upp viðræður
um gerð rammasamnings milli
aðila um samstarf vegna vfkinga-
skipsins
Ragnar Óskarsson var slöðvaður afhermanni á flugvellinum:
Fyrst og fremst táknrænt
Vegna umræðu í bænum um að
Ragnar Óskarsson hafi verið
hindraður í því að ganga yfir
flugvöllinn í Vestmannaeyjum í
nálægð C - 17 flugvélar bandaríska
hersins sem laskaðist í lendingu
með hvalinn Keikó innanborðs var
hann spurður nánar um málsatvik.
„Þetta er nú orðið nokkuð
ómerkilegt mál,“ segir Ragnar. „Eg
frétti af því að maður nokkur hafi
ætlað að taka myndir af vélinni innan
girðingar, en verið meinað það af
hermönnum sem vom við vélina. Mér
þótti þetta undarlegt og langaði til þess
láta reyna á það hvort þarna gilti
íslensk lögsaga eða bandarísk. Fór ég
því í gönguferð þama upp eftir og var
þá meinað að ganga yfir völlinn. Ég
hitti þar tvo kurteisa hermenn sem
meinuðu mér yfirgönguna. Ég spurði
þá því hvort þeir hefðu einhverja
pappíra sent heimiluðu þeim að meina
mér að ganga þarna. Þeir kváðu svo
ekki vera. Viðræddumsvoþettamál,
þangað til þeir sögðu mér að halda
ferð minni áfram."
Vom þessir menn vopnaðir?
„Nei ekki voru þeir það og ekki ég
heldur og hvort aðrir menn sem þarna
voru við vélina vom vopnaðir veit ég
ekki.“
En er ekki bannað að ganga yfir
völlinn hvort eð er, óháð því hvort
bandarísk flugvél er þama eða ekki?
„Það kemur þá í sama stað niður.
Það hefðu þá einhverjir Islendingar,
sem hefðu lögsögu þama, átt að
stöðva mig.“
Það hörmulega slys varð um borð í
Danska Pétri VE á föstudags-
morguninn í síðustu viku að
skipverji missti handlegg þegar
verið var að taka trollið. Danski
Pétur var þá staddur skammt
undan Grindavík og var strax
haldið þangað.
Lögreglan í Grindavík segir að
Danski Pétur hafi verið að hífa trollið
upp úr festu rétt þar fyrir utan þegar
slysið varð. Var sá sem slasaðist að
vinna við hlera. Kræktist vinstri
handleggur hans í vímum og lenti inn
í blökk með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Verða einhver eftirmál af þessu?
„Allavega ekki af minni hálfu. Ég
hafði reyndar spurnir af því að þetta
atvik ætti að taka upp í bæjarráði, en á
hvaða nótum veit ég ekki. Fyrir mér
var þetta fyrst og fremst táknrænt til
að kannavöld bandaríska hersins hér í
Vestmannaeyjum.'1
„Þetta gerðist rétt fyrir klukkan átta
á föstudagsmorguninn. Þeir skáru
trollið strax frá og héldu til
Grindavíkur,“ sagði lögreglumaður
sem rætt var við. „Strax voru gerðar
ráðstafanir í landi. Læknir fór út með
lóðsbátnum á móti Danska Pétri og
gekk frá sárinu. Þyrla beið á
íþróttavellinum og flutti manninn á
Sjúkrahús Reykjavíkur. Veður var
gott og gekk bæði fljótt og vel að
koma manninnum á sjúkrahús en því
miður var ekki hægt að bjarga
handleggnum,“ sagði hann að lokum.
Hörmulegt slys úti á sjó
Nýtt fyrírkomulag f skurðlækniiigumP
Að frumkvæði Gunnars K. Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra
Sjúkrahúss Vestmannaeyja, og
Bjarna Arthurssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjúkrahúss Suður-
lands, verður efnt til ráðstefnu á
Selfossi í byrjun október þar sem
ræddar verða nýjar hugmyndir um
fyrirkomulag skurðlækninga á
landsbyggðinni.
Gunnar sagði í samtali við Fréttir að
Jónas Magnússon, yfírlæknir hand-
læknisdeildar ríkisspítalanna, og
Oddur Fjalldal, yfirlæknir svæf-
ingardeildar ríkisspítalanna, hefðu
farið yfir skurðlækningar á lands-
byggðinni og gert skýrslu um málið. í
henni væri varpað fram hugmyndum
um nýtt fyrirkomulag í skurðlækn-
ingum á landsbyggðarsjúkrahús-
unum. Þær hugmyndir gerðu ráð fyrir
að skurðlæknar sem ráðnir væru á
landsbyggðarsjúkrahúsin störfuðu þar
í átta mánuði á ári en síðan myndu
þeir starfa á stóru sjúkrahúsunum í
Reyjavík í tvo mánuði en tvo mánuði
ættu þeir frí. Tilgangurinn með þessu
fyrirkomulagi væri að með því að
starfa á stóru sjúkrahúsunum gætu
læknatnir haldið við víðtækari þjálfun
og fylgst með og kynnst nýjungum og
nýrri tækni.
Gunnar sagði að helsta ástæða þess
að nýútskrifaðir skurðlæknar fengjust
ekki til starfa úti á landi væri ótti þeirra
um einangrun og stöðnun en með því
fyrirkomulagi sem lagt væri til í
skýrslunni ætti að vera hægt að koma
í veg fyrir þessa einangrun. Gunnar
sagði að auðvitað fældi það lækna
einnig frá að vera á bakvakt allan
sólarhringinn alla daga vikunnar en
hann sagðist telja að það væri mál sem
hægt væri að leysa með góðum vilja.
Hugsanlegt væri að ráða tvo menn til
starfa sem þá myndu skipta með sér
bakvöktum og leysa hvorn annan af
og sagðist hann ekki telja að aukinn
kostnaður vegna þess yrði óvið-
ráðanlegur því bakvaktagreiðslan sem
væri stór hluti launanna myndi þá
skiptast á tvær stöður.
Staðinn að vcrki Á mánudagskuöldið uar læreyskur báuir á leió út úr
Vestmannaeyjahöfn sem uæri ekki í frásögu færandi ef hann hefðí ekki skilið eftir sig
stóran olíuflekk. Maður, sem staddur var uppí á Heimakletti, sá til bátsíns og náðí að
festa atburðinn á filmu. Olíuflekkur breiddist fljótt út og barst inn í Klettsvíkina bar
sem háhyrningurinn Keikó svamlar 1 kví sinni. Þetta sést greiniiega á samsettu
myndinni hér fyrir ofan. Efst sést rákin á eftir bátnum en á beirri stéru sést hvar
olíuflekkurinn berst inn í Klettsvíkina.
Viljanálendum
undirbæinn
Á fundi bæjan'áðs á mánudaginn
var samþykkt að ganga til sarnn-
inga við Jóhann Pétursson hdl. um
að hann vinni fyrir Vestmanna-
eyjabæ til að losa alla samninga og
réttindi að landi sem hægt er á
Heimaey og korna þvf undir bæjar-
sjóð.
Jafntframt var samþykkt að í
framtíðinni verði úthlutun lands til
skepnuhalds hagað þannig að sem
flestir geti nýtt sér það fyrir
tómstundir. Samþykkt var að fela
bæjarstjóra í samráði við Náttúru-
stofu Suðurlands að gerð verði
úttekt á ítölu og gróðurfari á
Heimaey.
Vilja kaupa Dalabúiö
Fyrir bæjarráði iá tilboð að upphæð
kr. 1.500.000 í Dalabúið frá Axeli
Þ. Sveinbjömssyni og Hallgrími
Rögnvaldssyni fyrir hönd óstofn-
aðs hiutafélags.Bæjarráð hafnaði.
Ellíreyíngar hvaöP
Það vakti athygli margra Eyja-
rnanna góð og skemtntileg Eyja-
mynd sem sýnd var í sjónvarpinu
sl. sunnudag. Leiðast var að ekki
skyldi farið rétt með allar stað-
reyndir í annars ágætri mynd. Talað
var um að haldið yrði í Ellirey sem
væri norður af Stórhöfða en síðan
sást á myndinni að haldið vítr beint
í Álsey þar sem rnyndir voru teknar
en aldrei sást neitt frá Ellirey. í lok
myndarinnar fékk Veiðifélag Ellir-
eyinga sérstakar þakkir fyrir veitta
aðsjoð.
Ymsir hafa velt fyrir sér hvemig
standi á þessu brengli og nú hefur
Orðspori borist til eyma hvemig
málið er í pottinn búið. Reyndin ku
víst vera að í upphafi var tekin
mynd í Ellirey en þegar til átti að
taka reyndist ekki unnt að nota hana
í myndina. Bæði var að enginn
lundi sást í eyjunni fi'ekar en fyrr og
eins þótti ekki við hæfí að sýna í
sjónvarpi þær myndir sem teknar
voru á kvöldvökunni þar, þar sem
Þórarinn í Geisla lék aðalhlutverkið
á axlaböndunum við eldavélina. Úr
varð því að farin var önnur ferð til
Eyja og úteyjaatriðið tekið upp á
nýtt í Álsey þar sem kvikmynda-
tökumennirnir gátu fest allt það á
filmu sem nota átti. Það mun síðan
hafa orðið að samkomulagi milli
Ellireyinga og framleiðanda mynd-
arinnar að veiðifélagið greiddi
honum væna fúlgu fyrir að halda
textanum óbreyttum frá því í
upphaflegu handriti og að þakkit' til
þeirra kærnu frant í lok myndar-
innar.
Þeir eru „orginal" Ellireyingamir
og má trúlega vænta þess að
eitthvað verði minnst á þetta á
lundaballinu á laugardaginn.
Tískusýning Eðal-
sportserálaugardag
Vakin er athygli á að vegna leiks
ÍBV og Leifturs ætlar Biggi í Eðal-
sporti að vera með tískusýninguna
á laugardag kl. 14.30 en ekki
sunnudag eins og auglýst er.
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
k 4 *JM I | L m Prentvinna: Eyjaprent chf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 4711. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur. frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt I áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og I Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.