Fréttir - Eyjafréttir - 17.09.1998, Síða 6
6
Fretiir
Fimmtudagur 17. september 1998
Ekki auðvelt að vera skáld og
hugsari í Vestmannaeyjum
-segir Bjarki Týr Guðjónsson sem hyggur á útgáfu ljóðabókar
Það hefur ekki farið niikið fyrir getur allt orðið mér að yrkisefni. Hann út.
ungu fólki seni stigið liefur á bak
skáldaklárnum Pegasusi í Vest-
mannaeyjum. Ekki það að hann
eigi ekki leið hér um sem annars
staðar og rekur blaðamann minni
til að hafa verið viðstaddur
Ijóðaupplestur á veitingastaðnum
Lanternu síðastliðinn vetur sem
var hinn áheyrilegasti. Einn er sá
ungur maður sem lagt hefur stund
á Ijóðagerð í Eyjum og heitir
Bjarki Týr Gylfason. Fréttirfengu
Bjarka Tý í spjail á dögunum til að
tjá sig um sitthvað varðandi
ljóðagerðina og hvernig það sé að
yrkja í Eyjum. Hann segist aldrei
hafa gefíð út Ijóðabók en
hugsnlega muni hann gefa út
Ijóðabók ásamt Gísla F. Ágústs-
syni.
„Eg vil kalla mig ljóðskáld og
hugsara," segir Bjarki Týr og glottir
út í annað. „Eg er bara að reyna að
tjú tilfinningar mínar og koma þeim
eins skilmerkilega frá mér og ég get.
Og viðfangsefni mitt í ljóðagerðinni
er heimurinn eins og ég sé hann.“
Bjarki Týr segist lesa mikið ljóð og
hafi alltaf gert, en er hægt að tala um
einhverja áhrifavalda, eða einhver
skáld sem þú hefur mikið dálæti á?
„Já, ég les mikið ljóð og ég hef
mikið dálæti á Megasi og Leonard
Choen. Pabbi á mikið af plötum með
Choen og komst ég í tæri við hann
hjá honum og varð mjög hrifinn af
textagerð hans.“
Nú hefur Choen verið talinn frekar
þungur og dramatískur ert þú eitt-
hvað áþeim brautum líka?
„Persónulega finnst mér eins og
allt sé að fara til fjandans og telst
líklega ekki mikill bjartsýnismaður.
Annars er mér illa við að flokka hlutí.
Eg reyni bara að fást við hlutina eins
og þeir eru, eða koma mér fyrir
sjónir.“
Er ekki Ijóðagerð sóun á pappír?
„Það fer bara eftir því hvernig á
það er litið. Það má eins spyrja hvort
tónlistarútgáfa sé ekki sóun á plasti.“
Sœkirþú eitthvað sérstaklega efnið í
Ijóðagerð þína til Vestmannaeyja og
umhverfi eyjanna og þá í framhaldi
af því hvort menn eins og Asi í Bœ
eða Arni Johnsen Itafi einhver áhrif á
þig?
„Nei ekki get ég sagt það. Það
Þess vegna frétt í útvarpi ef því er að
skipta. Ámi Johnsen komst nú ekki
lengra frá Eyjum en í Þykkvabæinn
og það held ég sé það lengsta sem
hann hefur komist frá Eyjum í sinni
textagerð. Ég stefni að því að leggja
undir mig heiminn án viðkomu í
Þykkvabænum. Það er hins vegar
ekki formið sem ég er að spá í heldur
fyrst og fremst innihaldið. En ég er
ekkert mjög meðvitaður um það
hvort stuðlar og höfuðstafir, eða rím
slæðist inn í ljóðin.“
Annars segir Bjarki Týr að það
geti verið erfitt að vera ljóðskáld og
hugsari í Eyjum. Það sé þó ekki
fólkinu að kenna heldur frekar um-
hverfinu. „Það er alltaf einhver ótti
við að verða stimplaður. Maður er
full einangraður héma í Eyjum og
mér frnnst meira frelsi í Reykjavík
þar sem maður getur verið nafnlaust
andlit í fjöldanum.“
Bjarki Týr segir að hann hal'i
byijað að „krota“ eins og hann kallar
skrif sín, þegar hann var 13 eða 14
ára. „Þetta var samt ekki mikið þá,
en hefur aukist nú síðari árin og
sérstaklega eftir að ég kynntist Gísla.
Það er líka eitt við að yrkja í Eyjum
að maður hefur takmarkaða
möguleika á því að kynnast öðrum
ungskáldum sem eru í svipuðum
pælingum. Kannski gefur maður sér
ekki nægan tíma. Það er oft lenska
hér að áhuginn dalar og svo hverfur
allt að lokum.“
Hvaða leiðir hefur þú notað til að
kynna þér það sem aðrir eru að fást
við í ljóðagerð?
„Ég fer stundum á bókasafnið og
les þá einhvem búnka. Svo er líka
gott að koma þangað til að losna frá
þessu daglega amstri."
Bjarki Týr er nú að vinna í
Vinnslustöðinni. „Við skulum segja
að ég sé í tímabundnu námsleyfi, en
ég hef áhuga á að komast í nám í
ljósmyndun eða kvikmyndun."
Jólaböl
Steikin stóð og beið
Borðinu.
Þá birtist hann og sig út
tróð.
Kíló oná kíló þrútnar
Ekki er gott um jólin að hafa
Botnlausan malla kút.
I ræktina hann strunsar,
Kílóin vill burt.
Veltist um og vælir
Því matinn lét ei kjurt.
Mig vantar nafn
Fjólublár spörfugl
Læðist upp að mér.
Segir mér sögur
Höfum að handan.
Má ég fljúga burt með þér,
á vit hins óþekkta.
Svífa brott
Sársaukanum frá.
þar til sviðinn mínu brjósti,
hverfur.
Krossför
Rísið, logið, lostafullir
Djöfullegir ferðalangar.
Hvílið, svíðið, eyrðarlausir
Himnasendir vemdarar.
Brennið, hirðið, morðóðir,
Forboðnir hermenn.
Nauðgið, rænið, innantómir,
Guðlegu arðræningjar.
Af hverju fariði ekki heim.
Von
Ég leit út um gluggann
Og sá
Hvar þokan læddist yfír
eynna.
Og fann,
Hvernig einangmnin
Fyllti mína sál.
Og heyrði, raddir þeirra sem
Hraktir vom
Burt.
Og vaknaði.
Enn haldandi í vonina.
Samheldni um
samfylkingu
vlnstii manna
Vegna úrsagnar Steingríms J. Sig-
fússonar, Hjörleifs Guttormssonar
og Ögmundar Jónassonar úr
þingflokki Alþýðubandajagsins og
óháðra var Ragnar Óskarsson
spurður að því hvort þessi gjörn-
ingur þeirra hefði eitthvað að segja
gagnvart Alþýðubandalaginu í
Vestmannaeyjum og því samvinnu-
ferli sem sem hefur verið í gangi
milli Framsóknar, Alþýðuflokks og
Alþýðubandalagi í bæjarstórn
Vestmannaeyja undir merkjum
Vestmannaeyjalistans.
Ragnar sagði að vissulega væri
slæmt að sjá á eftir góðum félögum,
en þetta myndi ekki hafa nein áhrif á
gang mála í Eyjum varðandi sam-
vinnu og eða sameiningu vinstri-
manna í eina fylkingu. „Ég vil ekki
kalla þetta pólitískt áfall. Lang-
stærstur hluti Alþýðubandalags-
manna vill sjá samfylkingu eða
samvinnu í einhverju formi. Þetta
hefur verið staðfest á landsfundi
flokksins. Þeir menn sem ég hef talað
við héma í Eyjum varðandi þetta mál
em sama sinnis og munu fylkja sér að
baki meirihluta landsfundar “
Ragnar segir og að sameiningar-
ferlið haldi áfram. „Og ég hef trú á
því að þetta sé hægt,“ sagði Ragnar.
Friðíinnur með símann góða.
Friðfinnur í Eyjabúð fyrsti
viðskintavinur Tals í Eyjym
Tal hf. hefur nú komið upp GSM
símaþjónustu fyrir Vestmanna-
eyinga. Þykir mikil bót að komu
Tals hf. til Eyja, þar sem mögu-
leikar GSM símanotenda aukast til
mikilla muna. Friðfinnur Finn-
bogason er fyrsti Vestmannaeying-
urinn sem fékk síma hjá Tal hf. og
segir hann sig vera mjög ánægðan
með þá þjónustu sem fyrirtækið
veitir. „Almennt er þetta er 10 -
15% ódýrara að skipta við Tal hf.
Grunngjald á mánuði er 600 kr. og
öll símtöl milli Tal GSM síma eru á
kvöld- og helgartexta.“
Friðfinnur segir að ýmis sérþjón-
usta, sem fyrirtækið veiti sé frí og
nefnir sem dæmi talhólf, textaskila-
boð, símtalsflutning, sfmtal á bið,
hóptal og númerabirtingu. „Einnig
getur fólk valið sér taxta í samræmi
við hversu mikil símanotkun
viðkomandi er. Þannig er getur fólk
valið í samræmi við áætlaða notkun
sína. Sem dæmi get ég nefnt ef valið
er 60 mínútur er grunngjaldið 1.700
kr. á mánuði þar sem fyrstu 60
mínútumar era fríar. Ef valdar eru
180 mínútur er grunngjaldið 3.800 og
fyrstu 180 mínútumar fríar og svo
mætti áfram telja,“ og gekk Friðfinnur
glaður í bragði til móts við þessa nýju
þjónustu. Þess má og geta að Tölvun
er umboðsaðili Tals hf. í Eyjum.
Til styrkar Birgi
Magnúsi Sveinssyni
Aðstandendur og velunnar Birgis Magnúsar Sveinssonar sem
barinn var til óbóta út í Bremerhaven þann 6. september sl.
hafa opnað reikning til styrktar honum í Sparisjóði
Vestmannaeyja. Fyrirsjáanlegt er að mikill kostanaður mun
fylgja sjúkrahúslegu hans og lögfræðiaðstoð. Þeir sem vildu
leggja málinu lið er bent á Trompreikning nr. 300030 í
Sparisjóði Vestmannaeyja.
Vinir og velunnarar.