Fréttir - Eyjafréttir - 01.10.1998, Side 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 1. október 1998
Hestamenn stofna
Hestamannafélagið Gáska
Um tunugu manns mænu á stofnfundinn en gert er ráð fyrír að stofnf élagar uerúi rúmlega 30. Ualur tírn er fyrir miðri
myndifremrirðð.
Á ilmmtudaginn í síðustu viku kom
saman liópur ungs i'ólks í sai
Sveinaielags járniðnaðarmanna.
Þetta var tuttugu manna hópur og
tilgangurinn að stofna íþrótta- og
hestamannfélag í Vestmannaeyjum.
Þólti þetta góð mæting og sanna að
mikili áhugi væri fyrir því að
áhugamenn um hestaíþróttir leiddu
saman hesta sína í einum félags-
skap.
Að minnsta kosti ellei'u aðrir höfðu
boðað komu sína á stofnfundinn en
áttu ekki heimangengt þetta kvöld, en
teljast samt stofnfélagar. Fundi var
því ekki formlega slitið heldur boð-
aður framhaldsstofnfundur innan
ntánaðar svo fólki gæfist kostur á því
að kynna sér lög félagsins í næði og
stjórnin gæti ráðið ráðum sínum um
hvernig best væri staðið að fyrsta
skeiði félagsins í hagsntunamálum
þess. Á fundinum fór fram atkvæða-
greiðsla um nokkur nöfn á félagið og
varð niðurstaðan sú að félagið fengi
nafnið Gáski. Þegar það hafði verið
samþykkt var kosin stjóm og drög að
lögum og markmiðum félagsins lögð
fyrir fundinn. Ákveðið var að félags-
gjöld yrðu 5000 kr á ári og síðan var
orðið gefið laust.
Eins og fram kemur í lögum
félagsins er markmið þess að ella
áhuga á hestum, stuðla að góðri með-
ferð þeirra, vinna að framgangi hesta-
íþrótta og gæta hagsmuna félags-
manna.
Á fundinum kom fram að brýnast
mála félagsins væri að koma upp
aðstöðu fyrir það fólk sem á hesta í
Eyjum. Voru hesthúsamál þar efst á
baugi. Komframaðáhugi værimikill
fyrir því að reyna að fá Dalabúið undir
starfsemina, en Vestmannaeyjabær á
þann húsakost sem þar er, en hann
hefur verið notaður sent geymslur
fyrir bæinn. Kom fram að kostirnir
væru margir og ákjósanlegir við
þennan stað til hestamennsku.
En hvað er það sem rekur hesta-
áhugamenn um að koma saman núna
og slofna félag?
Valur Örn Gíslason nýkjörinn for-
maður Gáska segir, að þð sé nú
kannski einum manni að þakka. „Já,
ætli maður geti ekki þakkað þetta
Róbert Sigurmundssyni sem vildi
vernda mófugla í girðingu sem ég
fékk að setja hestana mína í
tímabundið ofan við Stapaveg."
Valur Örn segir að nauðsynlegt sé
að hestaáhugamenn standi sainan í
félagi, því að einstaklingar ættu ekki
eins hægt um vik að ná fram þeim
markmiðum sem nauðsynleg væru til
að efla hestaíþróttir í Eyjum. „Einnig
mun styrkur okkai' aukast vegnaþess
að félagið mun verða aðili að IBV,
Landssambandi hestamannafélaga og
ÍSÍ,“ segir Valur Öm.
Vestmannaeyjar eru mjög ákjós-
anlegar til hestamennsku og næg
sumarbeit lil staðar. „Það verður hins
vegar stefna félagsins að útvega
lélaginu beitarrétt í stað þess að veita
réttinn til einstaklinga. Nú hefur verið
ráðinn maður til þess að endurskoða
leigusamninga búfjáreigenda við
bæinn lil þess að gera megi nýja ítölu
fyrir eyjuna og meta beitarþol. Það er
hins vegar Ijóst að alltaf mun verða
einhver takmörkun á fjölda hrossa hér
vegna þessa, hins vegar eru hæg
heimatökin að koma hrossum í
hagagöngu á fastalandinu á haustin og
flytja hey lil Eyja þegar hross eru í
húsum á vetrum."
Valur Öm segir að ef Dalabúið fáist
ekki sé ekki um annað að ræða en að
byggja hesthús fyrir hesta félags-
manna. „Að vísu yrði það dýrt, en á
móti kemur að áhuginn er mjög
mikill, hvort heldur er hjá ein-
staklingum eða fjölskyldum. Hest-
húsabyggð hér á ekki að vera meira
vandamál en á Reykjavíkursvæðinu
og jafnvel eru hesthús orðin það góð
og vel um þau gengið að ekki sést
munur á íbúðabyggð og hesthúsa-
byggð. Einnig viljum við halda vel
utan um unglingastarf og bjóða fólki
að koma hingað til útreiða."
Valur Öm hefur rætt þessi mál við
bæjarfulltrúa Vestmannaeyja og segir
að honum hafi verið vel tekið. „Það er
engin neikvæðni í gangi í sambandi
við þessi mál af þeirra hendi, hins
vegar má kannski segja að þeir séu
ekki nógu upplýstir um þörfina fyrir
að konta upp góðri aðstöðu fyrir hinn
almenna hestaáhugamann í Vest-
mannaeyjum, en við höfum fulla trú á
því að hægt verði að gera eitthvað í
málunum að minnsta kosti til
bráðabirgða fyrir haustið," sagði Valur
Öm að lokum.
Sjóm Gáska skipa eftiitaldir: Valur
Örn Gíslason formaður, Axel Svein-
bjömsson varafomtaður, Ragnheiður
Einarsdóttir gjaldkeri, Silja Ágústs-
dóttir ritari. Hallgríntur Rögnvaldsson
meðstjórnandi. Varamenn í stjórn
voru kosnir Sigurður G. Pálsson og
Helga Vattnes og endurskoðendur
Dagbjört Laufey Emilsdóttir og
Sigurlaug Harðardóttir.
Hestamenn hafa augastað á Dalabúinu sem heír segja óskakost fyrír hrossin.
Myndin er tekin uið afhendingu gjafarinnar. Frá uinstri: Leifur flrsælsson,
Hilmar Rósmundsson, Þóröur Rafn Sigurðsson, Guðjón Rögnualdsson, Sigrún
Inga Sigurgeirsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Magnús Kristinsson, Sigurður
Einarsson og Nanna flskelsdóttír, yfírbókauörður
Útuegsbændur
styðja Bókasafnið
Útvegsbændafélag Vestmannaeyja
gaf á þriðjudaginn Bókasafni Vest-
mannaeyja Ijósritunarvél og
myndhöndin Verstöðin ísland.
Tilefnið var að nú í ár er ár hafsins
og mun verða mikið um uppákomur
næstkomandi laugardag í tilefeni af
því. Magnús Kristinsson frant-
kvæmdastjóri Bergs-Hugins afhenti
gjafimar og fór fáunt orðum um
nauðsyn þess að bókasafnið væri vel
búið tækjum ekki síður en bókum og
öðrum þeim nútímatólum sem nauð-
synleg em til þess að nútímabókasafn
geti staðið undir nafni. Nanna Ás-
kelsdóttir yfirbókavörður tók við
gjöfinni fyrir hönd bókasafnsins og
þakkaði hlýjan hug útvegsbænda í
garð safnsins. Hún sagði og við þetta
tækifæri að sjómenn hefðu alla tíð
verið dyggir stuðningsmenn safnsins
og hefði safnið komið til móts við þá
með útlánum til áhafna á sjó. Þennan
sama dag opnaði safnið aftur eftir
gagngerar breytingar og endurbætur.
Nanna var því glöð í sinni og lék við
hvurn sinn fmgur. „Þó að fram-
kvæmdum sé ekki alveg að fullu
lokið, sáum við okkur ekki annað fært
en að opna á tilsettum tíma, enda
bókaormar orðnir mjög aðþrengdir
vegna lokunarinnar. En innan viku
verður allt orðið klárt og gestir
safnsins munu geta sinnt bókaþörf
sinni á safninu án þess að hávaði frá
iðnaðarmönnum raski fróðleiks-
þorsta." Nanna vildi að lokurn koma
þakklæti á framfæri til allra þeina sem
hafa staðið að þessu verki og
framkvæmdum. Opnunartími safns-
ins er nú frá 08:00 til 19:00 til að byija
með, en opnunartími safnsins er nú til
endurskoðunar hjá til þess bærum
mönnum.
Velkomin um borð
Heimboð vestmanneyskra útvegs-
bænda á laugardaginn frá kl. 15 -
18 í finim skip í Eyjaflotanum,
hafnsögubátinn Lóðsinn, í vinnslu-
sal ísfélagsins, fiskimjölsverksmiðju
Vinnslustöðvarinnar og Eyjaís.
Árið 1998 er ÁR HAFSINS.
Útvegsbændur í Vestmannaeyjum
ætla á laugardaginn 3. október, frá kl.
15 - 18, að bjóða Vestmannaeyingum
í heimsókn í nokkur skip í Eyja-
flotanum, hafnsögubátinn Lóðsinn, í
vinnslusal ísfélagsins, fiskimjölsverk-
smiðju Vinnslustöðvarinnar og Eyjaís.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri
fyrir alla bæjarbúa til að koma um
borð í frystitogara, loðnuskip, ver-
tíðarbúta, skoða vinnslusal með
nýjustu tækni, fiskimjölsverksmiðju
sem uppfyllir ströngustu reglugerðir
um mengunarvamir, verksmiðju sem
framleiðis ís í bátaflotann og nýja
lóðsinn sent var smíðaður hjá Skipa-
lyftunni í Vestmannaeyjum.
Skipin fimm munu verða til sýnis
við Binnabryggju. Sjómenn taka á
móti fólki og skýra út það sem fyrir
augu ber. Veitingar verða um borð,
Lúðrasveit Vestmannaeyja mun spila
um borð í bátunum. I Isfélagi,
Vinnslustöð og Eyjaís mun starfsfólk
taka á rnóti gestum og leiða ykkur í
allan sannleik um framleiðsluna.
Veitingar verða á þessum stöðum og
um borð í bátunum verða fræðslu-
myndir um sjávarútveg í sjónvarps-
tækjum. Sjávarútvegurinn er undir-
staða atvinnulífs á landsbyggðinni.
Útgerð, fiskvinnsla og skyld atvinnu-
starfsemi verður í fyrirsjáanlegri
framtíð uppistaðan í atvinnulífi Vest-
mannaeyinga og flestra byggðarlaga
allt í kringum landið.
Bátarnir fintm í Vestmannaeyjum
sem verða opnir almenningi eru
nótaskipið Gígja VE 340, Gandí VE
171, Gullborg VE 38, Breki VE 61 og
Vestmannaey VE 54. Auk þessa
verður nýr hafnsögubátur Vestmanna-
eyinga, Lóðsinn, til sýnis en hann var
smíðaður í Skipalyftu Vestmannaeyja
og afhentur fyrr á þessu ári.
Fiskimjölsverksmiðja Vinnslu-
stöðvarinnar verður einnig opin
almenningi. Hún var endurbyggð
1993 og er hún ein sú fullkomnasta á
landinu, framleiðir gæðamjöl og
uppfyllir ströngustu reglugerðir unt
mengunarvamir. Frystihús Isfélags
Vestmannaeyja verður opið al-
menningi. Frystihúsið er eitt hið full-
komnasta á landinu. Þá verður
ísverksmiðja Eyjaíss einnig opin.
Fréttatilkynning.