Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Qupperneq 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 8. október 1998 • 41. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
-Gæfi þurft að segja upp samningum við starfsfólk á miðju ári 1999 vegna þess
Á aðalfundi Herjólfs hf., sl.
þriðjudag, kom m.a. fram í skýrslu
stjórnar að Vegagerðin hyggst
bjóða út rekstur Herjólfs þegar
núverandi samningur rennur út í
árslok 1999 eða eftir rúmt ár.
Formaður stjómar Herjólfs, Grímur
Gíslason, sagði að þetta kæmi sér ekki
á óvart, áhugi Vegagerðarinnar lægi í
þessa átt. Rétt væri þó að athuga
hverju ætti að áorka með slíku útboði.
Ljóst væri að ekki væri hægt að
minnka kostnað við reksturinn mikið,
miðað við óbreyttan ferðafjölda.
Verði reksturinn boðinn út, sagði
Grímur að Heijólfur hf. myndi eflaust
bjóða í hann og staða fyrirtækisins
hlyti að verða sterk þar sem fyrirtækið
ætti þjónustumannvirkin bæði í
Eyjum og í Þorlákshöfn.
Þá benti Grímur á að næðist ekki nýr
samningur milli Vegagerðarinnar og
Heijólfs hf. um rekstur skipsins, fljót- framgang mála og jafnvel þyrfti að Sjá meira um aðalfund Herjólfs á
lega á næsta ári, yrði nauðsynlegt að segja upp ráðningarsamningum blaðsíðu 2.
halda starfsmönnum upplýstum um starfsfólks um mitt næsta ár.
Áhöfnin á fifeigi VE lögskráð á Grundarfirði
-Útgerðin segist eingöngu vera að framfylgja lögum
Áhöfn Ófeigs VE 325 er ekki lengur
lögskráð í Vestmannaeyjum. Lög-
skráning áhafnar verður nú á
Grundarfirði en þar hefur skipið
iagt upp afla sinn í haust.
Díanna Þyri Einarsdóttir, hjá útgerð
Ófeigs, sagði að þama væri einungis
verið að framfylgja lögskráningar-
lögum. „Það er skylda að skrá áhöfn
skips þar sem það leggur upp afla og
þess vegna verðum við að skrá
áhöfnina á Grundarfirði meðan gert er
út þaðan. Þetta eru lög og við verðum
að fara eftir þeim. Ég sé ekki að þetta
breyti miklu, í rauninni er það eina
sem breytist að það verður nýtt
faxnúmer á blaði, annað verður eins
og það hefur verið," sagði Díanna.
Áhöfn Ófeigs er öll frá Vest-
mannaeyjum og hingað til hefur
útgerðin greitt fargjöld þeirra frá
Grundarfirði og hingað jregar þeir
hafa farið í frí. Verður einhver breyt-
ing á því fyrirkomulagi með nýjum
skráningarstað?
„Það er rétt, útgerðin er ekki skyldug
til að greiða flutningskostnað áhafn-
arinnar eftir þessa breytingu en hvort
sú verður raunin, veit ég ekki, það er
samningsatriði milli útgerðar og
skipshafnar. En ég vil ítreka að þessi
skráning er gerð til að framfylgja
lögskráningarlögum,“ sagði Díanna.
Útgerðarmenn og fiskvinnslufyrirtæki buðu Vestmannaeyingum að
heimsækja skip og báta og mjölvinnslu, ísstöð og frystihús á
laugardaginn. Fjölmargir nýttu sér þetta tækifæri enda veður gott
og þarna gafst tækifæri til að láta sjá sig og sjá aðra.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sfmi 481
Rækta sam-
bandíð víð Eyjar
I gær voru fulltrúar fyrirtækja-
þjónustu og viðskiptastofu Is-
landsbanka að heiisa upp á
viðskiptavini sína í Vestmanna-
eyjum. Ræddu þeir við for-
ráðamenn bæjarins og fulltrúa
stórra sem smærri fyrirtækja í
bænum.
Börkur Grímsson, útibússtjóri,
segir að þessi ferð sé farin ^ð frum-
kvæði bankans og sýni mikilvægi
Vestmannaeyja fyrir Islandsbanka.
„Þessir menn eru mjög uppteknir og
það er ekki á hverjum degi sem þeir
leggja land undir fót," segir Börkur.
„Með þessu vill Islands-banki rækta
samband sitt við við-skiptamenn í
Eyjum með sýni-legpm hætti. Það
er kannski dæmi-gert fyrir þann hug
sem for-ráðamenn íslandsbanka
bera til Vestmannaeyja, að við
viðskipta-borðið í höfuðstöðvunum,
þar sem öll gjaldeyrisviðskipti fara
um eru nokkrar klukkur sem sýna
tímann í nokkrum borgum vítt og
breitt um heiminn eins og algengt er
í fjárrnálastofnunum. Er klukkan
fyrir Island merkt Vestmannaeyjum
en ekki Reykjavík eins og búast
mætti við,“ sagði Börkur einnig.
Minnsta atvfnnu-
leysiímörgár
Atvinnuleysi er nú minna í
Vestmannaeyjum en það hefur
verið í mörg ár samkvæmt upp-
lýsingum frá Arnari Sigur-
mundssyni hjá Vinnuveitenda-
félagi Vestmannaeyja.
Amar segir að um mánaðamótin
ágúst - september hafi 25 verið
skráðir atvinnulausir en um síðustu
mánaðamót voru þeir komnir niður
í 13. „Þetta er um 0,5 atvinnuleysi
og höfum við ekki séð lægri tölu í
mörg ár. Svo er eitthvað um sjó-
menn á skrá sem em að fara á milli
báta þannig að atvinnuleysi hefur
nánast verið þurrkað upp í Vest-
mannaeyjum,“ sagði Amar.
Síldueiöum úr norsk-ís-
lenska stofninum lokið
Þau tvö skip, sem fengu leyfi til
veiða úr norsk-íslenska síldar-
stofninum í haust, hafa nú bæði
Iokið sínum veiðum. Aflinn mátti
nema einum fullfermistúr en
hvorugt skipið náði því að fullu.
Sigurður VE landaði í Krossanesi á
þriðjudag um 1000 tonnum og
Sighvatur Bjamason VE landaði á
mánudag svipuðum afla liér í
Eyjum. Er þar með lokið þætti
Vestmannaeyinga á veiðum úr
þessum stofni á þessu ári.
Mán - Lau Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn: Kl. 08:15 Kl. 12:00
Sunnudaga Kl. 14.00 Kl. 18.00
aukaferöir föstudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00
Heriólfur /wácw/ú/ið Sími 481 2800 Fax 481 2991
Verður rekstur Herjólfs
boðinn út á næsta áriP