Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 8. október 1998 Fréttir 11 Benóný Friðriksson tók á móti gestum í Gullborgu VE. Gott framtak útvegsbænda sem buðu bæjarbúum á lítið karnival: MargirnvttutækifæriðOlaðkynn- ast undirstöðuatuinnuveginum Framtak útvegsbænda að bjóða bæjarbúum að heimsækja físki- mjölsvinnslu Vinnslustöðvarinnar, vinnslusal Isfélagsins, ísverksmiðju Eyjaíss og Gígju VE, Vestmannaey VE, Gandí VE, Gullborgu VE, Breka VE og Lóðsinn á laugar- daginn mæltist mjög vel fyrir. Erfitt er að gera sér grein fyrir hvað margir nýttu sér þetta tækifæri til að skoða fyrirtækin og skipin en formaður Utvegsbænda- félagsins segist halda að hátt í helmingur bæjarbúa hafí litið við. Hvort það er rétt eða ekki er ómögulegt að segja en með þessu tókst útgerð og fiskvinnslu að skapa vísi að karnivalstemmningu á bryggjunum enda veður eins gott og hugsast getur á þessum árstíma. Fólk leit við í húsunum og lét sig hafa það að fara um allt í skipunum þar sem áhafnir tóku á móti því og greindu frá því helsta sem fyrir augu bar. Alls staðar var boðið upp á nammi sem unga fólkið kunni svo sannarlega að meta og á báta- pallinum á Vestmannaey Iék Lúðrasveit Vestmannaeyja nokkur lög við góðar undirtektir. Magnús Kristinsson, formaður Utvegs- bændafélagsins og fram- kvæmdastjóri Bergs-Hugins, sem gerir Vestmannaey út, sló öllum við því hann er búinn að marka stefnuna í höfuðfatatísku unga fólksins í vetur. Gaf hann hverjum sem hafa vildi prjónahúfu með merki fyrirtækisins það er því öruggt að rautt og hvítt merki Bergs-Hugins á eftir að vera áberandi í Vestmannaeyjum í vetur. Sjálfur er Magnús í skýjunum yfir því hvernig til tókst. „Öll skipin voru meira og minna full af fólki allan tímann og góð aðsókn var í Eyjaís, mjölvinnsluna hjá Vinnslustöðinni og í frystihús ísfélagsins. Viðbrögð fólks voru jákvæð og margir þökkuðu fyrir sig. Þarna var fólk sem ekki hafði komið um borð í veiðiskip áður og fannst fróðlegt að sjá hvað þar er að finna," segir Magnús. Magnús segir erfitt að gera sér grein fyrir því hvað margir komu um borð í Vestmannaey. „Við ætluðum að telja en gáfumst fljót- lega upp á því. En straumurinn var stöðugur og við vorum að giska á að um helmingur bæjarbúa hafi tekið þátt í þessu með okkur." Magnús sagði óráðið hvort reynt verði að gera þetta að árlegum viðburði en taldi það ekki útilokað. „Stjórn Utvegsbændafélagsins á eftir að fjalla um málið og ég er viss um að þar verða menn jákvæðir fyrir því að halda áfram að koma fróðleik um sjávarútveg til fólks. Okkur er það bæði ljúft og skylt," sagði Magnús að lokum. Starfsfólk ánægt með hvemig til tókst Sigurður Friðbjömsson, forstöðumaður mjölvinnslu Vinnslustöðvarinnar, segist ekki geta verið annað en ánægður með hvemig til tókst á laugardaginn. ,JÉg veit ekki töluna en það komu vel yfir 100 manns til okkar og þeir voru mjög áhugasamir. Þyrftum að gera meira af þessu," segir Sigurður. Hann segir að fólk hafi orðið mjög hissa á því hvað nútíma bræðslur em orðnir snyrtilegir vinnustaðir. „Það bjóst við skít og óþverra eins og var hér á ámm áður. Það kom greinilega í ljós að fólk veit hvað við erum að framleiða. Það hafði því gaman af að fá þetta tækifæri til að kynnast því hvemig hér er umhorfs." Hafdís Eggertsdóttir, verkstjóri í Isfélaginu, segir að milli 200 og 250 manns hafi heimsótt vinnslusali fyrirtækisins á laugardaginn. „Þeir sem hingað komu vom spenntastir fyrir vinnslusölunum og skoðuðu flæðilínur og skurðarvélar af miklum áhuga. Fólks spurði margs og var greinilegt að sumir voru að koma í fyrsta skipti inn í frystihús. Kom fólki á óvart þegar það gerði sér grein fyrir hvað miklar kröfur em gerðar til hreinlætis í frystihúsum í dag," segir Hafdís. Isfélagið bauð upp á mjög svo óhefðbundna fiskrétti frá Veisluþjónustu Gríms við þetta tækifæri. „Við vorum með djúpsteikt saltfiskroð, gulllaxbollur, djúpsteiktan karfa upprúllaðan í beikoni og saltfiskrúllur. Þetta mæltist vel fyrir enda er maturinn frá Grími í Veisluþjónustunni alveg sérstaklega góður. Eg vil svo að lokum þakka öllum þeim sem komu og vona að þeir haft notið heimsóknarinnar til okkar," sagði Hafdís að lokum. Sigurbjöm Amason, stýrimaður á Vestmannaey og formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi, segir mjög gaman að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þessum degi. „Það kom okkur á óvart hvað fólk sýndi mikinn áhuga á að kynnast því sem fram fer um borð hjá okkur. Fólk var þakklátt og fyrir okkur sjómenn er það ákveðin viðurkenning á því sem við emm að gera. Eg held ég tali fyrir hönd allra sjómannanna sem komu að þessu verkefni þegar ég segi takk fyrir okkur,“ sagði Sigurbjöm. Bryngeir í mjöhiinnslu Vinnslustöðvarinnar leiðir Úlaf Einarsson og Höllu Svavarsdónur í allan sannleikann um framleiðsluna. Hafdís Eggertsdóttir verkstjóri í ísfélaginu tók á móti allt að 250 gestum semvoruáöllumaldri. Lúðrasveit Vestmannaeyja lék nokkur lög á bátapallinum á Vestmannaey og á bryggjunni. Síggi Gúmm og Ester meðdónur, tengdasyniog barnabörnumlétusig ekkivantaá bryggjurnar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.