Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Blaðsíða 2
2 Fréttir Fimmtudagur 8. október 1998 Fækkarídagbókinns í síðustu viku, þ.e. frá þriðjudegi til þriðjudags í þessari viku voru færslur alls 172 í dagbók lögreglu og er það heldur minna en vikuna þar á undan. í langfleslum tilfellum eru þessar færslur aðeins eðlilegur hluti áf starfi lögreglunnar, aðstoð o.fl. en í minnihluta atvik þar sem unr bein lögbrot er að ræða þó svo að alltaf slæðist slíkt með, því miður. Teknír með fíkniefni Á mánudag voru þrír menn hand- teknir vegna gruns unr fíkni- efnamisferli. í bifreið þeirra fundust þrjú grömm af amfetamíni ásamt áhöldum til neyslu fíkniefna. Gleraugunbrotnuðu Ein líkamsásrás var kærð til lög- reglu um helgina en þá var ráðist á mann á veitingastaðnum Lundan- um. Ekki reyndust meiðslin alvar- leg en gleraugu þolandans brotnuðu í árásinni. nispurogrúðubrot Á fimmtudag í síðustu viku var lögreglu tilkynnt að bifreið hefði verið rispuð við Iþróttamiðstöðina. Talið er líklegt að atvikið hafi átt sér stað rneðan á leik ÍBV og HK stóð. Þá var á sunnudag tilkynnt að rúða hefði verið brotin í versluninni Kúltúra við Vestmannabraut. Lög- reglan óskar eftir upplýsingum frá þeitn sem kunna að vita hverjir vom að verki í þessum tilvikum. Tueír stútar til viðbðtar Alls vom sjö ökumenn kærðir vegna brota á umferðarlögum í vik- unni. Ai' þeim voru tveir grunaðir um ölvun við akstur og er þá tala þeimi komin upp í 22 á árinu. Fjórir voru staðnir að hraðakstri og var sá sem hraðast fór á 83 km hraða á Hamarsvegi. Öhöpp í uniferöinni Alls komu þrjú umferðaróhöpp til kasta lögreglu í vikunni og voru tvö þeirra mála smávægileg, aðstoð við litfyllingu á tjónatilkynningum. En þriðja óhappið varð á föstu- dagsmorgun þegar enn einn árekst- urinn varð á gatnamótum Heiðar- vegar og Kirkjuvegar. Engin slys urðu á fólki en báðar bifreiðamar skemmdust töluvert. Þrjársamhljðða tillögur Mál málanna í dag virðist vera að Vestmannaeyjabær gerist stofnaðili að Lífeyrissjóði starfsmanna sveit- aifélaga. Á siðasta fundi bæjarráðs, á mánudaginn var, lágu alls fyrir þrjár tillögur um þetta mál og allar samhljóða. Fyrsta tillagan kom frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks- ins, önnur frá Ragnari Óskarssyni og sú þriðja frá Starfsmannafélagi Vestmannaeyjabæjar þar sem skorað var á bæjarstjórn að gerast stofnaðili að sjóðnum. Þessum tillögum var vísað til bæjarstjómar og má ætla að þar verði menn því sammála að gerast stofnaðilar. Aðalfundur Herjólfs hf: Reksturínn viðunandi - Vegagerðin hirðir hluta teknanna. Þorgerður Jóhannsdóttir og Stefán Jónasson í aðalstjórn Aðalfundur Herjólfs hf. fyrir árið 1997 var haldinn sl. þriðjudag. Þar kom frani að rekstrartekjur af skipinu voru 152,8 milljónir á móti 132 milljónum árið 1996. Framlag ríkissjóðs vegna rekstrar var 67,5 milljónir en á árinu 1996 var sama framlag 88,1 milljón. Rekstrargjöld félagsins voru 221,4 milljónir en vom 243,3 árið 1996. Þau skiptast þannig að laun og launatengd gjöld eru 77,7 milljónir, annar rekstrarkostnaður 125,2 millj- ónir og skrifstofu og stjómunar- kostnaður 18,5 milljónir. Afkoma fyrir afskriftir er neikvæð upp á um 1,1 milljón en var 1996 neikvæð upp á 25 milljónir. Afskriftir eru 1,8 milljónir og afkoma fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld því neikvæð upp á 2,9 milljónir. Afkoma af reglulegri starfsemi fyrir skatta er neikvæð upp á 3,2 milljónir á móti 24.9 milljónum árið 1996. Fram kom að stjóm félagsins er þokkalega ánægð með reksturinn á árinu en er ósátt við að þurfa að sýna tap á honum vegna þess að greiða þarf Vegagerðinni ákveðinn hluta af tekjum félagsins. Fastafjármunir félagsins nema alls 50.9 milljónum og vega þar mest fasteignir, lóðir og lóðaréttindi upp á 50,2 milljónir. Skuldir nema alls 47,7 milljónum króna. Fram kemur í reikningum að starfsmenn hafi að meðaltali verið 27 á árinu 1997. Heildarlaun og þóknanir til stjómenda félagsins í þágu þess námu 4 milljónum króna. Skipting á tekjum ársins 1997 er þannig: Ríkisframlag 30,6% Farþegar 19,8% Afsláttarkort 19,5% Flutn.bifreiðar 15,0% Veitingasala 7,9% Fólksbifreiðar 4,1% Svefnrými 2,5% Aðrar tekjur 0,7% Gjöld ársins 1997 skiptast þannig: Launakostn. 35,1% Orkukostn. 19,9% Stjómunarkostn. 8,4% Farþegaþjónusta 7,3% Viðhald skips 6,8% Annar kostn. 22,6% Einnig kemur fram að flutningar hafa aukist ár frá ári með skipinu, bæði í vömm, bifreiðum og farþegum. T.d. fór farþegatalan vel yfír 70 þúsund á árinu. Nokkrar breytingar urðu á stjóm og varastjóm félagsins. Tryggvi Jónas- son, sem hefur átt sæti í stjóm í 20 ár, hættir og í stað hans kemur Þorgerður Jóhannsdóttir. Þá fer Guðbjörg Sig- urgeirsdóttir úr aðalstjórn en verður í varastjóm. í stað hennar verður Stefán Jónasson í aðalstjóm. Og í varastjóm hætlir Jóhann Ólafsson en í stað hans kemur Ragnar Óskarsson. Flutningar með Herjólfi jukust uerulega á síðasta ári. Áfram reynslusveitarfélag Á fundi bæjarráðs á þriðjudag lá fyrir bréf frá verkefnastjóm um reynslusveitarfélög og var þar leitað eftir upplýsingum um hvort óskað væri eftir framlengingu á einhverjum verkefnum fram yfir 1. jan. árið 2000. Bæjarráð óskaði eftir að fá að halda verkefnum sínurn áfram og var bæjarstjóra falið að gera verkefnastjóm grein fyrir því. Sektargreiðslur hækkaðar Á síðasta fundi menningarmála- nefndar var m.a. samþykkt að hækka sektir á vanskilum á gögnum frá bókasafni. Var þetta gert að ósk forstöðumanns safnsins. Sektargreiðslur fyrir bækur og slík gögn hækka úr þremur kr. í fimm kr. og sektir vegna vanskila á myndböndum hækka úr 20 kr. í 30 kr. Sektir hafa ekki verið hækkaðar síðan árið 1989. Sigrún lenný ráðin Á sama fundi menningarmála- nefndar var tekin fyrir ráðning í 53% stöðu starfsmanns á bókasafni. Samþykkt var að ráða Sigrúnu Jenný Guðmundsdóttur, Faxastíg 25 í starfið. Fjórar uikur frá komu Keikos í dag em nákvæmlega tjórar vikur frá komu háhyrningsins Keikós til Vestmannaeyja. Hann hefurdafnað vel í kví sinni í Klettsvíkinni og nú ætla Keikósamtökin að bjóða blaðamönnum að sjá hvernig til hefur tekist. Hallur Hallsson segir að þá verði gerð grein fyrir framtíðaráformum varðandi Keikó. Gerir hann ráð fýrir að Keikó muni leika listir sínar fyrir blaðamennina. Ný þjónusta Ahaldalei HJOLBARDAÞJO Höfum opnað hjólbarðaþjónustu að Skildingavegi 10-12 á móti Fjölverk. Jafnvœgisstillingar Ný dekk - Opið alla daga, um helgar eftir þörfum Sími 481 3151 og 892 9053 FRÉTTIR Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinnæ Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í iskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskilnum Friðarhöfn, Tvistinum, Amigo, Krinni, Vöruval, Herjólfi, Flugyallarversluninni, Tanganum, Söluskilanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hji Esso Stóragerði og i Flugteríunni i Reykjavikurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé gedð.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.