Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Side 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 8. október 1998
Eitt met slegið í gönguralli B V
Árlegt rall Björgunarfélags
Vestmannaeyja fór fram á
laugardaginn og voru
þátttakendur 18 sem er yfir
meðaltali undanfarinna ára. Boðið
var upp á tvær gönguleiðir
miserifiðar og gengu átta karlmenn
hvora leið og tvær konur gengu
styttri leiðina og náði önnur þeirra,
Guðný Jensdóttir, að setja nýtt met
í kvennaflokki.
Veður var gott á laugardaginn
og öll skilyrði til göngu eins góð og
hugsast getur. Göngurallið hófst
við Skátahcimilið við Faxastíg
þaðan sem þátttakendur í erfiðari
leiðinni gengu á Blátind. Næst var
komið við á Klifinu þaðan sem
leiðin lá á Skansinn, Eldfell,
Helgafell, Sæfell og aftur að
Skátaheimilinu. Hver þátttakandi
bar auk þess tíu kg byrði á bakinu.
Á þessari leið sýndi Guðmundur
Vigfússon mestan vaskleika og
skondraði þetta á tímanum
1.55:33. Næstur var Davíð
Friðgeirsson á tímanum 2.11:33 og
3. var Bjarni Halldórsson á
tímanum 2.21:12.
Styttri leiðin hófst einnig við
Skátaheimilið þaðan sem haldið
var á Skansinn, Eldfell, Helgafell,
Sæfell og aftur að Skátaheimilinu.
Þeir sem létu sér nægja að fara
styttri leiðina voru ungliðar og
gömul göngubrýni auk kvennanna.
I karlaflokknum bar Guðni
Grímsson höfuð og herðar yfir
aðra þátttakendur og fór hann
leiðina á 1.17:05. Guðmundur
Gíslason var númer tvö á tímanum
1.21:30 og þriðji var Hjalti
Einarsson á tímanum 1.25:46.
Guðný Jensdóttir gekk leiðina á
1.31:30 og Sigríður Helga
Ástþórsdóttir var á tímanum
2.01:52.
Guðný sló met Esterar
Torfadóttir sem gekk á 1.40:41.
Daði Garðarsson á enn metið á
lengri leiðinni sem er 1.41:19 og
Steingrímur Benediktsson á metið
á styttri leiðinni sem er 1.13:45.
Innanfélags- og firmamót SJÓVE
Sveit Ægis Pálssonar
var allahæst á mótínu
Aflahæsta sveitin hampar bikurunum. F.v. Sigurður Hlöðversson, Kjartan Már
ívarsson, Kári Vigfússon og Ægir Pálsson sveitarforingi.
Árlegt innanfélags- og firmamót
SJÓVE fór fram fyrir skömmu og
tókst það vel í alla staði. Hjálpaðist
allt að góð þátttaka, gott liskirí og
frábært veður.
Alls tók 31 þátttakandi þátt í mótinu
og róið var á níu bátum og heild-
araflinn var 2.976,60 kg. „Af þesssum
31 þátttakenda voru tíu nýliðar sem er
mjög ánægjulegt fyrir félagið," segir
Elínborg Bemódusdóttir sem hafði
yfirumsjón með mótinu.
Helstu úrslit voru þau að Ægir
Pálsson varð afiahæsti einstakling-
urinn og dró hann 194,60 kg. Ægir
keppti fyrir ísfélag Vestmannaeyja
sem fær að launum Firmabikarinn í ár.
Aflahæsti báturinn miðað við afla á
stöng var Mardís VE en þar er Jóel
Andersen skipstjóri. Heildarafli Mar-
dísar var 512,90 kg. og meðalveiðin
170,97 kg. Sveit Ægis Pálsson var
aflahæst með 573,30 kg. Kári
Vigfússon dró stærsta fiskinn, Ægir
dró flesta fiska, Páll Pálsson var með
flestar tegundir, sjö og var meðal-
þyngd þeirra 0,90 kg. Stærsta fisk
mótsins dró Kári Vigfússon sem var
12,90 kg. langa.
í hófi um kvöldið voru verðlaun
afhent og voru þau fjölmörg að venju.
Arnþór Sigurðsson var aflamaður
ársins, Guðrún Snæbjörnsdóttir fékk
Borgarholtsbikarinn og Jón Ingi
Guðjónsson var aflahæsti nýliðinn og
fékk að launum Nýliðabikarinn sem
gefinn var af Páli Pálssyni hjá PH-
ferðum. Auk þess voru veitt verðlaun
fyrir stærsta fiskinn í hverri tegund.
„Mótið heppnaðist eins vel og hægt
er að hugsa sér. Lagðist allt á eina
sveif til að gera þetta síðasta mót
ársins sem skemmtilegast," sagði
Elínborg að lokum.
LESENDABREF - Oskar Oskarsson skrifar:
Verðum að nýta
Herjólf betur
Því verður ekki á móti mælt að
Herjólfur er þjóðvegur okkar Vest-
mannaeyja og gerum við miklar
kröfur til hans og starfsfólks. Við
viljurn hafa sem mesta ferðatíðni og
förum fram á að þjónusta um borð sé
góð.
Allt eru þetta sanngjamar kröfur
og er ég ekki í vafa um að stjóm
Hetjólfs hf. hefur reynt að verða við
þeim eftir mætti. En spuming mín til
Vestmannaeyinga er, hvað getum
við gert til að nýta skipið betur og
gera notkun þess auðveldari fyrir
okkur öll?
Þarna á ég við þá sem panta fyrir
bfiinn sinn með Herjólfi og kojur
með löngum fyrirvara og láta síðan
ekki sjá sig. Um daginn lenti ég í því
að vera númer níu á biðlista sem
endaði í 25 bflum. Þrátt fyrir það
ákvað ég að láta slag standa og mæta
í Þorlákshöfn og það var ekki að
sökum að spyrja, ég komst með og
það sama gilti um aðra bfia á
biðlistanum. Einnig voram við á
biðlista um kojur og það sama gilti
um þær, við fengum kojur.
Nú veit ég ekki hvort einhverjir
afpöntuðu pláss fyrir bfia og kojur en
hef gmn um að þeir hafi verið
margir. Það er ekkert við því að gera
þegar fólk forfallast með einhverjum
hætti en það er óþolandi að slóða-
skapur og hugsunarleysi skuli
takmarka aðgang að Herjólfi. Auð-
vitað er hægt að segja manni sem
lendir númer 20 á biðlista að hann
komist að öllum líkindum með
bflinn sinn en ekki er það traust-
vekjandi. Eg er sannfærður um að
fyrir vikið era margir sem hætta við
sem þýðir verri nýtingu á Hetjólfi.
Tilgangur minn með þessum
línum er að vekja athygli á þessu
vandamáli um leið og ég skora á fólk
að láta vita ef það ætlar ekki að nýta
sér pláss fyrir bílinn eða kojur sem
búið er að panta. Það er ekki mikil
fyrirhöfn en hún léttir öðram
farþegum og starfsfólki Herjólfs
lífið.
Eg er ekki með lausn á þessu
vandamáli á reiðum höndum en ég
held að fyrirframgreiðsla í einhverri
mynd gæti komið til greina. Til þess
mætti nota greiðslukort eða aðra
rafræna greiðslu. Það gæti leitt til
betri nýtingar á Herjólfi og^ lægri
fargjalda þegar fram í sækir. Ég veit
að margir hafa rekið sig á þetta
vandamál og þetta er öragglega ekki
viljandi gert, heldur hugsunarleysi.
Nú þarf stjómin að leggja höfuðið í
bleyti og finna lausn fyrir næsta
sumar, öllum til heilla.
Höfundur rekur Ahaldaleiguna.
Ólöf Pétursdóttir myndlistarkona
úr Hafnarfirði færði Vestmannaeyjabæ málverk að gjöf vegna komu
Keikós til Vestmannaeyja.
Myndin er máluð með vatnslitum og þar er háhyrningurinn Keikó í
aðalhlutverki. Olöf segir að myndin sé úr röð verka sem orðið hafi til eftir
að Þráinn Þorgrímsson rithöfundur leitaði til hennar. „Við ræddum um að
ég myndskreytti barnabók sem hann ætlaði að skrifa. Það verður sennilega
ekkert úr því að bókin verði skrifuð en myndirnar eru tilbúnar. Til þess
að gera eitthvað ákvað ég að gefa út kort með myndum af málverkunum.
Svo fannst mér vel við hæfi að gefa Vestmannaeyingum málverk fyrst
Keikó er kominn í umsjá þeirra,“ sagði Olöf.
Fréttatilkynning frá Norölendingafélaginu:
Vetrarstarfið að Iteljast
Starfsemi Norðlendingafélagins í
Vestmannaeyjum fer af stað með
félagsvist í Alþýðuhúsinu kl. 20.30.
Félagið hefur staðið fyrir félagsvist
í mörg ár ásamt Austfirðingafélaginu.
Austfirðingar fóra fyrst af stað í haust
en nú er komið að okkur. Við hvetjum
alla Norðlendinga til að mæta og taka
með sér gesti því það er gamall og
góður siður að setjast að spilum og
spjalla.
1 43 ár hefur Norðlendingafélagið
verið til og starfað með svipuðum
hætti öll árin. Félagsvistin verður
alltaf á þriðjudagskvöldum, fjögur
kvöld í röð. Veitt verða verðlaun
hæsta karl- og kvenspilara og svo að-
alvinningur fyrir þrjú hæstu kvöldin
samanlagt. Boðið er upp á kökur og
kræsingar að loknum fjórum kvöld-
um. Svo er okkar margrómaða þorra-
blót í janúar.
Aðalfundur félagsins er fyrirhug-
aður laugardaginn 10. október í Al-
þýðuhúsinu. Allir félagar era hvattir til
mæta og nýir félagar era velkomnir.
Við hlökkum til að sjá ykkur í vetur.
Látið ekki imbakassann (sjónvarpið)
stjóma ykkur.
Kveðja.
F.h. Norðlendingafélagsins,
Svanhildur Gísladóttir.