Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Qupperneq 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 8. október 1998
Landakirkja
Fimmtudagur 8. október
Kl. 11.00. Bænastund í Hraun-
búðum. Öllum opin.
Kl. 17-18. TTT. Kirkjustarf fyrir
tíu til tólf ára böm.
Kl. 20.00. Opið hús hjá æsku-
lýðsfélaginu í KFUM&K húsinu.
Spjallað um æskulýðsmót á
Laugarvatni 16.-18. okl.
Kl. 20.00. Æfingar hjá Kór
Landakirkju alla fímmtudaga.
Sunnudagur 11. október
Kl. 11.(X). Bamasamvera. Mikill
söngur, fræðsla, lofgjörð og bæn.
Kl. 14.00. Guðsþjónusta. Mola-
sopi. Stuttur fundur með ferm-
ingarbörnum og foreldrum/for-
ráðamönnum þeirra í safnaðar-
heimilinu eftir guðsþjónustuna.
Kl. 20.30. Æskulýðsfundur. Nýir
félagar velkomnir.
Mánudagur 12. októher
Kl. 20.30. Biblíulestur í KFUM-
&K húsinu. Inngangur að Jó-
hannesarguðspjalli. Allir vel-
komnir.
Kl. 20.00. Saunrafundur hjá
Kvenfélaginu.
1‘riðjudagur 13. október
Kl. 16.15-17.(X). Kirkjuprakkarar.
Kirkjustarf sjö til níu ára krakka.
Kl. 17.00. Æfingar hjá Litlum
lærisveinum.
Miðvikudagur 14. október
Kl. 10.00-11.30. Mömmutnorgn-
ar. Samvemstund og spjall hjá
foreldrum ungra bama.
Tökum þátt í starli safnaðar-
ins!
Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20:30 Biblíulestur.
Föstudagur
Kl. 20:30 Unglingar með sitt,
fyrir alla unglinga.
Laugardagur
K1 I3:(X) trúboðogbæn
K1 20:30 brotning brauðsins
Sunnudagur
Kl. 15:00 Vakningarsamkoma -
Allir lijartanlcga velkomnir
Hvítasunnumenn
Aðventkirkjan
Laugardagur 10. október
Kl. 10. Biblíurannsókn.
Allir velkomnir.
BahÁÍ SAM-
FÉLAGIÐ
Opið hús að Kirkjuvegi 72B
fyrsta föstudag hvers mánaðar kl.
20.30. Allir velkomnir.
Heitt á könnunni.
HITACHI
Golf: Lofsamleg ummæli um golfvöllinn í Politiken
Stórkostlesur staður á allan hátt
Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum
nýtur orðið æ meiri athygli með
hverju árinu sem líður, bæði hjá
íslendingum og ekki síður hjá þeim
útlendingum sem hingað koma og
fara einn eða fleiri hringi á
vellinum. Opna Volcano mótið,
sem haldið er í júlímánuði, hefur
komið vellinum vel á kortið ut-
anlands. Þeir útlendingar sem tekið
hafa þátt í því móti eiga flestir ekki
nógu sterk orð til að lýsa vellinum.
Eitt þekktasta tímarit í golfheiminum,
Golf Digest, valdi í fyrra 200 bestu
golfvelli Evrópu (þeir skipta
þúsundum) og meðal þeirra var völl-
urinn í Eyjum. Meiri viðurkenningu
er varla hægt að fá og nokkuð ljóst að
á komandi árum munu ferðamenn
ekki síður sækja í að leika hér golf en
að skoða hval og fugla.
A dögunum barst okkur í hendur
úrklippa úr danska blaðinu Politiken.
Blaðamaður þar á bæ, John Njor, átti
hér leið um í sumar og hreifst svo af
vellinum að sú heimsókn varð tilefni
til heilsíðugreinar. Við birtum hér
þýðingu á þessari grein, lítið eitt stytta.
„Ég var síðast á Heimaey í janúar
1973, sendur af blaðinu til að skrifa
um eldsumbrotin. Og nú 25 árum
síðar, kem ég aftur til að leika golf á
þessari eyju í Atlantshafinu.
Ég tók það sem brandara þegar vinur
minn og kollegi, Moe, sem einnig var
hér 1973, stakk upp á því að við hitt-
umst á golfvellinum í Vestmanna-
eyjum. En af hveiju ekki?
Hann hafði spilað golf á vellinum
fyrir tveimur árum og staðhæfði að
hann væri góður, mjög sérstakur (því
átti ég auðvelt með að trúa) og
umgjörðin væri ótrúleg.
Líklega var eitthvert sannleikskom í
því sem hann sagði. Því að allt í einu
risu snarbrattir bergveggir eyjanna úr
hafinu, ekki svartir af ösku eins og síð-
ast, heldur iðagrænir og fuglamergð í
klettum, í lofti og á sjó.
Enn er sjálfur gígurinn, þar sem dyr
Vítis opnuðust á sínum tíma, of heitur
til að þar geti gróður skotið rótum. Og
enn er þar nægur hiti til að spæla sér
egg á pönnu með því að stinga eina
eða tvær skóflustungur niður í jörðina.
Enn eitt sem vakti ánægju okkar var
veðrið. Við stigum út úr flugvélinni á
besta degi sumarsins, miðað við
danska veðráttu. Ekki ský á himni.
15 til 17 stiga hiti í forsælu (rétt eins
og heima). En hitinn var 39 stig í
sólinni svo að við urðum að taka fram
stuttermaskyrtur og stuttbuxur. Og
sólskinið lék um allan völlinn, rétt eins
og undanfamar fjórar vikur í júlí og
ágúst meðan við höfðum orðið að
klæða okkur í þykkar peysur og verja
okkur með regnhlífum í Danmörku.
Ég heyrði einhvern tauta í hálfum
hljóðum um ,Æ1 Ninjo."
Élugstjórinn okkar, sem er alla daga í
góðu sambandi við veðurfræðingana,
sagði við okkur: „Þið getið notað það
sem þumalputtareglu að sé veðrið
leiðinlegt í Danmörku þá getið þið
skroppið í sólbað til íslands og svo
öfugt."
Lítileyja
Lengsta ökuferð á Heimaey er 16 km
og þar með er búið að prófa allt vega-
kerfið á eynni. Og þremur mínútum
eftir að við settumst inn í leigubílinn á
flugvellinum vorum við staddir á
fyrsta teig á golfvellinum. Og hvílíkur
völlur!
Fagurgrænar brautimar bylgjuðust til
allra átta á sléttlendinu í tröllstórum
potti sem er innrammaður af snar-
bröttum fjallsveggjum, iðandi af
fuglalífi. Og á mörgum teigum lágu
síli sem fúglinn hafði misst á leið sinni
upp á bjargbrúnimar, hátt fyrir ofan
okkur, til að fóðra unga sína.
A vellinum er hvorki að finna tré né
runna. Þrátt fyrir það er hann stór-
kostlegur. Og nóg er af torfæmm sem
líta ósköp sakleysislega út, lítil grasi-
vaxin svæði og hólar þar sem röffið er
svo erfitt að maður þarf iðulega að slá
yfimáttúruleg högg til að bjarga sér úr
vandræðum.
Klettabelti og gilskomingar setja ein-
stæðan svip á völlinn svo að ekki sé
minnst á sjálft hafið sem er tæpa
hundrað metra neðan við ystu brún á
brautinni. Hafgolan kemur líka úr ó-
trúlegustu áttum inn á brautimar, fer
inn dalinn og snýr þar við svo að þú
getur verið bæði í meðvindi og mót-
vindi á sömu braut. Otrúlegt!
Flatimar em mjög góðar og ótrúlega
hraðar. Þó eru flatimar á seinni níu
holunum, úti við sjóinn, ekki eins
góðar og hinar, án þess þó að vera
lélegar. Saltið úr Atlantshafinu yfir
vetrartímann er ekki það allra besta
sem grasið getur hugsað sér. Og það
kom okkur nokkuð á óvart að hér er
leikið golf allt árið þar sem snjó festir
hér sjaldnast meira en eina til tvær
vikur að vetrinum. En á tímabilinu frá
október fram í maí er leikið á
vetrarflötum til að hlífa aðalflötunum.
Slegið yfír hafíð
Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum býð-
ur upp á allt það skemmtilegasta og
besta sem hægt er að fá út úr golfinu.
Utsýnið á leiðinni býður upp á fagrar
klettaeyjar og iðandi fuglabjarg og
loftið er svo tært að maður ruglast í
fjarlægðum á vellinum hvað eftir
annað. A 17. holu verður maður t.d.
að slá af klettabelti úti í sjónum yfir
Atlantshafið sjálft, 138 metra til að ná
inn á flötina á þessari stórkostlegu par
3 holu sem að auki er umkringd af
hrjúfum hraunkanti og tveimur sand-
glompum.
Það hlýtur líka að vekja undrun
flestra að heyra að þessi fallegi völlur
hafi verið hulinn þykku vikurlagi í tvö
ár eftir eldgosið. Félagar í golf-
klúbbnum unnu í sjálfboðavinnu við
að fjarlægja vikurinn en félagatalan í
klúbbnum er tæplega tvöhundruð. Því
verður maður ekki minna forviða
þegar formaður klúbbsins, Gunnar
Gunnarsson, segir okkur að flatar-
gjaldið sé aðeins um 150 danskar
krónur á dag. Og sé fjögurra manna
íjölskylda á ferð sem langar til að spila
þá fær hún það fyrir 300 krónur
danskar. Kylfur og kerrur er hægt að
fá lánað í golfskálanum.
Sem sagt, stórkostlegur staður á allan
hátt. Samantekt Sigurg.
Knattspyrna: íslands-, bikar-, og meisturum meistaranna, ÍBV, var mikill sómi sýndur í Reykja
Frábærar móttökur Esso o
Árni Johnsen hélt uppi fjörinu í móttöku Olíufélagsins hf. ESS0 sem stóð fyrir glæsilegri veisiu fyrir íslands- og bikarmeistara
ÍBV. Þarna tekur Árni lagið ásamt leikmönnum IBV. Samstarf ÍBV og ESS0 hefur staðið yfir í 11 ár.
Steingrímur Jóhannesson með
Landssímadeildinni í sumar.
af sínum manni.
Knattspyrnumenn íslands-, bikar- og
meistara meistara IBV stóðu ekki
síður í ströngu utan vallar en innan
uni síðustu helgi. Liðinu var mikill
sómi sýndur alla helgina og jiar að
auki náði liðið sínum þriðja titli,
meistarar meistaranna, með þvj að
sigra Leiftur 2-1. Þar með vann IBV
þrefalt í ár, fyrst íslenskra liða. Segja
má því að þetta ár hafi verið samfelld
sigurganga hjá liðinu.
Síðastliðið föstudagskvöld bauð
stuðningsmannahópur IBV í Reykjavík
(sem er hluti af ÁTVR) ÍBV liðinu til
kvöldverðar á veitingastaðnum Bauj-
unni við Eiðistorg. Þar var tekið á móti
liðinu, mökum og stjómarmönnum með
kostum og kynjum. Þar voru ýmsar
gjafir veittar af Stuðningsmanna-
klúbbnum og margar skemmtilegar
ræður fluttar. Stjóm knattspymudeildar
ÍBV færði formanni Stuðningsmanna-
klúbbsins, Elíasi B. Angantýssyni, veg-
lega gjöf en hann varð fimmtugur í
sumar. Fyrirliði IBV fékk í ábætisrétt
þessa líka fínu KR-köku og borðaði
Hlynur hana með bestu lyst.
I máli Jóhannesar Olafssonar, for-
manns knattspymudeildar IBV, kom
fram að stuðningsmannaklúbburinn
hefði unnið frábært starf undanfarin
misseri og einhvem veginn tækist
stuðningsmönnum liðsins að toppa
starfið á hveiju ári. Að þessu sinni var
haldinn IBV-dansleikur fyrir bikarúr-
slitaleikinn á Hótel íslandi þar sem
mættu vel á annað þúsund manns!
Eftir að ÍBV hafðu unnið Leiftur á
laugardaginn bauð stærsti styrktaraðili
ÍBV, Olíufélagið hf ESSO, til glæsi-
legrar móttöku í húsakynnum félagsins
við Suðurlandsbraut. Þar nutu IBV-arai
veitinga ESSO sem vom hreint stór-
kostlegar. Þetta var ellefta samstarfsái
ÍBV og ESSO og kom fram mikil
ánægja með samstarfið í máli beggjs
aðila. Sem bónus fyrir frábæran árangui
afhenti ESSO liði IBV 350.000 kr. "