Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Qupperneq 16
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293
H ^ H
ferðir Immmmmmml 4ti 3440
FLUTNIN6AR - VESTMANNAEYJUM
o l-____L-j z I__jJ __ ——
iFugfugor nHvCr urví■ o nMfím smoi •
Veruafgreiðsla
SldMlagavef i 4 Siml 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavik
RðaHlufwlnggr Héðlnsgefu 3
SfalMl 3030
8E
ffl
7/u gómar urðu eflir vegna veðurs:
Eitthvaðaffiskistóðá
bryggjunni í heila viku
Þó svo að veðrið hafi leikið við
okkur í sumar, hafa þó komið
brælur endrum og eins. I einni
slíkri fyrir nokkru hittist svo ilia á
að gámaskip frá Eimskip komst
ekki hingað og urðu tíu gámar eftir
með físki sem til stóð að selja á
markaði ytra.
Jóhann Ragnarsson, hjá Eimskip í
Vestmannaeyjum, sagði þetta rétt
vera. Megnið af þessum fiski hefði
verið selt innanlands, bæði á markaði
og eins beint til vinnslu en eitthvað
hefði farið út í vikunni á eftir. Jóhann
sagðist ekki vita hve mikið það magn
hefði verið og ekki heldur hvemig
ástand fisksins hefði verið þegar hann
komst á markað.
Páll Pálsson, hjá Fiskmarkaði Vest-
mannaeyja, kannaðist einnig við þetta
mál og sagði þetta ekki einsdæmi,
áður hefði komið fyrir að skip hefðu
ekki getað komið hér við vegna
veðurs. „Við fengum hluta af þessum
fiski á rnarkað," sagði Páll. „Eg held
að það hafi verið milli 20 og 30 kör af
kola en það er fiskur sem gengur ekki
of vel á íslenskum markaði."
Nú er komið að fullorðnum
að fá aó heimsækja Keíkó
Að undanförnu hafa börn í Vest-
mannaeyjum átt kost á því, í boði
íslandsbanka, að skoða háhyrn-
inginn Keikó. Hafa þær ferðir
vakið mikinn fógnuð yngri kyn-
slóðarinnar.
En nú á að gera betur og bjóða einnig
þeim sem eldri em að skoða hvalinn.
Það er Peggy Walton Walker, ekkja
Keiths Walker, sem skrifaði handrit
að Free Willy myndunum, sem býður
Vestmannaeyingum að sigla og skoða
Keikó.
A morgun föstudag, er eldri
borgurum boðið en á laugardag og
sunnudag öðrum. A bls. 7 í blaðinu í
dag er auglýsing þar sem tilgreint er
kl. hvað er farið í ferðirnar. Það skal
tekið fram að þessar ferðir em ætlaðar
fullorðnum þar sem bömin eru búin
að fara og skoða Keikó.
Birgir á batavegi
Birgir Sveinsson, skipverji á Breka VE, varð fyrir því að vera barinn
fólskulega í Bremerhaven þann 30. ágúst sl. Birgir er nú á góðum
batavegi.
Birgir hlaut alvarlega höfuðáverka í árásinni og hefur dvalist á sjúkrahúsi
ytra síðan og gengist undir margar aðgerðir. Sigurmundur Einarsson,
framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Vestmannaeyja, sagði að í dag færi
Birgir í lokaaðgerðina. „Læknar em bjartsýnir á að hún gangi vel og verði
raunin sú, ætti Birgir að geta komið heim með almennu flugi eftir u.þ.b.
hálfan rnánuð," sagði Sigurmundur.
Fjárbændur í Elliðaey
komu með fé sitt í land í
síðustu viku. Féð var
fram gengið en það
skyggði á ánægju
bændanna að talsverð
afföll hafa orðið. Álitu þeir
að annað hvort hefði
orðið handvöm við
bólusetningu eða að
bóluefnið hafi verið ónýtt.
Féð var flutt með
Lóðsinum og tekið upp á
Bæjarbryggjunni.
smmetöMiii
0481-2943,
* 897-1178
Yiliumbod