Fréttir - Eyjafréttir - 19.11.1998, Blaðsíða 2
Fréttir
Fimmtudagur 19. nóvember 1998
Sagtfrá stafkirkiunni
í Landakírkju á
sunnudag
Klemensnressu (23. nóv.) verður
minnst sunnudaginn 22. nóvember
við almenna guðsþjónustu í Landa-
kirkju með kynningu á byggingu
norskrar stuí'kirkju í Eyjum. Fyrsta
kirkja í Vestmannaeyjum, sem ör-
uggar heimildir em um, var helguð
heilögum Klemensi. Hann var
verndari sæfarenda og táknið hans
erankeri. Klemens varþriðji bisk-
upinn í Róm á eftir Pétri postula.
Lét hann af því embætti fyrir nær
rétturn 1900 árum, en drukknaði í
Svartahafi eftir þrælkunarvinnu og
píslir á Krím. Við lok guðs-
þjónustunnar munu Guðjón Hjör-
leifsson, bæjarstjóri, og Arni John-
sen, alþingismaður, kynna áætlun
urn mótttöku á þjóðargjöf Norð-
manna til Islendinga í tilefni
kristnitökualmælis árið 2000. Þjóð-
argjöfin er lítil stafkirkja, sem ætlað
er að rísi við hafnarinnsiglinguna í
Vestmannaeyjum. Sjómenn og aðr-
ir sæfarendur cru sérstaklega vel-
komnir. Þessari síðustu guðsþjón-
ustu kirkjuársins verður útvarpað
hjá Útvarpi Vestmannaeyja kl.
16:00.
Kennararvilja
samningaíhéraði
Á fundi bæjarráðs sl. mánudag lá
fyrir bréf frá Ólafi Lárussyni, f.h.
Kennarafélags Vestmannaeyja þar
sem því er hafnað að fara í sam-
eiginlegar samningaviðræður með
bæjaryftrvöldum, SASS og Kenn-
arafélagi Suðurlands. Þess í stað er
lögð áhersla á að bærinn hefji
viðræður við fulltrúa Kennæafélags
Vestmannaeyja nú þegar. Bæjar-
stjóra og skólamálafulltrúa var falið
að ræða við fulltrúa KV.
Ólafur Lárusson, formaður Kenn-
arafélags Vestmannaeyja, sagði að
félagið hafnaði því að fara í sam-
eiginlegar viðræður með fyrr-
greindum aðilum vegna þess að
þeim þætti rétt að beina samninga-
umleitunum beint til sinna viðsemj-
enda sem væru skólayfirvöld í
Eyjum. Eins og staðan væri í dag
teldi félagið það eðlilegast og
affarasælast.
Ólafur sagði að félagið væri ekki
með beinar kröfur uppi á borðinu
en aftur á móti yrði lagt fram það
sem gert hefði verið á öðrum
stöðum á landinu í samningamálum
kennara. Ólafur sagðist eiga von á
að viðræður hæfust fljótlega.
Bandaríkjaher
hakkarfyrir síg
Fyrsta mál á fundi bæjarráðs á
mánudag var bréf frá starfandi
ritara bandaríska flughersins. Þar
var forseta bæjarstjómar og íbúum
Vestmannaeyjabæjar þökkuð gest-
risni og góðar móttökur þegar
herinn flutti háhyminginn Keikó
hingað nieð C17 vélinni í haust.
Flestir muna að vélinni hlekktist á í
lendingu og slíflaði hún ílugvöllinn
um nokkum tíma. Ekkert var þó á
það óhapp minnst í bréfmu né
heldur árekstra við náttúruunnendur
í Eyjum heldur aðeins þakklæti
fyrir góðar móttökur.
Eldur í einbýlishúsi:
Vaknaði við reykskynjarann
Húsráðandi var einn lieima og
sofandi þegar eldur kom upp í hús-
inu Búhamar 13 á sunnudags-
morguninn. Hann vaknaði við
brunaboða og tókst að komast út af
sjálfsdáðum en þá var húsið orðið
fullt af reyk. Eldurinn var í eldhúsi
en eldsupptök eru ekki kunn.
Lögreglan var fyrst á vettvang og
réðist að eldinum með slökkvitæki en
tókst ekki að ráða niðurlögum hans.
Slökkvilið kom fljótlega kom á
staðinn og eftir það gekk greiðlega að
slökkva," segir Jón Bragi Amarsson
lögreglumaður.
Eldhúsinnrétting og tæki í eldhúsi
eru mikið brunnin og húsið allt er
undirlagt af sóti og nokkrar skemmdir
urðu af vatni.
Eldurinn kom upp í eldhúsinu og eru
tæki og innrétting mikið skemmd ef
ekkiónýL
Keikð við mjög góða heilsu
í fréttum Sky sjónvarpsstöðvar-
innar í vikunni var sögð frétt af því
að Kcikó befði orðið fyrir
einhverjum skakkafóllum í kvínni í
Klettsvík og jafnvel slasast illa.
Nolan Harvey annar yfirþjálfari og
verkefnisstjóri í kvínni segir að ekkert
sé hæft í þessari frétt Sky
sjónvarpsstöðvarinnar. „Keikó er við
mjög góða heilsu og nýtur sín mjög
vel í kvínni. Dr. Cornell, sem fylgst
hefur með heilsufari hans, var hérna
um síðustu helgi og samkvæmt
læknisskoðun hans amar ekkert að
Keikó og læknirinn var mjög ánægður
með hvemig Keikó spjarar sig.“
Nolan Harvey segir að kvíin haft
staðist þær væntingar sem við hana
vom bundnar. „Reyndar skiptum við
út trégólfinu í göngubrúnni sem liggur
yfir kvína og settum sams konar efni
og er á gólfi kvíarinnar. Ástæða þess
var sú að okkur fannst brúin taka á sig
dálítinn vind, auk þess sem gólfið
varð hált í ágjöf. Að öðru leyti er allt
í góðu lagi hér og mannskapurinn líka
í ágætu formi, þrátt fyrir leiðinda
veður undanfama daga.“
Stækkunflug-
stöðvarinnar
Uoðin út
Eins og kemur fram í blaðinu í dag
er búið að bjóða út stækkun á
flugstöðinni.
Ámi Johnsen, sem sæti á í Flugráði,
segir að stöðin verði stækkuð um 100
fm og innra skipulagi verður breytt.
„Eftir stækkunina verða komu- og
brottfararfarþegar aðskildir," segir
Ámi.
Það er ekki að spyrja að
skepnuhaldi í Eyjum. Þessi kind
lá fyrir innan hlið Sorpu þegar
starfsmenn stöðvarinnar mættu
þar á mánudagsmorgun. Þótti
þeim heldur óskemmtileg sjón
að mæta hræinu þarna í
náttmyrkrinu og áttu erfitt með
að átta sig á því hvað fólki gengi
til að skilja rolluhræ eftir á
víðavangi, jafnvel þó að sé innan
girðingar Sorpu. Einhverjir vita
þó upp á sig skepnuskapinn, því
búið var að skera eyrun af
hræinu, svo ekki sæist markið.
Rólegthjá
lögreglunni
Rólegt var yfir vötnunum hjá
lögreglu í síðustu viku. Færslur í
dagbók voru 146, sem telst lítið á
þeim bæ. Þó voru tvær líkams-
árásir kærðar til lögreglu. í báðum
tilvikum var um minniháttar áverka
að ræða. Tveir þjófnaðir vom
kærðir. Annað ntálið telst upplýst
en hitt er enn í rannsókn.
Ekki fleiri stúta,
í bílí a.m.k.
Athygli vekur að enginn var tekinn
grunaður um ölvun við akstur um
síðustu helgi, hvorki heimamenn né
aðkomumenn. Þykir það góðs viti
og vill lögregla minna ökumenn á
að aldrei fer saman akstur og
áfengisneysla. Það sem af er þessu
ári hafa 25 ökumenn verið teknir
grunaðir um ölvunarakstur og er
það von lögreglu að þessi tala
hækki ekki. Nú fer í hönd sá tími
sem ýrnis jólateiti fara að einkenna
mannlíftð og veit að minna
ökumenn á að skilja bifreiðar sínar
eftir heima og brúka annan ferða-
máta hyggist menn neyta áfengra
drykkja.
Þakkir frá Plútó
Kæru bæjarbúar, við viljum koma á
framfæri kæru þakklæti til allra
þeiira sem keyptu kerli af okkur
um síðustu helgi. Við erum þakklát
og málefnið er gott; böm með
geðræn vandamál fá allan ágóða af
kertasölunni. Það er gaman að segja
frá því að Leoklúbburinn í Vest-
mannaeyjum seldi rnest allra
klúbba á landinu og er stuðningi
ykkar það að þakka.
Með kveðju
Félagar í Leoklúbbnum Plútó
Umferðin
Aðeins voru þrjú umferðarlagabrot
skráð í doðranta lögreglu síðustu
viku og var þar um að ræða
vanrækslu á að færa ökutæki til
aðalskoðunar. 1 einu tilviki var
ökumaður sektaður fyrir að hafa
ekki öryggisbeltið spennt á meðan
á akstri stóð.
MALEFNIFATLAÐRA
MEÐFERÐARHEIMILIÐ BÚHAMRI 17
Félagsmálastofnun óskar eftir hæfu og áhugasömu fólki til starfa við
Meðferðarheimilið að Búhamri 17. Meðferðarheimilið er dagvistun og
skammtímavistun fyrir böm og unglinga með fötlun. Opið er alla virka
daga og eina viku í mánuði er skammtímavistun allan sólarhringinn.
Starfið felur m.a. í sér stuðning og þjálfun í athöfnum daglegs lífs.
Um er að ræða 65% stöðu í vaktavinnu og verður viðkomandi að geta
gengið allar vaktir.
Umsóknareyfiubltíö liggja frammi á Félags- og skólaskrifstofu, í
kjallara Ráðhússins
Umsóknarfrestur er til 27. nóvember.
Frekari upplýsinga er hægt að leita hjá Félagsmálastofnun
í síma 481-1092 og hjá Ástu Halldórsdóttur, forstöðumanni
ísíma 481-2127.
Senn líður að 1. desember og eru þeir, sem eiga eftir að
tilkynna lögheimilisflutninga beðnir að ganga frá skráningu
hið fyrsta.
Þeir sem hafa í hyggju að flytja fram til 1. desember nk.
eru einnig beðnir að hafa samband í síma 481 1088 eða
líta við í Ráðhúsinu.
í 1. gr. laga um lögheimili segir: „Lögheimili manns er sá
staður þar sem hann hefur fast aðsetur".
FRETTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481 -3310. Myndriti: 481 -1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.