Fréttir - Eyjafréttir - 26.11.1998, Qupperneq 1
Smári kom sá og sigraði. Smári Harðarson gerði sér lítið fyrir og vann þrefalt á
vaxtarræktarmóti íslands í íslensku óperunni á laugardaginn. Hvatturáfram af
stórum hópi Eyjamanna fór Smári á kostum enda var hann sá langflottasti.
Sjá bls. 10 og 11.
Fokkerflugvél varð fyrir eldingu
-Engin skelfing greip um sig, segir Bragi I. Olafsson sem var meðal farþega
Fokker flugvél Flugfélags íslands
varð fyrir eldingu er hún var í
aðflugi að Vestmannaeyjaflugvelli
uni kl. 08:00 á þriðjudagsmorgun.
Bragi Ólafsson forstöðumaður
Flugfélags Islands í Vestmanna-
eyjum var einn farþega um borð.
Bragi segir að í sjálfu sér sé frá litlu
að segja. „Farþega ;r urðu að vísu
varir við að elding lei. i á vélinni, því
að hún hristist og síðan varð þungt
högg eins og úr púðurbyssu. Flug-
stjórinn í þessari ferð, Ólafur W.
Finnsson tilkynnti farþegum strax í
hátalarakerfi vélarinnar hvað hefði
skeð og hætti við að Ienda.“
Bragi segir að engin skelfing hafi
gripið um sig meðal farþeganna.
„Það héldu allir ró sinni. Flug-
stjórinn ákvað hins vegar, vegna
bilunar í siglingatækjum að snúa
vélinni til Reykjavíkur, þar sem vélin
lenti áfallalaust."
Lundaverkefnið vann ekki til verðlauna í keppni
ungmenna sem fram fór í Berlín:
Ómetanleg reynsla
sem við búum að
-segir, Freydís Vigfúsdóttir einn þremenninganna
Bjarki Steinn Traustason, Davíð
Egilsson og Freydís Vigfúsdóttir
fóru á Þing Norðurlandaráðs sem
haldið var í Osló í haust, þar sem
þau kynntu rannsóknarverkefni
sitt sem hclgað er lundanum og
lifnaðarháttum hans.
I framhaldi af för sinni á þingið í
Osló lögðu þau aftur land undir fót og
tóku þátt í níundu YEER keppninni
sem stendur fyrir Young Europeans'
Environmental Research (Umhverfis-
rannsóknarverkefni ungra Evrópu-
búa), sem haldin var í Berlín dagana
18. til 22. nóvember. Alls tóku 102
ungmenni þátt í keppninni með 64
verkefni frá 58 löndum.
Þremenningamir komu til Eyja í gær
eftir vel heppnaða för til Berlínar.
Freydís Vigfúsdóttir, sagði að þó að
þau hafí ekki komið heim með
verðlaun hafi þetta verið ómetanleg
reynsla, sem þau myndu búa lengi að.
„Það er kannski ekki alltaf spurning
um að vinna heldur að vera með og
sjá hvað jafnaldrar manns eru að gera
í sínum skólum."
Freydís segir að verkefnin hafi verið
mjög fjölbreytt og tekið á ýmsum
þáttum umhverfismála. „Það voru
hins vegar mest áberandi verkefni
sem tengdust hafínu og lofthjúpnum.
Þannig vorum við dálítið sér á báti
með lundaverkefnið okkar, en engu
að síður fengum við mjög góða
umsögn og dómararnir voru ánægðir
með verkefni okkar."
Freydís vildi að lokum koma á
framfæri þakklæti til Páls Marvins
Jónssonar, Gísla Óskarssonar og
Kristjáns Egilssonar sem aðstoðuðu
þau vegna þessa verkefnis og áttu
stóran þátt í þeirri velgengni sem þre-
menningamir hafa notið nteð verkefni
sitt.
Bangsimon fram-
sýndur á laugardaginn
Á laugardaginn kemur niun
Leikfélag Vestmannaeyja f'runi-
sýna barnáleikritið Bangsimon og
vinir hans í Félagsheimili Vest-
mannaeyja við Heiðarveginn.
Bangsimon og vinir hans er eftir AA
Milne, en leikgerðin eftir Eric Olson.
Þýðingin er eftir Huldu Valtýsdóttur,
en nýir söngtextar í þýðingu Guð-
rúnar okkar Jónsdóttur.
Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason og
hannar hann einnig leikmynd, bún-
inga og sér um lýsingu. Alls taka átta
leikarar þátt í sýningunni og þar af fer
einn leikari með tvö hlutverk. Sagan
er klassísk og fjallar um Jakob og
saklausu dýrin hans, sem svo reynast
kannski ekki eins saklaus og þau vilja
vera láta, því þau fá þá hugmynd að
stela kengúrubami og lenda í alls kyns
ævintýmm í framhaldi af því.
Kengúrumamman tekur því til sinna
ráða til þess að endurheimta keng-
úrubarnið. Boðskapurinn einfaldur
og ljós. Allir eiga að vera vinir og það
er Ijótt að gera það sem er Ijótt.
Titilhlutverkið, Bangsimon, leik-
ur Guðmundur Kristinsson.
Mynd: Sigfús Gunnar.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 -sími 481
(<j-j) } Vetraráœtlun
Frá Eyjum Frá Þorl.höfn
Mán - lau Sunnudaga Aukaferðir föstudaga 1(1.08:15 kl. 12.00 kl. 14.00 kl. 18.00 kl. 15.30 kl. 19.00
Heriólfur /mícwÁi/id Sími 481 2800 Fax 481 2991