Fréttir - Eyjafréttir - 26.11.1998, Síða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 26. nóvember 1998
ffiáUóamfáimwéthw
Marinó Sigur-
steinsson skoraði í
síðustu viku á Sigurð
Sigurðsson frá Svan-
hól að taka við sem
sælkeri.
„Eg þakka „fyrr-
verandi“ vini mínum
Marinó Sigursteinssyni áskorunina og bið
hann hér með að skila mér sláttuvélinni.
Þá vil ég óska honum góðrar ferðar til
Kanaríeyja um jólin og vona að hann
eignist nýja vini þar. Það virðist í tísku
um þessar mundir að tilgreina sögur af
sælkerum. Marinó sendi Marý, konu sína
í bankann í óveðrinu á mánudag, treysti
sér ekki sjálfur. A leiðinni í bankann
heyrir Marý allt í einu rödd sem segir:
„Stoppaðu eða þú deyrð." Hún
snarstansar og í sömu svifum fýkur
járnplata rétt framhjá henni. Áfram
heldur hún, ætlar yfir götu og aftur heyrist
röddin: „Stoppaðu, eða þú deyrð!" Hún
stansar og í sama bili kemur bíll á
fleygiferð framhjá henni. Marý lítur upp
og segir: „Hver ert þú eiginlega, ertu
vemdarengillinn minn?" Röddin svarar
því játandi. Og þá segir Marý: „Hvar í
ósköpunum varst þú þegarég gifti mig."
Þetta verður að duga í bili í sögum af
Marinó en ég ætla í tilefni af komu
aðventunnar að kynna sannkallaðan
Sigurður Sigurðsson
er sælkeri þessarar viku
hátíðarrétt að hætti Elliðaeyinga. Hann
ætti að duga fyrir sex til átta manns.
Hátíðarsjávarréttur:
500 g humar
500 g hörpudiskur
Vi tsk. blaðlaukur
1 rauð paprika
1 græn paprika
2-3 sellerístilkar
500 g sveppir
matarolía og smjör til steikingar
1 tsk. karrý
1 tsk. paprikuduft
!4 tsk. cayenne pipar
3 msk. tómatkraftur
1 dl hvítvín eða mysa
2 dl rjómi
1 tsk. estragon
salt
sósujafnari
smávegis koníak (má sleppa)
Takið skelina af humrinum, skerið
niður papriku, blaðlauk, sellerí og sveppi.
Hitið olíuna og smjörið á pönnu. Stráið
karrýi, paprikudufti og cayenne pipar út í.
Snöggsteikið humar og hörpudisk á
pönnunni. Léttsteikið grænmetið saman á
pönnu, setjið tómatkraft, hvítvín (mysu),
rjóma, estragon og salt út í og sjóðið með
grænmetinu í nokkrar mínútur. Þykkið
sósuna með sósujafnara og bragðbætið
með koníaki ef vill. Setjið að lokum
hörpudisk og humar út í og hitið.
Þetta er borið fram með hrísgrjónum
og hvítlauksbrauði og gott er að fá
emmessís á eftir.
Eg ætla að skora á nafna minn, Sigurð
Sigurbjörnsson (Didda verri!!!), kranabíl-
stjóra hjá ísfélagi Vestmannaeyja. Ég veit
að hann mun hvorki bjóða upp á saltfisk
eða skötu en eitthvað mjög gott verður
hann ábyggilega með. Emma, fyrirgefðu."
O r ö
- Ein af mörgum upplýsingaóskum Odds Júlíssonar úr
bæjarkerfinu var að fá samning sem gerður var milli Free
Willie Keikó samtakanna og Vestmannaeyjabæjar. Oddur
mun hafa fengið samninginn á ensku og þótti ekki
fulinægjandi. Sendi hann því annað bréf oa óskaði eftir að
send yrði þýðing á íslensku. Mun Oddur nafa getið þess
sérstklega að þar sem flaggað væri í Ráðhúsinu í tilefni af
degi íslenskrar tungu hlyti mönnum þar á bæ að vera í lófa
lagið að beita fyrir sig því ágæta tungumáli sem íslenskan
væri jafnt í ræðu sem riti. Bréf þetta frá Oddi var tekið fyrir í
bæjarráði og upplýst að orðið hafi verið við bón þessari.
- Ekki mun vera fagurt yfir að líta I Elliðaey þessa dagana. Þar
liggja tugir fjár rotnandi, Elliðaeyingum og reyndar Eyja-
mönnumöllumtilskammar.
- Væringar munu nú vera milli fjárbænda og hestamanna
vegna landnytja suður á Eyju. Er rifist um land sem
fjárbændur hafa hingað til nytjað en mun nú vera að komast
í eigu hóps sem milli manna er kallaður Rögnvaldarnir. Þetta
s p o r
er eins og með fiskistofnana að menn eru sammála um að
allir eigi þetta en það eiga bara nokkrir að fá að nýta það.
Þarna deila semsagt tveir greifahópar, svona eins og ef
Samherji og Grandi væru að skipta á milli sín einhverri
smáútgerðinni.
- Það mun vera farið að vefjast nokkuð fyrir raunverulegum
hægrimönnum hverja þeir eigi að kjósa í vor. Málsvarar
Sjálfstæðisflokksins tala nefnilega í sífellu eins og um gamla
staðnaða austantjaldssellu sé að ræða. Vilja gefa Kára
einkarétt á þessari auðlind og öðrum einkarétt á annarri
auðlind. Aldrei bjóða út, aldrei stuðla að frjálsri samkeppni.
Þetta er afar þreytandi tuð fyrir þá sem nafa ennþá trú á
frjálsri samkeppm og halda að flokkurinn standi fyrir eitthvað
annað en sérhagsmuni. Reyndar þurfa sjálfstæðismenn
væntanlega ekki að hafa áhyggjur. Vinstri sameiningin
sundrar flokkunum þeim megin í áður óþekktar öreindir svo
ekki kemur samkeppnin þaðan. Þannig að við munum
sjálfsagt enn um nokkur ár lifa sæl í einingu í ríki Mosdals.
Fyrirgefiði, Davíðs, ætlaði ég að segja.
ALLTAF AÐ LÉÍU AÐ PMNGÚM
Jóhann Halldórsson er í hópi þeirra útgerðarmanna sem
ekki teljast meðat hinna allra stærstu. Hann á þó tvö skip,
Andvara og Suðurey og gerir bæði út, Andvara á rækju
en Suðurey á snurvoð. Jóhann er Eyjamaður vikunnar
að þessu sinni.
Fullt nafn ? Jóhann Halldórsson.
Fæðingardagur og ár? 24. október 1942.
Fæðingarstaður? Fáskrúðsfjörður.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Aðalbjörgu Bernódusdóttur.
Við eigum fjögur börn, þrjár stúikur og einn dreng. Barna-
börnin eru líka fjögur.
Menntun og starf? Stýrimannaskólinn í Vestmanna-
eyjum 1971. Starfa í dag sem útgerðarmaður (þ.e.a.s.
geri ekki neitt).
Laun? í samræmi við vinnuframlag,
Lilla ræðurþví.
Helsti gaiii? Sumirsegja að ég sé
fullkominn (þó ekki margir) þeir verða að
dæma um það.
Heisti kostur? Við skulum láta sömu aðila
um þau mál.
Uppáhaldsmatur? íslenska sauðkindin,
aðallega þó sé hún úrÁlsey, betra kjöt fæst
hvergiájarðríki.
Versti matur? Fiskur. Það er nóg að hafa
lifibrauðið af honum þó að maður þurfi ekki
að éta hann líka.
Uppáhaidsdrykkur? Það er vodkinn.
Uppáhaldstónlist? Bubbi er góður.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
gerir? Að vera uppi á hálendinu.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir?
Fara í verslunarferðir í útlöndum.
Jóhann Halldórsson
er Eyjamaður vikunnar
Hvað myndirðu gera efþú ynnir milljón í happdrætti? Ég
myndi bara halda mínu striki, það myndi ekki miklu breyta fyrir
mig, ég yrði að halda áfram að leita.
Uppáhaidsstjórnmáiamaður? Ætli það sé ekki Halldór
Ásgrímsson.
Uppáhaldsíþróttamaður? Um þessar mundir er það
skíðakappinn okkar, Kristinn Björnsson, hann erað gera það gott.
Ertu meðlimur ieinhverjum félagsskap? Já, Oddfellow.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttirnar eru skástar.
Uppáhaldsbók?GróðurjarðareftirKnutHamsun.
Hvað meturþú mest ífari annarra? Heiðarleika.
Hvað fer mest ítaugarnar á þér í fari annarra? Óheiðarleiki, ef
menn standa ekki við orð sín.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Fæðingarstaðurinn,
Fáskrúðsfjörður.
Hvernig er að gera út í dag? Ég held að það
sé alveg sæmilegt. Ég er búinn að vera í
útgerð í 30 ár og er alltaf að leita að peningum,
það er aðaistarfið.
Hvort er betra að gera út á snurvoð eða
rækju? Það er tvennt ólíkt, ágætt að gera út á
snun/oð efmaðurá nógan kvóta.
Ertu ánægðurmeð sjávarútvegsstefnu
stjórnvalda? Nei. Þaðsem ergott ídag er
orðið ómögulegt á morgun. Það er vont að
búa við eilífan hringlandahátt íþessum málum.
Hvað dettur þér íhug þegar þú heyrir þessi
orð?
Andvari? Rækjutogari.
Snurvoð? Suðurey.
Þorsteinn Pálsson? Sjávarútvegsráðherra.
Eitthvað að lokum ? Nei, þetta er fínt.
Stúlka Þann 7. október eignuðust Hildur Sigurðardóttir og Guðmundur
Jakob Jónsson dóttur. Hún vó 14 merkur og var 51 sm að lengd og fæddist
á Sjúkrahúsi Akraness. A myndinni með henni eru systkini hennar fv.
Andri, Asthildur og Sesselja
Drengur Þann 11. október eignuðust Hildur Hauksdóttir og Guðjón Ingi
Olafsson son. Hann vó 18 merkur og var 55 sm að lengd. Á myndinni með
honum eru systkini hans Daði og Dagmar. Ljósmóðir var Drífa
Björnsdóttir
A-A fundir
A-A fundir eru haldnir sem hér
segir í húsi félagsins að Heima-
götu 24: Sunnudaga kl. 11:00,
mánudaga kl. 20:30 (Spora-
fundir), þriðjudaga kl. 20:30
(kvennadeild), miðvikudaga kl.
20:30, fimmtudaga kl. 20:30,
föstudaga kl. 19:00 og 23:30 og
laugardaga, opinn fjölskyldu-
fundur, reyklaus, kl. 20:30.
Móttaka nýliða hálfri klukkustund
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Athugið símatíma okkar sem eru
hvern fundardag og hefjast 30
mln. fyrir ákveðinn fundartíma og
eru í 2 klst. í senn.
A döfinni
27. nóvember Konudekurkvöld á Hertoganum
28. nóvember Fjaran byrjar með jólahlaðborð
Hertoginn byrjar með
jólahlaðborð
30 bikarhátíð á Lundanum
Bangsimon vœntanlegur á
fjalirnar lijá Leikfélaginu
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VE^MA NNAEYINGA