Fréttir - Eyjafréttir - 26.11.1998, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 26. nóvember 1998
gurlínu á óvart með Lundúnaferð:
ar í Buckinghamhöll
Sigurlína grét begar úrslitin lágu fyrir.
hönd og allra
annarra er maður
bara feginn að hafa
unnið alla þessa
titla. Eg bara mátti
ekki bregðast þeim
og svo er þetta líka
góð auglýsing fyrir
Hressó og sýnir að
fólk sem hingað
kemur á ekki að
fara í sundlaugina
til að æfa.“
Nú er að baki
margra vikna
meinlætalíf hjá
Smáraog máhann
borða að vild.
Þegar rætt var við
Smára var hann á
leið í morgunverð sem átti að verða
enskur morgunverður með öllu
tilheyrandi.
Ferðin til London er trúlofunargjöf
Keikó-sjóðsins til Sntára og Sigurlínu
og vissi Sigurlína ekkert um ferðina
fyrr en þau komu út á flugvöll. „Eg lét
Nolan hringja í mig á sunnu-
dagsmorguninn og segja að ég þyrfti
að ná í pakka út á flugvöll. An þess að
Sigurlína tæki eftir henti ég einhverjum
fötum í tösku og tók hana með út á
völl. Þegar þangað kom fór ég í
brottfararsalinn en hún sagði að ég
væri að villast því pakkar væru
afgreiddir annars staðar. Þá varð ég að
segja henni hvað væri unt að vera. Það
var svo á ntánudagskvöldið í
Buckinghamhöll að ég bað hana að
trúlofast mér. „Sagði hún já?
„Auðvitað. Hún hefði aldrei sagt nei
við íslandsmeistarann í vaxtan'ækt."
son. Þó er ljóst að dómarar eiga oft ekki
auðvelt verk fyrir höndum þegar dæma
þarf á milli tveggja álíka góðra
keppenda.
Þennan vanda þurftu þeir þó ekki að
eiga við í +90 kg. flokknum, flokki
Smára Harðarsonar. Smári dansaði inn
á sviðið eins og sá sem valdið hefur.
Atti strax salinn, rútínan frábær eins og
alltaf, og sjálfur gat hann ekki verið í
betra formi. Samræmið er að verða
óaðfinnanlegt. Massinn þremur til
fjórum kílóum meiri en í fyrra, komið
fyrir á réttum stöðum. Skurðurinn
ótrúlegur. Hver æð sjáanleg og
trefjarnar í vöðvunum skinu í gegnum
næfurþunna, fitulausa húðina. Hann var
fyrstur inn í sínum þyngdarflokki en
það gat aldrei verið neinn vaft. Hann
átti titilinn. Vilhjálmur kom næstur og
loks annar Eyjamaður, Hermann Har-
aldsson. Hermann hefur bætt á sig
ótrúlegum massa síðastliðið ár en
nokkuð vantaði upp á skurðinn. Smári
vann flokkinn að sjálfsögðu með
glæsibrag. Eftir keppni í flokkunum
hófst keppni meðal þeirra bestu í
hverjum flokki, heildarkeppnin. Smári,
Jón Gunnarsson, og Guðmundur
Bragason voru sigurstranglegastir og
spenningurinn í salnum ótrúlegur þegar
fyrst var lesið upp nafn Jóns í þriðja
sætið. Næst átti að lesa upp nafn þess
sem næði öðru sæti og það kom í hlut
Guðmundar. Salurinn trylltist, Smári
trylltist og fögnuðurinn var gífurlegur.
Bikarinn til Eyja hljómaði um salinn.
Loksins hafði Smári erindi sem
erfiði. Hann hafði nú unnið tvo bikara
af þremur mögulegum. Eftir var að til-
kynna sigurvegara í rútínunni. Loksins,
sem síðasta atriði var sigurvegarinn
tilkynntur, enginn annar en, Smári
Harðarson. Hann hafði unnið þrjá bik-
ara af þremur mögulegum. Betur var
ekki hægt að gera. Smári Harðarson er
ekki aðeins Islandsmeistari, hann er
þrefaldur íslandsmeistari í vaxtarrækt
1998.
Guðniundur Eyjólfsson
Kristján Sigurðsson, lengst til hægri, varð í 2. sæti í sínum hvngdarf lokki. Er hann
einn fjögurra Eyjamanna sem bátt tóku í mótinu. Aðrir voru Hermann Haraldsson
en hann náði ekki verðlaunasæti.
Þeir eru Bunercup. Frá irinstri, Símon bassaleikari, Dauíð Þór Hlínason gítarleikari, Valur Heiðar
sönguari og Heiðar Kristinsson trommuleikari.
Valur Heiðar Sævarsson, söngvari hljómsveitarinnar Buttercup:
Hóf söngferilínn í
Framhaldsskólamim
Valur Heiðar Sævarsson, söngvari
hljómsveitarinnar Buttercup, hefur
í mörg horn að líta þessa dagana
því fyrsti diskur sveitarinnar er að
fara í dreifingu. Valur steig sín
fyrstu skref á á sviði í kareókí á HB-
Pub og þá kviknaði sá áhugi sem
leiddi hann þangað þar sem hann er
í dag. En það var ekki fyrr en hann
kom fram í uppfærslu Fram-
haldsskólans á Litlu hryllings-
búðinni að hann sló eftirminnilega í
gegn. Eftir það varð ekki aftur
snúið og nú fá landsmenn allir
tækifæri til að heyra hvað pilturinn
hefur upp á að bjóða.
Diskur Buttercup heitir Meira og á
að koma úl á morgun gangi allt að
óskum. En á föstudaginn voru þeir
með teiti fyrir vini og vandamenn og
blaðamenn og útvarpsmenn á veit-
ingastaðnum Astró í Reykjavík. Frétúr
tóku hús á piltunum og ræddu við Val
um veru hans f Eyjum, gleði og sorgir
á tónlistarbrautinni, Buttercup og
diskinn þeirra.
Valur fluttist ungur til Eyja með
móður sinni Steinunni Guð-
mundsdóttur sem rak m.a. tísku-
vöruverslunina Flott og flippað. Hann
stundaði hér nám við Framhalds-
skólann þaðan sem hann útskrifaðist
sem stúdent árið 1994. „Fyrsta tilraun
mín með raddböndin var þegar ég var
að djamma með Ingólfi Amasyni sem
nú er hljóðhönnuður á útvarpsstöðinni
Mono. Ingólfur er að gera það gott í
gerð stefja og auglýsinga fyrir Mono.
Hann var á hljómborðinu og ég söng í
þessu létta djammi okkar,“ segir
Valur.
Næsta skref var að taka þátt í
Kareókí-keppnumá vegum Fram-
haldsskólans sem þá voru vinsælar A
HB-Pöbb. „Þama komst ég í fyrsta
skipti á svið sem söngvari en næstu
reynslu hefði ég helst viljað gleyma,“
segir Valur hlær og á þar við
Söngvarakeppni framhaldsskólanna.
„Þetta bar brátt að og ég valdi lagið
með þriggja daga fyrirvara. Eftir á að
hyggja var þetta ágætis reynsla því
þama lærði maður hvað á að gera og
hvað ekki. Svo er það í tónlistinni eins
og öðra; maður verður að reka sig á.“
Þrátt fyrir að vera ekki að springa af
ánægju með frammistöðuna í Söngv-
arakeppninni lét Valur ekki deigan
síga og sló til þegar honum stóð til
boða að taka þátt í uppfærslu Fram-
haldsskólans á söngleiknum Litlu
hryllingsbúðinni. Reyndar sást hann
ekkert því hann lagði mann-
ætublóminu ógurlega til rödd. Vakli
frammistaða hans verðskuldaða
athygli. „Eg varð svo frægur aðyerða
Eyjamaður vikunnar í Fréttum. Eg var
ágætlega sáttur við minn hlut í þessari
uppfærslu. Ég reyndi að gera blómið
ógurlega enn hryllilegra en venja er og
það held ég hafi tekist ágætlega.
Þáttlaka í Hryllingsbúðinni var góð
reynsla enda vora góðir tónlistarmenn
með okkur, Sigurgeir Sigmunds og
fleiri. Maður fékk jákvæða dóma sem
byggði upp sjálfstraustið.“
Fyrir tæpum þremur áram lá leiðin
til Reykjavíkur og var Valur ákveðinn
í að reyna nú fyrir alvöru sem
söngvari. Fyrsta árið í Reykjavík fór í
að leita fyrir sér. „Tíminn fór í að afla
sér reynslu og sjá hvað hentaði mér.
Fyrir tveimur áram gekk ég dl liðs við
gífurlega góða stráka. Stráka með
reynslu í tónlistargeiranum og hljóm-
sveitin Buttercup varð tíl,“ segir Valur
Þegar Valur er beðinn um að
staðsetja Buttercup í tónlistarflóranni
segir hann að þeir leiki poppað rokk
með heldur meiri áherslu á rokkið.
„Við eram kraftmeiri en þessar
dæmigerðu poppsveitir sem virðast
ganga vel í landann. Má segja að við
séum rokkmegin við poppið.“
Síðan hafa hjólin farið að snúast hjá
þeim félögum og nú er svo komið að
Valur segir að þeir geti ekki kvartað
yfir því að hafa ekki nóg að gera.
„Sfðasta árið hafa aðeins þrjár helgar
dottið úr hjá okkur í spilamennskunni.
Allir vilja fá okkur þannig að við fáum
næg tækifæri til að útbreiða fagn-
aðarerindið. Það er kannski helst að
við verðum að passa að fólk verði ekki
leitt á okkur."
A böllum er Buttercup mest með
lög eftir aðra en inn á rnilli skjóta þeir
lögum eftir sig sjálfa. Þar á meðal er
smellurinn frá í sumar, Meira dót sem
kom út á safndiskinum, Svona var
sumarið 1998. „Það er gaman þegar
okkar eigin lög era farin að toppa í
dagskránni. En maður getur orðið svo-
lítið leiður á þeim eftir að hafa spilað
þau fjórum til fimm sinnum á balli,"
segir Valur en hvort syngja þeir um
meira dót eða meira dóp? „Við
segjum meira dót en hver útkoman er
fer eftir hugarfari hvers og eins en ég
viðurkenni að þetta er á gráu svæði.“
Eins og áður hefur komið fram
heitir nýi diskurinn Meira sem gefur
fyrirheit um að Buttercup láti ekki
staðar numið með þessari frumraun
sinni. Valur segir að diskurinn hafi
verið í vinnslu í tvö ár og er hann að
öllu leyti verk hljómsveitarmeðlima.
„Já, við gerðum allt sjálfir en Skífan
mun sjá um dreifinguna. Við erum
allir í fastri vinnu og urðum því að
vinna við diskinn á nóttinni. Auðvitað
hefðum við viljað fá meiri tíma í
hljóðveri en við eram sáttir við
útkomuna.“
Öll lögin á diskinum eru eftir
meðlimi Buttercup og segir Valur að
þau séu mjög ólfk. „A diskinum er að
fmna vals, sænsk áhrif og róleg og
kröftugri lög. Það er leitað til allra átta
en þrátt fyrir það er útkoman
heildstæð. Við höfðum úr nógu að
velja því við eigum efni á þrjá til fjóra
diska.“
Vonir standa til að diskurinn komi í
verslanir á morgun og þá á eftir að
fylgja honum eftir. Það verður gert
með auglýsingum og Valur gerir ráð
fyrir stífri spilamennsku fram að
jólum. „Utgáfutónleikar verða á
Gauknum 2. desember og svo er
meiningin að drífa sig til Eyja fyrir
jól,“ sagði Valur sem að lokum bað
um kveðjur til Eyja.
Jólarásin í
tólfta sinn
Eins og undanfarin ár fer
útvarpsstöðin Jólarásin FM
104,7 í loftið um iniðjan des-
ember í tólfta sinn. Jólarásin er
því orðin fastur punktur í jóla-
haldi Vestmannaeyinga. Rekstur
þessarar útvarpstöðvar hefur
verið í höndum unglinga í Eyjum
og í nánum tengslum við Féló.
Rekstur útvarpsstöðvarinnar er
að sjálfsögðu nokkuð fjárfrekur og
hefði aldrei orðið að veruleika ef
fyrirtæki og einstaklingar í bænum
hefðu ekki stutt framtakið með
ráðum og dáð..
Eins og áður segir mun
Jóalarásin fara í loftið um miðjan
desember og verða útvarpað 24
tíma á sólarhring, ef undanskilið er
hlé á útsendingum frá hádegi
aðfangadags og allan jóladaginn.
Símanúmer Jólarásarainnar 104,7
era: 481-1980,481-2280 og faxið:
481-2680