Fréttir - Eyjafréttir - 26.11.1998, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 26. nóvember 1998
Fréttir
15
Vlnnslustöðin með heimasíðu
www.vsv.is
Vinnslustöðin hf. hefur opnað
heimasíðu með slóðina www.vsv.is.
Viðtökur hafa verið mjög góðar
enda er hér um vandaða og öfluga
heimasíðu að ræða sem leggur
áherslu á að vera með ferskar
fréttir af starfsemi fyrirtækisins,
m.a. af aflabrögðum. Þess má geta
að fréttir af aðalfundi Vinnslu-
stöðvarinnar hf. birtust á heima-
síðunni aðeins klukkustund eftir
að fundinum lauk!
Að sögn Þorsteins Gunnarssonar,
upplýsingafulltrúa, er að finna nýjar
fréttir af starfseminni og aflabrögð-
um, sögu Vinnslustöðvarinnar er að
finna í máli og myndum, kynn-
ingarefni um starfsemi fyrirtækisins í
dag, hægt er að lesa fréttabréfið
Vinnsluna, ársskýrsluna, sækja um
atvinnu auk annars sem ætti að
auðvelda hluthöfum, starfsfólki og
öðrum áhugasömum að fylgjast með
gangi mála í Vinnslustöðinni.
Nemendur í 7.EB í Bamaskóla
Vestmannaeyja aðstoðuðu við gerð
þessarar heimasíðu undir stjóm
Eyglóar Bjömsdóttur kennara en
bekkurinn tekur þátt í svokölluðu
Comeliusverkefni sem hægt er að
kynnast á heimasíðunni. Þá veitti
Tryggvi Gunnarsson í Tölvun
sérfræðiaðstoð.
Allar ábendingar unt heimasíðuna
er vel þegnar. Sendið línu til
vsv@vsv.is.
Að sögn Þorsteins er unnið að
útgáfu heimasíðunnar á ensku og
verður hún tilbúin á næstunni.
LESENDABREF - Aldís Tryggv/adóttir skrifar:
Styrkur Ástrala felst / tordóma-
leysi þeirra og umburðarlyndi
Halldór Waagfjörð sagði ekki mikið
um Astralíu í viðtali við Fréttir í ágúst
98. Það hryggði mig þó og vakti reiði
hversu neikvæður hann var. Það er
alltaf sorglegt að sjá þar sem menn
ráðast á þá sem minnimáttar eru.
Halldór vitnar í stjómmálamanninn
Pauline Hanson og hversu vel flokki
hennar gekk í fylkiskosningunum.
Hér í Astralíu em búnar að vera
þjóðarkosningar síðan viðtal Frétta við
Halldór fór fram. Og viti menn
utanríkisráðherrann hafði rétt fyrir sér.
„Bólan“ sprakk og Pauline, og
kynþáttamisrétti hennar sprakk líka.
Flokkur hennar „One nation" kom
engum ntanni á þing og hún missti sitt
eigið sæti.
Halldór talar um að Asíumenn
vinni fyrir nokkra dollara á dag og taki
vinnu frá öðm fólki. Kannski ætti
hann frekar að benda á þá sem
misnota sér aðstæður innflytjenda og
borga þeim ekki sanngjamt kaup.
Hvemig svo hver og einn eyðir kaupi
sínu kemur kannski engum við nema
þeim sent kaupið fær. Eg er ekki viss
um að Asíumaðurinn sem Halldór
ásakar unt að lifa á bolla af hrís-
grjónum á dag sé sammála því hvem-
ig Halldór eyðir sínum peningum.
Ein af ástæðum fyrir reiði minni er
sú að ég á einmitt velgengni mína í
þessu landi Asíumanni að þakka. Eg
hef alltaf talið styrk Ástrah'umanna
hversu fordómalausir og umburðar-
lyndir þeir eru. Var það ein af aðal
ástæðum mínum að verða ein af þeim
Sigurður Jónsson, frístundabóndi
hefur ýmislegt að athuga við frétt í
síðasta blaði þar sem sagt er frá
dauðu lambi sem sett hafði verið
innan við girðingu í Sorp-
eyðingarstöðinni.
Fyrir það fyrsta segir Sigurður að
þama hafi verið um að ræða lamb frá
í vor en ekki kind eins og haldið var
fram í umræddri frétt. „Lambið hefur
sennilega drepist úr bráðapest og var
mér tilkynnt um að það lægi í
krikanum suður á Breiðabakka," segir
Sigurður.
Hann segist hafa tekið lambið og
keyrt því upp í Sorpu þar sem hann
kom að lokuðum hliðinu. „Þá voru
góð ráð dýr en ég dröslaði lambinu út
úr bflnum. Kom ég því fyrir upp við
hleðsluvegg en setti það alls ekki á
og taka upp ástralskan ríkisborgara-
rétt, eins og svo margir Asíubúar hafa
einmitt gert.
berangur. Tók ég vinstra eyrað af sem
hafði markið stýft. Á því var einnig
gult merki með tölum á sem ég tók
með heim til að fullvissa mig um
hvaða lamb væri að ræða. Hægra
eyrað, sem hefur margfalt meira gildi
en það vinstra, skildi ég eftir. Það var
með markinu sneiðrifað framan hægra
og hefur verið innan íjölskyldunnar í
yfir 80 ár. Það er enginn með þetta
mark hér nema ég. Svo er ýjað að
hugleysi hjá mér og að ég hafí ætlað
að fela slóðina með því að skera
vinstra eyrað af. Þeir eru meira en lítið
viðkvæmir Sorpumenn að þola ekki
að sjá dautt lamb. Svona skrif eru
einungis til þess fallin að tæta
mannorðið af þeim sem fyrir þeim
verður og að endingu; hver sýndi
skepnuskap íþessu máli?“
Með þökk fyrir birtinguna
Aldís Tryggyadóttir
Sidney Ástralíu.
HversyndiskepnuskapP
tuu
«22« 2
«UII
Snemma í ágústtók Eimskip í Vestmannaeyjum í notkun færanlegt löndunarskýlí til flokkunar og plöstunar á
frystum f iskafurðum sem landaúerúr frystiskipum á vegum Eimskips.
Að sögn Braga Júlíussonar verkstióra hjá Eimskip í Eyjum, hefur hetta gefist mjög vel, en sambærileg skýli
hafa verið í notkun um nokkurt skeið hjá Eimskip í Hafnarfirði og á næstunni mun svona löndunarskvli verða
tekið í notkun á Akureyri. „Þetta er mjög pægilegt í misjöfnum veðrum, hvort heldur í úrkomu eða mikilli sól og
er liður í hví markmiði Eimskips að vanda vörumeðferðina og aðbúnað starfsfólksins um leið."
Bragi segir að áður hafi frystivörunni verið keyrt upp í vöruskála Eimskips á lyfturum og varan flokkuð og
plöstuð har inn á gólfi. „Nú getum við ekið skýlinu að skipshlið, flokkað og plastað, og ekið vörunni beint í
frystígáma. Einnig er betta mjög til bæginda að geta lokað skýlinu, begar starfsmenn fara í mat og kaffi í stað
bess að vera með vöruna dreifða um alla bryggju, eins og áður var," sagði Bragi Júlísson verkstjóri ánægður
meðaðstöðuna.
Jólaföndur á Kirkjugerði
Foreldrafélagið á Kirkjugerði stendur
fyrir jólaföndri á leikskólanum næst-
komandi laugardag 28. nóvember
kl.l 1 - 13. Föndurefni verðurtil sölu
á kostnaðarverði ásamt léttum veit-
ingum. Foreldrar/forráðamenn eru
hvattir til að mæta með bömum sínum
og njóta þess að koma saman á fyrstu
helginni í aðventu.
Foreldrafélagið á Kirkjugerði var
stofnað haustið 1995. Það hefur að
meginmarkmiði að tryggja velferð og
hagsmuni bamanna í góðri samvinnu
við starfsfólk leikskólans. Einnig
hefur félagið tekið virkan þátt í ýmiss
konar starfsemi leikskólans og staðið
fyrir árlegum uppákomum s.s. jóla-
föndri og vorgleði.
Síðast en ekki síst hefur félagið
beitt sér fyrir úrbótum þar sem þeirra
hefur verið þörf. Má þar neína vel
heppnaðar breytingar og úrbætur á
baklóð leikskólans sem var tekin í
notkun í október sl. En félagið átti
drjúgan þátt í að þrýsta á um
sannarlega aðkallandi lagfæringar.
Vill stjóm foreldrafélagsins af því
tilefni lýsa yfír ánægju sinni með
endurhönnun baklóðar og þakkar
skjót viðbrögð og gott samstarf við
bæjaiyfirvöld.
Stjórn
Foreldrafélagsins á Kirkjugerði
LESENDABREF - OddurJúlíusson skrifar:
Af stjórnsýslu
I umræðum í bæjarstjóm þann 12.
nóvember barst svohljóðandi tillaga:
„Bœjarstjórn Vestmannaeyja satn-
þykkir að svör bœjarins, er varða
fyrirspumir bœjarbúa um stjómsýslu
og rekstur bœjaifélagsins, verði lögð
fram í bœjarráði áðuren þau em send
út. “
Þorgerður Jóhannsdóttir
Ragnar Oskarsson
Guðrún Erlingsdóttir
Beðið var um fundarhlé og var það
veitt.
Svohljóðandi breytingartillaga barst:
„Svör við fyrirspum verði lögðfram í
samræmi við sveitarstjómarlög og
samþykktir Vestmannaeyjabœjar."
Sigurður Einarsson
Elsa Valgeirsdóttir
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Guðjón Hjörleifsson
Hér er Sigurður Einarsson, löglærður
maður, efstur á blaði og fer greinilega
fyrir því liði sem telur þörf á
tillöguflutningi um að málum sé
hagað í samræmi við sveitar-
stjórnarlög og samþykktir Vest-
mannaeyjabæjar.
Ég vek athygli á ofangreindri
staðreynd og spyr; er þess að vænta að
bæjarstjórn geri fleiri samþykktir um
að virða lög og fundarsköp?
Höfundur starfar hjá
Vestmannaeyjabæ.
Talsvert mlnni afli í
árenífyrra
Nýkomnar eru tölur frá Fiskistofu um landaöan afla innanlands á þcssu
ári, frá 1. janúar til 31. október. Einnig er yfirlit yflr iandaðan afla í
október. Þá fylgja til samanburðar samsvarandi tölur frá síðasta ári.
Landaður atli í Vestmannaeyjum í október 1998:
þorskur ýsa ufsi karfi sfld Alls
345 97 226 362 678 3.302
Október 1997: 779 302 446 362 2.030 4.887
Eins og sjá má er minni afh í októbermánuði á þessu ári í nær öllum þessum
tegundum og í heildina er rúmlega 1500 tonnum minni afli nú en í fyrra.
Langmest munar þar um minni síldarafla. Rétt er að alhuga að aðeins em hér
birtar tölur um þær tegundir þttr sem mestur aíli er en sleppt tegundum á borð
við steinbít, lúðu, skarkola o.fl.
Landaður afli í Vestmannaeyjum l.jan,- 31. okt. 1998:
þorskur ýsa ufsi karfi sfld ioöna Alls:
10.299 2.374 4.114 3.386 1.557 80.667 117.304
1. jan.-1. okt. 1997:
9.695 3.496 5.130 3.259 6.966 134.531 169.134
Hér munar miklu í afla milli ára eða rúmum 50 þúsund tonnum. Langmest
munar þar um minni loðnuafla á vertíðinni sl. vetur en einnig munar miklu í
sfldarafla. Afli milli ára eykst aðeins í þorski og karfa.