Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1998, Blaðsíða 1
Hver eyðilagðl bílinn
hennar IngibjargarP
Ingibjörg Bjarna-
dóttir varð fyrir
þeirri óskemmti-
legu reynslu um
síðustu helgi að
bíllinn hennar var
eyðilagður þar
sem hann stóð
austur við Skans.
Bíllinn er af gerðinni Mazda 323,
árgerð 1985 og lagði Ingibjörg honum
við Skansinn eftir hádegi á sunnu-
daginn þegar hún fór að viðra
hundinn. „Þegar ég kem til baka fer
bíllinn ekki í gang þannig að ég varð
að skila hann eftir,“ segir Ingibjörg.
„Eftir vinnu á mánudaginn fór ég að
huga að bflnum og var aðkoman
Fyrsta nýsmíði fyrir Vestmanna-
eyjaflotann um árabil er nú að
verða að veruleika. Fréttir hafa
fyrir því áreiðanlegar heimildir að
útgerð Hugins VE hafi ákveðið að
láta smíða nýtt skip í Chile.
Gengið mun verða frá samningum
eftir næstu helgi. Skipið verður 1800
brúttórúmlestir að stærð, 68 m að
heldur óskemmtileg. M.a. var búið að
bijóta rúður og svissinn var ónýtur. Er
bfllinn það mikið skemmdur að mér
er sagt að ekki borgi sig að gera við
hann.“
Ingibjörg segist gera sér grein fyrir
því að verðmætið sé ekki mikið í þetta
gömlum bfl en segir að fyrir sig sé
þetta tilfinnanlegt tjón. Ástandið hjá
mér er þannig að ég ætlaði að keyra
bflinn út. Þetta er því mjög til-
finnanlegt tjón fyrir mig, ekki síst á
þessum tíma nú þegar styttist til jóla.
Ég geri engum illt hér í Vest-
mannaeyjum og veit ekki hvers ég á
að gjalda. Vil ég hér með lýsa eftir
vitnum að þessu skemmdarverki,"
sagði Ingibjörg að lokum.
lengd og 14 m á breidd. Til saman-
burðar má geta þess að Huginn VE er
475 brúttórúmlestir. Ekki er vitað um
heildarkostnaðarverð enda mun það
ekki liggja fyrir fyrr en við endanlega
samningagerð. Áætlað er að skipið
verði tilbúið í janúar árið 2000.. Eldri
Huginn verður væntanlega seldur
þegar að því kemur.
ttkumaður sleppur ótrúlega vel
Betur fór en á horfðist á sunnudagskvöld þegar bífreið fór út af útsýnispalli
austur á nýja hrauni. Hrapaði hún um tíu metra niður fyrir pallinn en
ökumaður slapp með minniháttar meiðsli.
Svartaþoka var þegar óhappið átti sér stað. Ökumaðurinn, Jón Ægir Jónsson,
18 ára gamall, uggði ekki að sér, bifreiðin lenti á steini í kanti pallsins og síðan
valt hún niður brattan slakkann í hraunið fyrir neðan. Jón Ægir var einn í
bifreiðinni og er talið að hann hafi legið meðvitundarlaus í u.þ.b. klukkustund
áður en hann raknaði úr rotinu. Hann komst við illan leik í bæinn en lögreglan
flutti hann síðan á sjúkrahúsið þar sem gert var að sárum hans. Jón Ægir
reyndist rifbeinsbrotinn og skorinn í andliti og handleggjum en þykir hafa
sloppið undravel, miðað við aðstæður. Er talið að líknarbelgur og bflbelti hafi
bjargað lífi hans en bifreiðin er að öllum líkindum ónýt.
Ami lohnsen er ekki einn um hituna
Eins og ákveðið hefur verið mun
verða viðhaft prófkjör laugardag-
inn 6. febrúar 1999 um val fram-
bjóðenda Sjálfstæðisflokksins á
Suðurlandi við næstu alþingis-
kosningar.
Eins og kunnugt er hefur Árni
Johnsen gefið kost á sér í 1. sæti
listans, en fleiri eru nú að hugsa sér til
hreyfmgs. Þeirra á meðal eru Óli
Rúnar Ástþórsson framkvæmdastjóri
sem gefur kost á sér í 1.-2. sæti,
Kristín Þórarinsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur í Þorlákshöfn gefur kost á sér í
2.-3. sæti. Kjartan Ólafsson garð-
yrkjustjóri og Bjöm Kjartansson
rakari hafa einnig gefið út að þeir gefi
kost á sér í 1; sæti listans.
Óli Rúnai' Ástþórsson framkvæmda-
stjóri Atvinnuþróunarsjóðs Suður-
lands hefur tilkynnt að hann muni
taka þátt í prófkjörinu. Óli Rúnar er
Eyjamaður búsettur á Selfossi. Óli
Rúnar segir að hann ætli að gefa kost
á sér í 1.-2. sæti listans. „Ég er nýtt
andlit í pólitfldnni og hef eldrei
starfað í pólitík. Hins vegar tel ég
mig vel kynntan í gengum Atvinnu-
þróunarsjóð og mun nota reynslu
mína þar til þess að vinna að byggða-
og atvinnumálum. Ég er sannfærður
um að reynsla mín í því starfi muni
nýtast mér á þingi.“
Óli Rúnar segir að erfitt sé að meta
fylgi sitt í Vestmannaeyjum á þessu
stigi málsins, enda framboðsffestur til
7. janúar. „Ég tel mig eiga góðan
stuðning á öllu Suðurlandi, en um
stuðning í einstökum byggðarlögum
get ég ekki dæmt nú á þessu stigi.
Eins og ég sagði er ég nýtt andlit í
pólitfldnni og þarf kannski að kynna
mig betur en þeir sem hafa þekktari
andlit. En þetta er hin lýðræðislega
leið og það kostar alltaf sitt að taka
þátt í slflcri baráttu,“ segir Óli Rúnar.
Kristín Þórarinsdóttir sem gefur kost
á sér í 2.-3. sæti listans segist aldrei
hafa tekið þátt í prófkjöri áður. „Ég
hef alltaf verið virk í sveitarstjóm-
armálum og í flokknum. Mér finnst
að konur eigi að láta meira til sín taka
og meðal annars þess vegna býð ég
mig fram.“
Aðspurð um það hvemig hún meti
stöðu sína í Eyjum sagði hún. „Ég
styð öll góð mál og finnst að ekki sé
hægt að leggja málin þannig upp að
taka ákveðna staði út úr,“ segir
Kristín.
ísfélagið gefur
ferskasíld
í annað skiptið á nokkrum árum
hafa forráðamenn Isfélagsins á-
kveðið að gefa þeim sem vilja fersk
sfldarflök, með eða án roðs.
Sigurður Einarsson, forstjóri, segir
að sfldin verði afhent í fiskvinnslu
félagsins að Strandvegi 102. „Trausti
Marinósson, verkstjóri, sér um að
koma sfldinni til fólks. Verður það á
milli klukkan 13.00 og 17.00 í dag og
á morgun. Þeir sem hafa áhuga á að
nýta þetta tækifæri hafi samband við
Trausta og er gengið inn að vestan-
verðu,“ sagði Sigurður.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 ■ Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ.
Græðisbraut 1 ■ sími 4813.
Vetraráœtlun Herjólfs
Mán - lau
Sunnudaga
Aukaferðir föstudaga
Frá Eyjum Frá Þorl.höfn
kl. 08.15 kl. 12.00
kl. 14.00 kl. 18.00
kl. 15.30 kl. 19.00
/míaw /ti/ið
Sími 4812800 Fax 481 2991
Heriólfur