Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1998, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 10. desember 1998
Svipaður erill og
síðast
Nokkur erill var hjá lögreglu um
síðustu helgi. Alls voru skráðar
færslur í dagbók 156 talsins yfir
vikuna og er það sami Ijöldi og í
síðustu viku.
Enn fínnast fíkniefní
Því rniður virðist sá Örðrómur, sem
uppi hefur verið um aukna fíkni-
efnaneyslu í bænum, hafa við rök
að styðjast. Á mánudag vom fimm
ungmenni færð á lögreglustöðina
vegna gruns um fíkniefnamisferli.
Við leit í bifreið, sem þau voru í,
fundust áhöld til neyslu slíkra efna
og eitt gramm af hassi. Eitt ung-
mennanna viðurkenndi að eiga
efnið og áhöldin og telst málið því
upplýst.
Happabrennumstolið
Svo virðist sem óheiðarleiki manna
þessa dagana beinist einkum að
ýmiss konar happdrættum. 1 síð-
asta blaði sögðum við frá því að
brotinn var upp spilakassi og hann
tæmdur. í síðustu viku var kært lil
lögreglu að stolið hefði verið
happaþrennum úr versluninni
Tuminum. Ekki er vitað hver þama
var að verki en lögreglan óskar eftir
upplýsingum frá þeim sem eilthvað
vita um þjófnaðinn.
Tuöskemmdarverk
Lögreglu bárust í vikunni tvær
kærur vegna skemmdarverka. Til-
kynnt var um skemmdir í kyndi-
klefa Félagsheimilisins á miðviku-
dag í síðustu viku og sl. mánudag
var tilkynnt um skemmdir á bifreið
sem stóð austur við Skans. Óskað
er eftir upplýsinguin um bæði þessi
skemmdarverk.
Brotakippuríumferðmni
11 ökumenn vom kærðir í vikunni
vegna brota á umferðarlögum og
eru það mun fleiri kærur en á
undanfömum vikum. Einn þessara
ökumanna er grunaður um ölvun
við akstur, Ijórir voru kærðir vegna
hraðaksturs, fjórir fyrir að hafa ekki
belti spennt við akstur, einn fyrir að
leggja bíl ólöglega og einn sem
ekki hafði Ijósabúnað í lagi.
Tíummjónir
Á fundi bæjarráðs á mánudag
lögðu bæjarfulltmar Sjálfstæðis-
tlokksins til að Lífeyrissjóður
starfsmanna Vestmannaeyjabæjar
legði fram tíu milljónir króna sem
hlutafé í hið fyrirhugaða Fjárfest-
ingafélag Vestmannaeyja en það
hefur það markmið að auka
fjölbreytni atvinnuíffs. Yrði þetta
gert samkvæmt nánara samkomu-
lagi við stjómendur hins nýja
félags. Tillagan var samþykkt en
Ragnar Óskarsson lét bóka að hann
væri hlynntur hugmyndinni en
enginn fundur hefði verið haldinn í
stjóin Lífeyrissjóðsins um málið.
Únotað pláss á leíkskóla
Fyrir sama fundi bæjarráðs lá fyrir
bréf frá skólamálaráði þar sem lagt
er til að endurskoða þurfi viss atriði
í samningi bæjarins við Hvíta-
sunnusöfnuðinn vegna reksturs
leikskólans Betel. Ragn;ir Óskars-
son lét bóka að samkvæmt bréfinu
væri talsvert af ónotuðu plássi á
leikskólanum sem hentað gæti eins
árs börnum eða bömum á
skólaaldri.
Sparisjóðurínn tekur ínotkun nýtt tölvukerfi:
Notkun pappírs í lágmarkí
-Eflirleiðis verða allir reikningar bókalausir
Á mánudaginn tekur Sparisjóður-
inn í nntkun nýtt tölvu- og af-
greiðslukerfi sem á að fiýta allri
afgreiðslu og gera hana öruggari.
Notkun pappírs verður í lágmarki
og allir rcikningar verða bóka-
lausir.
Benedikt Ragnarsson, sparisjóðs-
stjóri, segir að undirbúningur breyt-
inganna hafi staðið í nokkurn tíma og
hefur starfsfólkið sótt námskeið í
Reykjavík til að búa sig undir að vinna
með nýja kerfinu. „Það sem
viðskiptavinurinn verður helst var við
er, að innleggs- og úttektarmiðar
hverfa alveg. Þess í stað kvittar við-
skiptavinurinn fyrir viðskiptin á
rafrænan hátt á þar til gerða skrifplötu.
Að því loknu fær hann strimil með
undirskriftinni og þeim viðskiptum
sem hann átti við okkur,“ segir Bene-
dikt.
Afgreiðslukerfið er hannað af
Tölvumiðstöð sparisjóðanna og er
þegar komin nokkur reynsla á það.
„Sparisjóður Reykjavíkur hefur tekið
kerfið í notkun á nokkmm stöðum og
sama er að segja um sparisjóðina á
Bolungarvík og Höfn. Þá hefur
Landsbankinn ákveðið að kaupa
kerlið og verður það sett upp í öllum
afgreiðslum bankans."
Benedikt segir að forráðamenn
sparisjóðanna séu mjög stoltir yfir því
hvernig til hefur tekist. „Kerfið
spannar allt sviðið frá a til þ eins og
þeir segja en það stendur fyrir
afgreiðslu til þjónustu. En aðalatriðið
er að kerfið býður upp á fljótlegri,
einfaldari, betri og ömggari þjónustu."
Nánari skilgreining á kerfinu er að
unnið er út frá kennitölu hvers og eins.
Engin prentun verður og engin
stimplun á skjölum. Öll útprentun
verður í lágmarki, allir reikningar
verða bókarlausir og viðskipta-
vinurinn staðfestir afgreiðslu með
undirskrift sinni á skrifplötuna. Við
lok hverrar afgreiðslu fær við-
Guðbjörg Guömundsdóttir sýnir hvernig kvittað verður fyrir þjönustuna
í Sparisjóðnum í Reykjavík. Sjálf segist Guðbjörg hafa kynnst bessum
afgreiðslumáta í Reykjavfk og líkað vel.
skiptavinurinn samantekt og yfirlit yfir
sem gert var á hans kennitölu, þ.e.
viðskiptakvittun. „Við emm bjartsýn á
að með þessu sé verið að bæta þjón-
ustuna og viðskiptavinurinn verður
áfram í öndvegi," sagði Benedikt að
lokum.
Hækkun og lækkun
Á fundi skólamálaráðs í síðustu
viku var saniþykkt að hækka
daggjöld á leikskólum í samræmi
við launavísitölu, um 1.38%.
Eftir hækkunina verður almennt
tímagjald 1843 kr. en gjald ein-
stæðra foreldra 1290 kr. Þá voru
lagðar til breytingar á fæðis-
kostnaði og innheimtu hans.
Helstu breytingamar em að
afsláttur á fæðiskostnaði vegna
systkina verður felldur niður, ný
gjaldskrá tekur gildi sem felur í sér
lækkun frá því sem verið hefur,
fæðiskostnaður verður innheimtur
eftir á og reglur um niðurfellingu
fæðisgjalda, vegna tímabundinnar
fjarveru leikskólabarna, verða
rýmkaðar.
Tónlíst og töluumál í
leikskólana
Ýnisir aðilar virðast hafa hug á
að gcra lcikskólafólki h'fið lcttara.
T.d. hefur skólastjóri tónlistar-
deildar Listaskólans boðið að
börn úr tónlistardeildinni kæmu
á leikskólana nú fyrir jólin og
lékju þar jólalög.
Skólamálaráð tók þessu boði
fagnandi. Þá hefur Athafnaverið
boðið aðstöðu fyrir leikskólaböm í
tölvumálum. Því fylgir að vísu ein-
hver kostnaður en hugmyndin mun
vera að bæjaryfirvöld greiði hann
niður að hluta en foreldrar að
einhveiju leyti.
Að þessu sinni fengu allir nemendur skólanna bæklinginn Lifandi ljós, lifandi hætta en hann fjallar, eins og nafnið bendir til, um þá hættu sem fylgir
allri meðferð með óvarinn eld. Nemendur 3. bekkjar fengu auk þess verkefni varðandi brunavamir heimilisins til að leysa heima. Að launum fá þau
nýja rafhlöðu í reykskynjarann. Nemendur heimsóttu slökkvistöðina þar sem farið var yfir brunavamir heimilisins, kveiktur eldur í potti.
reykskynjarinn prófaður og kennd handbrögð við notkun eldvamateppis. Áður en bömin yfirgáfu stöðina voru þau leyst út með smágjöfum frá
Brunavarðafélagi Vestmannaeyja, slökkvistöðinni og Landssambandinu. Á myndinni em tveir félagar úr Bmnavarðafélagi Vestmannaeyja, þeir Stefán
Jónsson og Sigurður Georgsson að útdeila gjöfum til nemendanna.
FRETTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjómar. Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt I áskrift og einnig I lausasölu í Turninum, Klecti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á ReykjavíkurflugvelIi. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.