Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1998, Qupperneq 11
Fimmtudagur 10. desember 1998
Fréttir
19
Lengi lifir í gömlum glæðum hjá Elíasi Bjamhéðinssyni sem kominn er hátt á fertugsaldurinn:
Gerir það gott í
sænskum handbolta
Elías Bjarnhéðinsson hefur ekki
farið troðnar slóðir í lífínu. Var
fyrirferðarniikill unglingur seni
ekki mætti alltaf skilningi og
reyndar fannst sumum nóg um
fyrirferðina í pilti. Á sfnum tíma
valdi hann handboltann sem sína
íþrótt og náði m.a. að komast upp í
1. deild með félögum sínum í Þór og
hélt áfram eftir að Þór og Týr
sameinuðu handholtann undir
merki IBV. Ekki var ferillinn alveg
hnökralaus því alltaf átti Elías í
töluverðri baráttu við sjálfan sig og
í þeirri baráttu skaut E1 Puerco upp
kollinum og hann hafði sko engan
áhuga á handbolta eða öðru sem
krafðist líkamlegrar áreynslu. Fyrir
átta árum lá Elíasar til Svíþjóðar og
auðvitað var E1 Puerco með í för.
Fyrir ári gáfu þeir út disk sem þeir
fylgdu eftir með tónlistarfíutningi
hér á landi. Þar með skildu leiðir,
Elías er kominn á fullt í sænskum
handbolta með níu til tíu mörkum í
leik. Þar með er ekki öll sagan sögð
því þegar rætt var við hann á
föstudagsmorguninn var hann
nýbúinn að fá í hendur prófskírteini
sem tölvutæknir með tölvusam-
skipti sem sérsvið.
„Ég var að fá plaggið í hendumar
og starfsheitið er netverktekniker á
sænsku sem ég veit ekki hvað hægt er
að kalla á íslensku. Starfíð felst í að
setja upp tölvur, tölvunet og að stilla
og samhæfa tölvur," sagði Elías þegar
rætt var við hann árla dags á
föstudaginn.
Til SiríMoðar á eftlr
kærustunni
Elías fór til Sviþjóðar fyrir átta ámm
eftir að hann hafði kynnst kærustunni,
Ericu Nilsson sem kom til Eyja frá
Svíþjóð til að vinna í fiski. Erica, sem
er öryggisvörður, stundar nú nám í
íjölmiðlafræði með margmiðlun sem
sérsvið. „Núna búunt við í sitt hvorri
borginni, Erica býr í Skellefdeá þar
sem hún stundar sitt nám og ég í
Eskilstuna þar sem ég er í skóla og
spila handbolta með HK Eskil.“
Framganga Elíasar í handboltanum
í vetur hefur vakið mikla athygli en
allt frá því hann kom til Svíþjóðar
hefur hann verið viðloðandi hand-
boltann utan síðasta vetur þegar tím-
inn fór í að kynna hljómdiskinn góða.
„Fyrsta veturinn byrjaði ég að spila
með SHB en sá klúbbur var þá í 2.
deild norður. Árið eftir fór ég til Guif,
sem er góðtemplaraklúbbur sem hefur
fóstrað menn eins og Thomas Svens-
son sem flestir handknattleiks-
unnendur á Islandi þekkja. Þar var ég í
tvö ár og seinna árið var ég lánaður
sem spilandi þjálfari til Farma-
kluppsins EHK. Það er svona hliðar-
klúbbur sem Svíamir nota til að halda
mönnum í leikæfmgu en úr þeim er
hægt að skipta yfir í aðalklúbbinn með
tveggja vikna fyrirvara. Við komumst
upp og töpuðum aðeins einu stigi.
Sjálfur var ég markahæstur þannig að
þetta var helvíti hressandi vetur hjá
mér. Þaðan fór ég til Uppsala þar sem
ég lék með HK 71 næstu tvö árin.
Eftir það var ég klúbblaus í eitt ár og
ætlaði að hætta. Spilaði ég fótbolta
með 6. deildarliði og var í þrjá mánuði
í trúbadorastandi á Islandi."
Leggur sig 100uo frani
Þama tókst blaðamanni skjóta inn
spumingu um hvemig salan á
hljómdiskinum hefði gengið. „Mér
skilst að hann hafi gengið þokkalega,"
svaraði Elías og hélt áfram að rekja
ferilinn í handboltanum. „Nú síðast
hef ég svo verið að spila með HK
Eskil og hefur okkur gengið framar
öllum vonum. Ég hef lagt mig 100%
fram í öllum leikjunum og það kostar
sitt þegar maður er fæddur 1964 og
því kominn vel á fertugsaldurinn,“
segir Elías og hlær.
Þegar Elías er að alast upp í
Vestmannaeyjum er heimurinn grænn
og blár. Grænt stóð fyrir Knatt-
spyrnufélagið Tý og blátt fyrir
Iþróttafélagið Þór. Elías var fæddur
inn í Þór þar sem hann lék handbolta í
meistaraflokki þar sem var að finna
einstaklinga sem settu svip á um-
hverfið og gera enn. „Með mér vom
m.a. Palli Scheving, Eyþór Harðarson,
Sigmar Þröstur, Baui, Þór Valtýs, Ási
Friðriks að ógleymdum Þorbergi
Aðalsteins sem kom eins og
stormsveipur inn í handboltann í Eyj-
um. Hann kom okkur upp í I. deild
þar sem við vomm í einn vetur. Síðar
voru Týr og Þór sameinaðir í hand-
boltanum og komumst við upp annað
árið sem Eyjólfur Bragason þjálfaði
okkur. Þar var ég með strákum eins og
Jóni Braga, Steina Vitta, Sigga
Friðriks, Oskari Frey og Jóa Péturs.
Allt fínir peyjar sem stóðu sig þá og
gera enn.“
Átímamótum
Elías stendur á ákveðnum tímamótum.
Hann er með prófskírteini í höndunum
frá góðum skóla sem á að tryggja
honum vinnu bæði hér á landi og í
Þama er íslendingurínn Kristján Andrésson að gefa á stórskyttuna Elías sem að sjálfsögðu skoraði og var markahæstur.
Mvnd: FolkeiMorgontidningen.
Svíþjóð. Hugurinn leitar heim og hann
gæti hugsað sér að koma heim og
enda ferilinn með ÍBV. „Eskil er í 3.
deild og á hraðri leið upp í 2. deild.
Það eru að verða ákveðin kyn-
slóðaskipti í liðinu og af tólf manna
hóp eru sjö strákar úr öðrum flokki.
Þar er fremstur í flokki íslendingurinn
Kristján Andrésson, sonur Andrésar
Kristjánssonar sem lék hér áður með
FH og Haukum og var á línunni í
landsliðinu. Núna erum við í öðru sæti
og og eigum einn leik eftir fram að
jólum. Ég er þokkalega ánægður með
minn hlut, er yfirleitt með átta til níu
mörk í leik þrátt fyrir að vera yfirleitt
tekinn úr umferð. Ég veit að strákamir
eiga eftir að klára þetta þó ég verði
ekki með. Ég er tilþúinn til að koma
heim og byija með IBV eftir áramótin.
Ég kem heim fyrir jól til að hjálpa
mömmu í Blómabúðinni. Ég kem til
með að nota tímann til að skoða mín
mál. Ég er með gott próf frá góðum
skóla. Skólinn er einkaskóli í eigu
WM-Data sem er stærsta tölvu-
fyrirtæki í Svíþjóð. Skólinn er bæði
fyrir starfsfólkið og aðra sem vilja afla
sér menntunar á þessu sviði. Skilyrði
fyrir inngöngu er stúdentspróf þannig
að námið er á háskólastigi. Það verður
spuming urn vinnu hvar ég kem til
með að setja mig niður. Ég sé enga
ástæðu til að hætta í handboltanum og
held því áfram, enda er maðurinn
ennþá unglamb,“ segir Elías
Bjamhéðinsson að lokum.
Rauði liturinn er
áberandi núna
Það er orðið næsta árvisst að
verslunin Oddurinn opnar í nýju
húsnæði fyrir jólin. Að þcssu sinni
hefur verið opnuð verslun að
Bárustíg 9, í Hólshúsi eða Kreml.
„Það er rétt,“ sagði Sigurgeir,
kaupmaður í Oddinum. „Þó svo að
búðin við Strandveginn sé drjúg þá
annar hún þessu ekki í desember.
Það em aðallega leikföngin sem
valda því en bæði em þau fyrir-
ferðarmikil og eins er magnið mikið
þar sem við kappkostum að bjóða
upp á hið sama og er á boðstólum á
höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er 6. staðurinn sem við prófum
að setja upp aukaverslun á. Við
fömm að verða vel æfð í slíku,
spuming hvort maður getur ekki tekið
að sér uppsetningu og ráðgjöf fyrir þá
sem þurfa að standa í slíku.
En þetta er góður staður þótt hann
sé ekki stór. Við emm þarna nær
eingöngu með leikföng og um 90%
af þeim eru ný á markaðnum. Mjög
mikið af þeim leikföngum er úr
jólalistanum sem við látum dreifa á
hverju ári og nýtur sívaxandi
Harpa Kolbeins við afgreiðslustörf í Oddinum í Kreml.
vinsælda. Verðið á leikföngunum er
líka hið sama og í Reykjavík og við
emm ánægð með að vera sam-
keppnisfær á jtessum markaði.
Að sjálfsögðu er rauði liturinn mjög
áberandi á nýja staðnum, annað væri
óeðlilegt og svo er nú rautt Ifka litur
jólanna,“ sagði Sigurgeir að lokum.