Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.1999, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 14.janúar 1999
Tvöinnbrot
Mestur tími lögreglu fór um þessa
helgi í margumrætt hassmál sem
tjallað er um annars staðíir í
blaðinu. Sé það frátalið vom
bæjarbúar fremur löghlýðnir um
helgina, t.d. engar kærur vegna
Ifkamsárása. Þó var brotist inn á
tveimur stöðum um helgina.
Annað innbrotið var í Geisla við
Flatir. Þar var brotin upp hurð og
farið inn en engu stolið enda mun
viðvörunarkerfi, sem fór í gang,
hafa fælt þjófana á braut. Svo var
brotist inn í Turninn aðfaranótt
sunnudags og þar stolið sígarettum
og myndbandsspólum. Spólurnar
em allar merktar Turninum og væri
rétt að foreldrar athuguðu í hirslum
afkvæma sinna hvort slíkar spólur
lcynast þar. En lögreglan óskar
eftir upplýsingum unt bæði þessi
innbrot.
Sparisjóöurinn sér
uminnheimtuna
Á fundi bæjarráðs sl. mánudag lágu
fyrir drög að samningi við
Sparisjóð Vestmannaeyja um
innheimtu og greiðslu fasteigna-
gjalda 1999. Áður var þessi
innheimta á höndurn bæjarsjóðs en
í haust var Inin boðin út og ntun
Sparisjóðurinn sjá um hana í ár. Þá
samþykkti bæjarráð að gjalddagar
fasteignagjalda yrðu 20. hvers
ntánaðar í stað 15. og einnig að
staðgreiðsluafsláttur verði 7% í stað
5% ef fasleignagjöld em að fullu
greidd fyrir 15. febrúar.
flrnesingar
atkvæðamiklirí
prófkjöri
sjálfstæðismanna
Nú fer að styttast í prófkjör
sjálfstæðismanna í Suðurlands-
kjördæmi. Tíu manns hafa geiið
kost á sér í prófkjörið og vekur
athygli að flestir koma frá Selfossi
og úr Árnessýlu. Aðeins einn
kemur úr Eyjum og tveir úr
Rangárvallasýslu.
Eftirtaldir gefa kost á sér í
prófkjörinu sem fer l'ram 6. febrúar:
1. Þórunn Dríl'a Oddsdóttir, Stein-
grímsstöð, Grímsn. og Grafn. hrl.,
2. Kjartan Þ Ólafsson, Hlöðutúni.
Ölfusi, 3. Ámi Johnsen. Höfðabóli,
Vestmannaeyjum, 4. Kjartan
Björnsson, Jómtúni 3, Selfossi, 5.
Kristín S Þórarinsdóttir, Básahrauni
47, Þorlákshöfn, 6. Ólafur Bjöms-
son, Starengi I, Selfossi, 7.
Víglundur Krisljánsson, Ártúni 2,
Hellu, 8. Óli Rúnar Ástþórsson,
Hafnartúni I. Selfossi, 9. Drífa
Hjartardóttir, Kcldum, Rangár-
vallahreppi og 10. Jón Hólin
Stefánsson, Gljúfri, Ölfusi.
Frá Vestmannaeyjum kemur
Ámi Johnsen og Drífa Hjartardóttir
og Víglundur Kristjánsson koma úr
Rangárvallasýslu. Aðrir eru frá
Selfossi og úr Árnessýslu.
Núvilég
Athygli vakti að um leið og
ríkisstjómin kynnti hugmyndir
sínar um menningarhús á lands-
byggðinni rifjaðist upp fyrir
Selfyssingum að þeir hafa í 15 ár átt
ófullgerðan bíósal. Vilja þeir nú fá
sneið af mcnningarhúsakökunni og
Ijúka við salinn. Ekki virðist þörftn
samt vera mikil miðað þann tíma
sem salurinn hefur verið í smíðum
Lífeyrissjóðirnir á landsbyggðinni snúa bökum saman:
Samningar haffnir um samruna Qög-
urra sjóða að frumkvæði Eyjamanna
Magnús Kristinsson við undirritun samnings um samrunaviðræður
lífevrissjóðanna fjögurra.
Á föstudaginn undirrituðu stjórnir
Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, Líf-
eyrissjóðs Austurlands, Lífeyris-
sjóðs verkalýðsfélaga á Norðurlandi
vestra og Lífeyrissjóðs Norðurlands
undir viljayfirlýsingu um að könn-
uð verði hagræðing af samruna
þessara sjóða. Er þetta gert í Ijósi
þeirrar staðreyndar að á síðustu
árum hafa margir lífeyrissjóðir
verið að sameinast og hefur hvatinn
verið að koma upp styrkari og
stærri sjóðum með hagsmuni
sjóðfélaga að leiðarljósi.
í frétt af fundinum, sem fram fór í
Vestmannaeyjum með þátttöku
stjómarmanna í öllum sjóðunum, segir
að verði sameining ofangreindra sjóða
að veruleika verði til einn öflugasti
lífeyrissjóður landsins með eignir upp
á 35 milljarða króna. í sömu frétt segir
að með tilkomu laga frá árinu 1997
um starfsemi lífeyrissjóða og vegna
breytinga á lögum um tekjuskatt
vegna viðbótarlífeyrisspamaðar verði
umtalsverðar breytingar á starfsum-
hveríi sjóðanna.
„Þessar breytingar munu m.a. leiða til
vemlega aukinnar samkeppni, bæði
milli lífeyrissjóða og við nýja aðila
sem bjóða lífeyrisspamað, s.s. banka
og fjármálafyrirtækja. Gera má ráð
fyrir að á komandi árum aukist mjög
úrval þeirra valkosta sem boðnir verða
í lífeyrismálum á sviði lífeyristrygg-
inga og spamaðar. Gerir þetta auknar
kröfur til lífeyrissjóðanna og þeirrar
vöm sem þeir bjóða. Innlendur
fjármálamarkaður hefur þróast mjög
hratt á undanförnum ámm og með
heimildum til fjárfestinga erlendis
hefur allt fjármálaumhverfið tekið
miklum breytingum. Sjóðimir
fjárfesta nú í mörgum tegundum
innlendra og erlendra verðbréfa sem
eykur möguleika á bættri ávöxtun
þeirra en gerir umhverfið jafnframt
llóknara og áhættusamara en áður var
og eykur kröfur um sérfræðiþekkingu
á sviði fjárfestinga. Það er í ljósi
þessara breyttu aðstæðna sem stjómir
sjóðanna vilja kanna samruna þeirra.
Stórir og öflugir lífeyrissjóðir hafa
mun betri forsendur til að mæta
þessum nýju aðstæðum og tryggja
sjóðsfélögum sínum ávallt bestu
þjónustu og góða ávöxtun," segir í
fréttinni.
Mikil vinna er framundan og á
næstunni munu sjóðimir gera ítarlega
könnun á hagkvæmni sameiningar.
Stefnt er að því að málið verði
rækilega kynnt fyrir sjóðsfélögum og
aðildarfélögum sjóðsins á næstunni.
Það kemur svo í hlut ársfunda
lífeyrissjóðanna að ákveða endanlega
hvort af þátttöku þeirra verður og er
stefnt að ákvörðun fyrir mitt ár.
Á fundinum kom fram að mikil-
vægt sé fyrir byggðarlög á lands-
byggðinni að eiga sér öfluga lífeyris-
sjóði sem geta keppt við það sem best
gerist á þessum markaði. Eins og
kemur fram hér að framan starfa
þessir lífeyrissjóðir allir á landsbyggð-
inni og telja þeir það hlutverk sitt að
styðja við uppruna sinn jafnframt því
að veita sjóðsfélögum sínum bestu
mögulegu tryggingarvemd og
þjónustu. Það er því ljóst að samþykki
ársfundir sjóðanna sammna mun. nýr
öflugur lífeyrissjóður heija starfsemi í
upphafi nýrrar aldar.
Sjóvá-Almennar flytjast í
Geysi við Skólaveg
í síðustu viku opnaði trygginga-
félagið Sjóvá-Almennar nýja
umboðsskrifstofu sem Aðalsteinn
Sigurjónsson, fyrrum útibússtjóri
íslandsbanka í Eyjum, veitir for-
stöðu.
Aðalsteinn tekur við umboðinu af
Richard Þorgeirssyni sem hefur haft
það á hendi í áratugi. Richard var
með aðstöðu heima hjá sér fyrir
starfsemina en nú hefur umboðið flutt
að Skólavegi 21, í Geysishúsið, sem
fengið hefur vemlega andlitslyftingu.
Með Aðalsteini starfar Þómnn
Jónsdóttir sem áður var hjá Richard.
„Við munum bjóða upp á allar
venjulegar tryggingar eins og verið
hefur hjá Sjóvá-Almennum hér í
Eyjum,“ sagði Aðalsteinn. „Til að
byrja með verða engar stórar
breytingar á starfseminni en það er
gaman að geta boðið viðskiptavinum
upp á að koma til okkar í nýstandsett
húsnæði sem myndar skemmtilegan
ramma um starfsemina. Hvað sjálfan
mig snertir þá er ég að fara inn á
nýjan starfsvettvang en óttast þó ekki
neitt og sé fram á ánægjulegt starf.“
Aðalsteinn og Þórunn, starfsfólk Sjóuá í Eyjum.
FRAMHALDSSKÓLINN
ÖLDUNGADEILD
Innritun í öldungadeild FÍV er haftn á skrifstofu skólans, símar
481 -1079 og 481 -2499. Skráð er í eftirtaldar greinar:
Spænsku (SPÆ 103 og 203), Siðfræði (SIÐ 102),
Mannkynssögu(SAG233), Myndlist(MYN102), Tölvunámskeið, bæði
fyrir byrjendur og lengra komna. Kjamagreinar (ensku,
dönsku, íslensku og stærðfræði), áfangar ráðast af aðsókn.
MEISTARASKÓLI: Auglýst er eftir iðnsveinum sem áhuga hefðu á
að taka hluta af meistaraskóla í öldungadeildinni.
Innritunargjald í öldungadeild er 9000 kr. fyrir hvern áfanga, nema
tölvunámskeiðin sem verða eitthvað dýrari (nánar auglýst seinna).
Innritunarfrestur er til þriðjudagsins 19. janúar.
Skólameistari
Söngnámskeið
IngveldurÝr Jónsdóttir, messóssópransöngkona, heldurannað
söngnámskeið vetrarins í Listaskólanum dagana 13,- 21. janúar.
Ennþá er hægt að komast að og þurfa væntanlegir þátttakendur
að skrá sig sem fyrst hjá Guðmundi H. Guðjónssyni, skólastjóra
Tónlistarskólans eða umsjónarmanni Listaskólans í síma 481-
1841 og veita þau jafnframt allar nánari upplýsingar.
Skólamálafulltrúi
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinnæ Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjómar Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481 -3310. Myndriti: 481 -1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: hrtp//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.