Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.1999, Síða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur I4.janúar 1999
Ferðahappdrætti
Flugfélags Islands
2. útdráttur af sex
Taktu fram flugáætlun okkar, sem þú fékkst með Morgunblaðinu
6. desember, og kannaðu hvort númerið á henni er meðal
lukkunúmera mánaðarins.
Lukkunúmer janúarmánaðar eru:
5.281 21.843 30.365
20.481 25.810 47.777
Við óskum vinningshöfum til hamingju og óskum peim góðrar ferðar.
Hver vinningur felur ísér ferð fyrir tvo,fram og til baka, til hvaða
áfangastaðar Flugfélags íslands sem er - innanlands.
Vinninga skal vitjað í síma 570 3600.
Næst verður dregið í lokfebrúar.
V/SA
FLUGFELAG ISLANDS
- fyrir fólk eins og þig
Lesendabréf -Þorsteinn Olafsson
Nýr valkost-
íslenskum
ur i
stjórnmálum
Dagana 4. og 5.
desember kom
saman hópur fólks
úr ýmsum starfs-
greinum hvaðan-
æva að af landinu.
Það er sammerkt
með þessu fólki að
því finnst vanta trúverðugan valkost í
íslenskum stjómmálum.Valkost sem
hefur manneskjuna og umhverfi henn-
ar í fyrirrúmi.
Það má spyrja hvort þeir stjóm-
málaflokkar, sem okkur verður boðið
upp á að kjósa í vor, bjóði ekki þessa
valkosti. Því miður teljum við að
reynslan sýni að svo sé ekki. Þeir hafa
ekki sýnt það á undanfömum ámm
þegar þeir hafa haft tækifæri til þess í
stjómarsetu. Fátækum hefur íjölgað í
góðærinu og þeir ríku leggja stöðugt
minna af gróðanum til samneyslunn-
ar. Þeim em hinsvegar færðar eignir
ríkisins á silfurfati í formi hlutabréfa,
sem greinilega eru seld langt undir
markaðsverði. Ennþá er fólki boðið að
vinna fyrir launum sem em langt
undir framfærslumörkum. Stöðugt er
tekið af þeim sem fá tryggingabætur,
bætumar em skertar og ekki látnar
fylgja verðlagi, hvað þá launaskriði
þeirra betur launuðu. Þríflokkurinn er
samsekur um skerta heilbrigðisþjón-
ustu og upptöku þjónustugjalda.
1 umhverfismálum tekur þríflokk-
urinn ekki skýra afstöðu gegn stóriðju
og stórvirkjun.
í utanríkismálum leitar hann leiða
að Evrópusambandinu. Formaður
Framsóknarflokksins tók undir með
nýjum raddboða nýlega. Kratarnir
bíða aðeins fram yfir kosningar áður
en þeirra rödd kemur aftur inn, með
styrk ffá sambræddum Alþýðubanda-
lagsmönnum. íhaldið æfir sína
Evrópubandalgsrödd í peningamust-
emm fijálshyggjunnar.
í þríflokknum er einnig meirihluti
fyrir áframhaldandi hersetu og virkri
þáttöku í dátaleikjum Nató með því að
leggja til landið og miðin sem
heræfingasvæði fyrir „friðarbanda-
lagið“.
Því miður er svo komið í íslenskum
stjómmálum að hér bítast þrír flokkar
um völd. Það er misskilningur að
þessir flokkar séu miðjuflokkar, því
innan þeirra allra starfa áhrifamenn
sem em hreinræktaðir hægri menn og
væm gjaldgengir í hvaða íhaldsflokki
sem er í Evrópu. Raddir félagshyggju
og samhjálpar, sem þó hafa heyrst þar
áður, verða æ veikari.
Hópurinn sem hittist um daginn
ætlar að bjóða fram valkost sem beitir
sér fyrir róttækum þjóðfélagsum-
bótum almenningi til hagsbóta. Vill
útrýma kynjamisrétti og hefja vemd
náttúm og umhvefis til vegs á íslandi.
Hann ætlar að standa vörð um
sjálfstæði lands og lýðs og rétt okkar
til að setja okkur reglur á eigin
forsendum og semja við hverja þá
þjóð sem við æskjum.
Við köllum okkur Vinstrihreyf-
inguna, grænt framboð og áformum
að stofna stjómmálaflokk í byrjun
febrúar. Við köllum eftir liðveislu og
umræðum við alla þá sem ofbýður
aðförin að velferðarkerfinu, náttúr-
unni, byggðarlögunum og sjálfstæði
þjóðarinnar.
Höfundur er dýralœknir á Selfossi
Námskeiö Slysavarnaskólans í
Eyjum ttytjast alfarið til Reykjavíknr
-leggist skipstjórnarnám afí Vestmannaeyjum, segir skólastjóri skólans
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa bjargað mörgum sjómanninum úr háska og
er buí nauðsynlegt fyrir bá að kunna rétt handtök.
í síðustu viku var Slysavarnaskóli
sjómanna starfandi í Eyjum jafnt
fyrir starfandi sjómenn og þá sem
eru á skipstjórnar- og vélfræði-
braut Framhaldsskólans, en alls
munu 36 nemendur hafa verið á
þessu námskeiði sem stóð í fimm
daga, en þetta er þrettánda starfsár
skólans.
Um áramótin ‘97/’98 gekk í gildi
ný reglugerð sem kveður á um að allir
sjómenn sem eru á skráningarskyldum
skipum verði að hafa lokið nántskeið-
um frá skólanum. Hilmar Snorrason,
skólastjóri Slysavarnaskólans og
slysavarnafrömuður, segir að það sé
alltaf jafn gaman að koma til Eyja, en
skólinn hafi starfað reglulega í
janúannánuði í Eyjum. „Hins vegar
er það áhyggjuefni ef fer sem horfir og
kennsla á skipstjómarbraut hættir hér í
Eyjum, auk þess sent talað hefur verið
um að auka kröfur til þeirra sem vilja
komast inn í skólann og vilja bæta við
réttindi sín í skipstjómamáminu. Ef
svo fer verða þessi námskeið Slysa-
vamaskólans bara haldin í Reykjavík í
framtíðinni."
Það var mikið um að vera þegar
blaðamaður leit á námskeiðið. Allir
þátttakendur komnir í flotgalla og
stóðu á bryggjunni og fylgdust með
Þráni Skúlasyni útskýra gildi Markús-
ametsins og sambærilegs búnaðar.
Að því loknu stökk einn mannanna í
sjóinn og stuttu síðar annar maður á
eftir honum með björgunamet með sér
sem hann kom félaga sínum í. Var
hann svo dreginn að landi og gekk vel
að ná honum upp á bryggjuna í netinu.
Þráinn segir það mikið atriði að menn
geti komist í nána snertingu við þau
björgunartæki sem eiga að vera um
borð í hverju skipi. „Menn verða að
þekkja inn á björgunarbúnaðinn og
vita hvemig hann virkar og hvar hann
er staðsettur. Námskeiðið miðar að
því að gera menn hæfari til þess að
mæta háska sem alltaf er til staðar á
sjó. Hins vegar er það von allra að
aldrei þurfi að koma til þess að nota
búnaðinn."
En ekki var öllu lokið enn því
björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar
rauf kyrrðina. Það átti að lofa
mönnum að finna hvemig það væri að
láta hífa sig um borð í þyrlu af sjó og
frá skipi. Tókst það allt hið besta og
menn reynslunni ríkari eftir daginn.
Var svo formleg útskrift síðar um
daginn hvar menn tóku við skírteinum
árituðum á íslensku og ensku þar sem
vottað var að viðkomandi hefði lokið
téðu námskeiði. Við það tækifæri
sagði Hilmar Snorrason að menn
skyldu ætíð halda vöku sinni því aðal
atriðið væri að koma í veg fyrir slys
og menn mættu ekki gleyma því að
stærsta og besta öryggistæki sjó-
mannsins væri skipið sem hann væri
á. „Eg vona að eitthvað sitji eftir af
því efni sem við höfum farið yfir og
menn reyni að tileinka sér skipulagðan
hugsunarhátt þegar um öryggi
áhafnarinnar er að ræða og menn
standa hugsanlega frammi fyrir því
óvænta. Menn skyldu ekki gleyma
því að öryggismál eru mál allrar
áhafnarinnar," sagði Hilmar að lokum.
Meðierð Markúsarnetsins kennd.