Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 1
Myndina tók Snorri í Betel Begar hann skrapp með nemendur sína í sleðaferð í uikunni. Uóskastara í brekk- urnar í Herjólfsdal Krakkar á öllum aldri hafa fjölmennt inn í Dal til að renna sér í snjónum sem aldrei þessu vant hefur haft nokkra viðdvöl í Eyjum. Sér ekki enn fyrir endann á snjónum og verður því örugglega vinsælt að bregða undir sig sleða eða snjóbretti í Dalnum. I þessu sambandi hefur Sigurður Jónsson frá Húsavík komið með þá hugmynd hvort ekki sé rétt að koma upp Iýsingu í brekkurnar. Rafmagn er til staðar og ætti ekki að vera erfitt að koma upp staurum, setja á þá kastara til að Iýsa upp brekkurnar eftir að skyggja tekur. Brunavamir endumýjaðar í Byggðasafninu í vikunni var hafist handa með viðgerðir á Byggðasafni Vestmannaeyja og hefur safninu verið lokað fram á vor meðan á endurbótum stendur. Að sögn Einars Birgis Einarssonar trésmíðameistara sem sér um framkvæmdina snýst hún fyrst og fremst um að koma brunavömum safnsins í rétt horf. „Við verðum því að brunahólfa loftin. auk þess sem nýtt og fullkomið bmna- vamakerfi verður sett upp, og settur neyðarútgangur. Einnig verður stiga- gangur dúklagður." Einar Birgir segir að verkið gangi vel og að verkinu verði lokið í byrjun apríl. Bæjarveitur: Draga hækkun til baka Stjórn Bæjarveitna ákvað um áramótin að hækka orkugjöld til húshitunar og lýsingar um 1,32% en með endurskoðun á gjaidskrá hitaveitu var ákveðið að binda hana breytingum á neysluvísitölu hverju sinni. Nú hefur stjórnin ákveðið að draga þessa hækkun, sem taka átti gildi um áramótin, tíl baka þannig að orkuverð verður óbreytt. „Það sem gerðist í millitíðinni er að Bæjarveitur fá auknar niðurgreiðslur úr ríkissjóði," segir Friðrik Friðriksson veitustjóri. „Þegar hækkunin var samþykkt gerðum við ráð fyrir ýtrasta spamaði og framkvæmdum í lágmarki. Kom það af sjálfu sér vegna skerðingar á afgangsorku og hærri orkukaupum vegna olíubrennslu. Þegar hækkun á niðurgreiðslum var ákveðin var fjárhagsáætlunin endurskoðuð og út úr því kom að okkur fannst ástæðu- laust að hækka. Mér finnst engin ástæða til að hækka, þó heimildin sé fyrir hendi, ef við höfum ekki þörf fyrir hana. Samtals léttir þetta orkugjöld bæjarbúa um tæpar 6 milljónir króna,“ sagði Friðrik að lokum og er þetta hrein kjarabót fyrir orkunotendur. Prófkjör sjólfstæðismanna: Frambjóðendur kynna sig Það hefur vart farið framhjá fólki að flokkur allra stétta, Sjálf- stæðisflokkurinn, eins og hann hefur stundum kallað sig þegar mikið liggur við, hyggst efna til prófkjörs í Suðurlandskjördæmi þann 6. febrúar næst komandi. Frambjóðendur em því famir að verða nokkuð sýnilegir í kjördæminu og Vestmannaeyingar ekki farið var- hluta af þessu brölti frambjóðenda, og sýnist sitt hveijum. Vegna prófkjörsins mun Sjálf- stæðisflokkurinn efna til opins kynn- ingarfundar á frambjóðendum sem taka þátt í prófkjörinu í Asgarði í kvöld klukkan 20:30. Þar gefst þeim tækifæri til þess að kynna Vest- mannaeyingum hugvekjur sínar og stefnumál þjóðinni til heilla, framfara og kannski gagns. Frambjóðendur munu flytja stutta framsögu og svara fýrirspumum. Það er full ástæða fyrir Vestmanna- eyinga sem áhuga hafa á velferð sinnar heimabyggðar að fjölmenna á fundinn og kanna hver hugur fram- bjóðenda er til Eyja. Ekki síst í ljósi þess að einungis tveir þessara frambjóðenda af tíu em og telja sig Eyjamenn. Auk þess hafa frambjóendur verið duglegir við að kynna sig með því að ganga í fyrirtæki og stofnanir til að sýna sig og sjá aðra. Er það merki um að farið sé að hitna í kolunum. ALLIR í BÁTANA!! í síöustu viku var haldin björgunaræfing um borð í Herjólfi. Fengið varfólk úr landi til að leika farþega og hér er Lárus skipstjóri kominn í einn björgunarbátinn og að sjálfsögðu var hann síðastur eins og skipstjóra sæmir. Sjá bls. 15 Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f. RÉTTINGAR OG SPRAUTUN: Flötum 20 - Sími 481 1535 VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ: Græðisbraut 1 - sími 481323 Vetraráœtlun Herjólfs Mán - lau Sunnudaga Frá Eyjum Frá Þorl.höfn kl. 08.15 kl. 12.00 kl. 14.00 kl. 18.00 14eriólfur /rníaw ái/ið Sími 481 2800 Fax 481 2991 E8TMANNAEYINGA

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.